Þjóðviljinn - 08.01.1983, Page 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8. - 9. janúar 1983
Þaö má leita allt afturtil
síðustu aldar til að finna
frumorsakir átakanna í El
Salvador. Árið 1880 var
aldagamalii sameign á landi
riðlað þannig að einungis 14
fjölskyldursölsuðu undirsig
nær allt jarðnæði landsins.
Eignarhaldið á jörðinni í El
Salvador er nær óbreytt enn
þann dag í dag. Um síðustu
aldamót koma strax fram hið
hrikalega misrétti og
ójöfnuður sem enn er við
lýði. Eignaskiptingu í
landinu er þannig háttað að
aðalútflutningsgreinin -
kaffiræktin - er alfarið í
höndum örfárra fjölskyldna,
um 1/2% landeigenda eiga
34% ræktanlegs lands
meðan 52% bænda rækta
aðeins 3.7% ræktarlands.
Þessi eignaskipting hefur
verið nær óbreytt í heila öld.
í kjölfar gífurlegs atviniiuleysis
og hruns efnahagslífsins geröu
smábændur og landbúnaðarverka-
menn uppreisn árið 1932, undir
stjórn kommúnistaflokksins. Her-
inn og morðsveitirnar drekktu
henni í blóöi og myrtu rúmlega 30
þús. manns. Blóðbaðinu stjórnaði
þáverandi forseti landsins, Maxim-
iliano hershöfðingi. Sama saga
endurtekur sig núna með aðeins
öðruvísi hætti, með morðsveitum
hægrimanna, en aðalförystumaður
þeirra er nú forseti stjórnlagaþings-
ins í E1 Salvador, d’Abuission.
Seinna var svo stofnuð morðsveit.
til heiðurs þessum athafnasama
hershöfðingja, sem heitir eftir hon-
unr.
Árið 1944 reyndu verkamenn að
binda endi á 14 ára einræðisstjórn
Martiezar mcó almennu verkfalli
en stuttu síðar það sama ár sölsaði
herinn aftur lil sín öil völd með
stuðningi auðugra iandeigenda.
Síðar (1944-45) var boðað allsherj-
arverkfall í því skyni að kollvarpa
herstjórninni en verkfallið var
brotið á bak aftur af hernum og í
kjölfarið fylgdu fjöldamorð á
verkafólki og almennum borgur-
um. Tveim árum síðar voru sett á
laggirnar samtök til að endurskipu-
leggja verkalýðsfélög í landinu
(CROS). Þessi samtök störfuðu
fyrst „neðanjarðar“ en þegar þau
komu fram opinberlega, fyrst
1951, voru fljótlega allir helstu
leiðtogar þeirra myrtir og síðan
gengið af samtökunum dauðum.
Verkalýðsfélög í landinu reyndu
enn einu sinni að mynda með sér
allsherjarsamtök (CGS) árið 1957.
Sama sagan endurtekur sig eins og
svo oft áður að leiðtogar þeirra
sæta ofsóknum, eru pyntaðir og
myrtir af stjórnarliðum. Enn ein
tilraun var gerð til samtakamynd-
unar áríð 1965 og Sameiningar-
bandalag Salvadorískra verka-
manna sett á fót. Leiðtogar þess
voru strax ofsóttir. Árið 1967 var
almennt verkfall til stuðnings salv-
adorískum stáliðnaðarverka-
mönnum. Ári síðar var almennt
verkfall til stuðnings kennarasam-
tökunum í landinu. Afleiðingar
þess voru gífurleg kúgun á hendur
verkamönnunr og öðrurn lands-
mönnum sem minna máttu sín.
Verkalýðsleiðtogar sem studdu
verkfallið voru nryrtir.
Samtök umbótasinna (UND)
studd af íðnverkamönnum og smá-
bændum, mótmæla kosningaúrslit-
unum 1972 þar sem víðtæku kosn-
ingasvindli var beitt til þess að
tryggja áframhaldandi vöid land-
eigenda. Til að berja niður mót-
mæli fjöldans sendi CONDECA 1
hersveitir l.(Condeca er varnar-
bandalag Mið-Ameriku ríkja, þ.e-
.a.s. gegn byltingaröflum í ríkjum
sínum - nýtur beins stuðnings frá
Bandaríkjunum) til E1 Salvador frá
Nicaragua og Guatemala. Þá voru
myrtir urn 150 manns. Aftur gengu
UND til kosninga árið 1977, þá
eins og fyrr voru kosningaúrslit
fölsuð og landeigendur lýstir sig-
urvegarar. Útvarpsstöðvar, m.a. á
vegum kirkjunnar, útvörpuðu seg-
ulbandsupptökum sem sönnuðu
kosningasvindlið. í kjölfar mót-
mælaöldunnar sem fylgdi, voru
Hvað
getum
við
gert?
margir myrlir. I þessum kosning-
um komst Carlos Hunrberto Rom-
ero hershöföingi til valda og á valda-
ferli hans óx harðstjórnin enn
frekar. Þann 15. október 1979 var
Romero þessum steypt af stóli í
byltingu hersins, sem Bandaríkin
stóðu bak við, og mynduð var sam-
stjórn hers og ýmissa miðjuflokka.
