Þjóðviljinn - 28.12.1982, Side 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. desembér 1982
| ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Ólafsvík - Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Ólafsvíkur verður í Sjóbúðum, Ól-
afsvík, fimmtudaginn 30. desember n.k. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Aðalfundarverkefni.
Félagar fjölmennið. - Stjórnin.
Kvöldsamkoma
(tilefni 60 ára afmælis Sovétríkjanna efnir MÍR til kvöldsam-
komu í veitingahúsinu Snorrabæ þriðjudaginn 28., desem-
ber kl. 20.30
Ávörp flytja: Mikhaíl N. Streltsov sendiherra og Margrét
Guðnadóttir, prófessor, óperusöngvararnir Siglinde Ka-
mann og Sigurður Björnsson syngja við undirleik Agnesar
Löve píanóleikara.
Baldvin Halldórsson leikari les upp.
Skyndihappdrætti.
Veitingar.
Aðgangur öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
MÍR
Jólagleði SÍNE
verður haldin í Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut 29. desember kl. 21-03.
Dagskrá:
Guðmundur Ingólfsson og félagar kynna
plötuna Nafnakall.
Bubbi Morthens syngur og spilar.
SÍNE Big Band leikur létta tónlist.
Hressilegt Diskótek: nýja íslenska rokkið
og fjölþjóðleg stuðmúsík.
SÍNE-félagarog gestir þeirra eru hvattirtil að
fjölmenna og sýna af sér kæti.
Stjórn SÍNE.
Jólafundir SINE
verða haldnir í Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut dagana 29. desember 1982 og 3.
janúar 1983 og hefjast kl. 15 báða dagana.
SÍNE-félagar eru hvattir til að mæta allir sem
einn á fundinn.
Stjórn SÍNE
Starfsmaður óskast
í hlutastarf
Prentsmiðja Þjóðviljans
óskar að ráða mann í hlutastarf við
hreingerningar, kaffihitun, o.fl. frá og með
næstu mánaðamótum. Æskilegur vinnutími
7-10.00.
Upplýsingar gefur Jóhannes Harðarson í
síma 81333.
Afkomendum og fjölda vina þökkum við af alhug, okkur
sýndan hlýhug og vinsemd á 60 ára hjúskapardegi okkar nú
í desember.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gott nýtt ár.
Guöbjörg Jónsdóttir og
Björn Eiríksson frá Sjónarhóli.
Útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Kristjönu Kristjánsdóttur
Skúlagötu 62
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. desember kl.
13.30.
Björgvin Ágústsson
Guðbjartur A. Björgvinsson, Erna Einarsdóttir,
Águst Björgvinsson, Margrét Halla Guðmundsdóttir,
Guðmundur Ingi Björgvinsson, Margrét Andrésdóttir
og barnabörn.
Eimskip tekurfrysti
skip á
Nýtt frystiskip, M.s. Selfoss, er
komið til landsins. Það er Eim-
skip sem tekið hefur þetta skip á
leigu frá Faereyjum. Það losaði
tómar síldartunnur á Reyðarfirði
og mun lesta frystan fisk í næstu
viku. M.s. Selfoss, en því nafni
hefur skipinu verið gefið, leigt
þurrleigu og er áhöfn skipsins ís-
leigu
lensk að undanskildum skipstjóra
og yfirvélstjóra.
Þetta er fyrsta skipið í rekstri
félagsins, sem er sérstaklega út-
búið til brettaflutninga á frystum
fiski. Skipið var smíðað í Skála
Skipasmiðja í Færeyjum á þessu
ári fyrir færeyskt fyrirtæki. Af-
hending til Eimskips fór fram
þann 20. októbér s.l.
M.s. Selfoss hefur 1520 tonna
burðargetu, og er 67,3m á lengd
og 12 m á breidd. Lestarnar eru
sérstaklega gerðar með tilliti til
brettaflutnings á frystum fiski og
er lestarrými 75.000 rúmfet.
Hliðarlúgur og brettalyfta er á
skipinu, sem auðvelda og flýta
lestun og losun með lyfturum, en
auk þess eru lúgur á þilfari. Á
skipinu er krani, sem getur lyft 20
tonnum. Selfoss er leigður til 12
mánaða með framlengingar-
heimild og forkaupsrétti.
Nýr doktor
í eðlisfræði
Hinn 30. september síðastliðinn
varði Hans Kr. Guðmundsson,
eðlisverkfræðingur, doktorsritgerð
í eðlisfræði fastra efna við Tækni-
háskólann í Stokkhólmi. Ritgerðin
nefnist: „The Electrical Resistivity
in Transition Metal Metalloid
Glasses“ og fjallar um eiginleika
óraðaðra málma, svo kallaðra
málmglerja.
Doktorsritgerðin er byggð á
niðurstöðum rannsókna frá árun-
um 1977-1980 viðTækniháskólann
í Stokkhólmi í nánu samstarfi við
nokkra háskóla og Bell tilrauna-
stofumar í Bandaríkjunum. Hlutar
hennar hafa þegar birst í ýmsum
alþjóðlegum vísindaritum og verið
kynntir á allmörgum ráðstefnum
víðs vegar um heim. Lokaúrvinnsla
Hans Kr. Guðmundsson.
var unnin við Raunvísindastofnun
Háskólans. Andmælandi við dokt-
orsvörnina var Dr. Sidney R. Nag-
el, prófessor við Chicagoháskóla
og fór vörnin fram á ensku.
