Þjóðviljinn - 02.12.1982, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 02.12.1982, Qupperneq 11
Fimmtudagur 2. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 1. deildar- liðin unnu Manchester United, Notting- ham Forest og Tottenham tryggðu sér í gærkvöldi sæti í 8-liða úrslitum enska deilda/mjólkurbikarsins í knattspyrnu. Öll léku á heimavelli. United vann Southampton 2:0, Forest sigraði 3. deildarlið Brent- ford 2:0 og Tottenham náði að leggja Luton Town að velli, 1:0. Einn leikur er eftir í 4. umferð, Notts County og West Ham mætast á þriðjudag. - VS Haukar sigruðu Haukar sigruðu Skallagrím 83:66 í 1. deild karla í körfuknatt- leik í gærkvöldi. Leikið var í Borg- arnesi og var þetta einn fjörugasti og besti leikurinn þar í vetur. Dak- arsta Webster var besti maður Hauka en hjá heimamönnum bar mest á Birni Axelssyni. - VS Villa mætir Penarol Evrópumeistarar félagsiiða í knattspyrnu, Aston Villa frá Eng- landi, mæta Penarol frá Uruguay í úrslitaleik heimsmeistarakeppni félagsliða í Tokyo í Japan þann 12. desember n.k. í fyrrakvöld tryggði Penarol sér sig- ur í Copa de Libertadores, keppni sem í S-Ameríku jafngildir Evrópukeppni meistaraliða. Pen- arol mætti Cobreloa frá Chile á úti- velli en liðin höfðu gert markalaust jafntefli í Uruguay. Allt stefndi í sömu úrslit í Santiago en 30 sek- úndum fyrir leikslok skoraði Fern- andez Morena sigurmark Penarol. Núverandi „heimsmeistarar“ eru Flamengo frá Brasilíu sem í fyrra unnu Liverpool í úrslitaleik í Tokyo 3:0. - VS. Scirea meiddur Gaetano Scirea, varnarmaður- inn snjalli i heimsmeistaraliði Itala í knattspyrnu, verður ekki með liðinu gegn Rúmenum á laugardag vegna meiðsla. Leikurinn er liður í Evrópukeppni landsliða. Tveir aðrir varnarmenn, Bergomi og Gentile, eru einnig meiddir og óvíst hvort þeir geti leikið. - VS Lands keppnl við Skota Lovísa Einarsdóttir var endur- kjörin formaður Fimleikasam- bands Islands en ársþing sam- bandsins var haldið um helgina. FSI verður 15 ára á næsta ári og þá verða farnar keppnis- og sýningar- ferðir til Norðurlanda og annarra Evrópulanda. Landslið pilta og stúlkna í fim- leikum eru á förum til Skotlands þar sem háð verður landskeppni við Skota í Edinborg þann 12. des- ember. íþróttir Umsjón: Víðir Sigurðsspn Viggó Sigurðsson skorar fyrir Víking gegn ÍR í gærkvöldi. - Mynd: - AA / Ovæntur Stjörnusigur á FH í Hafnarfirði! Nýliðar Stjörnunnar úr Garða- bæ halda áfram að koma á óvart í 1. deild karla í handknattleik. í gær- kvöldi léku þeir við efsta lið deildarinnar, FH, í Hafnarflrði og herjuðu út fjögurra marka sigur, 24-20, í fjörugum og spennandi leik þar sem úrslit réðust á lokamínút- unum. Eftir tapið gegn Fram á dög- unum reiknuðu sennilega flestir með að nú færi að harðna á dalnum í stigasöfnun Stjörnunnar eftir gott gengi en piltarnir úr Garðabænum sýndu það og sönnuðu í gærkvöldi að þeir verða með í baráttunni um fjögur efstu sætin. Stjarnan skoraði tvö fyrstu mörkin en FH jafnaði fljótlega. FH náði yfirhendinni, 6-4, en Stjarnan breytti stöðunni fljótlega sér í hag á ný og leiddi í leikhléi, 12-10. Framán af síðari hálfleik virtist FH vera að ná tökum á leiknum í eitt skipti fyrir öll og var komið tveimur mörkum yfir, 16-14, eftir 13 mínútur. En þá kom kaflinn sem gerði útslagið. Stjarnan skoraði sex mörk gegn einu næstu átta mínút- urnar og var allt í einu þremur mörkum yfir, 20-17. FH lagaði í 20-19 en Stjarnan svaraði tvívegis, 22-19. Pálmi Jónsson skoraði fyrir Staðan: Staðan í 1. deild karla í hand- knattleik eftir leikina í gærkvöldi KR...............10 7 0 3 226:190 14 FH...............10 7 0 3 262:218 14 Víkingur.........10 6 2 2 205:194 14 Stjarnan.........10 6 0 4 210:205 12 Þróttur..........10 5 0 5 205:210 10 Valur............ 