Þjóðviljinn - 08.01.1983, Blaðsíða 25
Heigin 8. - 9. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25
Forval Alþýðubandalagsins
í Norðurlandskjördæmi eystra
10.—15. janúar
Fyrri hluti forvals Alþýðubanda-
lagsins í Norðurlandskjördæmi ey-
stra fer fram 10. til 15. þessa mán-
aðar. Forvalsreglur voru sendar fé-
lögum með fréttabréfi stjórnar
kjördæmisráðs í desember og voru
þær einnig birtar í jólablaði
Norðurlands.
Nýir félagar
atkvæðisbærir
Atkvæðisbærir eru fuilgildir fé-
lagsmenn í Alþýðubandalaginu
sem eru skuldlausir á forvalsdegi,
segir í 1. grein reglna um forvalið.
Sérstök athygli er vakin á því að
stuðningsmenn Alþýðubandalags-
ins sem ganga í flokkinn í síðasta
lagi á forvalsdegi öðlast þar með
rétt til þátttöku í forvalinu.
laugardaginn 15. janúar kl. 13 -17.
Akureyri: í Lárusarhúsi Eiðs-
vallagötu 18, föstudaginn 14. janú-
ar kl. 17 - 19 og laugardaginn 15.
janúar k. 14 - 18.
Suður-Þingeyjarsýsla: l'ar verð-
ur kjörgögnum dreift um eða upp
úr helginni 8. - 9. janúar og þeim
safnað saman fyrir 14. jan.
Húsavík: í Snælandi laugardag-
inn 15. janúar kl. 10 -12 og 13 -16.
Raufarhöfn: í Hnitbjörgum
sunnudaginn 9. janúar kl. 16 - 19.
Þórshöfn og nágrenni: Að Vest-
urvegi 5 þriðjudaginn 11. og mið-
vikudaginn 12. janúar kl. 13 - 16.
Reykjavík: Á skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins Grettisgötu 3 mánu-
daginn 10. til fimmtudaginn 13.
janúar frá kl. 9 - 17.
Fjögur nöfn óröðuð
.,Á kjörseðil fyrri áfanga skal
rita nöfn fjögurra manna sem við-
komandi óskar að taki sæti á fram-
boðslista flokksins. Nöfnin eru ó-
röðuð en heimlisfang fylgir hverju
nafni á miðanum. Rita skal nöfn
manna úr fleiri en einni flokks-
deild. Auk þess er heimilt að rita
nöfn annarra en flokksbúndinna
Alþýðubandalagsmanna", segir
in.a. í 4. grein.
Hér er kveðið á um að heimilis-
fang fylgi hverju nafni. Uppstil-
lingarnefnd hefur túlkað það sem
svo að í flestum tilfellum nægi að
nefna sveitarfélag. Telji fólk hins-
vegar einhvern vafa geta leikið á
við hvern sé átt er það hvatt til þess
að greina einnig frá starfi og nánara
heimilisfangi.
Sérstök athygli er einnig vakin á
því að því aðeins er seðill gildir að
hvorki fleiri né færri en fjórir séu
tilnefndir, og að þessir fjórir séu
ekki úr sama félagi.
Framkvæmd forvalsins
Framkvæmd forvalsins verður í
höndum uppstillingarnefndar-
manna á hverjum stað og aðstoðar-
manna sem félögin tilnefna.
Fyrri umferð forvalsins fer fram
sem hér segir:
Ólafsfjörður: Að Aðalgötu 1
fimmtudaginn 13. janúar kl. 20 -
23.
Dalvík: Að Bergþórshvoli
Utankjör-
fundarkosning
Unnt verður að kjósa utan kjör-
fundar og ber þeim sem þess óska
að hafa samband við uppstilling-
arnefndarmenn á hverjum stað. Þá
er einni'g hægt að kjósa hjá því fé-
lagi í kjördæminu þar sem viðkom-
andi kann að vera staddur á for-
valsdegi þess. Auk þess er hægt að
kjósa í Reykjavík eins og getið var
hér að ofan.
Síðari umferð
í febrúar
Atkvæði verða talin á Akureyri
16. janúar, hafi þau borist allsstað-
ar að. Annars verður talið þegar
veður og færð leyfa.
Stefnt er að því að síðari umferð
forvalsins eigi sér stað snemma í
febrúar. Fyrir þann tíma verða
þátttakendur í henni kynntir svo
vel sem kostur er. Hið sama gildir
um framkvæmd hennar.
Uppstillingarnefnd
Allar nánari upplýsingar gefa
uppstillingarnefndarmenn: Páll
Hlöðvesson, Akureyri, Sigríður
Stefánsdóttir Akureyri, Svanfríður
Jónasdóttir Dalvík, Björn Þór
Ólafsson Ólafsfirði, Sigurður R.
Ragnarsson, Mývatnssveit, Örn
Jóhannsson Húsavík, Þorsteinn
Hallsson Raufarhöfn og Ragnar
Sigfússon Þistilfirði.
