Þjóðviljinn - 23.12.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.12.1982, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. desember 1982 Karpov að tafli - 70 í byrjun júnímánaðar 1973 hófst annað tveggja milli- svæðanna í skák. Millisvæðamót höfðu verið haldin allt frá 1948, en nú var svo komið að ekki var talið hægt að halda heimsmeist- arakeppnina án tveggja slíkra móta. Sem heimsmeistari ung- linga 1969 fékk Karpov að taka þátt í öðru mótinu án undangeng- innar þátttöku í svæðamóti. Niðurröðun í mótin tvö olli mikl- um deilum, einkum var það Bent Larsen sem mótmælti harölega og taldi fyrra mótið í Leningrad mun sterkara en hitt sem teflast átti í Petropolis í Brasilíu. I Len- ingrad voru þátttákendur auk Larsens þeir Karpov, Kortsnoj, Tal, Hiibner, Taimanov, Smejk- al, Kusmin, Torre, Gligoric, Tukmakov, Byrne, Radulovm Ouinteros, Uhlmann, Rukavina, Estevez og Cueller. Karpov mætti vel undirbúinn til leiks, hafði ekki tapað skák í háa herrans tíð, og sér til fullting- is í hina erfiðu keppni hafði hann þjálfara sinn og félaga Semion Furman. En í I. umferð lenti hann í erfiðleikum gegn Estevez, klóraði sig út úr þeim og vann snúið endatafl: abcdefgh Esteves - Karpov í þessari stöðu fór skákin í bið: 41. Rd3 h4! 49. 42. Rb2 Bb4 50. 43. Rbl Bb3 51. 44. Bd3 Bc4 52. 45. e4 g5! 53. 46. exd5 Bxd5 54. 47. Rdl Bc6 55. 48. Rb c3 Bd7 56. Re4 Be7 Rc5? Bxc5 dxc5 Re6 Rc3 b4 Rc4 b3 Rd2 Rxc5 Bbl Kf6 Ke3 - Hvítur féll á sama tíma um leið og hann lék þessum leik. En eftir 56. - Bf5 er staða hans hvort eð er vonlaus. Nátthrafnar í Fjalakettinum Það hefur löngum ríkt mikill tepruskapur í umfjöllun um mál- efrri homma hér á landi sem ann- ars staðar og ekki hvað síst í landi fordómanna, Bretlandi, sem enn virðist þjást af timburmönnum Viktóríutímabilsins. Enda er það svo að kvikmyndin Nighthawks sem Fjalakötturinn hefur tekið til sýningar fékk engan styrk frá breska kvikmyndaapparatinu. Myndin segir frá Jim landa- fræðikennara í London, sem er hommi. Eins og að líkum lætur veldur þetta honum ýmsum erfið- leikum, jafnt í starfi sem í einka- lífi. Kynæsandi listir sýndar í París Voflr ný klámbylgja yfir heiminum? Fyrsta festival Erótismans fór frant á dögun- um í París, að því er við lesum í tímaritinu Hár og fegurð þar sem meðfylgjandi myndir birtust. Sýningin vakti mikla athygli að sögn tíma- ritsins, og er spurningin sú hvort ný klántbylgja vofi yfir heiminum; sú fyrri stóð fyrir nokkrum árumen er fyrir allnokkru hnigin segir frétta- maður blaðsins í París, sem fylgdist með þess- ari hátíð kynæsingarinnar, eða hátíð kynæs- andi lista eins og aðrir kölluðu það. Á hátíðinni voru samankomnir listamenn sem sýndu allskonar kynæsandi verk, bæði málverk, höggmyndir og jafnvel kökur sem voru eftirlíkingar af ákveðnum líkamshlutum. Fatnaður og póstkort og yfirleitt allt sem hægt er að gera kynæsandi var á þessari Hátíð kyn- æsandi lista í París. Hvað veist þú ??? Þessar spurningar rákumst við á í nýjasta