Þjóðviljinn - 11.01.1983, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. janúar 1983
Hjörleifur Guttormsson um árásir Morgunblaðsins:
Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra
Frá álverinu í Straumsvík
Ríkisst j órmn
ræddi skeytið
• Eðlilegt samráð hefur verið haft við Landsvirkjun
• En Morgunblaðið heldur uppi málflutningi fyrir
Alusuisse og ber málstað auðhringsins fyrir brjósti
Ég sendi fulltrúum Alusuisse,
þeim dr. Múller og dr. Sorato
þetta skeyti þann 5. janúar s.l.,
en drög að því höfðu verið lögð
fram á fundi ríkisstjórnarinnar
daginn áður. A ríkisstjórnar-
fundinum var ákveðið sam-
kvæmt minni tillögu, að yfir
málið yrði farið með forsætis-
ráðherra .og sjávarútvegsráð-
herra áður en skeytið yrði sent.
Við ráðherrarnir þrír hittumst
svo síðdegis þennan sama dag,
4. janúar, fórum þá yflr stöðu
mála gagnvart Alusuisse og efni
þessa svarskeytis okkar, sem
fyrir lá að yrði sent í framhaldi
af þeim fundi. Gerði ég nokkrar
breytingar á fyrirliggjandi
drögum í Ijósi ábendinga frá
samráðherrum mínum.
- Þetta sagöi Hjörleifur Gutt-
ormsson, iönaöarráöherra, þegar
viö inntum hann í gær eftir nýjasta
skeyti hans til Alusuisse, en Morg-
unblaöiö hefur undanfarna daga
verió að birta glefsur úr skeytinu og
hefur blaðið haldið því fram, aö
meðráðherrar Hjörleifs í ríkis-
stjórninni hafi ekkert um skeytiö
vitaö fyrr en búiö var að senda það.
- Skeyti þetta birturn við í heild hér
á síðunni, en þaö hefur nú veriö
sent fjölmiölum.
Viöspuröum Hjörleif hvað hann
vildi segja í tilefni árása Morgun-
blaðsins á hann vegna þessa
skeytis, og báðum hann aö rifja
stuttlega upp síðustu samskipti viö
Alusuisse.
Þvert nei frá
Alusuisse
I Ijörleifur sagöi:
Eins og fram hefur komið sendi
ég Alusuisse tillögu um nýjan sam-
komulagsgrundvöll milli aöila
þann 21. des. s.)., en áöur höfðu
drög að þeim samkomulagsgrund-
velli verið rædd í ríkisstjórn. Ég
óskaði þá jafnframt eftir fundi með
forráðamönnum Alusuisse á Þor-
láksmessu þar sem þeir vísuðu enn
á ný til kröfugeröar af sinni hálfu,
m.a. um stækkun verksmiðjunnar
og nýjan eignaraðila, áður en tíl
greina kæmi að ræða um hækkun á
raforkuverðinu, eða aðrar
breytingar á samningum. Einnig
var því lýst yfir að Alusuisse gæti
ekki sent fulltrúa til fundar fyrr en
þá i fyrsta lagi í febrúarmánuði.
Skeyti mitt frá 5. janúar s.l. var
svar íslenskra stjórnvalda við þess-
um neikvæðu viðbrögðum Alu-
suisse. Við því hefur ekkert svar
borist. Ég hef ekki haft frumkvæði
að því, að reka þessi mál í fjölmiðl-
um eftir síðasta fund okkar dr.
Múller nú snemma í desember.
Hins vegar viröist Morgunblaðið
eiga greiðan aðgang að því sem fer
á milli íslenskra stjórnvalda og
Alusuisse og hefur nú um helgina
verið með endurnýjaðar árásir á
mig, m.a. vegna síðustu orðsend-
ingar minnar til Alusuisse. Af því
tilefni tel ég óhjákvæmilegt að gefa
fjölmiðlum kost á að birta þessa
orðsendingu mína frá 5. janúar í
heild og vísa ég til efnis hennar.
Málflutningur
auðhringsins í
Morgunblaðinu
Það vekur að sjálfsögðu athygli,
að Morgunblaðið og fleiri áhrifaöfl
í þjóðfélaginu hafa greinilega ríka
tilhneigingu til að taka undir mál-
stað Alusuisse og allan málflutning
erindreka auðhringsins. Þannig er
mér m.a. borið á brýn að vilja fyrst
og fremst spilla sambandi Islands
og Alusuisse, eins og það heitir á
máli Morgunblaðsins. Slíkur mál-
flutningur dærnir sig sjálfur, en það
er hörmuleg staðreynd, að áhrifa-
mikil öfl í landi okkar skuli vera svo
höll undir hagsmuni þessa
auðhrings, að þau virðast láta sig
meira varða að koma höggi á pólit-
íska andstæðinga hér innanlands
en að taka undir sjálfsagðar kröfur
um leiðréttingu á orkuverðinu og
öðrum samningsatriðum, en þessi
herfilegi samningur við Alusuisse á
sér ekki hliðstæðu í allri Vestur-
Evrópu, og þótt víðar væri leitað.
Margvíslegt
samráð við
Landsvirkjun
- En hvað um ásakanir Morgun-
blaðsins um skort á samráði við
Landsvirkjun?
- Það hefur alltaf legið fyrir, aö
ráðuneytið muni kveðja Lands-
virkjun til samráðs og þátttöku í
endurskoðun rafmagnssamnings-
ins, ef unnt reyndist að koma af
stað raunverulegum samningum.