- ekh.
Þriðjudagsfundir
herstöðvaandstæðinga
Samtök herstöðvaandstæðinga
efna til vikulegra fræðslufunda á
næstunni og verður fyrsti fundur-
inn haldinn að Hótel Heklu'n.k.
þriðjudag og hefst kl. 20.30.
Á fundinum verður fjallað um
hin ýmsu mál er varða friðarbarátt-
una í heiminum. Fyrsti fundurinn,
sem verður í umsjón Þorvaldar
Arnar Árnasonar, ber yfirskriftina
„Hvers vegna fara menn í stríð?“
og sagði Þorvaldur í viðtali við
blaðið að reynd yrði tilraun með
nýtt fundarform þar sem áhersla
yrði lögð á að fundarmenn miðluðu
hver öðrum og með hópumræðum
þar sem félagslegar, sálrænar,
efnahagslega og pólitískar hliðar
þessa vanda yrðu reifaðar.
Annar tundur verður haldinn á
þriðjudaginn eftir viku og verður
þar fjallað um vígbúnaðarkapph-
laupið og sjá þau Rósa Steingríms-
dóttir og Erling Ólafsson um þann
fund. Þriðji þriðjudagsfundurinn
mun fjalla um geislavirkni, og
verður hann í umsjá Garðars
Mýrdal, en fjórði þriðjudagsfund-
urinn sem fyrirhugaður er mun
fjalla um áhrif kjarnorkustyrjaldar
og verður hann í umsjón Guð-
mundar Georgssonar læknis
Á Þorláksmessu var dregið í símanúmerahappdrætti Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra. Vinningar voru 7 Suzuki jeppar og 10 sólarlanda-
ferðir til Benidorm.
Milli jóla og nýárs voru 5 jeppar afhentir til Vinningshafa, en þeir voru:
Sig. Hallgrímson, Hafnarfirði, Stefanía Þórðardóttir, Akranesi, Jóhannes
Guðinundsson, Reykjavík, Pálmi Thorarensen Mosfellssv. og Einar S.
Valdimarsson Reykjavík. Aðrir vinningar verða afhentir eftir því sem
vinningshafar gefa sig fram.
GREIÐENDUR
vinsamlega veitið eftirfarandi
erindi athygli:
Frestur til að skila launamiðum
rennur út þann 24. janúar.
Það eru tilmæli embættisins til
yðar, að þér ritið allar upplýsingar
rétt og greinilega á miðana og
vandið frágang þeirra. Með því
stuðlið þér að hagkvæmni í opin-
berum rekstri og firrið yður
óþarfa tímaeyðslu.
RÍKISSKATTSTJÓRi
INNRITUN Á VETRARÖNN FER FRAM SEM HER SEGIR:
I MIÐBÆJARSKÓLA mánud. 10. jan og þriðjud. 11. jan. kl. 17-21.
í FELLAHELLI miðvikud. 12. jan. kl. 14-16.
í ÁRSELI miðvikud. 12. jan. kl. 18-20
í BREIÐHOLTSSKÓLA fimmtud. 13. jan. kl. 19.30-21.30.
NÁMSGJALD GREIÐIST VIÐ INNRITUN.
Islenska 1. og 2. flokkur
Danska byrjenda-,1 .,2.,3.,4. og 5.fl.
Norska byrjenda-, 1.,2.,3., og 4.fl.
Sænska byrjenda-, 1.,2., og 3.fl.
Enska byrjenda-, 1 ,,2.,3.,4.,5., og 6. fl.
Þýska byrjenda-, 1.,2.,3.,og 4.fl.
Franska byrjenda-, 1.,2.,3., og 4.fl.
ítalska byrjenda- og framhaldsfl.
Spænska byrjenda- og framhaldsfl.
Kínverska byrjenda- og framhaldsfi.
Vélritun 1. og 2. flokkur
Stærðfræði fyrir grunnskólastig og iðnskólastig
Tölvukynning byrjenda- og frh. fl.
Bókfærsla byrjenda-, 1. og 2. fl.
Ættfræði
Leikfimi
íslenska fyrir útlendinga byrj.-, 1. og 2. fl.
Sníðar og saumar
Barnafatasaumur
Formskrift - Teikning og akrýlmálun
Hnýtingar - Postulínsmálun - Myndvefnaður.
Kennslustaður: Miöbæjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Laugalækjarskóli
Kennslustaðir: Miðbæjarskóli,
Laugaiækjarskóli, Breiðholtsskóli
Fellahellir og Ársel
Kennslustaðir: Miðbæjarskóli
Breiðholtsskóli og Ársel.
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaðir: Miðbæjarskóli
og Laugalækjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Laugalækjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Laugalækjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Ársel
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaðir: Miðbæjarskóli
og Breiðholtsskóli
Kennslustaðir: Miðbæjarskóli
og Breiðholtsskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli
Kennslustaður: Miðbæjarskóli.
Námsflokkar Reykjavíkur.