tbl. Víöförla, málgagni, kirkjunnar. Þessar spurningar -eiga erindi til allra landsmanna, ekki síst þegar jólahátíð neyslu- samfélagsins gengur í garð. Svörin fylgja einnig með. 1. Ilversu mörg börn deyja úr hungri á hverri mínútu sem líður í heintinum? a) 4 börn b) 20 börn c) 40 börn 2. Hversu miklum fjármunum er eytt til hermála í heiminum á hverri mínútu sem líður? a) 1 milljón króna b) 10 milljónum króna c) 17 milljónum króna 3. í samanburði við framlög til þróunarmála, hversu miklu er varið til hermála? a) Sömu upphæð. b) Fimmtán sinnum meira c) Þrjátíu sinnum meira 4. Fjórir og háifur milljarður manna búa í heiminum. Hversu stór hluti íbúanna telst til þróunarlanda og er vannærður? a) V- b) '/j c) '/- 5. Hlutur þróunarlanda í iðnaðarframleiðslu heimsins er? a) 75% b) 51% c) 8% 6. Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt áskorun til vest- rænna þjóða um að greiða 1% af þjóðartekjum sínum til þró- unarhjálpar. Hvert var fram- lag íslands til þróunarhjálpar 1981? a) 0.05% b) 0.4% c) 1% 7. Fjöldi ólæsra og óskrifandi í heiminum, yfir 15 ára aldri, er talinn vera? a) 150 milljónir b) 500 miljónir c) 750 milljónir 8. Bilið á milli ríkra þjóða og fátækra hefur síðustu ár a) breikkað b) mjókkað c) óbreytt 9. Hinir hungruðu fæða hina ríku af því að... a) hinir hungruðu vilja ekki borða b) það er náttúrulögmál að á- kveðinn hluti jarðarbúa skuli deyja úr hungri svo hinum líði betur c) hinir ríku hafa ákveðið að maturinn standi þeim hungr- uðu ekki til boða 10. Svo margir deyja úr hungri á hverri mínútu af því að... a) jörðin getur ekki brauðfætt fleiri b) þeir sem deyja úr hungri standast ekki eðlilegar kröfur lífsbaráttunnar c) núverandi heimsskipulag er óréttlátt 11. Að vera kristinn og leitast við að feta í fótspor Krists markar afstöðu til vandamála í hinum vanþróuðu löndum. Sú af- staða felst í því að... a) láta málið afskiptalaust b) treysta því að Guð grípi inn í án þess að ég þurfi áhyggjur af því að hafa c) skella skuldinni á stjórn- málamcnn og telja að það sé alfarið verkefni þeirra að fjalla unt þessi mál e) ásaka hina undirokuðu fyrir að hafa ekki beðið Guð um að hjálpa sér f) ég sjálfur taki þátt í starfi sem miðar að því að kjör hinna undirokuðu verði bætt, að réttlæti Guðs megi ríkja í heiminum. / 11 3 '01 D 6 V '9 q £ V '8 D ‘S 3 ‘Z D 'Z V 'P q i # 0 • *'4' ♦**«*,| #*»♦ * ♦ •' ■ •">* *• t*. * * * ** V s f * t * \ v • +! • ? • • • • • *■ **f’ * •’■*/,• • * jrsjt f ♦ •♦,»*«»• ♦• : • • *,- » » • • 3f %? t* R * * » _ .. * » * I Falleg jólaskreyting Glæsilegri jólaljósaskreytingu hefur umsjónarmaður 2. síðunnar ekki rekist á um dagana en þá sem prýðir suðurhlið þessa fjölbýlishúss við Furugrund í Kópavogi. Skreytingin blasir við sjónum manna langt að þegar ekið er eftir Nýbýlaveginum í skammdeginu. Það er gaman til þess að vita að húsráðendur skuli taka sig saman um smekklega og skemmtilega jólaskrcytingu sem vissulega vekur athygli. - mynd-eik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.