Þjóðviljinn - 23.12.1982, Síða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. desember 1982
Bóksalan:
Tvær
nýjar á
Ustanum
Æviminningar
Kristjáns eru enn í
efsta sætinu
Tvær nýjar bækur hafa skotist
upp á lista Félag ísl. bókasala yfir
söluhæstu bækurnar, en könnunin
var gerð 20. des. Hér er um að
ræða Kvistir í lífstrénu, - 20 sam-
talsþætti eftir Árna Johnsen og Seld
norðurljós, - viðtöl Björns I’h.
Björnssonar við 14 fornvini Einars
Benediktssonar. Æviminningar
Kristjáns Sveinssonar augnlæknis
eru enn í efsta sæti og hafa reyndar
verið það allan mánuðinn. Annars
lítur listinn yfir 10 mest seldu
bækurnar þannig út:
1. (1) Æviminningar Kristjáns
Sveinssonar augnlæknis.
2. (2) Dauðafljótið eftir Alistair
MacLean.
3. (6) Bréfin hans Þprbergs.
4. (-) Kvistir í lífstrénu.
5. (3-4) Persónur og leikendur
eftir Pétur Gunnarsson.
6. (5) Hverju svarar læknirinn?
7. (3-4) Jólalögin í léttum útsetn-
ingum fyrir píanó eftir Jón Þórar-
insson.
8. (-) Seld norðurljós.
9. (10) Albert. Gunnar Gunnars-
son skráði.
10. (7) Landið þitt, ísland eftir Þor-
stein Jósepsson, Steindór
Steindórsson og Pál Líndal.
Tölurnar í svigunum sýna hvar
bækurnar voru í röðinni á síðasta
lista.
Listi yfir 5 söluhæstu barna- og
unglingabækurnar 20. des. sl.
1. (2) 555 gátur. Sigurveig Jóns-
dóttir þýddi og staðfærði.
2. (1) Mömmustrákur eftir Guðna
Kolbeinsson.
3. (3) Svalur og félagar: Móri eítir
Fournier.
4. (4) Lukku Láki: Sara Beinharða
eftir Morris o.fl.
5. (-) Viltu byrja með mér? eftir
Andrés Indriðason. Var ekki á síð-
asta lista.
Gull & sllfttr hf. hefur í 12 ár lagt áherslu á
vandaða skartgripi — góða þjónustu og ábyrgð
á allri vöru. í dag bjóðum við okkar ágætu við-
skiptavinum glæsilegra úrval af demants-
skartgripum en nokkru sinni áður ásamt
hefðbundnum skartgripum úr gulli og silíri.
Veitum sérfræðiaðstoð við val á demants-
skartgripum og fullkomnaviðgerðarþjónustu.
Sendum í póstkröfu um allt land.
<§ull & i&Ufur í)/f
LAUGAVEGI 35 - REYKJAVÍK - S. 30630
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir nóvember
mánuð 1982, hafi hann ekki verið greiddur
í síðasta lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viður-
lögin 5% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. janúar.
Fjármálaráðuneytið,
20. desember 1982.
Akureyri Hallgrims
Akureyri - 1895 til
1930 - Ljósmyndir.
Hallgrímur Kinarssun
Hagall, Reykjavík 1982
Hér er á ferð enn ein ljósmynda-
bókin frá eldri tíð. Eftir bókina
Gamlar niyndir og Ljósmyndir
Sigfúsar Eymundssonar, fáurn við
Halldór B. Runólfsson
skrifar um
bókmenntir
nú að kynnast einum ágætasta
myndasmið Norðurlands, Hall-
grími Einarssyni. Forspjall þessar-
arbókarereftir ValgerðiH. Bjarn-
adóttur, forseta bæjarstjórnar Ak-
ureyrar, formáli er eftir Gísla Jóns-
son og myndatextar eru eftir Har-
ald Sigurgeirsson. Um ljósmynda-
vinnu sá Leifur Þorsteinsson og
Hafsteinn Guðmundsson um útlit.
