Þjóðviljinn - 11.01.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 11.01.1983, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 11. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 RUV <9 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun- orð: Magnús Karel Hannesson talar. 8.30 Forystugr. dagbl. (útdr.). 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Líf“ eftir Else Chappel Gunnvör Braga les þýð- ingu sína (4). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Aður fyrr á árunum“ Ágústa Björnsdóttir sér um þáttinn. Sigrún Guðjónsdóttir les tvær frásagnir eftir Ragnheiði Jónsdóttur rithöfund. 11.00 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 11.30 Vinnuvernd Umsjón: Vigfús Geirdal. 11.45 Ferðamál Umsjón Birna G. Bjarn- leifsdóttir. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þor- steinsson og Þorgeir Ástvaldsson. 14.30 „Leyndarmálið í Engidaf' eftir Hug- rúnu Höfundur les (11). 15.00 Miðdegistónleikar Fíladelfíuhljóm- sveitin leikur Sinfóníu nr. 3 í a-moll op. 44 eftir Sergej Rakhmaninoff; Eugene Ormandy stj. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn- ir. 16.20 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.00 „SPÚTNIK“. Sitthvað úr heimi vís- indanna Dr. Þór Jakobsson sér um þáttinn. 17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjónar- maður: Ólafur Torfason. (RÚVÁK.) 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir 19.45 Tilkynningar. Tónleikar. 20.00 Kvöldtónleikar 21.40 Útvarpssagan: „Sonur himins og jarðar“ eftir Káre Holt Sigurður Gunn- arsson les þýðingu sína (3). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Dæmdu vægt þinn veika bróður“ Umræður og hugleiðingar um fóstur- eyðingar. Umsjón: Önundur Björnsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Sögur úr Snæfjöllum Barnamynd frá Tékkóslóvakíu. Þýðandi Jón Gunnars- son. Sögumaður Þórhallur Sigurðsson. 20.40 Andlegt líf í Austurheimi Indland Sagan af Rama Breskur myndaflokkur um trú og helgisiði í nokkrum Asíu- löndum. Þessi fjórði þáttur sýnir hin ár- legu hátíðahöld til dýrðar guðinum Rama í borginni Benares. Þýðandi Þor- steinn Helgason 21.45 Því spurði enginn Evans? Fjórði hluti. Sögulok. Breskur sakamála- flokkur gerður eftir sögu Agöthu Christ- ie. Þýðandi Dóra Hafsteínsdóttir. 22.35 Dagskrárlok frá lesendum Hreinsun í borginni stórlega ábótavant! Gamall maður í Breiðholti hringdi: „Mig langar að spyrja hinn nýja borgarstjóra Sjálfstæðis- flokksins hér í Reykjavík, hvers vegna sé búið að koma því svo fyrir að almennir veg- farendur í Breiðholti geta ekki lengur notað undir- göngin undir Breiðholts- brautina á milli Selja- og Bakkahverfa. Þessi undir- göng, sem fyrrverandi borgar- stjórnarmeirihluti beitti sér fyrir og eru afar þýðingarmikil samgöngubót, eru kjaftfull af snjó og hafa nánast ekkert verið hreinsuð síðan í byrjun desember. Kannski er kassinn tómur? Gerir Davíð Oddsson borgarstjóri sér ef til vill ekki grein fyrir því að fjöldi manna notar þessi göng á hverjum degi, bæði barnafólk, nem- endur og fótfúið eldra fólk eins og ég? Svo er annað af svipuðum toga. Nú ert þú, borgarstjóri, .Davíð Oddsson, nýbúinn að hækka fargjöld strætisvagn- anna um 50%. Hvers vegna er okkur sem verðum að nota