9 3 2 5 172:178 7 Fram............. 9 3 1 5 200:214 7 ÍR...............10 0 0 10 180:271 0 Fram og Valur leika í Laugar- dalshöllinni í kvöld kl. 20. FH, 22-20, þegar hálf önnur mín- úta var eftir og FH freistaði þess að leika „maður-á-mann“. Það gekk ekki upp, Eyjólfur Bragason skoraði úr vítakasti, 23-20, 45 sek. fyrir leikslok og innsiglaði síðan sigurinn með marki á lokasekúnd- unum, 24-20. Óvæntur en sann- gjarn sigur var í höfn og hinir fjöl- mörgu stuðningsmenn Stjörnunn- ar fögnuðu gífurlega. Varnarleikur Stjörnunnar og frábær markvarsla Brynjars Kvar- an í síðari hálfleik voru þýðingar- mestu þættirnir á bak við sigur Stjörnunnar. í sókninni lék Guð- mundur Þórðarson aðalhlutverkið, þar sem Eyjólfur var tekinn úr um- ferð lengst af, og átti stórleik. Ólafur Lárusson var einnig góður og Guðmundur Óskarsson kom mjög á óvart. Magnús Teitsson var drjúgur á línunni og í vörninni var Eyjólfur Bragason tryggði Stjörn- unni sigur á lokamínútunni. hver öðrum betri. Guðmundur Þ. skoraði 7 mörk, Guðmundur Ó. 5, Ólafur 4/1, Eyjólfur 4/2, Magnús Teitsson 2, Gunnlaugur Jónsson og Sigurjón Guðmundsson eitt hvor. FH náði aldrei að sýna sitt rétta andlit gegn ákveðnum Stjörnu- mönnum og meðalmennska var ríkjandi í leik liðsins. Hans Guð- mundsson átti bestan leik og mark- verðirnir, Haraldur Ragnarsson og SVerrir Kristinsson vörðu ágæt- lega. Kristján Arason var mjög mistækur og lítið bar á öðrum. Hefði liðið ekki notið góðrar að- stoðar dómaranna hefði það hlotið enn verri útreið. Kristján skoraði 7/5 mörk. Hans 6, Pálmi Jónsson 3, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Guð- mundur Magnússon og Sveinn Bragason eitt hvor. Dómgæsla Björns Kristjáns- sonar og Karls Jóhannssonar, manna sem eiga að vera okkar bestu dómarar, var slök og talsvert „lituð“, svo ekki sé meira sagt, FH „Aðeins” fimm marka sigur Víkinga á ÉR Lcikur Islandsmeistara Víkings og botnliðs ÍR í 1. deild karla í handknattleik í gærkvöldi var með- al þeirra slökustu sem sést hafa í vetur. Á pappírnum hefðu að minnsta kosti 15 mörk átt að skilja þessi lið að í getu en þau urðu ein- ungis flmm. Víkingar sigruðu 28- 23. Þeirri fimrn marka forystu náðu þeir fljótlega og leiddu 14-9 í hálf- leik. Munurinn hélst fimm til átta mörk í síðari hálfleik, 20-15, 25-17, 28-21, en ÍR átti tvö síðustu mörkin. Mörk Víkings skoruðu Steinar Birgisson 7, Ólafur Jónsson 6, Guðmundur Guðmundsson 5, Árni Indriðason 4, Þorbergur Aðalsteinsson 3, Hörður Harðar- son 1 og Viggó Sigurðsson 1. Mörk fR: Björn Björnsson 6, Guðjón Marteinsson 5, Andrés Gunnlaugsson 3, Atli Þorvaldsson 3, Einar Valdimarsson 3, Gunnar Kristófersson, Ólafur Vilhjálms- son og Tryggvi Gunnarsson eitt hver. - VS Dýrmæt stig til HK-manna HK úr Kópavogi náði í dýrmæt stig í fallbaráttu 2. deildar karla í handknattleik í gærkvöldi er liðið lék við Aftureldingu úr Mosfells- sveit í íþróttahúsinu í Garðabæ. HK vann 24:21 eftir að hafa leitt 13:12 í hálfleik. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af en skömmu fyrir leikslok náði HK að síga fram- úr og tryggja sér sigurinn. - VS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.