Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 24.11.1982, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 24. nóvember 1982 þjóÐVILJINN — SIÐA 7 Létta söluskatti af snjómokstri: Svifasein afgreiðsla góðra mála sagði Hannes Baldvinsson sem ýtti málinu úr vör fyrir sjö árum - Það eru komin sjö ár síðan ég vakti fyrst athygli á þessu misrétti hér á þinginu, og ekki líst mér vel á að afgreiðsla góðra mála taki jafn langan tíma yfirleitt, sagði Hannes Baldvinsson í umræðunum um að söluskatti af snjómokstri yrði létt af sveitarfélögum. Hannes hefur flutt frumvörp þessa efnis oftsinnis á þinginu þar sem hann situr nú sem varamaður Ragnars Arnalds. Páll Pétursson og Ingólfur Guðnason eru nú flutningsmenn frumvarps þessa efnis - en þeir eru einnig úr Norðurlandskjördæmi vestra. Hannes Baldvinsson sagði sérstakt ánægjuefni að styðja þetta frumvarp, jafnvel þó það kæmi frá þeim tveimur mönnum sem hindr- uðu framgang málsins á síðasta þingi, en þá var frumvarp sama þingsjá efnis til umfjöllunar í þinginu flutt af Hannesi Baldvinssyni og Skúla Alexanderssyni. Verma sitt grey við annarra eld Hannes Baldvinsson vakti einnig athygli á vinnubrögðum flutnings- manna. Frumvarpið væri nánast samhljóða frumvarpinu frá síðasta þingi. Hannes sagði að sér væri ekki kunnugt um það hvort vinnu- brögð af þessu tagi væru algeng í þingsölum; sér væri reyndar nær að halda að hugmyndahnupl í þessa Páll Pétursson: Tel Hannes Baldvinsson: mig hafa endurbætt Páll að verma sitt góða hugmynd. grey við annarra eld veru væri einsdæmi. Hér væru þeir þingskörungar Páll og Ingólfur Guðnason að verma sitt grey við annarra eld. Þá vakti Hannes athygli á fyrir- spurn sem hann hefur lagt fram en ekki enn verið tekin til afgreiðslu. Þar sem hann væri á förum úr þing- inu og hefði ekki aðstöðu til að fylgja fyrirspurninni eftir færi hann fram á það við Pál Pétursson að fylgja málinu eftir. Hann gæfi Páli leyfi til þess og teldi ekki óeðlilegt að haga þannig til í ljósi málatil- búnaðarins við að létta söluskatti af snjómokstri. Fyrirspurn Hannesar er um bótarétt vegna náttúruhamfara, en nýleg lög um bótarétt munu fyrst taka gildi um næstu áramót, svo óvíst er um rétt manna til bóta vegna síðustu skaða af völdum náttúruaflanna á Norðurlandi. Eggjaði Hannes Pál lögeggjan, að fylgja þessu máli eftir. Páll Pétursson sagðist ekki hafa hindrað málið á síðasta þingi. Sagði Páll frumvarpið breytt veigamiklum atriðum og að honum hefði tekist að endurbæta góða hugmynd. Páll lofaði einnig að fylgja eftir fyrirspurn Hannesar. -óg Taka sæti á þingi Baldur Óskarsson framkvæmda- stjóri Alþýðubandalagsins tók sæti á alþingi í fjarveru Garðars Sig- urðssonar sem nú situr á allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna. Baldur hefur áður átt sæti á þingi á þessu kjörtímabili. Meðal þeirra sem nú sitja á þing- inu er Jón Ármann Héðinsson sem situr í fjarveru Árna Gunnarssonar sem einnig er á þingi SÞ. -óg Fyrirspurn Skúla A lexanderssonar: Tilrauna- veiðar og nýtíng á smokkfiski Lögð hefur verið fram fyrir- spurn frá Skúla Alexanderssyni til sjávarútvegsráðherra um tilrauna- veiðar og nýtingu á smokkflsk- stofninum. Fyrirspurn Skúla er í fjórum svohljóðandi liðum: 1. Hefur verið fylgst með göngu smokkfisks á íslandsmið nú í sumar og undanfarin sumur? 2. Hafa verið gerðar tilraunir hér við land til veiða á smokkfiski með veiðarfærum sem vitað er að notuð eru af fiskimönnum annarra þjóða við veiðar á þessum fiski, t.d. flot- vörpu? 3. Hver eru framtíðaráform um nýtingu smokkfiskstofnsins hér við land? 4. Hve mikið var flutt inn af smokkfiski til beitu á hverju ári ár- in 1979, 1980 og 1981 - magn og verðmæti óskast tilgreint? —óg Könnun á fjár- hagsstöðu lág- launafólks „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara fram sérstaka könnun á fjár- hagsstöðu og afkomu lág- launafólks og lfífeyrisþega, þar sem m.a. verði könnuð sérstaklega áhrif myntbreyt- ingarinnar á hag þeirra sem lægst hafa launin”. Svo hljóðar þingsályktun- artillaga frá Eiði Guðnasyni og fleiri Alþýðuflokks- mönnum, sem lögð hefur ver- ið fram á þingi. -óg Vomur á stjómarandstöðunni? Boðar breyt- ingartillögur við bráða- birgðalögin Eyjólfur Konráð telur breytingar koma til álita „Ef málið fær nú fyrir náð að koma til 2. umræðu, munum við Sjálfstæðismenn að sjálfsögðu leitast við að ná fram einhverjum breytingum og sérstaklega mun- um við reyna að fá fram iækkanir á vörugjaldinu til að lina eitthvað á óðaverðbólgunni og knýja á um frekari skattalækkanir”, sagði Eyjólfur Konráð Jónsson í um- ræðunum í efri deild í fyrradag. Á öðrum stað í ræðunni lýsti hann að vísu andstöðu Sjálfstæð- isflokksins við bráðabirgðalögin, en spurningar hljóta að vakna um það hvort þingflokkurinn muni styðja bráðabirgðalögin með breytingum? -óg Fyrirspurn Hannesar Baldvinssonar: Bótaréttur vegna náttúruhamfara Lögð hefur verið fram fyrir spurn frá Hannesi Baldvinssyni til félags- málaráðherra um bótarétt vegna eignartjóns og fjárútláta af völdum nátt- úruhamfara og veðurofsa. Hanncs óskar eftir skriflegu svari við fyrir- spurn sinni sem er í flmm svohljóðandi liðum: 1. Hvererbótarétturþeirrasem nýverið hafa orðið fyrir stórfelldu eignatjóni og fjárútlátum af völd- um veðurofsa og sjávarflóða? 2. Hvernig er unnt að bæta eignatjón og fjárútlát af völdum aurskriðufallanna á Siglufirði um miðjan ágúst s.l.? 3. Hvernig er Bjargráðasjóður í stakk búinn til að veita aðstoð í framangreindum áföllum og hversu fljótt getur hann brugðist við til aðstoðar? 4. Er unnt að hraða gildistöku laga um breytingu á lögum um Viðlagatryggingu íslands og auka við lögin ákvæðum, ef nauðsyn krefur, sem tryggja ótvíræðan bótarétt í framangreindum tjóna- tilfellum sem átt hafa sér stað frá því lögin voru samþykkt s.l. vor? 5. Eruóbætttjóneinstaklingaaf framangreindum sökum ótvírætt frádráttarbær á skattframtölum? -óg Auglýsingasíminn er 8-13-33 00 Opið ALLAN Z'WS HREVFILL STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^N QC /

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.