Þjóðviljinn - 08.01.1983, Page 19
Hclgin 8. - 9. janúar 1983 I»JOÐVILJlNN - SÍÐA 19
Ungir uppreisnarmenn teknir höndum
„Við skulum
ekki reyna
að loka
augunum
fyrir því að
það skiptir
máli fyrir
almenning í
E1 Salvador
og viðar í
Mið-Ameríku
hvaða afstöðu
við tökum
hér á íslandi
og annars
staðar áVest-
urlöndum”
stjórnarher landsins farnir aö láta
þessa skoðun í Ijós. Þjóðfrelsisöflin
(FDR/FMLN) lögðu fram um-
ræðugrundvöll í fimm liðurn nú í
haust.
1. Viðræður fari fram rnilli
FMLN/FDR. herforingjastjórnar-
innar og Bandaríkjastjónjar.
2. Alþjóðlegir áheyrnarfulltrúar
verði viðstaddir.
3. Niðurstöður viðræðnanna
verði bornar undir salvadorönsku
þjóðina.
4. Engin fyrirfram ákveðin skil-
yrði.
5. Allar spurningar opnar frá
byrjun.
Þessum tillögum var alfarið neit-
að og gaf stjórnin í E1 Salvador út
þá yfirlýsilngu að ekki verði samið
við „skæruliða", sem þó þorri
landsmanna styður.
Við höfum líka orðið vör við á-
róðursstríðið í sambandi við El
Salvador. Bandaríkin eiga mikilla
hagsmuna að gæta þar, bæði eiga
þeir þar fyrirtæki og jaröir og svo
eru Bandaríkin aðal viðskiptaland
El Salvador.
Bandaríkin hafa veitt E1 Salva-
dor hernaðaraðstoð um áratugi -
sent þangað hergögn og þjtílfað,
her- og lögreglumenn. - 1 forseta-
tíð Carters var nokkuð aöhald í
aðstoðitmi því frjálslyndir menn í
Bandaríkjunum efuðust og efast
enn um að þessi svokallaða aðstoð
konti alþýðu landsins til góða. Þaö
vakti mikla gremju almennings í
Bandaríkjunum þegar dauða-
sveitir hægri manna myrtu fjórar
bandarískar nunnur þann 3. des-
ember 1980 og varð það til þess að
Carter stjórnin dró úr opinberri
aðstoð við hægri stjórnina strax
daginn eftir. Eitt af fyrstu verkum
Reagans núverandi forseta Banda-
ríkjanna var aö stórauka hernaðar-
aðstoðina við stjórnina í E1 Salva-
dor. Kenning Reaganstjói narinnar
er sú að kommúnistar rói undir
með byltingarmönnum í El Salva-
dor og að Sovétríkin, Kúba og Nie-
aragua hafi sent þangaö hergögn
og jafnvel hermenn til stuðnings
byltingarsveitunum. Bandaríkja-
stjórn hefur þó gengið afar illa að
renna stoðum undir þessar full-
yrðingar eða koma fram með sönn-
unargögn um stórkostlega vopna-
flutninga. Fréttamenna og starfs-
menn alþjóðlegra hjálparstofnana,
sem farið hafa um þau landsvæði er
skæruliðar ráða yfir, eru sammála
um að skæruliöarnir séu illa vopn-
aöir, þeir nái miklu af vopnum sín-
um frá stjórnarhernum eöa smíði
þau sjálfir. Nú er talið aö skæru-
liðar hafi um 6000 manns undir
vopnum en stjórnarherinn milli 20.
og 30.000 manns, og með þessuni
liðsmun hefur skæruliðunt tekist að
halda um 45'/<, stjórnarhersins
óvirkum og sótt samt sjálfir fram.
Hernaðaraðstoð Bandaríkjanna
við stjórnina í El Salvador hefur
margfaldast nú hin allra síðustu ár.
A einu ári, 1981, var aðstoðin nærri
því jafnmikil í dollurum talið og
síðustu 30 ár á undan og stjórn Re-
agans heidur áfrarn að byrgja her-
foringjastjórnina vopnum og öör-
um búnaði. Fessi hernaðaraðstoð
fer fram fyrir opnum tjöldum og
eru jafnvel sýndar myndir frá af-
hendingunni í sjónvarpinu og allar
tölur um hergögnin eru gefnar upp
í dagblööum landsins. Jafnframt
þessu stendur Bandaríkjastjórn
fyrir stórfelldri vígbúnaðarupp-
byggingu í nágrannalöndunum,
einkum í Honduras og Guatemala.
Far ætla þeir greinilega að korna
sér upp öðru „ísrael" bara örlítið
nær.
Það getur ekki farið hjá því að
umræður um ástandið í E1 Salvador
verði neikvæðar í garö Bandaríkj-
anna, því það er ómótmælanlegt að
þessi stjórn sem Bandaríkin styður
í E1 Salvador er einræðisstjórn senr
beitir kúgun og hryöjuverkum og
nýtur stuðnings lítils minnihluta
þjóðarinnar - ncfnilega yfirstett-
arinnar.
