Þjóðviljinn - 08.01.1983, Blaðsíða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8. - 9. janúar 1983
bridge
Bridgehátíö
Dagana 28.-31. þessa
mánaðar verður efnt til
Bridgehátíðar á Hótel
Loftleiðum. Að hátíðinni
standa Bridgesamband ís-
lands, Bridgefélag
Reykjavíkur og Flugleið-
ir. Hátíðin hefst kl. 19.30
föstudaginn 28. jan. með
Stórmóti í tvímenning. í
því móti spila 44 pör.
Mótið heldur áfram á
laugardag og er áformað,
að því Ijúki fyrir kvöldið.
Stórmót Flugleiöa, sem er
sveitakeppni, hefst kl. 13 á sunnu-
dag meö undankeppni, sem spiluö
veröur um daginn og kvöldið. Fjór-
ar sveitir úr undankeppninni kom-
ast í úrslitakeppnina, sem spiluö
veröur á mánudaginn. Uátíöinni
lýkur á mánudagskvöld meö
verölaunaafhendingu.
Spilurum frá N-Ameríku og
Danmörku hefur verið hoöiö á há-
tíöina og eru þessi spilarar væntan-
legir: Frá N-Ameríku Alan Sontag,
Kyle Larsen, Georg Mittelman og
Molson og frá Danmörku Steen
Möller, Blakset, Werdelin og
Auken. Auk þess er væntanlegt
a.m.k. eitt par til viöhótar frá Dan-
mörku og eitt par frá Færeyjum.
Þátttöku í mótin þarf að tilkynna
ísíöasta lagi sunnudaginn 16. janú-
ar. Tilkynna skal þátttöku á skril-
stofu Bridgesamhands Islands s.
18350 eöa til formanns Bridgefé-
lags Reykjavíkur s. 72876. Einnig
er hægt aö skrá þátttöku á Reykja-
víkurmótinu í sveitakeppní.
Sæki fleiri pör um þátttöku í tví-
menningnum en þar komast að
veröur valiö í mótiö af fram-
kvæmdaraöilum þess. Þátttaka í
undankeppnina á Stórmóti Flug-
leiöa er hinsvegar ótakmörkuö.
Þátttökugjald í tvímenning er kr.
600 á mann. í því er innifalin ein
máltíö. í sveitakeppninni er gjaldiö
kr. I600ásveil. Þarer innifaiin ein
máltíö fyrir fjóra.
Verölaun á mótunum eru sam-
tals $8000.
Reykjavíkurmótið
í sveitakeppni hafið
Undankeppni Reykjitvíkurmóts-
ins í sveitakeppni 1983 hófst s.l.
Umsjón
Ólafur
Lárusson
fimmtudag. 17 sveitir taka þátt í
mótinu, en þaö er svipuö þátttaka
og undanfarin ár. Spiluö eru 16 spil
milli sveita, allir v/alla.
Óhætt er að segja, að fyrstu um-
ferðirnar gefa til kynna aö í vænd-
uin er stormasamt mót, enda úrslit
meö óvenjulegra móti.
Eftir tvær umferðir, er staða
efstu sveita þessi:
stig
Sigtryggur Sigurösson 38
Jón Þorvarðarson 38
Ólafur Lárusson 35
Gestur Jónsson 29
Aðalsteinn Jörgensen 25
Jón Hjaltason 23
Keppni veröur framhaldiö í
1 Ireyi'ils-húsinu í dag, og einnig á
morgun á sama staö. Ymsir
skemmtilegir leikir veröa um helg-
ina, svo sem Sævar-
Sigtryggur.Ólafur-Sigtryggur,
Þórarinn-Sævar, Jón Þ.-Sigtryggur
og fl ■
4 efstu sveitirnar úr þessu móti
spila til úrslita um Reykjavíkur-
horniö, en handhafi þess er sveit
Sævars Þorbjörnssonar.
Reykjavíkurmótið, undanrásir,
veröur spilaö allt í janúar. Úrslit
síöan aöra helgi í febrúar. Mótiö er
jafnframt undankeppni til Islands-
móts í sveitakeppni.
Frá Bridgefélagi
Hornafjarðar
Úrslit í hraðsveitakeppni nóv., urðu þessi: okt,- Stig
I. sveit IColbcins 2367
2 sveit Birgir 2180
3. sveit Björns 2125
4. sveit Lúðvíks 2124
5. sveit Karls 2037
Úrslit 3 kvölds tvímenning í des-
ember:
stig
1. Guðbrandur-Jón Gunnar 97
2. Gísli-Kolbeinn 96
3. Jón-Helena 90
4. Björn-Björn 88
5. Birgir-Sigfinnur 80
6. Jóhann-Ölafur 73
7. Örn-Jón G.H. 73
Lokastaöan í mótinu varö þessi:
stig
1. Guöbrandur-Jón Gunnar 278
2. Jón Sv.-Stefán o.fl. 269
3. Kolbeinn-Gísli G. 263
4. Jóhann-Ólafur o.fl. 246
5. Örn Þór-Jón G.H. 245
6. Birgir-Sigfinnur 244
7. Högni-Armann 239
8. Björn-Björn 232
Næst verður spihiö 13. janúar,
en í millitíð veröur haldinn aöal-
fundur stjórnar og félags.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Starfsemi nýs árs hefst þriðju-
daginn 11. jan. og verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. En 18.
jan. byrjar aöal sveitakeppni
deildarinnar, spilaöir verða 16
spila leikir.
