Þjóðviljinn - 28.12.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. desember 1982
Alröng stefna
í fjárhagsáætlun 1983 er með
sérstökum hætti vegið að Borgar-
bókasafninu, sagði Sigurjón Pét-
ursson, m.a. í umræðum í borgar-
stjórn. Ekki er gert ráð fyrir neinni
aukningu á bókakosti safnsins og
miðar áætlunin að því að láta safn-
ið skapa tekjur fremur en að vera
menningarstofnun. Bókasöfn og
menningarstofnanir yfirleitt eru
hvergi reknar með slíkum sjónarm-
iðum, sagði hann, enda er þetta al-
röng stefna.
í heild hækka fjárveitingar til
rekstrar safnsins aöeins umi25% á
milli ára, en þess ber aö geta að
Hljóðbókasafnið sem borgin og
Blindrafélagið hafa rekið á vegum
Borgarbókasafnsins leggst af um
áramót þegar Blindrasafn Islands
tekur til starfa. Fjárveitingar til
bókakaupa hækka aðeins um 20%
á milli ára, og er þar um stórfelldan
niðurskurð að ræða í 60% verð-
bólgu. Dugir fjárhæðin rétt til þess
að endurnýja bækur sem slitna eða
skemmast, og var hart deild á þá
stefnu í umræðum í borgarstjórn.
Útibú í Breiðholti frestað
í fjárhagsáætluninni er heldur
sagði Sigurjón
Pétursson
ekki gert ráð fyrir því að húsnæði
Borgarbókasafnsins í Menning-
armiðstöðinni við Gerðuberg verði
innréttað á næsta ári, en húsið
tekur til starfa skönrmu eftir ára-
mót. Fjárveiting sem stjórn Borg-
arbókasafnsins óskaði eftir til
bókakaupa í þetta nýja útibú í
Breiðholti, 7.5 miljónir króna, var
ekki samþykkt.
230% hækkun
til lánþega
En þó bókasafnið fái enga
aukningu á fjárveitingum til rekstr-
ar eða bókakaupa, þá ætlar
borgarsjóður sér auknar tekjur frá
notendum safnsins. Þannig miðar
fjárhagsáætlunin að því að skír-
teinisgjöld fullorðinna hækki úr 3o
krónum í 100, skírteinisgjöld barna
úr 15 krónum í 25 krónur og dag-
sektir úr 15 aurum í 25 aura á dag.
Stjórn Borgarbókasafnsins gerði
ráð fyrir mun minni hækkunum á
þessum þjónustugjöldum, en tekj-
uaukinn, sem þannig er náð af not-
endum safnsins nemur hálfri milj-
ón króna. Samtals greiða notendur
1.5 miljón á næsta ári til safnsins.
Útlánum fækkar
í ræðu borgarstjóra kont fram að
útlánum úr safninu fer fækkandi.
Árið 1975 voru Iánaðar út 1140
þúsund bækur, en á þessu ári innan
við 960 þúsund. í þeirri tölu eru yfir
20 þúsund útlán í gegnurn Hljóð-
bókasafnið, en notkun þar hefur
stöðugt farið vaxandi undanfarin
ár, var t.d. 1975 innan við 1000
útlán.
Með fækkun útlána og vaxandi
verðbólgu hefur kostnaður á hvert
útlán úr Borgarbókasafninu vaxið
á undanförnum árunt úr 5 krónum
og 30 aurum á bók árið 1975 í 8
krónur 85 aura á árinu 1982.
Hækkun sú sem nú verður á skír-
teinisgjöldum og nemur 230% fyrir
fullorðna, kemur þessum kostnaði
niður í 7 krónur og 20 aura á bók.
-ÁI
Borgarleikhús
Framlagið
fjórfaldað
Uppsteypu lokið
á næsta ári
Framlag borgarinnar til bygg-
ingar Borgarleikhúss á næsta ári
verður 14 miljónir króna, en nam á
þessu ári 3,5 miljónum. Hér er því
um fjórföldun að ræða og er miðað
við að húsið verði steypt upp að
mestu á árinu 1983 og komið undir
þak 1984. Stefnt er að því að taka
einhvern hluta þess í notkun á 200
ára afmæli Reykjavíkurborgar ár-
ið 1986.
Á árunum 1984, 1985 og 1986 er
áætlað að borgin verji sem nemur
40 miljónum hvert ár til byggingar-
innar. í ár lagðí byggingasjóður
Leikfélagsins fram 1,7 míljónir en
gert e'r ráð fyrir að hann leggi fram
1 miljón á næstaári.
Verður sótt um
ríkisframlag?
