Þjóðviljinn - 08.01.1983, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 08.01.1983, Blaðsíða 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8. - 9. janúar 1983 dægurmál (sígiid?) Rúnar Þór... Myndir - eik • Frá töku myndarinnar Með allt á hreinu: Linda og Ragnhildur í Grýlunum bíða eftir „starti“ í lagið Maó gling. Texti ársins Ekki ætla ég að taka að mér að skrifa rokkannál ársins, né við- hafa einkunnagjöf fyrir hitt og þetta í rokk „bransanum“. Þó held ég að mér sé stætt á að kasta fram þeirri fullyrðingu að Ragn- hildur Gísladóttir hafi samið texta ársins - Maó gling, sem er að finna á plötunni (og í mynd- inni) Með allt á hreinu. Ég birti hann því hér máli mínu til sönn- unar og með góðfúsleguleyfihöf- undar... og allir saman nú: Inú eglú senja ele benúa. Ele benúa túse inú komjo. Akaj a ma nú. Esú úne. Homma ínútí eisana jaja - jaja-ja. In okte ataja. Enalegtú. Súse obegtú sú ní tú jú. Obegti kúrú oví java lúmení tú sú la kana jíyeyaja-ja. (Viðlag) :Hummalaga-hœ-hei susususulu-. Hogga-hœja-hœ-hei hogga-hœja-hœ-hei: Fling-gling fling-g l ing-g ling Mao-bling Máó-Maó-bling Fling-bling- fling-gling-gling fling-bling-Ping-Ding-Dong. A Rokksvindlið mikla í Fjalakettinum Kvikmyndin „The great rock and roll swindle“ verður sýnd hjá Fjalakettinum (í Regnboganum) eftir viku, sunnudaginn 16. janú- ar. Mynd þessi var gerð árið 1980 og er einskonar fréttamynd um stutta starfsævi (9 mánaða) fræg- ustu pönkhljómsveitar heims, The sex pistols. Upphaflega átti þetta kvik- myndaævintýri The sex pistols að heita Who killed Bambi? (Hver drap Bamba?), en önnur dauðsföll komu í veg fyrir það: bassaleikari „Kynlífsskammbyss- anna“,Sid Vicious, var tekinn fastur vegna gruns um að hafa drepið vinstúlku sína, Nancy Spungen, og stuttu síðar fannst Sid látinn af of stórum skammti af heróíni. En umboðsmaður Sex unarorðum vegna dauða þeirra Sids og Nancyar. Mun það hafa verið í fyrsta sinn að þeir hafi far- ið fram á að bætt yrði inn í kvik- mynd, en ekki klippt úr. * *rij I sambandi við sýningu á The great rock and roll swindle á sunnudaginn eftir viku, verða haldnir þrennir hljómleikar á Stór-Reykjavíkursvæðinu á , fimmtudag, föstudag og laugar- dag, sem verða nánar auglýstir síðar. Munu þar m.a. koma fram Pollock-bræður með Riinbaud- rokk, Gunnþór í Q4U o.fl.. I Laugardagskonsertinn verður í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut, en ekki er enn full- ákveðið með hina tvo. A tók saman. pistols, Malcolm McLaren, var ekki af baki dottinn, enda frægur fyrir að hafa átt þátt f að gera pönkið að annarri eins söluvöru og raun ber vitni. Hann fór á stúf- ana og safnaði saman öllum þeim filmubútum sem hann gat þefað uppi af Sex pistols og bætti þeim inn í þá búta sem búið var að fyrir Who killed Bambi?. Þrátt fyrir viðurnefni McLar- ens, King Con (Konungur blekk- inganna), varð þetta tiltæki hans til þess að úr varð en af heiðárleg- ustu rokkkvikmyndum sem gerðar hafa verið. Og þrátt fyrir allt skrumið sem hann kom af stað í kringum Sex pistols sem umboðsmaður þeirra, þá verður ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að Sex pistols spiluðu Julian nokkur Temple stjórn- aði töku á The great rock and roll swindle. Auk Sex pistols og um- boðsmanns þeirra koma fram: Roland Biggs (lestarræninginn