Þjóðviljinn - 02.12.1982, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. desember 1982
Vígbúnaðarkapphlaupið:
„TH að hafa minna
þarftu meira”
Stefna Nato og Reagan-
stjórnarinnar í afvopnunarviðræð-
unum í Genf mætir nú
harðari gagnrýni, ekki bara frá So-
vétríkjunum, heldur einnig frá
áhrifamiklum aðilum innan
Bandaríkjanna og Nato.
Viðræðurnar í Genf fara fram í
tvennu lagi. Annars vegar eru það
viðræður um langdræg flugskeyti,
er fara á milli heimsálfa, hins vegar
eru það viðræður er snúast um tak-
mörkun meðaldrægra flugskeyta.
í viðræðunum hafa Bandaríkin
viljað takmarka sig við þau vopn
sem eru staðsett á landi í Evrópu.
Þau hafa með stuðningsyfirlýsingu
Nato-ríkjanna frá því í desember
1979 boðið upp á þann valkost að
Sovétríkin eyðileggi einhliða allar
SS-20 eldflaugar sínar sem staðsett-
ar eru á landi. Að öðrum kosti
muni Bandaríkin koma fyrir 572
kjarnorkueldflaugum í V-Evrópu.
í öðru lagi hafa Bandaríkin neit-
að að taka vopnabirgðir annarra
Nato-ríkja inn í dæmið þegar rætt
er um vígbúnaðarjafnvægið.
9400 : 7500
Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa
afstöðu Bandaríkjastjórnar í samn-
ingunum eru öldungadeildarþing-
mennirnir Edward Kennedy og
Mark O. Hatfield.
Þeir hafa bent á að hæpið sé að
einangra sig við Evrópu þegar rætt
er um jafnvægi í vígbúnaði. Þeir
hafa bent á að nú eiga Bandaríkin
um 9.400 sprengjuodda með kjarn-
orkusprengjum í langdrægar eld-
flaugar á meðan Sovétríkin eigi
7.500 eða um 1900 færri. Sovét-
menn búa ekki yfir eins ná-
kvæmum skotvopnum og því hafa
þeir öflugri sprengjur í sínum lang-
drægu eldflaugum. Þannig sam-
svarar sprengjumáttur langdrægra
eldflauga Bandaríkjanna 270.600
Hiroshima-sprengjum á meðan
sprengjumáttur Sovétríkjanna í
langdrægum eldflaugum samsvarar
495.000 Hiroshima-sprengjum.
Bandaríkin, sem hafa 1900 fleiri
langdræga kjarnorkusprengju-
odda geyma aðeins 24% þeirra á
landi, 50% í kafbátum og 26% í
langfleygum sprengjuflugvélum.
Sovétmenn geyma hins vegar 75%
af sínum langdrægu vopnum á
landi, 20% í sjó og 5% í lofti.
Auðveldara er að eyða þeim vopn-
um sem eru á föstu landi en hinum
sem eru á sjó og í lofti.
Þegar Reagan einangrar Evrópu
í afvopnunarviðræðunum og ein-
skorðar sig við meðaldrægar eld-
Sú stefna Reagans, sem Nato inn-
leiddi í desember 1979, að til
þess að koma á afvopnun væri
nauðsynlegt að auka við kjarnork-
uvopnaforðann í Evrópu og Band-
ríkjunum er „vúdú-trú“ að mati
öldungardeildarþingmannanna
Edwards Kennedy og Marks O.
Hatfield. Myndin, sem er eftir
Bandaríkjamanninn Allen A. Dutt-
on, gæti verið frá ráðherrafundi
Nato í desember 1979, þegar vúdú-
trúin var innleidd.
flaugar og neitar að taka bresk og
frönsk kjarnorkuvopn inn í dæmið
og þau vopn sem eru í kafbátum á
sjó er að mati margra gagnrýnenda
augljóst að honum er ekki alvara
með viðræðunum. í Genf.