í ræðu si ni í borgarstjórn sagði
Davíð Oddsson, borgarstjóri, sem
jafnframt er formaður bygginga-
nefndar Borgarleikhúss m.a.:
„Þetta hús á að mínum dómi eftir
að gegna mjög mikiivægu hlutverki
í menningaríífi borgarinnar og
samskiptum borgarbúa og lands-
manna allra við umheiminn. Það
kemur þess vegna til álita hvort
ekki eigi að fara fram á bein fram-
lög úr ríkissjóði til smíðinnar."
Á borgarstjórnarfundinum var
mjög gagnrýnt hvernig saumað er
að annarri menningarstarfsemi í
þessari fyrstu fjárhagsáætlun Dav-
íðs Oddssonar. Vísaði hann þeirri
gagnrýni á bug og benti á þá rniklu
aukningu sem yrði á framlögum til
Borgarleikhússins. Einnig vitnaði
hann til ummæla leikhússtjóra
lönós í dagblaði skömmu fyrir síð-
ustu kosningar, þar sem þeir lýstu
vonbrigðum nteð vinstri meiri-
hlutann.
-ÁI
Ný tegund af þökum
Verið er nú að taka í notkun hjá
Sambandinu nýja tegund af þaki,
sem ekki hefur áður verið reynd
hérlendis. Verður það notað á hið
nýja vörugeymsluhús Skipa-
deildarinnar í Norður-Svíþjóð,
sem Innflutningsdeild hefur umboð
fyrir hér á landi.
Að sögn Gunnars Þorsteins-
sonar, forstöðumanns Teiknistofu
Sambandsins, geta sperrur í þök-
um af þessari tegund verið af hvaða
gerð sem er. í byggingunni í Holt-
agörðum eru þær úr límtré og 7-10
m. talin heppileg fjarlægð milli
þeirra. Ofan á sperrurnar eru fest-
ar um 20 sm. háar plötur sem snúa
á langveginn og þar ofan á kemur
plastdúkur. Yfir hann koma svo
bitafestingar með 105 sm. millibili,
sem festar eru með draghnoðum,
ásamt einangrun, sem getur verið
16-27 srn. þykk. Yfir henni koma
svo þakplöturnar, sem eru
hnoðaðar og skrúfaðar fastar í bita-
festingarnar. Þyngd slíks þaks er
um 30 kg. á fermetrann og einangr-
un getur verið steinull eða glerull.
Að áliti Gunnars er þak af þessari
Grunnskólanemendum
fækkaöi aðeins um 39
Nú eru 12.764 nemeadur í
grunnskólum Rcykjavíkurborgar,
en voru 12.725 í fyrra. Nemendum í
þessum skólum fækkar því urn 39 á
niilii ára, en fækkaði una 168 árið
áður og 260 áríð þar áður.
Flestir eru nemendur í Fella-
skóla, 1089, en voru 1158 í fyrra.
Fátnennasti skólinn er Laugalækj-
arskóli. Þar eru nú 170 börn, en
voru 202 í fyrra. í Vesturbæjar-
skóla eru nú 1% börn. en voru 188 í
fyrra. Til viðbótar þessum tölum
eru svo 6 árn böm í skólunum. Þau
eru nú 1109, en voru 1080 í fyrra.
-ÁJ
gerð alls ekki dýrari en ef byggt
væri á hefðbundinn hátt, fremur
ódýrara, og frá einangrunarsjón-
armiði er það mjög gott.
Þök af þessari gerð eru í notkun
víða á Norðurlöndum m.a. í öllum
héruðum Noregs, í Færeyjum og á
Bretlandi. Á Svalbarða var svona
þak sett á hús fyrir fimm árum og
reyndist svo vel, að tveimur hefur
nú verið bætt við. Reynslan af þess-
um þökum þykir hvarvetna góð og
sé rétt frá þeim gengið eiga þau að
standa af sér öll venjuleg veður.
Allmikið er um að þök þessi hafi
verið seld til suðlægari landa, m.a.
Arabalanda, Heildarframleiðsla
fyrirtækisins á undirplötunum er
nú um 5 þús. ferm. á ári.
Þakið á vörugeymslunni á Holta-
bakka er um 3.600 ferm. en auk
þess er fyrirhugað að setja sams-
konar þak á nýbyggingu flutninga
fyrirtækisins Landflutninga hf.,
sem er að rísa við Skútuvog í
Reykjavík. Það þak verður 1600
ferm.
- mhg
Landflutningar byggja
Nýbygging Landflutninga við
Skútuvog 8 í Reykjavík hefur mið-
að allvel að undanförnu og er nú að
því stefnt að taka hana í notkun í
mars. Landflutningar er fyrirtæki
um afgreiðslu á flutningabílum,
sem allmörg kaupfélög standa að.
Afgreiðsla Landflutninga hefur
undanfarin ár verið til húsa við
Héðinsgötu á Laugamesi. Húsnæð-
ið þar er orðið alls ófullnægjandi
og bætir nýbyggingin því úr brýnni
þörf.
