Þjóðviljinn - 08.01.1983, Side 4
4 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Helgin 8. - 9. janúar 1983_____
Laga- og skipulagsnefnd Alþýðubandalagsins tekin til starfa
Svavar Gestsson, Einar Karl
Haraldsson, Adda Bára
Sigfúsdóttir og Hjalti Kristgeirsson
á fundi skipulagsnefndar
Alþýðubandalagsins í gær. Ljósm.
eik.
Yiðræðurum samstöðu
vinstriaflanna í landinu
Rætt um róttækar breytingar á skipulagi Alþýðubandalagsins
Flokksráð Alþýðubandalagsins
ákvað í nóvember að fela
sérstakri skipulagsnefnd að
leita nýrra leiða til að efla
einingu íslenskra vinstri
manna.
Laga- og skipulagsnefndin kom
saman til fyrsta fundar að Grettis-
gðtu 3 í gær og stóð liann fram á
nótt. í nefndinni eiga sæti Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins, Adda Bára Sigfúsdóttir
formaður framkvæmdastjórnar,
Ólafur Ragnar Grímsson formaður
þingflokks Alþýðubandlagsins,
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson
Reykjaneskjördæmi, Sveinn Krist-
insson, Vesturlandskjördæmi,
Kristinn H. Gunnarsson, Vest-
fjarðakjördæmi, Ragnar Arnalds,
Norðurlandi vestra, Einar Már Sig-
urðsson (til vara Birgir Stefánsson)
Austurlandskjördæmi, Ármann
Ægir Magnússon, Einar Karl Har-
Nefndarmenn að störfum í
gærkvöldi, en á fundinum voru
ræddar fjölmargar nýjar
hugmyndir um skipulagsmál og
starfshætti Alþýðubandalagsins.
Ljósm. eik.
aldsson, Alþýðubandalagið í
Reykjavík og Guðbjörg Sigurðar-
dóttir, Æskulýðsnefnd Alþýðu-
bandalagsins. Áuk þess eiga sæti í
nefndinni fimm fulltrúar kjörnir af
flokksráði, þau Bjargey Elíasdótt-
ir, Arthur Morthens, Hjalti Krist-
geirsson, Tryggvi Þór Áðalsteins-
son og Vilborg Harðardóttir.
Viðrœður innávið
og útávið
Fram kom í inngangsorðum for-
manns Alþýðubandalagsins á
fundinum að á vegum þessarar
nefndar færu fram umræður um
nauðsynlegar breytingar á skipu-
lagi og starfsháttum um nauðsyn-
legar breytingar á skipulagi og
starfsháttum Alþýðubandalagsins
innan flokksins, og vænst væri á-
fangaskýrslu frá henni í marsmán-
uði. Nefndinni er ætlað að skila til-
lögum til landsfundar Alþýðu-
bandalagsins á næsta vetri. Einnig
er ætlunin að efna til viðræðna við
hópa, samtök og einstaklinga utan
flokksins um sameiginleg stefnu-
mið og þau skipulagsform sem
kynnu að auðvelda samstöðu.
Hann lagði áherslu á að hér væri
þörf á jafnrétti allra sem leita vildu
samstöðu - hvorki mætti gæta for-
ræðistilhneigingar né fordóma frá
fyrri tímum, heldur ræðast við á
jafnréttisgrundvelli.
Nýmœli í
flokkslögum 1968
Ragnar Arnalds rakti á fundin-
um aðdragandann að stofnun Al-
þýðubandalagsins sem flokks árið
1968, eftir að það hafði verið í 12 ár
sambland af kosningabandalagi
nokkurra stjórnmálaafla og flokki.
Hann gat þess að í flokkslögum
sem sett voru við flokksstofnunina
gætti mjög samfylkingarhug-
mynda, auk þess sem einræði upp-
stiliingarnefnda hefði verið afnum-
ið og búið svo um hnútana að
minnihluti gæti ávallt náð fulltrú-
um í flokksstofnanir. Meðal ný-
mæla í þessum lögum hefði verið
að ekkert brottrekstrarákvæði var
þar að finna, og að sérstaklega var
tekið fram að minnihluta væri
heimilt að vinna skoðun sinni fylgis
innan flokksins, en í ýmsum sam-
tökum sósíalista hefði gilt reglan
um lýðræðislegt miðstjórnarvald,
þar sem minnihluti varð að hlíta
niðurstöðu meirihluta. Meðal
margra annarra nýmæla í lögunum
var endurnýjunarreglan svokall-
aða sem kveður á um að enginn
megi sitja lengur en þrjú kjörtíma-
bil í senn í trúnaðarstöðum innan
flokksins.