Frá 15. okt. 1979 til 15. okt. 1982
hafa verið myrt 36 þúsund manns
og þar af 23% konur, lH'/o þeirra
yngri en fjórtán ára. Nú fer vaxandi
hlutur kvenna í hópi horfins fólks
eða fanga, sérstaklega eftir ágúst-
Fjöldamorð
mánuð í ár. I fangelsum landsins
eru nú um 600 pólitískir fangar sem
stjórnin viðurkennir að hafa undir
sínum höndum og má eflaust marg-
falda þá tölu til að fá út réttan
fjölda. Bandarískir ráðgjafar eru
nú farnir að taka virkan þátt í yfir-
heyrslum á pólitískum föngum.
Mörg ríki í Evrópu og
Rómönsku-Ameríku. þar með tal-
in bandalagsríki Bandaríkjanna,
hafa veitt þjóðfrelsisfylkingunni í
E1 Salvador ýmiskonar stuðning.
Fyrir rúmu ári síðan viðurkenndu
Frakkland og Mexíkó þjóðfrelsis-
fylkinguna sem réttan fulltrúa
landsmanna. Tæpast verða þessi
lönd talin nteðal andstæðinga
Bandaríkjanna. Bandaríkjastjórn
hefur stutt þessa einræðisstjórn,
sem ríkir nieð grímulausri harð-
stjórn og dag hvern eru tugir
manna drepnir, og þar með hefur
Bandaríkjastjórn misnotað
auðæfi. - í stað þess að reisa þar
skóla og sjúkrahús, eru þar byggðir
herflugvellir, í staðinn fyrir drátt-
arvélar og fiskiskip eru sendir
þangaö skriðdrekar og herþyrlur, í
staðinn fyrir mat og íatnað eru
sendar þangað sprengjur og skot-
færi, allt á þeint forsendum að ver-
ið sé að verja lýðræði og frelsi ein-
staklingsins í El Salvador.
Margir kunna nú að spyrja, hvað
kemur þetta okkur við? - Og hvað
getum við svo sem gert til að stilla
til friðar? - l’að er vissulega margt
sem við getum gert og hvað fyrri
spurningunni viðvíkur þá hlýtur
það að koma við alla friðelskandi
menn hér á landi þegar verið er að
murka lífið úr heilli þjóð, eingöngu
til þess að skara eld að sinni könnu.
Eftir því sem augu alheimsins hafa
beinst æ meir að atburðunum í
Mið-Ameríku undanfarin ár hafa
sífellt fleiri orðiö til að mótmæla
ógnarstjórnunum og reynt að
leggja sitt lóð á vogarskálarnar til
stuðnings þjóðum Mið-Ameríku.
Samstöðuhreyfing með alþýðu E1
Salvador hefur sprottið upp um all-
an heim undanfarin 2-3 ár hér á
landi einnig.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
almenningu hefur tekiö til sinna
ráða í sögunni og tekiö afstöðu
með öðrum aðilanum í borgara-’
styrjöld. Margir vita um samstöðu-
starfið sem fram fór meðan Banda-
ríkin stunduöu hernað sinn í Víet-
nam. Einn mikilvægast þátturinn í
sögu þess stríðs var hlutur sant-
stöðuhreyfingarinnar á Vestur-
löndurn. Það er staðreynd að Ví-
etnamnefndirnar í Bandaríkjun-
unt, Vestur-Evrópu og annars
staðar sem skipulögðu mótmæli
gegn hernaði Bandaríkjanna allan
tímann frá 1965-1973, áttu einna
stærstan þátt í að Bandaríkjastjórn
neyddist til að láta af stríösrekstrin-
unt í Víctnam. Svo sannarlega höf-
um við áþreifanlega reynslu fyrir
því að samstööuhreyfing getur haft
áhrif, almenningur getur komið í
veg fyrir stríðsrekstur, hryðjuverk
og ógnaraögerðir ef vakandi auga
er haft með fyrirætlunum hers-
höfðingjanna og málstað fórnar-
larnba þeirra haldið á lofti með
stöðugu og samfelldu andófi.
Við skulum því ekki reyna að
loka augunum fyrir því að það
skiptir máli fyrir almenning í E1
Salvador og víðar í Miö-Améríku,
hvaöa afstöðu við tökum hér á ís-
landi og annars staðar á Vestur-
löndum. Það mun skipta sköpum í
Bandaríkjunum hvort almenn
andúð á afskiptum stjórnarinnar í
Mið-Ameríku eykst eða minnkar.
Tökum undir með ríkisstjórnum
Frakklands og Mexíkó og viður-
kennum Þjóðfrelsisöflin FMLN/
FDR sem réttan fulltrúa lands-
manna í E1 Salvador og þrýstum á
okkar eigin ríkisstjórn aö hún beiti
sér fyrir því gagnvart Bandaríkja-
stjórn, að hún láti af hernaðar-
stuðningi við þá ógnarstjórn sem
fer með völd í El Salvador, því við
Islendingar getum haft áhrif á
þessa þróun deilna í Mið-Ameríku.
m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna.
Meö hrottaskap magnast hatrið.
Styðjum því þjóðfrelsisöflin í Ei
Salvador og notum okkar áhrif og
aðstöðu til að stuðla að friðsam-
legri lausn mála í E1 Salvador.
Lifið heil.
Jon Gunnar Grjetarsson