Þjóðviljinn - 29.12.1982, Blaðsíða 16
uúÐmmN 1 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482og81527. umbrot 81285. Ijósmvndir81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Miðvikudagur 29. desember 1982 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Óvíst hvort Guðmundur G. Þórarinsson fer fram:
Er ekki í stöðu tll að
úttala mig um
n
Frambjóðendur í prófkjöri full-
trúaráðs Framsóknarflokksins í
Reykjavík hafa verið að tínast inn
á lista að undanförnu. Af hálfu
flokksins hafa nöfn þeirra sem
bjóða sig fram ekki fengist birt, en
talið er naer víst að á listanum verði
að finna nöfn Ólafs Jóhannessonar
utanríkisráðherra, Haralds Ólafs-
sonar lektors og Björns Líndals
fyrrverandi formanns SUF.
Hláka og mikil úrkoma settu svip
á gærdaginn, níu snjóflóð féllu í Ól-
afsvíkurenni, vatn tlæddi inn í nýju
heilsugæslustöðina á flöfn í Horna-
firði og ástandinu á Selfossi og
Hvolsvelli var líkt við F’eneyjar. I
Reykjavík myndaðist mikill vatns-
elgur á götum og skapaðist víða
öngþveiti, einkum í gærmorgun,
þegar hílar drápu á sér í bleytunni.
Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri
í Reykjavík sagði að ástandið hefði
verið verst í gærmorgun.
„Fyrst var ofankoma og strekk-
ingsvindur í morgunsáriö, en síöan
fór aö hlána og göturnar uröu víða
einn vatnselgur", sagöi hann.
Nærri 100 manna vinnuflokkur
vann höröum höndum í gærdag við
að hreinsa frá niðurföllum og gera
götur borgarinnar ökufærar. Verst
var ástandíö í Árbæjarhverfi og
Breiðholti, en um miöjan dag í
gær var ástandið víða komið í
sæmilegt horf aö sögn gatanmála-
stjóra.
-Ig-
Orsök brunans
í Breiðholti:
Útleiðsla í
sjónvarpinu
Að sögn Rannsóknarlög-
reglunnar þykir fullvíst að
upptök eldsvoðans í íbúðar-
húsi í Breiðholti aðfararnótt
mánudags sl. megi rekja til
íkvcikju í sjonvarpstæki.
hað hefur gerst áður hérlendis
að húsbruna megi rekja til
íkveikju í sjónvarpstækjum. Or-
sök slíkra íkveikja er, að þegar
tækin eru höfð í sambandi þótt
búið sé að slökkva á þeim, getur
einangrunarbilun í þeim hleypt úr
þeim straumi sem eftir stendur.
Njörður Snæhólm rannsóknar-
lögregluinaður sagði að eldsupp-
tök sem þessi væru mjög fátíð, en
rétt væri að hafa allan vara á,
einkum ef fólk væri með gömul
sjónvarpstæki í notkun, og taka
þau úr sambandi að lokinni not-
kun. Eins væri rétt að áminna fólk
um að koma upp reykskynjurum í
íbúðum sínum. „Pað þarf ekki
mikinn reyk til að þeir geri fólki
viðvart", sagð Njörður.
- Ig-
Stóra spurningin snýst hinsvegar
um það hvort Guðmundur G. Þór-
arinsson fari fram, en þegar frestur
til aö tilkynna framboð rann út á
mánudagskvöldið, þótti sýnt að
Guðmundur hefði ekki tilkynnt.
framboð. Þó er ekki loku fyrir það
skotið að Guðmundur fari fram,
þar sem prófkjörsnefnd þarf að
fylla lista a.m.k. 10 manna. Þjóð-
viljinn hafði í gær samband við
Síðustu forvöð
að skipta gamalli
mynt yfir í nýja
Frain til áramóta eru síðustu
forvöð að skipta gömlu íslensku
myntinni yfir í þá nýju, búi einhver
svo vel að eiga verulegt magn sem
tekur að skipta yfir í nýju myntina.
Eftir 1. janúar nk. eru gömlu pen-
ingarnir úr gildi fallnir.
Sighvatur Jónasson, afgreiðslu-
stjóri Seðlabankans, sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að þessa dag-
ana bærist mikið af gamalli mynt.
Kæmi fólk með þetta í sekkjum og
til að mynda í gærdag hefðu borist
um 20 pokar og nam upphæðin alls
milli 1400 og 1500 krónum. Sagði
hann að 50 kg. af gömlu myntinni
væri að verðgildi svona 300 krónur
eða svo, enda fengist ekki nema 40
kr. fyrir 4 þúsundin. Nær ekkert
kemur lengur inn af seðlum.
En hvers virði er þá gömlu pen-
ingarnir hjá söfnurum ?
Magni R. Magnússon í
Frímerkja- og myntverslun Magna
að Laugavegi 15 sagði í gær að
myntin væri einskis virði, enda svo
málið”
Guðmund G. Þórarinsson, en
hann kvaðst ekki vera í neinni
stöðu til að gefa upp stöðu sína í
prófkjörinu. í tveim síðustu al-
þingiskosningum hefur hann skipað 2.
sæti listans í Reykjavík.