Húsið við Skútuvog er nú að
mestu uppsteypt og fljótlega hægt
að fara að setja á það þak og hurðir
Síðan er eftir að ganga frá gólfinu
en úr því fer að sjá í land. Móttöku-
dyr verða sjö en tólf afgreiðsludyr
fyrir flutningabílana. Húsið er að
hluta á tveimur hæðum, gólfflötur
alls um 1700 ferm. Vel er hugsað
fyrir allri aðstöðu fyrir bílstjórana,
m.a. verða þarna sérstök böð ætluð
þeim. Lóðin er rúmir 10 þús. ferm.
Tókst að malbika allstóran hluta
hennar fyrir frost í haust. Bygg-
ingin er örstutt frá Holtagörðum
og liggur vel við akstursleiðum.
Þarna er að rísa aðstaða fyrir bíla-
flutninga kaupfélaganna frá
Reykjavík og út um land, sem
verður hin ákjósanlegasta í alla
staði. - mhg
Kjöt til Noregs og Póllands
Norðmenn eru nú til með að
kaupa héðan 50 tonn af hrossakjöti
og góðar horf'ur taldar á að þeir
rnuni einnig kaupa allt að 600 tonn-
um af dilkakjöti. I undirbúningi er
og að gefa Pólverjum 300 tonn af
frystu ærkjöti.
Samkvæmt upplýsingum Jó-
hanns Steinssonar, deildarstjóra í
Búvörudeild SÍS vilja Norðmenn
kaupa af okkur 50 tonn af hrossa-
kjöti, sem kæmu til afgreiðsluí jan-
úar og febrúar, að því tilskildu, að
þeir fái nauðsynleg innflutnings-
leyfi heima fvrir. Horfur eru og á
að þeir muni kaupa allt að 600
tonnum af dilkakjöti, sem afgreitt
yrði í maí og júní. Ösamið er um
verð og er þessi sala einnig háð til-
skildum leyfum.
Þá er og í undirbúningi gjafa-
sending af kjöti til Póllands. Er það
300 tonn af frystu ærkjöti, send á
vegum Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar og Rauða krossins. Ríkissjóður
og Framleiðsluráð landbúnaðarins
eru einnig aðilar að sendingunni.
-nihg
Nýskipan optikverslunarinnar
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur í dag skipað nefnd
sem falið er að gera tillögur um
starfsemi og hlutverk sjónstöðvar,
um skipulagningu sjónverndar í
landinu (þ.m.t. forvarnarstarf), út-
hlutun hjálpartækja og hlutdeild
hins opinbera í henni, um
augnlækningaferðir úti á land,
samvinnu við aðra aðila er vinna að
málefnum á þessu sviði, og um
aðrar úrbætur, sem nefndin teldi
nauðsynlegar með það fyrir augum
að gera hlut sjónskertra ekki minni
en annarra þjóðfélagsþegna, sem
þurfa á séraðstoð að halda.
Ennfremur er nefndinni falið að
gera tillögur um það hvernig optik-
verslun skuli háttað í landinu t.d.
með það fyrir augum að rekin verði
ein aðaloptikverslun í tengslum við
hagsmunaaðila t.d. Blindrafélagið.
Nefndinni er ennfremur falið að
gera tillögur að reglum um úthlut-
un gleraugna og niðurfellingu
aðflutningsgjalda í samræmi við
breytingar á tollalögum sem sam-
þykktar voru á sl. vori.
í nefndina hafa verið skipaðir
eftirtaldir:
Ingimar Sigurðsson, deildarlög-
fræðingur, formaður, Ólafur
Ólafsson, landlæknir, Óskar
Guðnason, framkvæmdastjóri
Blindrafélagsins, Guðmundur
Björnsson, augnlæknir og Margrét
Sigurðardóttir, blindrakennari.
Við birtingu á ljóðinu Hisnti í
Þjóðviljanum á aðfangadag urðu
þau leiðu mistök að nafn höfundar
misritaðist. Greta Hallgrímsson
heitir hún en ekki Grétar og biðst
blaðið velvirðingar á mistökunum.
—Ritstj.
Greta Hallgrímsson
TT T • *
Hismi
Hve djúpt getur sorgin rist
mörg sárin hjartað kysst
án þess eftir séu
eilíf spor í huga.
Margt er lífsins streð,
-fyrir hugann
- sitt geð
er spunnið af hismi
nafnfrœgðar loga.
En til hvers er unnið
- stritað - vakað -
nema ei skyldi vera saðning
í mammons ask.
Vökunceturnar
- til einskis nýttar.
Boginn - strengurinn -
- beygist - reigist -
- loks slitnar alveg
ef ei að er gáð.
Þar oft á stundum
of sterklega strekktur er' ann
af hismisins töggl.