Þjóðviljinn - 23.12.1982, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 23.12.1982, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 23. desembcr 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 „Ef þróunin í þessum efnum verður með svipuðum hætti næstu tvö árin og hún hefur verið frá 1980, þykir mér einsýnt að á árinu 1984 verði aðeins einn framleiðandi íslenskra húsgagna að starfi“, sagði Hallgrímur G. Magnússon formaður Sveinafélags húsgagnasmiða þegar Þjóðviljinn ræddi við hann um hina erfiðu stöðu íslensks húsgagnaiðnaðar. „Mistökin voru auðvitað þau að við tókum okkur aðeins 10 ára aðlögunartíma við inngönguna í EFXA þegar aðrar þjóðir hafa tekið sér 20-25 ára aðlögunartíma“. „Eitt fyrirtæki til staðar eftir 2 ár„ Síðastliðið ár hefur innflutn- ingur hvers kyns húsgagna og húsgagnahluta úr tré margfald- ast. Aukningin á nrilii ára 1981 og 1982 er allt að 3-400% og fram- leiðslan hér innanlands hefur auðvitað ekki farið varhluta af þessu. 1974 unnu 656 manns við húsgagnasmíði ogviðgerðir, 1980 störfuðu þar aðeins 424 menn og í dag er talið að atvinnuleysi hús- gagnasmiða sé um það bil 50%, þ.e. að helmingur þeirra hafi ekki atvinnu í sinni iðn. Við spurðum Hallgrím hvað væri til ráða. „Það hefur ýmislegt verið gert fyrir húsgagnaiðnaðinn á síðustu árum en það hefur einnig margt verið látið liggja í láginni. Af hinu góða má t.d. nefna markaðsá- takið frá 1980-1982 en því var hins vegar ekki fylgt nógu vel eftir af hinu opinbera. Það er ekki nóg að rannsaka og kornast að niðurstöðu hvernig eigi að skipuleggja þennan iðnað þegar ekki fylgja á eftir ráðstafanir til að tryggja samkeppnisstöðuna. Hitt er annað mál að gæði okkar vöru hafa stóraukist og við erum nú með í framleiðslu vöru sem stenst gæðakröfur hvar sem er“. - Er EFTA sökudólgurinn í þessu máli? „Já, það má segja það. Mistök- in voru auðvitað þau að þegar við sættumst á að taka okkur 10 ára aðlögunartíma lá það fyrir að aðrar þjóðir hafa tekið sér 20-25 ára aðlögunartíma undir svip- uðum kringumstæðum. Þá verð- ur að taka með í reikninginn að við vorum á allt öðru þróunarstigi en til dæmis Finnar sem gátu sett fjármagn til að kynna sína topp- vöru á erlendum mörkuðum þegar við vorum nánast að byrja okkar starf varðandi hönnun og marrkaðsfærslu". En nýttu húsgagnaframleiðend- ur sér nógu vel aðlögunartímann? Var ekki fjármagnið sem þeir fengu aðallega notað til að byggja hús og kaupa vélar en minna hirt um að athuga hvað bæri að fram- leiða og hvernig ætti að koma þeirri framlciðslu í verð? Það er rétt, en þetta gerir það líka að verkum að íslenskir frarn- leiðendur standa vel að vígi hvað allan aðbúnað snertir í dag. Það er búið að fjárfesta óhemju mikið í vélum og byggingum á sfðustu árum og nú held ég að menn séu tilbúnir að takast óskiptir á við hina ört vaxandi samkeppni. En til þess þarf fjármagn og aðra op- inbera aðstoð. Menn verða að huga meira að þeim störfum sem þegar eru til staðar í iðnaðinum á sama tíma og stöðugt er reynt að finna leiðir til að tryggja þeim þúsundum vinnu í iðnaði sem koma út á vinnumarkaðinn á næstu áratugum." Samvinnan aukist - Hafa húsgagnaframleiðendur reynt að þjappa sér saman til að mæta versnandi skilyrðum? „Það hafa þeir gert, svo og verkalýðshreyfingin. Menn hafa auðvitað áhyggjur af þessari þró- un. Dæmi unt samvinnu fram- leiðenda eru fyrirtæki sem hafa framleitt einstaka húsgagnahluta því það hlýtur að vera hagkvæm- ara að menn auki sérhæfinguna í stað þess að vera allir að fram- leiða sömu einingarnar með ærn- um tilkostnaði í vélurn og aðstöðu. Þá hefur sjálfvirkni mjög aukist og einstök fyrirtæki hafið framleiðslu á mjög einhæf- um innréttirigum. Líklega er nú á Islandi eitt fullkomnasta fyrir- tæki sem framleiðir skápa ýmiss konar, sem finnst í allri