Starfsmaður Framsóknarflokks-
ins, Sigfús Bjarnason, sagði að
endanlegur listi yfir þátttakendur í
prófkjörinu ætti að liggja fyrir á
föstudaginn, þ.e. gamlársdag.
mikið magn af henni í umferð.
Aftur á móti væru seðlarnir nokk-
urs virði ef þeir væru alveg nýir og
ónotaðir. Nefndi hann sem dæmi
nýjan 5 þúsund krónu seðil, sem að
nafnvirðiværi50kr., fyrir hann
fengjust 200kr. Fyrir nýjan 100 kr.
Guðmundur G. Þórarinsson
Hann vildi ekkert segja um hverjir
hefðu tilkynnt þátttöku, en sagði að
margir væru óákveðnir í jreim efnum.
seðii fengjust 15 kr. en nafnvirði 1
kr.
Magni sagði að langt yrði þangað
til myntin gamla yrði einhvers
virði, vegna þess að svo mikið af
henni lægi hjá almenningi ennþá.
-S.dór.
Forval Alþýðu-
bandalagsins
á Vestfjörðum:
Niöur-
stöður
í fyrri
umferð
Fyrri umferð forvals Al-
þýðubandalagsins á Vest-
fjörðum vegna skipunar fram-
( boðslista flokksins í komandi
alþingiskosningum fór fram
dagana 3.-9. þessa mánaðar.
Vegna erfiðra póstsamgangna
á Vestfjörðum tókst ekki að
ljúka talningu atkvæða fyrir
jól.
Samkvæmt forvalsreglum
Alþýðubandalagsins á Vest-
fjörðum ber í fyrri urnferð að
velja 6 menn til þátttöku í
síðari umferð. í fyrri umferð
skrifar hver þátttakandi sex
nöfn án röðunar, en í síðari
umferð verður svo raðað í
þrjú efstu sæti listans úr hópi
þeirra sex sem flest atkvæði fá
í fyrri umferð, og hefur stjórn
kjördæmisráðs einnig heimild
til að bæta þrernur mönnum
við. Fyrir síðari umferð þurfa
frambjóðendur að hafa gefið
kost á sér, en tilnefningar í
fyrri umferð eru óbundnar. '
Aðeins flokksmenn í Al-
þýðubandalaginu hafa rétt til
þátttöku í forvalinu sem kjós-
endur.
Af um það bil 200 flokks-
mönnum Alþýðubandalags-
ins á Vestfjörðum greiddu 163
atkvæði. 9 seðlar voru auðir
eða ógildir og gild atkvæði því
154.
Flest atkvæði fengu: Kjart-
an Ólafsson, ritstjóri Reykja-
vík, Þuríður Pétursdóttir,
kennari ísafirði, Gestur Krist-
insson, skipstjóri Súganda-
firði, Guðvarður Kjartans-
son, skrifstofumaður, Flat-
eyri, Pétur Pétursson, hér-
aðslæknir Bolungarvík, Finn-
bogi Hermannsson, kennari
ísafirði og Kristinn H. Gunn-
arsson, skrifstofustjóri og for-
maður Verslunarmannafélags
Bolungarvíkur, Bolungarvík.
Röð manna var eins og talið
er hér að ofan, nema Gestur
og Guðvarður voru jafnir og
einnig Finnbogi og Kristinn.
Síðari umferð forvals Al-
þýðubandalagsins á Vest-
fjörðum fer væntanlega fram í
síðari hluta janúar.
Viðræðunefnd um
skólakostnað
Borgarráð hefur skipað þriggja
manna nefnd til viðræðna við
menntamálaráðuneytið um skipt-
ingu skólakostnaðar. í nefndinni
eiga sæti: Markús Órn Antonsson,
og Ragnar Júlíusson, fulltrúar D-
lista, og Bragi Jósepsson, fulltrúi
V-lista.
í borgarráði var varpað hlutkesti
milli Þorbjörns Broddasonar, G-
lista, og Braga, en þeir hlutu eitt
atkvæði hvor. Kom nafn Braga
upp.
- AI
- hól.
Mikil úrkoma og hláka sunnanlands:
Víða öngþveiti í götupollum
„Stolt siglir fieyið mitt“ gat hann raulað þessi bílstjóri, kominn út úr verstu ógöngunum í Suðurfelli í
Breiðholti. En það voru ekki allir sem komust svo klakklaust yfir stærstu „stöðuvötnin14 í hlákunni í gær.
Mynd -eik.
Gamla krónan kvödd
Fyrir nýjan og ónotaðan 5 þús. króna seðil fást nú 200 kr. hjá söfnurum, en
gamla myntin cr verðlaus. Eftir 1. janúar nk. falla gömlu peningarnir úr
giidi og eigi fólk enn umtalsvert magn af þeiin, eru síðustu forvöð að skipta
yfir í nýja peninga fram að áramótum.