Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN „Segið börnunum að treysta mér“, sagði Reagan er hann tilkynnti um ákvörðun sína að grafa 100 langdraegar eldflaugar hlaðnar kjarnorkusprengjum í jörðu í Wyoming í. Sjá 6. 24 nóvember 1982 47. árgangur 263. tölublaðð Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú tekið upp gamla vinnulagið og ætl- ar sér að halda minnihlutanum frá öllum upplýsingum um meiri hátt- ar mál, sagði Sigurjón Pétursson í gær en meirihluti borgarráðs fclldi í gær tillögu frá honum um skipun viðræðunefndar við ríkið vegna Keldnamálsins. Ég vitna til þess, sagði Sigurjón, að á síðasta kjörtímabili var starf andi þriggja manna nefnd sem m.a. var ætlað var ræða við ríkið um Keldnaland. Nefndin lagði að sjálfsögðu niður störf að loknum kosningum og nú þegar viðræður eru hafnar er tímabært að ný nefnd verði skipuð með sama hætti, 2 frá meirihluta og 1 frá minnihluta. Ég tel rétt og nauðsynlegt að minnihluti borgarstjórnar eigi aðild að þessum viðræðum, sagði Sigurjón, en Sjálfstæðisflokkurinn er á annarri skoðun. í bókun nefna þeir að viðræður séu þegar hafnar, og að borgarstjóri hafi sett nefnd í gær. Borgarráð hefur enga skýrslu fengið um gang þessarra viðræðna, sagði Sigurjón, né heldur niður- stöður ráðuneytisins um landrým- isþörf stofnana á Keldnalandi. Nefndin, sem þeir kalla svo er skipuð af Davíð Oddssyni einum og í henni sitja tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og borgar- verkfræðingur. - Nú er þessi skýrsla um land- rýmisþörf komin til blaðanna, hef- ur borgarráð ekki fengið hana í hendur? Nei. Það er sennilega orðið nauðsynlegt að snúa sér beint til ráðuneytisins nú þegar ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér að halda minnihlutanum frá öllum upplýsingum um málið, sagði Sig- urjón Pétursson. vsí á móti lengra orlofi Vinnuveitendasamband Is- lands hefur í bréfi til Félags- málanefndar Neðri deildar Alþingis ítrckað andstöðu sína við frumvörp um fjölgun orlofs- og frídaga og áréttar þá skoðun sína að orlofsmál eigi að vera viðfangsefni samninga aðila vinnumarkaðarins. í frumvarpi ríkisstjórnar- innar um lengingu orlofs svo og frumvarpi VilmundarGylfa- sonar o.fl. um að ekki megi skylda verkafólki til að taka orlof nánast hvenær sem er, felast tillögur sem hafa eink- um eftirfarandi í för með sér: 1. Orlof lengist um 4-7 daga. 2. Allt orlofið, þ.e. 28 virka daga skal veita í einu lagi á tímabilinu frá 2. maí til 15. september. 3. Orlofsfé skal vera að lágmarki 10.17% af launum. 4. Frídögum fjölgi um einn, þ.e. frídagur versl- unarmanna hlotnast öllu launafólki. Vinnuveitendasambandið minnir á að á þessu ári hafi orðið verulegur samdráttur í þjóðarframleiðslu og að horf- ur séu á enn meiri samdrætti á næsta ári. Segir í frétt frá VSÍ að þessi frumvörp, ef sam- þykkt verða, leiði til 2.18% samdráttar heildarvinnutíma. Það þýði um 1.5% minnkun þjóðartekna á mann. A- kvörðun Alþingis um lengingu orlofs jafngildi því í raun 1.5% kjaraskerðingu umfram það sem aðrar aðstæður kunna að leiða af sér. - Sjá einnig á bls. 16. - V. au iiiagui. nijm tiiutu ui .ijuntu luuiiuiuiiigui u uvjoiu t ut uiu enn um 14%! Hver skyldir innflutningurinn verða í jólamánuðin- um, sem nú er framundan? Karlarnir á Reykjavíkurhöfn höfðu að minnsta kosti nóg að gera við uppskipun úr Skaftánni í gær. Ljósm. gel. Minnlhlutmn úti- lokaður frá viðræðum Svavar Gestsson í umræðunum á alþingi í gær