Þjóðviljinn - 28.12.1982, Qupperneq 7
fo pV5UND
&R.ÓNÆ l/fNN —
IU61ARWK
ORDA//R 2 .JOO
TA/iS/A/S
*< Í>A£> SRU j
ALUR ÍBÓAR >
'A sauðárrró/c/
06r MÁ6RB/UAJ/ .
OCk SA /¥/£5T(
QBFUR 2.'/z~
MU-/.JOA] Á
TfioMT/D “
\BRTU MB&Z
Vinningí
Þriðjudagur 28. desember 1982 ÞJÓÐVIL.IINN — SÍÐA 7
Póstur og sími undirbýr innleiðslu
bílasíma hérlendis
Símtækið kostar
yfir 50.000 kr.
„Það stendur eingöngu á tækjum
sem við ætlum að nota til tilrauna,“
sagði Olafur Indriðason hjá Pósti
og síma í samtali við Þjóðviljann en
Olafur hefur umsjón með undir-
búningi svokallaðrar bílasímaþjón-
ustu sem stofnunin hyggst taka upp
á komandi ári.
En til hvers bílasími? Duga tal-
stöðvar ekki lengur? var Olafur
spurður.
„Bílasími býður upp á mun fjöl-
breyttari möguleika í fjarskiptum
en talstöðvar gera. Það er t.d. hægt
að kalla upp ákveðinn bíl í gegnum
síma líkt og hringt sé langlínu-
samtal. Samtöl verða öll afgreidd í
gegnum miðstöð hér á stofnuninni
sem líklega verður með númerið
002. Þegar hringt er á bíl, þá pípir í
símtækinu og sé enginn í bílnum
þegar hringt er þá getur bílstjórinn
séð að reynt hafi verið að ná sam-
bandi við hann, og getur þá haft
samband við miðstöð og leitað
upplýsinga."
Ólafur sagði að stærsti kosturinn
við bílasíma væri að aldrei væri
slökkt á honum líkt og talstöð.
Hið íslenska
Bókmenntafélag
Þrjár nýjar
bækur
Hið íslenska Bókmenntafélag
hefur gefið út þrjár nýjar bækur,
„Siðferði og mannlegt eðli“ eftir
Pál S. Árdal prófessor, þar sem
fjallað er um siðfræði og sálfræði
eins mesta heimspekings Vestur-
landa, Davids Hume. Páll S. Árdal
er prófessor í heimspeki við Qu-
een’s University, Kingston, Ont-
arío.
„Um ellina“ heitir kver eftir
Marcus Tullius Cicero í íslenskri
þýðingu Kjartans Ragnars með
formála eftir Eyjólf Kolbeins.
Loks er svo að geta bókarinnar
„Breskir togarar og íslandsmið
1889-1916“ eftir Jón Þ. Þór sagn-
fræðing. Bókin skiptist í sjö megin
kafla. 1 upphafi er greint frá fyrstu
tilraunum breskra sjómanna til
botnvörpuveiða við íslandsstrend-
ur og færð rök fyrir því að þær hafi
hafist fyrr en áður var talið. Síðan
er rakin veiðisaga breskra togara á
íslandsmiðum. Langur kafli er um
fiskveiðideilur íslendinga og Breta
á árunum 1995-1901, sjötta
þorskastríðið sem svo hefur
verið nefnt, aðdraganda samnings
danskra og breskra stjórnvalda um
íslensku landhelgina 1901 o.tl.
- S.dór
Islenskir
þjóöhættir
í endurútgáfu
ísafoldarprentsmiðja hefur sent
frá sér endurprentun íslenskra
þjóðhátta eftir Jónas frá Hrafna-
gili. Bókin hefur verið uppseld á
forlaginu síðan í vor.
Stöðugar fyrirspurnir um bókina
þennan stutta tíma sýna vinsældir
hennar, enda géfur bókin' he'iídar-
yfirlit yfir íslenska þjóðhætti á síðari
öldum og hetur jatnan verio leuau
til þessarar bókar þegar mönnum
hefur leikið hugur á að fá vitneskju
um siði, hætti og trú þjóðarinnar.
Bókin „íslen-zkir þjóðhættir" kost-
ar 494,- kr.
Þetta er óumdeilanlega rnikið ör-
yggistæki og getur einnig komið að
góðum notum sem verkstjórnar-
tæki.
Reiknað er með að hvert bíla-
símtæki muni kosta um 50 þús.
krónur og samtalsgjald verði 5-8
kr. fyrir hverja mínútu og brot úr
mínútu en það er svipað verð og er
fyrir dýrasta langlínutaxta hér
innanlands.
En hver er þörfin fyrir þennan
bIlasImanotendur
MÓÐURSTOOVAR
SIMNOTENOUR
Öryggistaeki
sem mikil
þörf er fyrir
segir Ólafur
Indriðason
Þannig mun bílasímakerfið virka.
búnað hérlendis?
„Við rennum alveg blint í sjóinn
hvað það varðar", sagði ólafur „en
það hafa ýmsir sýnt þessu máli
áhuga og það er örugglega mikil
þörf fyrir þessi tæki, bæði fyrir lög-
reglu, lækna og verktaka, svo dæmi
séu nefnd, og síðast en ekki síst
hefur Póstur og sími mikla þörf
fyrir þessi tæki til sinnar starfsemi.
Eg á vona á að þessi búnaður gæti
verið kominn í notkun fljótlega
upp úr áramótunum", sagði Ólafur
Indriðason. - lg.
Sjáðu alla
vnninqana
kró/'>irns^ 9'
'O/r, < en a 3/-
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
HEFUR VINNINCINN