Þjóðviljinn - 08.01.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 08.01.1983, Blaðsíða 6
*6 SÍÐA^fÞJÓBVlLJINN*HHg«T 8. -< 9r jannar' 1983 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóöfrelsis. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiðslustjóri: Baidur Jónasson. Blaðamenn: Álfheiöur Ingadóttir/, Helgi Ólafsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlóöversson. íþróttafréttaritari: Víöir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson. Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurösson, Guömundur Andri Thorsson. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigriöur H. Sígurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Sigríöur Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúlaö Reykjavík, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. r i tst jór nar g r ci n úr aimanak ínu Davíð sýnir klærnar • Á tyllidögum flaggar Sjálfstæðisflokkurinn með kjör- orðinu „Stétt með stétt“, og þykist vera „flokkur allra stétta“. • Sjaldan hefur hið rétta og sanna stéttareðli Sjálfstæðis- flokksins hins vegar komið skýrar í ljós en við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar nú á fimmtudags- kvöldið. • Talsmenn Sjálfstæðisflokksins boða jafnan miklar skatta- lækkanir þegar þeir eru í minnihluta, hvort heldur sem er á Alþingi eða í sveitarstjórnum. Og fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í Reykjavík í vor spilaði Davíð Oddson þá plötuj af miklum ákafa. • Nú þegar fyrsta fjárhagsáætlun Davíðs hefur verið af- greidd blasa staðreyndirnar við. • Davíð Oddsson og félagar hans í borgarstjórn Reykjavík- ur lækka fasteignagjöldin um 20 miljónir á þessu ári, en þá peninga alla og meira til sækja þeir í vasa þess fólks, sem ferðast þarf með strætisvögnum borgarinnar. Strætisvagn- afargjöldin hækka nefnilega um nær 50%, og færir sú hækk- un ein borginni yfir 30 miljónir króna. Auk þess eru ýmis önnur þjónustugjöld hækkuð verulega, svo sem greiðsla fyrir aðgang að sundstöðum, barnaleikvöllum og fyrir notk- un bókasafna. Samtals eru þjónustugjöld hækkuð í fjárhags- áætlun borgarinnar um 50 miljónir króna umfram almennar verölagshækkanir. • Stefnan getur ekki skýrari verið og stéttareðli þeirr- ar stefnu hverju barni væntanlega morgunljóst. • Með lækkun fasteignagjaldanna deilir Davíð Oddsson, borgarstjóri Sjálfstæðistlokksins, út fjármunum samkvæmt reglunni, að þeir sem mest eiga skuli líka fá mest í sinn hlut. Og þessa peninga sem Davíð deilir út með slíkum hætti samkvæmt tlokksstefnu Sjálfstæðisflokksins sækir hann alla í vasa fólksins, sem ferðast með strætisvögnunum, en þar er lágtekjufólk í miklum meirihluta. • Sá sem á stórt einbýlishús í borginni fær úthlutað 2000,- krónum frá Davíð Oddssyni með lækkun fasteignagjalda og sumir þaðan af ineira. Barnafjölskylda, sem ferðast með strætisvögnum, þarf hins vegar að borga yíir 3000,- krónur á ári fyrir fargjaldahækkun Davíðs Oddssonar, og er þá miðað við að einn fullorðinn og tvö börn fari hver eina ferð með strætó fram og til baka á virkum dögum en sitji heima um helgar. Enda þótt slík fjölskylda fái 500 til 700 krónur til baka frá Davíð með lækkun fasteignagjalda á meðalíbúð í blokk, - þá fer samt ekkert á milli mála að hin mikla lækkun