Evrópu". - En hvað með þátt hönn- uðanna? Hefur hann verið nýttur sem skyldi? lægð sem hann er í um þessar mundir. Dæmi unr val arkitekta á erlendum húsgögnum í stað ís- lenskra eru nokkur dagvistarheim- ili sem risið hafa að undan- förnu. Sú tíska komst á að betra væfi að kaupa innflutt barnahús- gögn í stað íslenskrar fram- leiðslu, sem hafði verið lengi til staðar og reynst frábærlega vel. Það kann að vera að íslenska framleiðslan hafi verið eitthvað dýrari, en hún mátti vel vera það, annars vegar vegna þess að hún er betri en ekki síst vegna þess að opinberum stofnunum eins og hér var um að ræða, ber skylda til að styðja við bakið á íslenskum iðnaði. Svona framkoma tel ég arkitektum til skammar og þetta kalla ég að vera á mála hjá er- lendum framleiðendum". - En hvað er hægt að gera til að koma þcssari iðngrein upp úr öldudalnum? „Brýnasta verkefnið er að ís- lensk stjórnvöld noti sömu aðferðir og þau í nágrannalönd- unurn, þeim löndum sem mest flytja hingað inn og eru jafnvel með okkur í fríverslunarsam- tökum. Þau hafa gripið til ýrnissa ráðstafana til að hamla á móti innflutningi án þess að brjótaal- þjóðasamþykktir. í Svíþjóð til dæmis eru settir margvíslegir Ilallgrímur G. Magnússon: Örfá- ir skjalatöskuheildsalar hafa lifi- brauðið af hundruðum íslenskra iðnaðarmanna. Ljósm. eik. „Það kann að vera að svo hafi ekki verið. Hins vegar er sam- vinna hönnuða og framleiðenda sifellt að aukast með vaxandi samkeppni við húsgögn sem hafa gengið í gegnum langa þróun. Þetta gildir um íslensku fram- leiðsluna. Aðra sögu er að segja af arkitektum, bæði þeim sem teikna hús og eins þeim sem sjá um innréttingarnar, val á þeim og fyrirkomulag. Ef þessir menn væru ekki á mála hjá erlendum framleiðendum, eins og því mið- ur tíðkast, væri íslenskur hús- gagnaiðnaður ekki í þeirri djúpu flöskuhálsar sem jafnframt grisja mikið af innflutta ruslinu frá, eins og gæðaeftirlit, sem er mjög strangt þar í landi. Þá eru sett á alls konar gjöld sem ekki flokkast undir tollamúra auk þess sem stundum er einfaldlega gripið til þess að seinka aígreiðslu vör- unnai þannig aðhúnverður ekki eins samkeppnisfær og inrilenda framleiðslan." - En á ekki íslenskur almenn- ingur rétt á að geta valið á milli mismunandi tegunda húsgagna? „Þetta heyrist oft nefnt og er skiljanlegt. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði séö tel ég engan vafa á að þessi hömlulausi innflutningur hvers konar erlendra vara er frá- leitur. Þó versnar dæmið ef hann þýðir um leið að íslensk iðngrein leggst niður á 2-4 árum og fjöldi manna missir vinnuna. Það er auk þess enginn vafi á að inn- fluttu húsgögnin eru mjög stór hluti af hinurn óhagstæða vöru- skiptajöfnuði sem íslensk stjórn- völd eru að glíma við. Hvers vegna er þá ekki gripið í taumana með þessum hætti?" - En eru íslensku húsgögnin þá samkeppnisfær að gæðum og verði? „Fyllilega, enginn vafi. Og raunar standa þau um margt bet- ur að vígi. Hvað gæðin varðar þarf enginn að skammast sín fyrir íslensku framleiðsluna. Auðvitað er ekki allt í hágæðaflokki en það er eins og vera ber. Afborgunar- tími er yfírleitt lengri af íslensku vörunni og íslenskir framleiðend- ur hafa teygt sig ákaflega langt til að þóknast viðskiptavinum í þeim efnum. Þá þarf engum get- unt að leiða að því að kaupendur búa ekki við mikið öryggi þegar þeir versla við innflytjendur sem hafa fyrirtæki sitt í einni lítilli stresstösku. Til dæmis get ég nefnt að ekki færri en tvö inn- flutningsfyrirtæki, sem hafa nýtt markaðinn vel á undanförnum 2- 3 árum ætla að hætta starfsemi um áramót vegna þess að þeim finnst ekki lengur feitan gölt að flá hér. Og hvað gerist þegar viðskiptavininn vantar varahluti eða aðra fyrirgreiðslu? Hún er einfaldlega ekki lengur fyrir hendi". Engin hœtta á stöðnun - Nú