Þjóðviljinn - 11.01.1983, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 11. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Verslunarráð
spáir 59%
verðbólgu
1983
Samkvæmt spá Verslunar-
ráðs íslands um þróun verðlags,
launa og gengis verður verð-
bólgan á næsta ári 59% miðað
við hækkun framfærsluvísitölu
frá upphafi til loka ársins.
Meðaltalshækkun verðlags
milli ára verður á hinn bóginn
um 62%.
í spánni er gert ráð fyrir, að laun
hækki um 58% á árinu 1983, en
gengi Bandaríkjadollars um 65%.
Helstu forsendur spárinnar eru
þær, að engar grunnkaupshækkan-
ir verði á árinu umfram gildandi
samninga, viðskiptakjör rýrni
óverulega, dollarinn haldi styrk-
leika sínum á alþjóða peninga-
markaði og samdráttur verði í eftir-
spurn vegna vaxtabreytinga og
breytinga á kaupgjaldsvísitölu.
Gott gengi
í Daumsdal
Fjórir íslcnskir skákmenn
tefla þessa dagana á opnu, alþjóð-
legu skákmóti í Daumsdal í Noregi.
Þeir eru Guðmundur Sigurjóns-
son, Margeir Pétursson, Karl Þor-
steins og Sævar Bjarnason. Eftir 3
umferðir hafði Karl hlotið 2 vinn-
inga úr 3 skákum og Sasvar 1 'h.
Margeir hafði 1 vinning og tvær
unnar biðskákir, en Guðmundur 1
vinning og betri stöðu í biðskák.
Þær voru tefldar í gærkvöldi og
voru líkur á því að Margeir væri í
efsta sæti að þeim loknum. - hól
Sjúkraflutn-
ingum
fjölgar
í skýrslu frá Slökkvistöðinni í
Reykjavík segir að sjúkraflutning-
um, sem slökkvilið Reykjavíkur
annaðist á síðasta ári, hafi fjölgað
nokkuð frá árinu áður. í fyrra var
um 11.184 sjúkraflutninga að
ræða, en 1981 voru þeir 10.371.
Aftur á móti fækkaði útköllum
vegna eldsvoða úr 418 árið 1981 í
360 áriö 1982 og útköll þar sem
slökkva þurfti eld fækkaði úr 317 í
276.
Leiðrétting
f skráargati í Sunnudagsblaði
Þjóðviljans var þess getið að Vé-
steinn Lúðvíksson væri ásamt Silju
Aðalsteinsdóttur, nýskipaður rit-
stjóri Tímarits Máls og menningar.
Þetta er ekki rétt. Það er Vésteinn
Ólason iektor. Er beðist velv-
irðingar á þessum mistökum.
Hildur Hákonardóttir, Asrún Kristjánsdóttir, Sigurlaug Jóhannesdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir hjá smámyndasýningunni íslensku, sem
fylgir sýningunm Norrœn vejjarlist ///. “ (Ljósm. Atli).
Norræn vefjarlist að
K j arvalsstöðum
Nú stendur yfir að Kjarvals-
stöðum í Reykjavík sýning-
in Norrœna vefjarlist III.
Hingað kemur þessi sýning frá
Södertálje í Svíþjóð, en hún
var fyrst sett upp í Helsingfors
í Finnlandi í ágúst síðast-
liðnum. Héðan fer sýningin til
Færeyja, þá til Noregs og
reisan endar síðan í Dan-
mörku í vor.
Þetta er í þriðja sinn sem nor-
ræn farandsýning af þessu tagi er
sett upp hér á landi. Hin fyrsta
var árið 1977 og önnur árið 1980.
Sýningarnar eru ávöxtur sam-
starfs vefara og textílhönnuða á
Norðurlöndunt, en óhætt er að
segja, að Nanna Hertoft í Dan-
mörku hafi drifið málið áfram.
Dómnefnd frá öllum Norður-
lönduni hefur valið verk á sýning-
arnar; fyrst sat í dómnefndinni af
Islands íiálfu Ásgerður Búadóttir
og síðan tók Ásrún Kristjánsdótt-
ir við, en hún lét af því starfi á
síðasta ári og hljóp þá Sigurlaug
Jóhannesdóttir í skarðið.
Öllum textíl-listamönnum á
Norðurlöndunt var boðin þátt-
taka í sýningunni og bárust
dómnefndinni alls unt 600 verk,
en valin voru 86 verk til sýninga. í
þetta sinn var hafður sá háttur á
að enginn kvóti var settur unt
fjölda verka frá hverju landi um
sig, eins og var áður.
