Þjóðviljinn - 08.01.1983, Blaðsíða 24
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8. - 9. janúar 1983
Það á víst ekki að hafa svona lagaö
í flimtingum þó að auðvitað bafi
það sínar broslegu hliðar. Einn
frændi minn átti heima uppi á 3.
hæð í blokk þar sem stórt autt holt
og skólasvæði blasti við út um
gluggann. Einhverju sinni kom
ofsarok og fólk var að fjúka um allt
holt. Skólakrakkarnir héldu sér
dauðahaldi í hvað sem hönd á festi
og sum misstu skólatöskurnar sín-
ar. Frændi minn stóð úti í glugga og
veltist um af hlátri. Hann gat bara
ekki að því gert. Við hin urðum
svolítið hneyksluð yfir þessari létt-
úð hans en undir niðri hló líka ein-
hver skratti í okkur.
íslendingar eru svolítiðmeinlegir
á köflum og eiga það til að hlæja að
óförum annarra svo fremi sem stór
háski er ekki á feröinni. Einu sinni
hitti ég Ameríkana sem hafði unn-
ið í frystihúsi vestur á fjöröum.
Hann var gáttaður á kulda íslend-
inga. Hann sagði sem dæmi að
þegar einhver dytti í slori í frysti-
húsinu skelltu allir upp úr í stað
þess að hlaupa til og aðstoða og
athuga hvort sá hinn sami heföi
meitt sig.
Norðlendingar og Vestfirðingar
hafa tilhneigingu til að gera grín að
Reykvíkingum þegar eitthvað er
að veðri hjá þeim. Þá er útvarpið
undirlagt og engu líkara en að
heimurinn sé að farast. Svo
kannski geisar stórhríð nyrðra í
hálfan mánuð og varla minnst á
manns
það í ríkisútvarpinu.
Sjálfur átti ég heima á Vest-
fjörðum í nokkur ár og maður
kippti sér svosem ekkert upp við
það þó að norðanbál geisaði dög-
um saman og hægt væri að gánga
inn um glugga á annarri hæð að því
loknu. En þar var líka nokkurra
mínútna gangur í vinnuna og allar
búðir og þjónustustofnanir í
seilingarfjarlægð. Bílar voru því
með öllu óþarfir þegar svo stóð á.
Þeir voru bara látnir fenna í kaf í
róiegheitum.
í Breiðholti, Seljahverfi og Ár-
bæjarhverfi búa hins vegar tvisvar
sinnum fleiri en allir Vestfirðingar
og flestir þurfa að fara 10-15 kíló-
metra leið í vinnu. Það er því engin
furða þó að öngþveiti verði á göt-
unum þegar eitthvað snjóar að
ráði. Og þá eru óveðursfréttir í út-
varpinu mjög mikilvægar fyrir all-
an þennan skara.
Ef maður hins vegar sæti á skýi
einhvers staðar þar sem maður
hefði útsýn yfir allt bjástur borgar-
búa í snjóatíðinni að undanförnu
kæmi púkinn örugglega upp í
manni. Ekki er ólíklegt að maður
skellti upp úr.
- Guðjón
Púkinn
Við sátum í makindum [
kringum stóra hringborðið í
kaffistofunni á miðvikudag og
hlustuðum með andakt á
óveðursfréttir í útvarpinu. Svo
var sagt frá 6 flutningabílum
sem lögðu af stað frá tilteknu
plássi. Fimm sneru fljótlega við
en einn hélt áfram og hefur ekki
spurst til hans síðan, sagði í
fréttinni. Þá skelltu sumir upp úr
við hringborðið en aðrir horfðu
ásakandi á þá.
í hjarta
sunnudagslcrossgétan
Nr. 3S3
/ z 3 7 í>" lo 7 8 s/ 3 7 8 9 y )0
11 13 9 y \7 <1 (p 7 T~ y JS" J3 )D u
U> 17- y 7 it vr~ Æ ? 17 2o 21 y 9 )7
g Z2 )b~ 17 20 y 4 17 (o 11 T~ 18 17 £T zo
9 7- 2o lt 17- y 9 II ? )S u * )7
23 V 17 TH 9 (e> 21 y 27 20 22 17
10 II W~~ y 8 II 9 13 y 17 4' T~ to y
jv 2iT V Æ 8 w~ (o 17 9 II y 7 r~ 17 4
i? 11 K, y * /3 3 8 (o ir y l<i 20 T~
22 9 II V y 4 7 4 y 27 // 2V n y
n II 2o y <7 ? 2l~ 20 V )7 9 n
28 y 7 20 -g— t % 20 28 (p 17 17 y &
& 27 7 20 y (> 30 II (e 27 Zo S2 3 W~
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
kunnum kirkjustað. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 353“.
Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send vinningshafa.
27 (p 17 /7 9 1 Z 18 W 2?
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem iesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp,
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaunin fyrir krossgátu
nr. 349 hlaut Magnús
Guðmundsson, Hlíðargötu 2,
Neskaupstað. Þau eru F'íla-
spor eftir Hammond Innes.
Lausnarorðið var Herðu-
breið.
Verðlaunin að þessu sinni er
bókin Birgir og Asdís eftir
Eðvarð lngólfsson.
EÓvarð Ingólfsson