fast- eignagjaldanna hjá eigendum stórra einbýlishúsa er öll tekin frá því fólki sem strætisvagnana notar. • Davíð Oddsson kann vel til verka. Hann veit til hvers er ætiast afflokkseigendafélagi Sjálfstæðisflokksins, og hann er þess félags trúfasti sonur. • Skattalækkun Sjálfstæðisflokksins átti nefnilega alltaf bara að vera fyrir stóreignamennina, en gjöldin að hækka hjá þeim sem minna bera úr býtum. Það er kjarninn þegar skrúðmælgin og allar umbúðirnar hafa verið teknar utan af. Þannig er stefna Sjálfstæðisflokksins, þannig er stéttareðli Sjálfstæðisflokksins. • í leiðinni láta Davíð Oddsson og félagar hans sig ekki muna um að skera framlag borgarinnar til byggingar dvalar- heimila fyrir aldraða niður um fullan helming að raungildi frá því sem verið hefur á liðnum árum undir vinstri stjórn, og draga verulega úr öllum félagslegum framkvæmdum. • Gerðir borgarstjórnaríhaldsins við afgreiðslu fjárhagsá- ætlunar nú sýna okkur í hnotskurn hvers hér er að vænta nái Sjálfstæóisflokkurinn valdaaðstöðu í komandi alþingiskosn- ingum. • Þess vegna er aðvörun borgarfulltrúa Alþýðubandaiags- ins tímabær, en í bókun þeirra á síðasta borgarstjórnarfudi segir m.a.: „Alls staðar í kringum okkur, þar sem hægri flokkar ráða, hefur vaxandi kreppu verið mætt með niður- skurði á félagslegri þjónustu. Greinilegt er að borgarstjórn- armeirihluti Sjálfstæðisflokksins ætlar að feta í þau fótspor og má hér sjá forsmekk af þeirri leiftursókn gegn lífskjörum sem yrði, ef íhaldið kæmist til valda eftir næstu alþingiskosn- ingar.“ k. Oft hefur verið skrifað að frjáls- lyndir borgarar séu ekki til á ís- landi. Gunnar Benediktsson benti á að þeir hefðu fengið réttindi sín lýðræðisleg á silfurdiski. Stéttar- bræður þeirra í nágrannalöndun- um þurftu að berjast fyrir sínum réttindum harðri baráttu. Af þeim ástæðum eru til erlendis frjáls- lyndir borgaralegir flokkar þar sem mannúðarsjónarmið og virðing fyrir hvers konar einstaklingsfrelsi setur mjög svipmót sitt á viðkom- andi flokka. Það sýna slíkir flokkar í verki t.d. með því að berjast fyrir réttindum pólitískra andstæðinga. Sjálfstæðisflokkurinn á Islandi er ekki slíkur frjálslyndur flokkur sem sést best á því, hvernig Morg- unblaðið bregst við þeim skoðunum sem fram koma í ríkisfjölmiðl- um og eru ekki að skapi íhalds- ins. Eins mætti nefna franska pilt- inn Gervasoni sem setti hægri Það er kom- inn tími.. pressuna á annan endann um árið. Við slíkar uppákomur sækir að manni ótti um að einhvers konar fasismi blundi með þeirri þjóð sem nú treður snjóskafla og ætlar að kjósa í apríl. Barbaríið hjá burgeisunum Það er nú ekki aðeins, að vantar frjálslynda borgara á íslandi, held- ur eru þeir sem fyrir eru undarlegt sambland af nýríkum spekúlöntum og prinsípplausu erkiíhaldi. Það er rnjög sláandi að bera saman þjón- ustu hérlendis og erlendis í verslun- oim og búlum sem borgararnir feka. Erlendis er víða lagt upp úr vandaðri þjónustu og velvilja við viðskiptavini, en hér mega neytendur láta bjóða sér nánast hvað sem er án þess að geta mögl- að. Máske er þetta vegna þess hve Neytendasamtökin eru veik, en á- reiðanlega á þetta skylt við þanka- gang og stemmningu hjá þeim sem reka búðir og búlur. Þetta á sér sjálfsagt skýringu í hinum verðbólgna