Fimm íslendingar
Á sýningunni eru verk eftir
fintm íslenska textíl-listamenn:
Hildi Hákonardóttur, ínu Sa-
lóme, Ingibjörgu Haraldsdóttur,
Ingibjörgu Sigurðardóttur og
Sigurlaugu Jóhannesdóttur.
..Mér finnst vera miklu nteiri
tæknileg breidd í þessari sýningu
heldur en var í hinum“, sagði As-
rún Kristjánsdóttir í samtali við
blaðið, en hana hittum við að
máli á Kjárvalsstöðum í gær þar
sem hún vann við að setja upp
sýninguna ásamt Hildi Hákonar-
dóttur, Guðrúnu Gunnarsdóttur,
ínu Salóme, Sigurlaugu Jóhann-
esdóttur og starfsfólki Kjarvals-
staða. „Fjölbreytileikinn í
aðferðunum er ntikill. Hér er t.d.
mikiö af þrykki, sem við höfum
aldrei séð á sýningum hér-það er
mikið tekið á þessu eins og mál-
verki.“
Þær Ásrún og Sigurlaug, sem
við ræddunt einnig stuttlega við,
voru sammála um, að fólk væri
nú mikið að þreifa fyrir sér með
mismunandi efni. Góbíleringin
væri ekki lengur allsráðandi; í
verkunum væri sterk þrívíddar-
tilfinning og þarna væri farið að
nálgast skúlptúr mikið.
Smámyndir
Þessari sýningu fylgir einnig
sérstök íslensk smámyndasýning,
en dóntnefndín var sammála unt,
að bjóða ákveðnu íslensku lista-
fólki að sýna smántyndir sínar.
Þarna eru verk eftir 12 íslenska
listamenn: Önnu Þóru Karlsdótt-
ur, Ásrúnu Kristjánsdóttur, Evu
Vilhelmsdóttur, Guðrúnu
Auðunsdóttur, Guðrúnu Gunn-
arsdóttur, Guörúnu Marinós-
dóttur, Hildi Hákonardóttur,
Kristínu Jónsdóttur, Rögnu Ró-
bertsdóttur, Sigrúnu Guðmunds-
dóttur, Sigurlaugu Jóhannesdótt-
ur og Þorbjörgu Þóröardóttur.
Sýninguna hér á landi styrkja
iðnaðarmálaráðuneytið, Iðnlán-
asjóður, Iðnrekstrarsjóður og
menntamálaráðuneytið.
H/ .
V;. V-'Á/S'y.
4
Himinn og jörð eftir Hildi Hákon-
ardóttur - verk með blandaðri
tækni, sem Hildur vann á síðasta
ári.
Sýningin verður opin
daglega frá kl. tvö til tíu fram til
30. janúar.
Skákskólinn orðinn að veruleika
Aðstandendur Skákskóla Friðriks Olafssonar, f.v. Helgi Olafsson, Friðrik
Olafsson, Guðmundur Sigurjónsson og Jón L. Árnason (Ijósm. - eik -).
Eins og skýrt hefur verið frá í
Þjóðviljanum hefur stofnun
skákskóla verið á döfinni í haust
en að honunt standa fimm
sterkustu skákmenn landsins,
þeir Friðrik Ólafsson, stór-
meistari, Guðmundur Sigur-
jónsson, stórmeistari, Helgi
Ólafsson, alþjóðlegur meistari,
Jón L. Árnason, alþjóðlegur
meistari, og Margeir Pétursson,
alþjóðlegur meistari. Nú er
skákskólinn orðinn að veru-
leika og nefnist hann „Skákskóli
Friðriks Ólafssonar“.
Innritun í skólann hefst 7. janúar
nk. en boðið verður uppá 6-12
vikna námskeið, 7-10 daga nám-
Fimm sterkustu
skákmeistarar
landsins standa
að skólanum
skeið sem miðast við þarfir taflfé-
laganna úti á landi og í þriðja lagi
fjöltefli og fyrirlestra sem ekki
þurfa að taka meira en eina kvöld-
stund.
Nemendum verður skipt í
flokka. byrjendaflokk, framhalds-
flokk I og franthaldsflokk 2 og
skýrir þessi flokkaskipting sig sjálf
nema hvað flokkur 2 er ætlaður
þeim sem náð hafa styrkleikanum
1700 Elo-stig.
Reynt verður að hafa í hverjum
hópi 12 til 15 manns, því að þannig
fær hver nemandi ntest útúr nánt-
skeiðunum. Námsgjöldunt verður
stillt í hóf og er miðað viö náms-
gjald annarra skóla. Unglingar
undir 16 ára aldri munu njóta ríf-
legs afsláttar. Skólinn ntun fyrst í
stað starfa seinni part dags og á
kvöldin.
- S.dór.
iQfc Hvaö ungur
* ^ nemur-
gamall ýo
temur..
tíaE8**"