Niðurstöður flokks-
starfsnefndar
Arthur Morthens rakti niður-
stöður flokksstarfsnefndar sem sett
hefur saman skýrslu þar sem fram
koma viðamiklar upplýsingar um
flokksstarfið frá 1968. Þar er greint
frá skipulagi og stofnunum flokks-
ins, fjölda flokksmanna og kjós-
enda, flokksdeildum og félögum
þeirra, og niðurstöðum varðandi
starf þeirra. Þá eru stofnanir
flokksins, landsfundir, flokksráð,
miðstjórn og starfsnefndir, fram-
kvæmdastjórn teknar fyrir ein af
annarri og starfshættir þeirra metn-
ir. Einnig er fjailað um fræðslustarf
Alþýðubandalagsins, æskulýðs-
starf, flokksstarfssamþykktir og
framkvæmd þeirra og fleira. Er hér
samankominn mikilsverður fróð-
leikur í sambandi við úrbótatil-
lögur, en nefndina skipuðu auk
Arthurs Morthens, sem var for-
maður, Bjargey Elíasdóttir, Elísa-
bet Þorgeirsdóttir, Hjalti Krist-
geirsson, Margrét S. Björnsdóttir
og Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
Breytt skipulag
Hjalti Kristgeirsson fjallaði
þessu næstu um flokksgerðina og
skipulag sósíalískra flokka. í máli
hans kom m.a. fram að skipulagi
flokksins ætti að breyta í þá átt að
grunneiningar hans, félögin hefðu
meira vald, frumkvæði og ábyrgð
en nú er. Hvaða félag sem væri ætti
að geta orðið aðili að Alþýðu-
bandalaginu með alla sína félags-
menn á þann einfalda hátt að gefa
út einhliða yfirlýsingu þar um.
Takmarkanir á félagssvæði og
fjölda félaga á hverjum stað þyrfti
að afnema. Þá lagði Hjalti til að
stefnuskrá flokksins yrði lögð til
hliðar og samin ný með virku at-
fylgi flokksmanna á grundveili
þeirra markmiða sem felast í fyrstu
grein flokkslaga, þar sem fjallað er
um Alþýðubandalagið sem sósíal-
ískan flokk, byggðan á lýðræði og
þingræði, sem sé flokkur allra ís-
lenskra vinstrimanna. Gagnrýni
yrði að vera aðal boðorð við samn-
ingu nýrrar stefnuskrár.
Eining
gegn íhaldssókn
Ólafur Ragnar Grímsson rakti
það hvernig kreppa, atvinnuleysi,
vígbúnaðarkapphlaup og tortíming
náttúruauðlinda mótuðu stjórn-
málabaráttuna í öllum löndum í
okkar heimshluta. Þar sem vinstra
fólk skiptist í margar sundurþykka
flokka og stefnuhópa hefðu hægri
öflin náð viðspyrnu til valdatöku,
en þar sem félagshyggjuöflin hefðu
sameinast á skipulagðan hátt hefði
tekist að hrinda framsókn hægri
aflanna.
Þá minnti hann á að dreifing
kraftanna virtist vera ríkjandi til-
hneiging meðal vinstri manna á ís-
landi. Það væri eðlilegt að Alþýðu-
bandalagið sem ávallt hefði mótast
af breiðfylkingarsjónarmiðum
hefði frumkvæði að umræðu um
leiðir til þess að stuðla að einingu
gegn íhaldssókn í landinu. Stofnun
laga- og skipulagsnefndarinnar
væri vísbending um að Alþýðu-
bandalagið væri reiðubúið til þess
að ræða breytingar á skipulags- og
starfsháttum til þess að skapa for-
sendur fyrir betri samstöðu um
mikilvægustu mál.
Fjölmargar hugmyndir voru til
umræðu á fundinum í gær er bæði
snertu hið innra flokksstarf, svo og
hvernig stuðla bæri að viðræðum
um stöðu vinstri hreyfingarinnar í
landinu og möguleika hennar til
samfylkingar gegn valdatöku hægri
aflanna í landinu. - ekh.
Steingrímur Sigfússon, Sveinn
Kristinsson, Arthur Morthens,
Guðbjörg Sigurðardóttir, Ármann
Ægir Magnússon og Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson eru meðal 16
fulltrúa allsstaðar af landinu í laga-
og skipulagsnefndinni. Ljósm. eik.