Hans er fæddur í Reykjavík 2.
desember 1946 og er sonur Kristín-
ar Kristjánsdóttur, iðnverkakonu
við Vinnufatagerð fslands. Hann
er kvæntur Sólveigu Georgsdóttur
þjóðfræðingi. Þau eiga einn son
Gunnar Ólaf fæddan 1969. Hans
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1966 og eðlis-
verkfræðiprófi frá Tækniháskól-
anum í Stokkhólmi 1973. Hann
hefur verið aðstoðarkennari þar
frá 1970 og starfað jafnhliða að
rannsóknum síðan 1973. Hans hef-
ur starfað sem sérfræðingur við
Raunvísindastolhum Háskólans síð-
an 1980 og annast stundakennslu
slu við Verkfræði- og raunvísinda-
deild Háskóla íslands. Hann vinn-
ur nú að uppbyggingu aðstöðu til
grunnrannsókna í storkufræði við
Raunvísindastofnun, þar sem hægt
verður að stunda rannsóknir við
hitastig allt að 1 gráðu frá alkuli, en
slík aðstaða hefur ekki verið fyrir
hendi áður á íslandi. Hans er for-
maður Eðlisfræðifélags íslands.
Globus stækkar við sig á 35 ára afmælinu:
Yfir 2000 Zetordráttar
vélar hafa selst
Globus hf. hefur nýlega tekið í
notkun 2000 fermetra þjónustu-
miðstöð og opnað glæsilegan sýn-
ingarsal fyrir bíla og búvélar í hús-
næði félagsins að Lágmúla 5, en á
þessu ári eru liðin 35 ár frá stofnun
félagsins.
1 upphafi hafði Globus hf. um-
boð fyrir Gillette verksmiðjurnar
auk þess sem fyrirtækið hóf inn-
flutning á landbúnaðartækjum í
samvinnu við heildversíunina
Heklu. Hefur fyrirtækið verið
brautryðjandi í tækninýjungum í
íslenskum landbúnaði en sem
dæmi má nefna að það selur fullan
Zetor dráttarvélin hefur verið vin-
sæl hjá íslenskum landbúnaðar-
frömuðum.
helming allra þeirra dráttarvéla
sem seldar eru í landinu.
Landbúnaðartæki hafa verið
flutt inn frá Hollandi, rakstrarvélar,
og árið 1969 gengust forráðamenn
Globus hf. fyrir stofnun íslensk-
tékkneska verslunarfélagsins, og
hafa verið seldar hérlendis yfir 20Ö
Zetor dráttarvélar frá Tékkósló-
vakíu. Þá flytur fyrirtækið einnig
inn vélar og tæki frá JCB verk-
smiðjunum í Bretlandi.
Árið 1973 tók fyrirtækið við
Citroen bifreiðaumboðinu og hafa
verið seldar um 2000 bifreiðar á
beim 9 árum sem liðin eru síðan.
í upphafi störfuðu 2 menn í fullu
starfi og stúlka í hálfu starfi hjá
fyrirtækinu en í dag starfa hjá Glo-
bus um 50 manns. Forstjóri fyrir-
tækisins er Árni Gestsson.
Elíeser Jónsson:
Vinnur að
loftljós
myndun
í Neapel
Elíeser Jónsson, flugmaður fór í
byrjun desember á tveggja hreyfla
skrúfuþotu sinni austur til Neapei í
Himalajafjölium til að vinna þar að
loftljósmyndun fyrir breskt fyrir-
tæki. Flugvél hans hefur sérstakan
útbúnað til þessa starfs og Elíeser
mikla reynslu af loftljósmyndun.
í fyrra vann hann að samskonar
verkefni í Afríku, en þar var um að
ræða kortagerð fyrir væntanlegt
raforkuver.
Elíeser flaug í 5 áföngum austur í
byrjun desember og gekk ferðin í
alla staði vel og hefur raunar allt
gengið að óskum hjá honum þar
eysíra. Elíeser er ekki væntanlegur
heim fyrr en eftir áramót. -S.dór
Ný þjónusta Hárskerans
Breytingar hafa verið gerðar á
Hárskeranum. Nú geta viðskipta-
vinir beðið í blómaskála og fengið
sér kaffi á meðan þeir bíða.
Einnig hafa bílastæði við Hár-
skerann verið löguð þannig að
viðskiptavinir eiga mjög auðvelt
með að fá bílastæði.
Eigandi Hárskerans,Pétur Mel-
steð^ hefur á síðasta ári verið að
stúdera nýja tækni í París og
London, hjá Vidal Sassoon, Alan
International og Pierre Alexandre
International Academy. Perman-
ent og strípur eru alltaf að verða
vinsælli í herra- og dömulínunni.
Opið á laugardögum.
Pétur í Harskeranum.