Ríkisstjórnin heggur á hnútinn Kosið í apríl eða fyrr vantraustsyfirlýsing felld - Stjórnarandstaðan sleit viðræðum við ríkisstjórnina án málefnalegrar ástæðu, sagði Svav- ar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins á alþingi í gær: „Þannig brást stjórnarandstaðan lýðræðislegri skyldu. Ríkisstjórnin mun því höggva á hnútinn. Eins og forsætisráðherra skýrði frá er það ætlun ríkisstjórnarinnar að ekki • verði kosið síðar en í april, en fari svo að stjórnarandstaðan stöðvi hér lífsnauðsynleg mál á næstu dög- um verður auðvitað að efna til kosninga fyrr.” Gunnar Thoroddsen sagði m.a. að rétt væri að kjósa eftir sumar- daginn fyrsta í lok apríl. Auk Sva- vars töluðu þeir Hjörleifur Gutt- ormsson og Ragnar Arnalds fyrir Alþýðubandalagið. Nokkra athygli vakti hversu Al- þýðuflokkurinn var iðinn við að ganga frá sér. Vilmundur Gylfason talaði gegn „samtryggingu flokk- anna”, og ólýðræðislegum vinnu- brögðum innan Alþýðuflokksins - og sagði dæmisögur af þeim. Vil- mundur taiaði gegn því að völd söfnuðust á fárra manna hendur. Jafnframt viðraði hann hugmynd um utanþingsstjórn undir forsæti Jóhannesar Nordal. Jón Baldvin Hannibalsson réðst af hörku gegn Vilmundi en Sig- hvatur Björgvinsson hélt eins kon- ar útfararræðu eftir brottför hans úr Alþýðuflokknum. „Merkið stendur þó maðurinn víki”, sagði Sighvatur. I lok ræðu sinnar sagði Svavar Gestsson m.a.: „íslenskir vinstri menn hljóta að sameinast um Al- þýðubandalagið eftir að Alþýðu- flokkurinn er klofinn niður í rót, þegar Framsóknarflokkurinn er orðinn milliflokkur að eigin sögn. Alþýðubandalagið er albúið í kosningar”. -óg Ákveðið hefur verið að halda ráðstefnu um umhverfis- og skipulagsmál á vegum AB en flokksráð átaldi m.a. störf hringormanefndar og varaði við því að banni við hvalveiðum verði mótmælt. Hvaða efni ber að varast á vinnustaðnum? Hvernig geta áhrif þeirra verið? Til hvaða ráðstafana er hægt að grípa gegn áhrifum þcirra? Fundur fjármála- og vinnumálaráðherra Norðurlanda: 650.000 íbúa Norðurlanda eru atvinnulausir Athygli vakti hið ] á Islandi Á fundi vinnumálaráðherra Norðurlanda, sem haldinn var dag- ana 11. og 12. nóvember s.l., koin fram að á miðju þessu ári voru atvinnulcysingjar í löndunum 5 um 650.000 en það svarar til 5% af mannafla á vinnumarkaði. Jafn- framt vakti athygli hversu íslensk- um stjórnvöldum hefði tekist að bægja atvinnuleysisvofunni frá dyrum Islendinga. Dagana 11. og 12. nóvember héldu fjármála- og vinnumálaráð- herrar Norðurlandanna fund í Abo í Finnlandi. í sameiginlegri ályktun fjármálaráðherranna er látinn í ljós uggur vegna þeirrar kreppu og atvinnuleysis sem staðið hefur og að fátt bendi til breytinga til hins tla atvinnuleysi betra á næstunni. Ráðherrarnir töldu að þörf væri á auknu sam- starfi Norðurlandanna á alþjóða- vettvangi til úrbóta í þessu efni. Vinnumálaráðherrarnir héldu fund með aðilum vinnumarkaðar- ins og af hálfu launafólks sátu fund- inn forystumenn og sérfræðingar Norræna verkalýðssambandsins (NFS). í tillögum NFS er gert ráð, fyrir sameiginlegri norrænni stefnu- mörkun um efnahagslega þróun og fulla atvinnu þar sem dregin eru fram helstu atriði sem að dómi samtakanna þurfa að vera í slíkri stefnuyfirlýsingu. V ar ákveðið í lok fundarins að Norræna vinnumark- aðsnefndin skyldi gera tillögur um á hvern hátt megi samhæfa stefnu Norðurlandanna í efnahags- og at- vinnumálum. -V.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.