Þjóðviljinn - 11.01.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 11.01.1983, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 11. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Atvinnuleysi er meira en í fyrra Janúar er sá mánuður sem hvað hann var inntur eftir atvinnuleysi á stöðum á landinu væri atvinnuá- minnst er um atvinnu að jafnaði, landinu um þessar mundir. standið ntjög slæmt unt þessar og þessa dagana vex atvinnuleysi Óskar sagði að í desember hefði mundir þar sent togarar og bátar nokkuð um allt land. Kemur þar verið meira atvinnuleysi nú en á liggja bundnir, svo sem á Seyðis- bæði til að vertíð er ekki hafin af sama tíma 1981. í Reykjavík var firði, þar sent frystihúsin eru ekki krafti og þá ekki síður tíðarfarið, um 260 ntunns án atvinnu, sem er starfrækt, vegna þess að fiskiskip sent tekur fyrir alla byggingar- nær þrisvar sinnunt fleira en í des- eru bundin. Þar er á 6. hundrað vinnu, sagði Óskar Hallgrímsson entber 1981. ntanns án vinnu. hjá félagsmálaráðuneytinu, er Þá sagði hann. að á nokkrunt - S.dór Aldís Norðfjörð, Erling Björklund og Hans Olav Andersen fyrir framan eitt spjaldanna um skipulag tlugvallarsvæðisins. Auk þeirra unnu verk- efnið: Beate Bruun, Magne Kvan, Málfríður K. Kristiansen, Ólafur Brynjar Halldórsson, Ólöf Flygering, Sigurður Halldórsson og Ævar Ilarðarson. (Ljósm. Atli). S Nemendur Arkitektaskólans í Osió sýna í Norræna húsinu Framlag í umræðu Menningarmálanefnda Norður- landaráðs, Borgarskipulag Reykjavíkur, Skipulag ríkisins, Æskulýðsráð Reykjavíkur og Norræna húsið voru hópnum innan handar. Hugmyndir um skipulag Skugga- hverfis og flugvallarsvæðisins Til hiálparstarfa í Thailandi Hildur Torfadóttir sem nú fer til hjálparstarfa í Thailandi. Hildur Torfadóttir hjúkrunar- fræðingur er t'arin til Thailands á vegunt Rauða kross Islands til að starfa þar með norrænum lækna- hópi. Hildur fór þangað sl. laugar- dag tveimur sólarhringunt eftir að hjálparbeiðni barst frá Alþjóða Rauða krossinum. Hildur Torfadóttir starfaði áður fyrir þrentur árum um þriggja mán- aða skeið í Thailandi á vegum Rauða krossins. Á síðasta ári barst Alþjóða Rauóa krossinum 26 sinnum beiðni urn aðstoð vegna neyðarástands víða unt heirn. Rauða krossinum hafa aldrei fyrr borist á einu ári jafnmargar beiðnir af þessu tagi. Oftast var óskað aðstoðar vegna náttúruhamfara eða hungurs- neyðaraf völdum þurrka, en einnig var beðið um hjálp vegna flótta- manna, bæði þeirra sem hafa flúið land og annarra sem hyggjast snúa aftur til heimkynna sinna. í anddyri Norræna hússins í Reykjavík stendur nú yfir sýning á verkefnum nemenda við Arkitekta- skólann í Osló á skipulagningu flug- vallarsvæðisns og Skuggahverfisins í Reykjavík. Sýningin opnaði föstu- daginn 7. janúar og stendur til 15. janúar. Tíu nemendur Arkitektaskólans í Osló, sex íslendingar og fjórir Norðmenn, fengu það verkefni að kynna sér þróun byggðar og vænt- anlega framtíðarþróun í Reykja- vík, en hér er um nemendur á fyrsta og öðru ári að ræða, sem sóttu sér- stakan íslandskúrs við skólann. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur kúrs er haldinn við hann, en ætla má að fleiri slíkir verði haldnir í fram- tíðinni að sögn nemendanna. Hóp- urinn valdi sem verkefni flugvallar- svæðið og Skuggahverfið, en þetta eru hvoru tveggja svæði, sem á síðari árum hafa verið að vakna til lífsins á ný. í fréttatilkynningu nemendanna um sýninguna segir m.a.: „Hvað viðvíkur einstökum verk- efnum á sýningunni þá lítum við ekki á þau sem hið eina rétta svar við skipulagsvandamálum Reykja- víkurborgar. Þetta eru fyrst og fremst hugmyndir sem við viljum koma á framfæri sem okkar fram- lag til þeirra umræðna, sem átt hafa sér stað um viðkomandi svæði og skipulagsmál almennt. Flugvallar- svæðið og Skuggahverfið eru e.t.v. hversdagslegt umhverfi margra borgarbúa og núverandi mynd þeirra er orðin sjálfsagður hlutur í huga fólks. En þeim er hægt að þreyta og bæta og með sýningu þessari viljum við vekja athygli og áhuga manna á því. Hópurinn hefur fengið styrki til þess að vinna að verkefninu frá menntamálaráðuneytinu, og Nýr formaður Kauplagsnefndar Helgi V. Jónsson hæstaréttar- lögmaður hefur, sam kvæmt tilnefn- ingu Hæstaréttar, verið skipaður formaður Kauplagsnefndar frá 1. janúar 1983, í stað Guðmundar Skaftasonar hæstaréttardómara, sem frá sama tírna var leystur frá störfum í nefndinni að eigin ósk. Hann var formaður Kauplags- nefndar um 15 ára skeið. Auk formanns eiga sæti í nefnd- inni Jóhannes Siggeirsson tilnefnd- ur af Alþýðusambandi íslands og Vilhjálmur Egilsson tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Islands. HAFPDRÆTTISIBS: Drættí frestað vegna ófærðar VIÐDROGUM FIMMTUDAG 13.JANUAR! Héraa kaupír þú míða í Reykjavik og nágrenní Athugaðu að vinningum hefur nú verið fjölgað í Happdrætti SÍBS. Hver miði kostar 50 kr. en kaupirðu ársmiða sparar þú ómælda fyrirhöfn. Snúðu þér til þessara aðila: Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23130. Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26, sími 13665. Sjóbúðin, Grandagarði 7, sími 16814 Hreyfill bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632. Versl. Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800. S. í. B. S.-deildin, Reykjalundi, Mosfellssveit. Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180. Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18, Garðabæ, sími 42720. Vilborg Sigurjónsdóttir c/o Bókabúð, Olivers Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði, sími 50045. Lilja Sörladóttir, Túngötu 13, Bessastaðahreppi, sími 54163. HAPPDRÆTTISÍBS Meira en fjórði hver miði hlýtur vinning.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.