J af n ve 1 Kommúnistaflokk uri n n
átti ráðherra í stjórninni. Ýmis
vinstri samtök studdu stjórnina
gagnrýnum stuðningi.
Gerð var áætlun um umbætur
þar sem m.a. var gert ráð fyrir að
útflutningsverslun á kaffi og sykri
yrði þjóðnýtt, náðun pólitískra
fanga og grafist yrði fyrir unt afdrif
horfins fólks, gerðar umbætur í
landbúnaði og landi skipt á milli
fátækra bænda. En það kom fljótt í
ljós að valdastéttirnar höfðu ekki
hugsað sér að sleppa neinu af því
sem þær kölluðu sitt. Strax í janúar
1980 fóru flestallir fulltrúar vinstri
og miðflokka úr stjórninni og síðan
smákvarnaðist úr henni þannig að
eftir sat í E1 Salvador ein hin svart-
asta afturhalds- og harðstjórn sem
um getur. Ríkisstjórnarsamvinnan
hrundi þarna algjörlega vegna
fjöldaafsagna kommúnista og sósí-
aldemókrata. Hægri öflin náðu
þannig algjörum yfirtökum í
stjórninni sem mynduð var.
Hvernig land er það sem þannig
er lýst í frelsissögu sinni? - E1
Salvador er þéttbýlasta land Mið-
Ameríku, um 1/5 hluti Islands að
stærð. íbúar þess eru tæpar 5 mill-
jónir og búa um 60% landsmanna
úti á landsbyggðinni og er atvinnu-
leysið þar um 60%. I höfuðborg
landsins San Salvador búa um 2%
Iandsmanna og þar er atvinnu-
leysið um 40%. Hundruð þúsunda
landbúnaðarverkamanna hafa
aðeins atvinnu um uppskerutím-
ann en er atvinnulaus þess á milli. {
borgunum er svipaða sögu að
segja. Rúmlega 50% þjóðarinnar
kann hvorki að lesa né skrifa og yfir
helmingur barna í E1 Salvador deyr
úr næringarskorti og sjúkdómum
áður en þau ná 5 ára aidri. Þá má
geta þess að það eru þrír læknar og
sautján sjúkrarúm á hverja 10 þús-
und íbúa landsins en landsmenn
eru 262 á hvern ferkílómetra.
Landið er ekki svo ósvipað íslandi,
fyrir utan gróður. Bæði eru þau
eldfjalía- og náttúruhamfara lönd
og ber Íandið svip sinn af því.
Fréttum um mannshvörf hefur
fækkað undanfarið en eingöngu
vegna þess að ntiklu færri blaða- og
fréttamönnum er hleypt inn í
landið en áður. Frá því í október
1979 til árantóta 1982 hafa yfir 30
þúsund manns verið myrtir eða
hafa horfið, og frá síðustu ára-
mótum þar til nú í haust hafa um 5
þúsund manns horfið samkvæmt
upplýsingum Mannréttindasam-
taka E1 Salvador. í skýrslu frá
Amnesty International frá því í
mars 1981 kemur frant að einkum
er ráðist að verkalýðsleiðtogum,
menntamönnum og blaðamönnum
og þeir fangelsaðir eða ráðnir af
dögum. í sömu skýrslu eru einnig
nefnd dæmi um fjöldamorð á
óbreyttum borgurum þar sem öll-
um er slátrað - körlum, konum,
gamalmennum og börnum. f þess-
um tölum er ekki reiknað með
mannfalli í hernaðarátökum, held-
ur er einungis átt við morð á borg-
urum.
Á síðasta áratug fóru að spretta
fram skæruliðahópar og snemma
árs 1980 sameinuðust þeir og
mynduðu samtökin FMNL (Fara-
bundo Marti National LLiberati-
on). Þau hafa náð stórurn svæðum í
sveitum undir sig og í stórsókn
þeirra í október síðastliðnum tóku
þeir 20 borgir í þrem héruðum E1
Salvador, Morazán, Chalatenango
og í Usulatán. Þessi stórsókn þeirra
heppnaðist mjög vel að þeirra mati
og hafa þeir nú unt 1/3 landsins á
sínu valdi, en hafa þó ítök um
landið allt. Talið er að á svæðum
frelsisfylkingarinnar búi um ein
milljón manna. Skæruliðarnir
efiast stöðugt og þeirn hefur tekist
að halda landsvæðum sínum þrátt
fyrir útrýmingarherferðir stjórnar-
hersins.
FDR (Byltingarsinnaða
lýðræðisfylkingin) og FMLN hafa
ávallt lýst sig reiðubúnar til samn-
ingaviðræðna án skilyrða en
Bandaríkjastjórn hefur hinsvegar
þverneitað öllum slíkum boðunt
hingað til. Þcirn röddum fer fjölg-
andi og verða stöðugt háværari
utan raða þjóðfrelsisaflanna að
samningaleiðin sé sú eina sent fær
er til aö stöðva borgarastyrjöldina í
landinu. Ilér cr þó ekki aðeins átt
við hluta borgarastéttannnar og
fjármálavaldsins í E1 Salvador,
heldur eru nú ýmsir herforingjar í