Áróður
Raymond Garthoff, sem tók
þátt í SALT-I viðræðunum fyrir
Bandaríkin hefur kallað hina svo-
kölluðu núlllausn Reagans áróður
og sagt að hún bjóði ekki upp á
neina lausn.
„Hvers vegna ættu Sovétríkin að
fallast á að eyðileggja eldflaugar
sínar á landi þegar samningurinn á
að miðast við það að Bandaríkin
geti sniðgengið hann og sett sömu
eldflaugar upp á hafinu þar sem
þær geta náð sömu skotmörkum í
Sovétríkjunum?" segir hann.
„Hvers vegna skyldu Sovétmenn
skuldbinda sig til að fjarlægja þær
eldflaugar, sem beint er gegn Bret-
landi og Frakklandi á meðan þess-
um löndum er gefin frjáls og tak-
markalaus heimild til uppbygging-
ar meðaldrægra eldflauga?“,
spurði Garthoff og benti á fjar-
stæðuna í að útiloka vopnabúnað
Breta og Frakka á meðan innan
Nato gilti sú regla að árás á eitt
ríkið jafngilti árás á þau öll.
Vúdú-kenningin
Þeir Edward Kennedy og Mark
O. Hatfield hafa kallað þá kenn-
ingu Reagans að koma verði upp
langdrægum MX-eldflaugum í
Ameríku og Pershing og stýriflaug-
um í Evrópu til þess að koma á
afvopnun „vúdú-kenninguna eftir
hinum afrísku trúarbrögðum: þú
verður að eignast meira til þess að
hafa minna.
„Aukning bandarísks vígbún-
aðar er líklegri til þess að fá Sovét-
menn til þess að auka við sínar
birgðir heldur en til þess að halda
aftur af þeim. Og þeirra aukning á
vígbúnaði hefur sömu áhrif á okk-
ur. Þegarþvíer íalvöru haldiðfram
að fleiri vopn séu leið til þess að
fœkka vopnum og þegar snúið er út
úr orðinu „frysting“ þannig að það
er látið merkja vígbúnaðarkapp-
hlaup nú og stöðvun í einhverri ó-
skilgreindi framtíð, þá hafa verið
höfð endaskipti á skynseminni og
þá erum við farin að nálgast spá-
dóm Georges Orwell fyrir árið
1984.“
Bilun í kerfínu
Þeir Kennedy og Hatfield benda
á í bók sinni að vígbúnaðarkapp-
hlaupið að samanlagt eigi Bandarík-
in og Sovétríkin nú um það bil.
47.000 eldflaugaodda með kjarn-
orkusrpengjum. Þeir benda jafn-
fram á að á sl. 20 mánuðum hafi
varnarviðbúnaður Bandaríkjanna
gefið 147 sinnum fölsk merki um
að kjarnorkuárás væri hafin. Það
tekur flugskeytið hálftíma að fara
yfir Atlantshafið en 15 mínútur að
ná til London frá Sovétríkjunum. í
4 af þessum 147 skiptum var allur
varnarbúnaður Bandaríkjanna
settur í skotstöðu. 1 eitt siciptið
hafði eftirlitsbúnaðurinn tekið feil
á kjarnorkuárás og rísandi tungli.
Við þessar aðstæður verða vúdú-
trúarbrögðin fyrst hættuleg. Bók
þeirra Kennedys og Hatfield er
eins og ákall til skynseminnar í vit-
firrtum heimi.
Danskir og norskir jafnaðar-
menn virðast nú hafa áttað sig á
vitfirringunni og hafa neitað að
styðja fjárveitingu til herts vígbún-
aðarkapphlaups í Evrópu. Er þess
að vænta að fleiri munu fylgja
dæmi þeirra eftir því sem nær dreg-
ur þeirri stundu að ríkisstjórnir
Nato-ríkjanna í Evrópu þurfa að
réttlæta „vúdú“-kenninguna gagn-
vart kjósendum sínum. Hver gerði
sér grein fyrir því í desember 1979
að með sameiginlegri ákvörðun
sinni þá hefðu ríkisstjórnir Nato-
ríkjanna tekið upp þessi nýju trúar-
brögð fyrir Evrópu: til þess að hafa
minna þarftu meira? _ ójp
Happdrætti Þjóðviljans, sem
dregið verður í n.k. mánudag 6.