Prentun og filmugerð er verk Kass-
agerðar Reykjavíkur. Bókin er
gerð í samvinnu við afkomendur
Ijósmyndarans.
Myndirnar í bókinni eru ekki
nema brot af þeim myndum sem
Hallgrímur tók, því ekki eru afrek
hans eingöngu bundin við Akur-
eyri heldur starfaði hann á Seyðis-
firði og víðar fyrir austan og
norðan. Hallgrímur var aðeins 16
ára þegar hann hélt til náms til
Kaupmannahafnar. Þar lærði hann
Ijósmyndun hjá Christian Christi-
ansen, formanni félags Ijósmynd-
ara í Höfn. Eftir eins árs nám hélt
hann aftur til íslands með ágætis-
einkunn upp á vasann. Eftir
nokkúriral ára dvöl á Seyðislirði
fluttist hann til Ákureyrar og
starfaði þar sem eftir var ævinnar.
Synir hans tóku við rekstri stof-
unnar eftir hans dag og alls urðu
lærisveinar hans 19 talsins.
Það sem fyrst og fremst gefur
bókinni gildi er hvernig Hallgrímur
fylgir þróun Akureyrar stig af stigi
þessi 35 ár sem bókin spannar. Þaö
er ekki einungis nreð yfirlitsmynd-
um af kaupstaðnum og húsbygg-
ingum, heldur einnig mannlífslýs-
ingum, atvinnumyndum og tæki-
færismyndum alls konar sem allar
eru teknar af rniklu öryggi og
næmu auga fyrir anda og blæ-
brigðum bæjarlífsins. Tilfinning
Hallgríms er mikil fyrir andrúms-
lofti því sem ríkti í veðuríari og
Richard Humblc. Marco Polo.
Dagur Þorleifsson íslcnskaði. Örn
og Órlygur 1982.
Þessi bók kemur út í fiokki sem
nefnist „frömuðir sögunnar“. Ekki
er nú víst að sú einkunn eigi vel við
Árni Bergmann
skrifar um
bókmenntir
Marco Polo. En nógu merkur var
þcssi Feneyingur og sú ferð sem
hann fór austur í hið mikla veldi
móngóla á þrcttándu öld til að um
séu skrifaðar margar bækur.
Höfundurinn sem er breskur
birtu, þannig að margar myndir
hans má kalla impressiónískar.
Þarna ríkir víða andi Monets og
Renoirs, eða er það kannski
Tsjekov?
En á móti þessari sumarkvöld-
stemmningu við skrúðhús og púrt-
vínsdrykkju, gefur Hallgrímur
veruieik atvinnulífsins gaum. Kon-
ur við síldarsöltun og heyannir,
sjómenn, bændur, verslunarfólk,
skólastofur, og kennsla, já jafnvel
skurðstofa, allt eru þetta heimildir
skráðar á plötur af manni með
óvenjudjúpa skynjun á umhverfi
sínu.
sagnfræðingur, hefur þann hátt á,
að fylgjast með Marco Polo með
því að skoða ferðasögu hans í ljósi
ýmissa heimilda annarra og seinni
tíma vitneskju. Ekki er beinlínis
um það að ræða, að verið sé að
skoða hve áreiðanleg frásögn
Marco Polos af undrum Asíu var.
En úr öllu saman verður aðgengi-
leg og læsileg bók, sem gleymir
hvorki gagnrýninni hugsun né því,
að það sem Marco Polo sá skömmu
eftir að íslendingar gengu á hönd
Noregskonungi var sannarlega
stórfenglegt og undursamlegt.
Bókin er prýdd ágætum mynda-
kosti af söguslóðum og úr fornum
ritum. Dagur Þorleifsson þýðir
bókina á kjarngott mál.
ÁB.
Slegist í för meö
Marco Polo