Keppnisstjóri er Kristján
Blöndal, og tefcur hann við skrán-
ingu í keppnina í síma 40605.
Stórverkeíni framundan
Janúar verður annasamur bridge-
mönnum á höfuöborgarsvæðinu.
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni
hófst s.l. fimmtudag, og veröur
það spilað allt í mánuðinum, utan
úrslita 4 efstu sveita. I endaðan
janúar sækja okkur heirn frægir
gestir. Alan Sontag USA kemur
með sveit, sem samanstendur af
(auk hans), Kyle Larsen, George
Mittlemann og Mike McMolson.
Steen Möller frá Danmörku
kernur með sveit með sér, en hverj-
ir skipa hana ku ekki vera enn á
hreinu. Alla vega toppkarlarnir í
dag í Danaveldi.
Sontag og Weichel eiga það sam-
eiginlegt að hafa báðir komið hing-
að til þátttöku áður í Stórmóti
Bridgeféiags Reykjavíkur, og báð-
ir sigrað...
44 pör munu spila í tvímenning-
num, en á sunnudeginum veröur
opin sveitakeppni (Swiss) og 4
efstu sveitirnar ntunu keppa til
úrsiita á mánudeginum. Gott
mót þaö.
Nánar síðar.
Trésmíða verkstæði
Húsb yggjendur
Vinsamlegast athugið að timburafgreiðslan, sem staðsett héfur
verið við Lágholtsveg, hefur verið flutt og sameinuð vöruafgreiðslu
okkar að Hringbraut 120 (Sóivallagötu 79).
HARÐVIÐUR — SPÓNN - SPÓNAPLÖTUR - GRINDAREFNI
P7HI BYGGlNGflVÍIBUHl
TIMBURDEILD
Sími 28604.
Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Gunnar Eyjólfsson í Tvíleik
Um 100 þúsund gestir í
Þjóðleikhúsinu á s.l. ári
Lína Langsokkur
næst á dagskrá
Æfingar hafnar á Oresteiu eftir Æskilos
Garðveisla Guðmundar Steinssonar í fullum gangi
Mikil umsvif eru nú hjá
Þjóðleikhúsinu og eru þar fimm
leiksýningar í gangi þessa stundina
auk þess sem æfingar standa yfir á
næstu verkefnúm. Aðsókn að
leikhúsinu síðastliðið ár var mjög
góð að sögn forráðamanna hússins,
og sóttu það heini alls 99.599
manns.
Jólasýning Þjóðleikhússins Jóm-
frú Ragnheiður hefur verið sýnd
fimm sinnum og Súkkulaði handa
Silju eftir Nínu Björk Árnadóttur
hefur verið sýnt tvisvar sinnúm á
Litla sviðinu. Þá hefjast í þessari
viku sýningar á þremur eldri verk-
um hússins: Garðveislu eftir Guð-
mund Steinsson. sem sýnd veröur
nokkrum sinnum enn, Tvíleik eftir
Tom Kempinski og Dagleiðinni
löngu inn í nótt eftir Eugene O'N-
eill.
Næsta frumsýning leikhússins
veröur þann 22. janúar og hefjast
þá sýningar á barnaleikriti ársins,
en það er Lína langsokkur, ný
söngleiksgerð um þessa frægustu
sögupersónu Astridar Lindgren.
Þórarinn Eldjárn þýddi leikinn,
Sigmundur Örn Arngrímsson er
leikstjóri, leikmynd og búninga
gerir Guðrún Svava Svavarsdóttir,
dansar eru eftir Ólafíu Bjarn-
leifsdóttur og Magnús Kjartansson
er hljómsveitarstjóri. Þáeru einnig
hafnar æfingar á Oresteiu eftir
Æskilos, eina forngríska þrí-
leiknum sem til er heill. Helgi Hálf-
danarson hefur íslenskað þetta
verk, Sveinn Einarsson er leik-
stjóri. Þorkell Sigurbjörnsson
semur tónlist, Sigurjón Jóhanns-
son gerir leikmynd, Helga Björns-
son gerir búningana og finnski
dansahöfundurinn Marjo Kuusela
semur dansa.
Svör við getraun á bls. 3
1. Móðurást (kona að gefa barni brjóst) er eftir Ásmund
Sveinsson.
2. Öreigafjölskyldan er eftir Einar Jónsson.
3. Liggjandi kona er eftir Gerði Helgadóttur.
4. Móðurást (í garðinum við Lækjargötu) er eftir Nínu Sæm-
undsson.
5. Cellóleikarinn er eftir Ólöfu Pálsdóttur.
6. Hestarnir eru eftir Ragnar Kjartansson.
7. Móðir er eftir Sigurjón Ólafsson.