telja margir að íslenska framlciðslan hafi versnað talsvert á tollverndartímanum. Hafið þið engar áhyggjur af því, að stöðn- unin taki við aftur ef innflutning- urinn verður heftur? „Nei, ég held að íslenskir fram- leiðendur haldi vöku sinni og tryggi eðlilega þróun sinnar vöru. Hönnunarþátturinn hefureflst og . hann á eftir að eflast enn meir. Sá þáttur auk alls undirbúnings fyrir framleiðsluna en ákaflega dýr, en augu manna eru að opnast fyrir því að hann er afar nauðsynlegur ef varan á að vera boðleg". - Og svona í lokin, Hall- grímur? „Ég vil leggja á það áherslu að íslensk stjórnvöld fari að gera sér grein fyrir því á hvaða leið ís- lenskur tréiðnaður er núna. Þá ég ekki bara við húsgagnaiðnaðinn heldur ekki síst einingahúsin og annað tréverk í byggingar. Þessi iðnaður er á niðurleið fyrst og fremst vegna hömlulauss inn- flutnings þar sem örfáir skjala- töskuheildsalar raka saman gróða og hafa lifibrauðið af hundruðum manna í þessum iðnaði. Þessu verður að snúa við. íslensk fyrir- tæki eru nú fyllilega í stakk búin til að framleiða húsgögn og inn- réttingar fyrir allan íslenska markaðinn og með markvissum aðgerðum verða stjórnvöld að sjá til þess að þau geti sinnt því hlut- verki sínu". - v. Rit Landverndar: „Fuglar” Út cr komið 8. ritið í ritröð Land- verndar um umhvertismál og nefn- ist það „Fuglar“. Þar er að finna sjö yfirlitsgreinar uin íslenska fugla, eða þær fuglatcgundir sem verpa hér á landi. Sagt er frá lifnaðarháttum fugla og þeim þáttum sem mest áhrif hafa á viðgang stofna og rætt um samskipti fugla og manna. Sjö höf- undar rita unr fuglana, en þeir eru: Ævar Petersen, Ágnar Ingólfsson, Arnþór Garðarsson, Árni Waag Hjálmarsson, Kjartan G. Magnús- son, Ólafur K. Nielsen og Kristinn Haukur Skarphéðinsson. - S.dór Ensk-íslensk viðskipta- orðabók Bókaútgáfan Orn og Orlygur hf. hefur gefið út bókina „Ensk- íslensk viðskiptaorðabók" eftir Terry C. Lacy og Þóri Einarsson prófessor. I bókinni eru um 9000 orð og orðasambönd sem oft koma fyrir í viðskiptalífinu. I formáia sínum að bókinni segja Terry og Þórir m.a.: „Höfundar hafa í störfum sínum sannfærst um notagildi orðabókar sem þessarar bæði íyrir þá sem starfa að viðskiptum og stunda nám tengt þeim. Hér má finna orð í sambandi við innflutning og útllutning, kaup og sölu, banka- og tryggingarstarf- semi, vöruflutninga, reiknings- hald, samskipti vinnumarkaðsaðila og stjórnun fyrirtækja. Þar sem ís- lendingar afla gjaldeyris að mestu með sölu sjávarafurða þótti við hæfi að hafa heiti mikilvægustu fisktegunda með. í bókinni eru einnig nokkur aigeng orð úr laga- máli og utanríkisþjónustu, svo og nokkur algengústu orð í sambandi við tölvur og orð sém koma að góöu haldi á ferðalögum. Algeng orð og orðatiltæki sem notuð eru í viðskiptum og erfitt er að finna í öðrunt orðabókum hafaeinnigver- ið tekin með í þessa orðabók" Eiðfaxi Tólfta tbl. Eiðfaxa cr komið út og cr ritið fallegt og læsilegt að venju. Meðal margháttaðs efnis þess má nefna: Arndís Erla Pétursdóttir skrifar um fóðurlýsi. Skúli Einarsson söðlasmiður um meðferð og hirðingu reiðtýgja. Eggert Gunn- arsson um hirðingu á hófum. Sig- urður Oddur Ragnarsson um sjúkrajárningar. Jens Iversen segir frá skeiðklúbbunum Vakri í Dan- mörku. Páll S. Pálsson skrifar greinina Hestar- lög og saga. Við- tal við Jóhannes á Kleifum. Hróðmar Bjarnason ritar um gæðingadóma Valdimar Kristins- son brýtur heilann um hestaíþrótt- ir. Spjallað er við Sigurfinn Þor- steinsson. Birtur er kafli úr hinni nýju Eiðfaxabók Sigurbjörns Bárðarsonar „Á fáksspori“. Birna Hauksdóttir í Skáney segir frá „Eldreið borgfirskra kvenna“. Þá eru í ritinu fréttapistlar, myndir úr ljósmyndasamkeppni Eiðfaxa, kappreiðaannáll 1982 og sitthvað Ileira. _ mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.