Þjóðviljinn - 28.12.1982, Blaðsíða 1
UOmiUINN
Jólaknall var haldið
í Laugardalshöll á
2. í jólum. Fámennt
var um miðjan
daginn á fjölskyldu-
skemmtuninni, en
fjölmenntáung-
lingaskemmtuninni
umkvöldið.
Sjá 3
desember 1982
þriðjudagur
47. árgangur
289. tölublað
flugið gekk vel
„Innanlandsflug gekk allt með
besta móti yfir jólin og síðustu dag-
ana fyrir jól. Tókst að flytja ailt það
fólk sem til stóð, sem og varning,“
sagði Sæmundur Guðvinsson
blaðafulltrúi Flugleiða í samtali við
Þjóðviljann í gær. Sagði hann að
aðfangadagur jóla hefði verið vel
nýttur og fjöldi fólks komist heim til
sín í tæka tíð fyrir jólin.
Á öðrum degi jóla hófst innan-
landsflug að nýju og voru þá farnar
9 ferðir. Einhverjar seinkanir urðu
vegna snjóa, en ekki varð að fella
niður ferðir. Millilandaflugið gekk
allt fyrir sig með eðlilegum hætti. í
í ófærðinni um jólin tóku margir
fram skiðin til að komast í jóla-
boðin. Ljósm. - cik.
gær gekk áætlun Flugleiða upp að
öllu leyti.
Þó vel hafi viðrað til flugs gekk
farþegum þeim sem kusu að fara
landleiðina ekki eins vel. Miklar
tafir urðu á fjölmörgum leiðurn
langferðabíla og var það í öilum
tilvikum vegna mikilla snjóa. hól.
Stórefling Framkvæmdasjóðs aldraðra:
Áburðarverksmiðjan og Ríkisskip:
Fá vörubretti
erlendis frá
/
Islensk trésmíða-
verkstæði ekki
samkeppnisfær
hvað verð snertir
Tvö ríkisfyrirtæki, Áburðar-
verksmiðjan og Ríkisskip sem bæði
nota mjög mikið af svonefndum
vörubrettum úr tré, láta smíða
brettin fyrir sig erlendis, vegna þess
að íslensk trésmíðaverkstæði eru
ckki samkeppnisfær hvað viðkem-
ur verði. Að sögn Þóris Sveinssonar
hjá Ríkisskip kostar efni í bretti hér
á landi jafn mikið og bretti full-
smíðað í Danmörku. Ríkisskip er
að láta smíða fyrir sig 500 bretti
erlendis.
Hjá Áburðarverksmiðjunni er
um margfalt meira ntagn af
brettum að ræða, því hún lét srníða
5 þúsund bretti erlendis á þessu ári.
Grétar Ingvarsson hjá Áburðar-
verksmiðjunni sagði að þar hefðu
fastráðnir starfsmenn sntíðað
brettin til þessa, en vegna stækkun-
ar verksmiðjunnar hefði orðið að
kaupa svona ntikið magn inn nú.
Áburðarverksmiðjan leitaði til-
boða hér innanlands, og kom þá í
ljós að verðið er margfalt á við það
sem er erlendis. Bretti smíðuð er-
lendis eru flutt inn sem umbúðir og
því enginn tollur á þeim.
Aftur á moti er allt að 25% tollur
á óunnu timbri, misjafnt að vísu
eftir því hvernig timbrið er og
hvaða tegund er unt að ræða.
Sú spurning hlýtur að vakna:
Hvers vegna kostar efni í brettin
jafn mikið hér á landi og fullsmíðað
bretti erlendis, fyrst tollur á timbri
er ekki meiri en raun ber vitni?
Hann a.m.k. skýrir ekki þennan
mikla verðmun.
- S.dór
Maður ferst í
Skerjafirði
Tæplega sextugur Reykvíkingur,
Gunnar Guðjónsson rennismiöur,
til hcimilis að Blikahólum 2 í Breið-
holtinu, fórst í Skerjafirðinum að-
fararnótt aðfangadags jóla. Hann
hafði farið ásamt syni sínum í skútu
frá smábátahöfninni í Fossvogi og
lenti í nauðum þegar skútan
strandaði á Lönguskerjum í
Skerjafirði.
Málsatvik voru þau að þeir feðg-
ar, Gunnar Guðjónsson og Baldur
Gunnarsson, hugðust færa skútuna
frá Fossvoginum í Reykjavíkur-
höfn. Veður var afleitt þegar skút-
an strandaði á Lönguskerjum. Þeg-
ar Gunnar heitinn reyndi að losa
skútuna frá litlum bát, jullu, sem
var meðferðis í skútunni, hvolfdi
jullunni og féll Gunnar í sjóinn.
Tókst Baldri syni hans ekki að
bjarga honuin um borð í skútuna,
enda veður slæmt og atfstæður all-
ar. Baldur varð eftir þetta að láta
fyrirberast í skútunni í unt hálfan
sólarhring. Menn um borð í björg-
unarbátnum Gísla J. Johnsen
björguðu honunt með aðstoð frá
þyrlu Landhelgisgæslunnar. Að-
stæður við björgunina voru slæm-
ar, vindasamt og gekk á nteð élj-
unt. Tafði það björgunina.
- hól.
ní kvöld mætir
íslenska landsliðið í
handknattleik
frændum vorum
Dönumáfjölum
Laugardalshallar.
Framlag ríkisins hækkar
um 264%!
Var 11 miljónir 1982,
en verður 40 miljónir 1983
Beint framlag úr ríkissjóði til
Framkvæmdasjóðs aldraðra
hækkar um 264% á milli áranna
1982 og 1983, en samkvæmt ný-
samþykktum fjárlögum er ætlun-
in að veita 40 milljónum króna til
sjóðsins á næsta ári. Sjóðurinn
fékk af fjárlögum í fyrra 11 mill-
jónir króna.
Annar megin-tekjustofn
Framkvæmdasjóðs aldraðra er
sérstakt gjald sem lagt er á hvern
gjaldanda og nam það í ár 200
krónum. Á árinu senr er að líða
greiddu þetta gjald rúmlega 91
þúsund manns, alls 18.3 milljónir
króna. Miðað er við að unt það
bil 85% af þessari álagningu inn-
heimtist í ár, þannig að sjóðurinn
fær 15.6 nrilljónir úr þeirri tekju-
lind á árinu. Auk þess hafa
sjóðnum borist frjáls frantlög, og
ber þar hæst 35.627 krónur sem
Kaffibrennsla Akurcyrar gaf
sjóðnum.
Alls hefur sjóðurinn í ár veitt
27.9 milljónum króna til bygg-
inga dvalar-, hjúkrunar- og lang-
legudeilda fyrir aldraða. B-álma
Borgarspítalans hefur þegar
fengið 13.8 milljónir og auk þess
hefur verið ákveðið að til bygg-
ingarinnar renni 4.2 milljónir nú
strax eftir áramótin auk þess sent
síðar kann að verða ákveðið á
næsta ári. Dvaiarheimili aldraðra
sjómanna i Hafnarfirði hefur
fengið 4 milljónir, Dvalar- og
hjúkrunarheimilið á Sauðárkróki
2.2 milljónir og 12 aðrar bygg-
ingar ntinni upphæðir á bilinu 300
þúsund til einnar milljónar
króna. - v.
Franski farsinn
„F orsetaheimsókn-
in“ verður
frumsýndur hjá
Leikfélagi
Reykjavíkur í
kvöld.