desember býður í vinninga m.a.
fimm utanlandsferðir með
ferðaskrifstofunum Samvinnu-
ferðir Landsýn og Úrval, samtals
að verðmæti tæplega 80 þúsundir
króna. Fjórði vinningurinn í
happdrættinu er ferð með
Samvinnuferðum-Landsýn að
verðmæti 19.170, krónur, fimmti
til áttundi eru ferðir að eigin vali
fyrir 15 þúsund krónur tvær með
Samvinnuferðum Landsýn og
tvær með Úrvali. Tveggja vikna
ferðir nú kosta frá 6 þúsund krón- '
um, þannig að næsta sumar duga
þessir ferðavinningar ábyggilega
fyrir góðu sumarleyfi 12-3 vikur. .
En hvert er hægt að komast?
Sumaráætlun er nú í undirbún-
ingi hjá báðum ferðaskrif-
stofunum, en hjá Samvinnu- I
ferðum Landsýn fengum við þær |
upplýsingar að Rimini á Ítalíu
væri einn vinsælasti ferða-
mannastaður íslendinga um þess-
ar mundir. Þaðan er hægt að fara
í skoðunarferðir m.a. til Rómar,
Florens, San Marino og Feneyja
og á Rimini hefur verið sérstakur
„barnafararstjóri" sem gerir
þessar ferðir mjög vinsælar með-
al fjölskyldufólks.
Samvinnuferðir Landsýn
bjóða einnig upp á ferðir til Port-
oroz í Jógóslavíu, þar sem er gull-
falleg strönd og hrífandi náttúru-
fegurð. Þá er Grikkland meðal
nýrra áfangastaða ferðaskrifstof-
unnar, baðströndin við Vouliaq-
meni er ákaflega fallegt og aðeins
steinsnar frá Aþenu. Þaðan má
korpast í ævintýrasiglingu um
Eyjahafið og einnig til Delfí og
Argolis, svo eitthvað sé nefnt. I
samvinnu við Dansk Folke Ferie
hefur ferðaskrifstofan boðið
leiguflugsferðir til Danmerkur
með gistingu í glæsilegum sumar-
bústöðum í Karlslunde og
Karrebæksminde. Þangað flykk-
ist fólk á öllum aldri og nýtur lífs-
ins á friðsælum baðströndum og
skoðar Kaupmannahöfn.
Ferðaskrifstofan Úrval býður
m.a. upp á hinn sívinsæla gisti-
stað Islendinga, ævintýraeyna
5 glæsilegir ferðavinningar
Með Samvinnuferðum— Landsýn eða Úrvali, að eigin vali
||
Frá Rimini Feneyjar
Kaupmannahöfn
Ibiza
Mallorka. Hana þarf vart að
kynna meðal landans, enda er,
eyjan margrómuð fyrir fegurð og
gestrisni íbúanna. Önnur eyja,
skammt undan ströndum Spánar
nýtur sívaxandi vinsælda, Ibiza,
en Úrval býður upp á fjölbreytta
gististaði þar. Þangað leggur ungt
fólk og listamenn einkum leiðir
sínar og skemmtanalífið ku vera
fjörugt. En það er ekki aðeins
hægt að komast suður á bóginn í
hitann og sólina, Urval býður upp
á fjölbreyttar ferðir um megin-
land Evrópu og til Bretlands.
Þannig gefst tækifæri til að gista
heimsborgirnar, London, París,
Kaupmannahöfn njóta landslags
og skóga Evrópu og kynna sér
aldagamla menningu Evrópu-
þjóðanna.
Það er því ekki amalegt valið
sem fimm vinningshafar Happ-
drættis Þjóðviljans fá úr að moða
þegar dregið verður á mánudag-
inn kemur. Látið nú ekki happ úr
hendi sleppa, og gerið skil í Happ-
drættinu fyrir helgina.