En meðan Alusuisse neitar þver-
lega nokkurri minnstu byrjunar-
hækkun, þá er auðvitað ekki um
neitt að semja, hvorki fyrir Lands-
virkjun né aðra. Einnig er ljóst, að
svo þýðingarmikill þáttur og meg-
inþáttur, sem raforkuverðið er, þá
hljóta heildarsamningar milli Is-
Iands og Alusuisse að fjalla um
fleiri atriði, og líta verður samstillt
á alla þætti málsins. Því er Lands-
virkjun ekki réttur aðili ein sér til
neinna beinna samningaviðræðna
við Alusuisse og ÍSAL, þótt raf-
magnssamningurinn sé að formi til
milii ISAL og Landsvirkjunar.
Hann eins og annað, sem varðar
þessi samskipti er á ábyrgð og háð
samþykki iðnaðarráðherra fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar.
Ráðuneytið hefur hins vegar
haft samráð með ýmsum hætti við
Landsvirkjun undanfarin misseri
varðandi þá þætti sem snerta
endurskoðun raforkuverðsins.
Þannig átti yfirverkfræðingur
Landsvirkjunar, Jóhann Már Mar-
íasson aðild að starfshópi ráðu-
neytisins, sem settur var á fót í árs-
byrjun 1981 og skilaði yfirgrips-
mikilli skýrslu um raforkuverð til
ÍSAL í byrjun ágúst 1982. Niður-
staða þeirrar skýrslu var sú, að
eðlileg væri krafa um hækkun raf-
orkuverðsins í 15-20 mill. Ráðu-
neytið sendi stjórn Landsvirkjunar
þessa skýrslu um raforkuverðið til
formlegrar umsagnar og barst sú
umsögn stjórnar Landsvirkjunar í
Iok septembermánaðar s.l. Þar er
tekið undir öll meginatriðin í
niðurstöðum áðurnefnds starfs-
hóps ráðuneytisins og gefnar ýmsar
gagnlegar ábendingar varðandi
málið.
Landsvirkjun
telur kröfu um
tvöföldun til
þreföldun
orkuverðs eðlilega
Einnig fylgdi þarna með frá
Landvirkjun sérstök greinargerð
þess fyrirtækis um raforkuverð til
stóriðju, þar sem m.a. er fjallað
sérstaklega um raforkuverð til
ISAL. Þar kemur fram, að Lands-
Framhaldá bls. 16
Skeyti iðnaðarráðherra til Alusuisse þann 5. janúar s.l.
Þá verðum við að leita
annarra löglegra leiða
Hér birtum við í heild síðasta skeyti iðnaðarráð-
hcrra til Alusuisse. Orðsendingin var á þessa leið:
Reykjavík, 5. janúar 1983
Alusuisse, Zúrich
Viðt. Dr. P. Múller og Dr. B. Sorato
Iðnaðarráðuneytiö hefur móttekið telex-skeyti
yóar dagsett 23. descnrber 1982, sem er svar víð
ýtarlegri tillöguokkarað samkomulagsgrundvelli,
sem yöur var send í telex-skeyti 21. desember.
Tillaga okkar er í samræmi við fyrri samþykktir
ríkisstjórnar íslands og er sett fram t framhaldi af
þeim gögnum, staðreyndum og rökum, sem við
höfum lagt fram í viðræðum okkar og tekur að
auki tillít til þeirra sjónarmiða og óska sem þér
hafiö sett fram, þar á meðal þeirra atriða, sem
fram komu í telex-skeyti yðar frá 10. nóvember
1982.
Tillaga okkar, sem er bæði ýtarleg og skiimerki-
leg, tekur á raunhæfan hátt til hinna þriggja meg-
inatriða núverandi ágreiningsatriða okkar, það er
að segja:
a) aðgerð (úrskurðarnefnd eöa gerðardómur) til
að leysa ágreining varðandi skattskyldur ísal),
b) áætlun um aðferð til að ákveða raforkuverð til
ísal, bæði hvað snertir upphafshækkun og þá
þætti er varða vimiðunargrundvöll raforku-
verðsins og verðtryggingu þess,
c) samkomulagsgrundvöll til að leysa í vinsemd
mál er varða rekstur álversins í Straumsvík og
mál er fjalla þarf um í samningum varðandi
framtíðarsamskipti aðila.
Við hörnrum að ekki er unnt að skilja telex-
skeyti yðar frá 23. desember öðruvísi en sem
synjun á tillögum okkar. Það veldur okkur sár-
um vonbrigðum að þér skulið ekki vera til-
leiðanlegur aö setjas! að samningaborði með
okkur á grundvelli tiliagna okkar.
í telex-skeyti yðar ítrekið þér fyrri afstöðu yðar
þess efnis að aðalsamningamaður yðar, Dr. P.
Múller, sé þá fyrst reiðubúinn að leggja ósk
okkar um sanngjarna upphafshækkun raforku-
verðs fyrir stjórn Alusuisse, eftir að ríkisstjórn-
in hefur fallist á skilyrði yðar varðandi stækkun
álversins, nýjan samstarfsaðila og fleira.
Ríkisstjórnin lítur þessi viðbrögð yðar alvar-
legum augum. Þau tefla samskiptum okkar í
voða og torvelda enn á ný möguiega lausn
ágreiningsefna með samningum.
Berist okkur ekki skýr boð frá yður um aö þér
séuð reiðubúnir að hefja raunhæfar samninga-
viðræður á grundvelli tillögu okkar eigum við
ekki annarra kosta völ en að leita annarra lög-
legra leiða til lausnar á málinu.
Kærar kveðjur
Hjörleifur Gultormsson,
iðnaðarráðherra