þessa þjónustu, þó dýr sé, gert að klofa yfir háa skafla við skýlin? Hvers vegna er ekki séð um að moka frá þeim? Og hvers vegna voru öll þessi hreinsunarmál í margfalt betra horfi þegar yfirmaður borgarinnar var sá ágætismað- ur Egill Skúli Ingibergsson, fyrrverandi borgarstjóri? Það er nefnilega ekki nóg að tala um sprungur og aftur sprung- ur, Davíð Oddsson. Það er líka nauðsynlegt að veita borgurunum góða þjónustu, ekki síst þegar tíðarfarið er eins og upp á síðkastið." Gamall maður í Breiðholti Nokkrar spurningar til Jónasar 2869-7717 Ég get ekki látið hjá líða að þakka samúðarkveðjur Jón- asar Egilssonar til okkar Reykvíkinga, sem birtust í blaðinu hjá ykkur þann 5. jan- úar. Þær voru áreiðanlega fal- lega meintar. En úr því að hann er að bera saman, þótt óbeint sé kannski, áhrif veðurfarsins í Reykjavík og á Húsavík nú að undanförnu og viðbrögðin við því, þá langar mig að spyrja hann: Hvað heldur hann að Reykjavík sé mörgum sinnum stærri en Húsavík? Hvað eru þeir Húsvíkingar margir, senl daglega þurfa að komast í vinnu utan heimilis? Hvað eru skólabörn mörg á Húsavík? Hvernig er háttað með strætisvagna? Getur Jónas komið sjálfur eða lánað okkur góðan mann til að skipuleggja málin betur hjá okkur ef aftur skyldi nú koma einhver hundslappa- drífa? Þekktir og óþekktir Kolskeggur skrifar: „Heimildir okkar" segja að Droplaug á Tímanum telji sig hafa frétt að Vilntundur Gylf- ason hafi boðað til fundar með stuðningsmönnum sínum í Þórshamri nú nýlega. Von- aðist hún til að „sjá þar bregða fyrir andlitunt þekktra manna." En, æ, - stundum er annað von en veruleiki. „Þarna voru engir sem fréttaljósmyndarar dagblaða eiga í myndasöfn- um“. Já, mörg er nú mæðan í mannlífinu, - og virðulegur „fulltrúi" Tímans varð að snúa vonsvikinn heim í Síðumúlann. Nú er sá, sem þessar línur ritar, enginn sérstakur aðdá- andi Viímundar, en vissulega er tiltölulega auðvelt að finna ómerkilegri stjórnmálamenn en hann og sem, sumir hverj- ir, standa um ýmislegt nær Droplaugu. Ekki efast ég um að myndir af Droplaugu séu finnanlegar í myndasöfnum blaðanna. Annað er naumast hugsaniegt unt svo „þekkta" ntanneskju. En „þekktir" geta menn orðið af ýmsum ástæðum og segir það, út af fyrir sig. lítið um manninn. Hinsvegar þekki ég verka- mann, sem ég 'tel, - fyrir margra hluta sakir, - einn þann merkasta rnann, sem ég hefi kynnst um ævina. Afhon- um er áreiðanlega engin mynd til í umræddum mynda- söfnum, sem þýðir, að hann er þá líklega ekki „þekktur". Samt hygg ég að hann rnundi reynast drýgri en Droplaug við að draga afla að borði á skútu Vilmundar væri hann þar í skiprúmi. Myndir eru góðir og gagn- legir hlutir. Hitt kann að orka tvímælis hversu öruggur mæl- ikvarði þær eru á gengi manna í kosningum. barnahorn D\Öf SÁR A w IVLIVJ WCm. Þessi síamsköttur heitir Júlíus Cesar eins og keisarinn forðum í Róm. En kötturinn er eitthvað feiminn því að hann þorir ekki að horfa framan í okkur. Myndina teiknaði Sigrún Erna Geirsdóttir, en hún á heima í Hafnarfírði. Er ég ckki sæt?, spyr hún Ólöf, og víst eigum við erfitt með að neita því. Bæði er Ólöf falleg í fínum kjól og myndin skemmtileg. Mikið vildi ég að það væri komið sumar. Hvað með ykkur??

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.