Þjóðviljinn - 11.01.1983, Qupperneq 1
Ensku
bikarmeistararnir í
knattspyrnu fengu
erfíða andstæðinga
þegar dregið var til 4,
umferðar í gær.
Sjá 9-12
janúar 1983
þriðjudagur
48. árgangur
7. tölublað.
Borgin
biður
um frest
„Vissulega kom þessi lög-
bannskrafa frá Verðlagsstofn-
un okkur á óvart enda er þetta í
fyrsta skipti sem það gerist að
lögbanns er krafist gegn hækk-
unum opinberrar þjónustu“,
sagði Magnús Óskarsson lög-
maður Reykjavíkurborgar í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Lögbannskrafa Verðlags-
stofnunar verður tekin til af-
greiðslu hjá borgarfógeta kl. 10
í dag, en Verðlagsstofnun fór
fyrir helgi fram á lögbann á
ólöglega hækkun strætisvagna-
fargjalda í Reykajvík sem var af
meirihluta borgarstjórnar á-
kveðin tæplega 50%. Fjármála-
ráðherra hefur tjáð lögfræðingi
Verðlagsstofnunar að ríkis-
sjóður sé tilbúinn að leggja
fram þá tryggingarupphæð sem
fógeti kann að nefna eftir að
hann hefur kveðið upp úrskurð
sinn.
„Þess er að vænta að Reykja-
víkurborg biðji um frest áður
en fógeti kveður upp úrskurð
sinn en það mun koma í Ijós nú
kl. 10 hversu langur sá frestur
verður“, sagði Gísli ísleifsson
lögfræðingur Verðlagsstofnun-
ar í samtali í gærkvöldi. - v.
Þessi sjón hefur verið algeng um allt land og allt bendir til þess að handmokstur og vélmokstur verði okkar hlutskipti enn um hríð. Ljósm. eik
Jafnvægi í fjármálum
ríkisins um áramótin
Betri staða en ég þorði að vona, segir Ragnar Arnalds fjármálaráðherra
„Meginskýringin á þcssari hag-
stæðu greiðslustöðu um sl. áramót
er einfaldlega sú að ríkissjóður
greiddi meira niður af lánum cn
nemur nýjum lántökum á sl. ári“,
sagði Ragnar Arnalds tjármálaráð-
herra í samtali í gær.
í frétt frá fjármálaráðuneytinu í
gær segir að samkvæmt bráða-
birgðatöium ríkisbókhaldsins hafi
veriö jafnvægi í fjármálum ríkis-
sjóðs í lok árs 1982. Hafi innistæða
á hlaupareikningum í Seðlabank-
anum numið 96 miljónum kr., en
greiðslur af lánum hjá Seðlabank-
anum hafi numið 160 miljónum kr.
á árinu.
„Þessi niðurstaða er talsvert
betri en ég hafði þorað að vona því
vissulega var ástæða til að óttast að
samdráttur í veltu og viðskiptum
myndi koma niður á fjárhags-
stöðunni í lok ársins", sagði Ragn-
ar ennfremur.
Ragnar kvað ástæðu til að vekja
athygli á því að hér væri um
greiðslustöðuna að ræða en rekstr-
arstaðan kæmi ekki í ljós fyrr en að
nokkrum tíma liðnum. Hinar
miklu niðurgreiðslur lána við
Seðlabanka og aðrar stofnanir
bentu eindregið til þess að rekstr-
urinn kæmi betur út en greiðslu-
staðan gefur til kynna.
„Skuld okkar við Trygginga-
stofnun lækkaði unt 100 miljónir á
árinu, sem er verulegur árangur og
má geta þess að skuldir ríkissjóðs
við Tryggingastofnun voru óhóf-
lega miklar þegar núverandi ríkis-
stjórn tók við. Þá ntá geta þess að
við greiddum niður skuldir ríkisins
við Seðlabanka í talsvert meira niæli
en ráð var fyrir gert í fjárlögum sem
gerir það að verkum að greiðslu-
byrðin í ár verður talsvert rninni en
upphaflega var. gert ráð fyrir við
gerð frumvarps til fjárlaga fyrir ár-
Ragnar Arnalds: Við greiddum
niður lán í talsvert meira mæli en
sem nam nýjum lántökum.
iö 1983“, sagði Ragnar Arnalds að
síðustu.
- V.
Hjörleifur í skeyti til Alusuisse 5. janúar:
Leitum annarra
löglegra leiða
Þjóðarátak í
húsnæðismálum
gæti byrjað með því
að einu
söluskattsstigi yrði
bætt við einungis til
húsnæðismála,
segir Arni
Stefánsson í grein
sinni um
húsnæðismál í
blaðinu í dag.
Lokaorðin í skeyti Hjörleifs
Guttormssonar, iðnaðarráðherra
til Alusuisse þann 5. janúar s.l.
voru á þessa leið: - „Ríkisstjórnin
lítur þessi viðbrögð yðar alvar-
legum augum. Þau tefla sam-
skiptum okkar í voða og torvelda
enn á ný mögulega lausn ágreinings-
efna með samningum. Berist okk-
ur ekki skýr boð frá yður um að þér
séuð reiðubúnir að hefja raunhæf-
ar samningaviðræður á grundvelli
tillögu okkar eigum við ekki ann-
arra kosta völ en að leita annarra
löglegra leiða til lausnar á málinu.“
I skeytinu harmar iönaðarráð-
herra neikvæð viðbrögð Alusuisse
við tilboði hans um samkomulags-
grundvöllfrá21. des. s.l. ogneitum
Alusuisse að mæta til viðræðu-
fundar.
Drög að þessari orðsendingu
iðnaðarráðherra frá 5. janúar voru
rædd á fundi ríkisstjórnarinnar
daginn áður. og nánar fjölluðu ráð-
herrarnir Gunnar Thoroddsen og
Steingrímur Herntannsson um efni
skeytisins ásamt Hjörleifi áður en
það var sent.
Ekkert svar hefur borist frá Alu-
suisse.
Sjá 8.
Norðmenn og
íslendingar selja
sambærilega rækju
á sömu mörkuðum.
Norðmenn greiða
miklu hærra verð
fyrir rækjuna og
hærri laun í
vinnslunni. Hver
hirðir mismuninn?