gróða sem kaupmannseðlið sér á hverjum manni og ekkert lætur íslenski burgeisinn skyggja á krónuna og eyrinn, hér og nú. Þannig þykir skrifar skiptir iðulega hundruðum prós- enta eins og fram hefur komið í verölagskönnunum að undan- förnu. (Því miður reyndist KRON ekki undantekning í þessu efni). Svona nokkuð er að sjálfsögðu ekki annað en barbarismi. Karlaklúbbar og hamborgara mentalitet Neytendur eru ævinlega að greiða úr eigin vasa allra handa dellu sem þessum spekúlöntum dettur í hug. Hamborgarabúlurnar sem spretta eins og gorkúlur um allar jarðir eru greiddar niður af sjálfsagt að hafa enga eða vitlausa verðmerkingu á vörum í verslun- um. Og þannig skammast kaup- menn sín ekki einu sinni fyrir það að verðmunur á sömu tegund Óskar Guðmundsson neytendum. Þar með taldar auglýs- ingarnar sem eru hvorki fáar né smáar nú um stundir. I þessu sam- bandi langar mig til að varpa fram þeirri spurningu hvort kostnaður hafi ekki aukist á undanförnum árum með tilkomu sjónvarps og fleiri blaða. Það þýðir að stærri hluti vöruverðs og þjónustu er orð- inn aulýsingakostnaður, heldur en var til dæmis fyrir tuttugu árum. Þeir sem gætu tekið uppá því að opna hamborgarastað í næsta húsi við þig, lesandi góður, eru skipu- lagðir í karlaklúbba. Sagt er að hvergi í heiminum séu fleiri karl- aklúbbar heldur en á íslandi. Máske kvennaframboðin hafi að einhverju leyti verið andsvar við menningarfyrirbærinu og þvf hug- arfari sem fylgir þessum klúbbum? Sérgœskan og siðblindan Þessi íslenska nýburgeisastétt er óvenju snauð af menningarlegum verðmætum og metnaði. Sverrir Kristjánsson skrifaði einu sinni grein um þetta, þar sem hann benti m.a. á hversu lítið og sjaldan borg- arar gæfu Háskóla íslands fé og myndarlegar gjafir. Sinnuleysið væri táknrænt fyrir andlegt ásig- komulag stéttarinnar. Sagt er að leiftursóknarung- lingar ráði lofum og lögum í flest- um framhaldsskólanna um þessar ntundir. Þeir dreifi ókeypis blöðum í Prövdubroti til nemenda skól- anna með berum stelpum og fimm- aurabröndurum urn Hannes Hólm- stein og aðra andans leiðtoga. Þetta ku fá góðan hljómgrunn á sama tíma og Reykvíkingar eru að njóta ávaxta leiftursóknar Sjálf- stæðisflokksins í borginni með að- för að kjörum almennings og íviln- unum fyrir þá ríku. Gjaldþrotið ínánd? Staðreyndin er auðvitað sú, að íslensk borgarastétt er ónýt til allra hluta. Það er ekki einungis að menningarlega og pólitískt standi hun í pytti sérgæsku og siðblindu. Heldur hefur henni mistekist svo herfilega að láta atvinnurekstur „sinn blómstra, að það er fyrir löngu kominn tími til að félagslegt forræði fái að spreyta sig. þannig standa borgararnir sjálfir að því að flytja inn allra handa drasl og nauðsynjavöru í santkeppni við innlenda framleiðslu sem þeir standa einnig í forsvari fyrir. Inn- flutningurinn er gerður svo ábata- samur að er aðhlátursefni fyrir er- lenda samkeppnisaðila. Fiskmörkuðum okkar hafa þeir klúðrað svo með óvönduðum vinn- ubrögðum (flýtir og flumbru- gangur með vinnuþrælkun verka- fólks) og klaufaskap í markaðsöfl- un. að engu tali tekur. Það er kom- inn tími til að leita annarra að- ferða, það er kominn tírni til að almenningur taki völdin á vinnu- stöðunum. -óg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.