frægi), Tenpole Tudor, Jess Conrad, Glen Matlock (bassa- leikari, sem látinn var víkja fyrir Vicious), Dave Dee, Jeriz- my, Nancy Spungen og Mary Millington, en húnér sú þriðja af „stjörnum" myndarinnar sem hefur kvatt þennan heim (4. ef Bambi er talinn með). Dauðsföll þessi má öll tengja ofnotkun eiturlyfja, sem leiddi til sjálfs- morðs og/eða morðs fórnar- lambanna þriggja, og breska kvik- myndaeftirlitið fór fram á *ð dreifendur kvikmyndarinnar bættu við hana sérstökum viðvör- ogfyrir ■ fluttu þeir popprokkið með ágæ- tum. Þess má geta, aðRúnar Þór mun kynna Rimlarokk í Glæsibæ í kvöld (laugardag). Stuðmenn troðfylltu Borgina í tvígang... með Grýlunum á nýjársdag Stuðmenn hafa sýnt og sannað að þeir eru vinsælasta hljómsveitin á íslandi um þessar mundir, bæði á hvíta tjaldinu og á dansiballafjöl- unum. Þeir troðfylltu Borgina á Þorláksmessu, og líka á nýjársdag ásamt Grýlunum, meðleikurum sínum í og á Með allt á hreinu. Stuðmenn eru óborganlegt hljómleikaband, og gátu jafnvel fengið fólk til að sætta sig við hræðileg þrengslin á dansgólfinu, að ógleymdum borðum og stólum, á Borginni. En það var líka gaman að fá að heyra í Grýlunum á nýjárs- dag eftir langt hlé sem þær tóku sér til að vinna að næstu plötu sinni. Og þeir sem ekki vissu, eða vildu viðurkenna, hversu góðar Grýl- urnar eru, komust svo sannarlega að því á nýjársdagskvöld. Þær fluttu hörkugott rokk eins og venj- ulega af miklum krafti, og undir- strikuðu með „kellingakjólunum“ sem þær voru búnar, að stelpur geta svo sannarlega spilað rokk, og sneru við orðatiltækinu: Fötin skapa manninn. A músík sem gjörbreytti rokkinu á 8. áratugnum og má því líta á þá sem brautryðjendur fyrir aðrar pönk- og nýbylgjuhljómsveitir. Umsjón Sif Jón Viöar Andrea Hljómleikar í bak Rokk gegn vímu Hér eru nokkrar myndir frá hljómleikunum Rokk gegn vímu sem haldnir voru í Háskólabíói fyrir jólin. Þar kom fram stór hljómsveit sem flutti verkið Bakkus eftir Sigurð Karlsson trommuleikara, metnaðarmikið verk, og tókst í flesta staði vel flutningur þess. Sérstaklega langar mig þó að hrósa Sverri Guðjónssyni fyrir frábæran söng og svo Sigga Karls fyrir trommu- leik, en hann hefur aldrei verið betri en nú á settinu. Egó rokkaði líka gegn vímu og gerði það af firnakrafti og „sjó- mensku". Skolli er Beggi orðinn ríkur af góðum sólóum, sem mynda gott mótvægi við þunga þeirra Rúnars bassa og Magga trommara. Og Bubbi á sér engan líka. (Hafiði annars heyrt að hann hljóp í stórt og vandfyllt skarð Egils Ólafssonar í Stuðmönnum þegar þeir voru að spila úti í Eyjum fyrir áramót og Egill var veðurtepptur á Litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu?). Magnús Sigmundsson söng og lék á gítar, gegn vímu á sinn sér- staka hátt, og var annað lagið sem hann flutti sérstaklega gott. Því miður man ég ekki hvað það hét, en textinn (á ensku) er um vin Magnúsar, sem lést af völdum sjúkdóms síns, áfengissýkinnar. Rimlarokkarar komu fram og rokkuðu gegn vímu með lögum af plötu Fjötra, Rimlarokk. Rúnar Þór Pétursson, eini ekta Rimla- rokkarinn, spilaði á trommur, en fékk sér til aðstoðar Olaf Þórar- insson, gítar og söngur, Helga Kristjánsson, bassi, og Þórarin Gíslason, hljómborð. Þeim fé- lögum var mjög vel tekið, enda Siggi Karls...

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.