Þjóðviljinn - 11.01.1983, Qupperneq 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. janúar 1983
Lárus Björnsson
Flestir Akureyringar, sem
komnir eru vel til fullorðinsáranna,
munu kannast við Lárus Björns-
son, trésmið, sem lengi gekk undir
nafninu Lárus í Iðju, og máttu sú
nafngift kallast bæði stöðu og
sæmdarheiti, því að auk þess að
Lárus stjórnaði trésmíðaverkstæð-
inu Iðju um hartnær þrjátíu ára
skeið var hann að upplagi og elju-
semi iðjumaður í þess orðs bestu
merkingu, traustur, reglufastur og
afkastamikill.
Lárus er nú fyrir nokkrum árum
kominn af iðjualdri og um þessai
mundir á hann níræðisafmæli, og
þess vildi ég minnast með örfáum
orðum.
Lárus er fæddur á Höskuldsstöð-
um í Vindhælishreppi í Húnavatns-
sýslu II. janúar árið 1983. For-
eldrar hans voru María Guðrún
Ögmundsdóttir og Björn Magnús-
son. Þau fluttu síðan að Syðra-Hóli
Hollustuvernd
ríkisins
Reykjavík.
Tvær stööur viö Hollustuvernd ríkisins eru lausar til
umsóknar:
Staða deildardýralæknis
Helstu málaflokkar, sem viðkomandi mun sjá um, eru
mjólk og mjólkurvörur, kjöt og kjötvörur, þar meö tald-
ar sláturafurðir af alifuglum.
Umsækjandi skal hafa dýralæknispróf. Æskilegt er að
umsækjandi hafi sérþekkingu á sviöi heilbrigðisvernd-
ar eöa skuldbindi sig til þess aö afla sér slíkrar sér
þekkingar í samráði við stofnunina.
STAÐA HÁSKÓLAMENNTAÐS
HEILBRIGÐISRÁÐUNAUTS
Helstu málaflokkar, sem viökomandi mun sjá um, eru
eftirlit meö innflutningi á matvælum, neyslu- og
nauðsynjavörum í samvinnu viö innflutnings- og toll-
gæsluyfirvöld. Ennfremur staðlaskrármál og tengsl
við alþjóða staðlaskrárráðið (Codex Alimentarius).
Umsækjandi skal hafa lokið prófi í matvælaverkfræði,
matvælafræði eða skyldum greinum.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun
og störf sendist forstjóra stofnunarinnar, Skipholti 15,
fyrir 15. febrúar 1983.
Hollustuvernd ríkisins
10. janúar 1983.
Blaðberi óskast
Sörlaskjól
DIOOVIUINN
Simi 81333.
„Flóamarkaður" Þjóðviljans
Ný þjónusta við áskrifendur
Á fimmtudögum geta áskrifendur Þjóðviljans fengið birtar smáauglýsingar sér
að kostnsðarlausu. Einu skilyröm eru að auglýsingarnar séu stuttorðar og aö
fyrirtækí eða stofnanir standi þar ekkí að baki. Ef svo er, þá kostar birtinqin
kr. 100.-
Hringiö í sima 31333 ef þiö þurfið að selja. kaupa. skipta, leigja, ef ykkur
vantar vinnu, þið hafið tynt einhverju eöa fundið eitthvað. Allt þetta og fleira til
a heima á Flóamarkaði Þjóðviljaris.
DJOÐVIUINN
• Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboð
SIMI 53468
í næsta nágrenni og þar ólst Lárus
upp í hópi sjö systkyna. Eitt þeirra
var Magnús, sem þar bjó allan sinn
búskap og varð þjóðkunnur rithöf-
undur og fræðimaður. Lárus fór
að heiman innan tvítugsaldurs og
fetaði slóð forfeðra sinna er fóru
gangandi í verið með pjönkur sínar
á bakinu og með sama hætti til
baka í vertíðarlok.
Ekki vildi hann gera sjómennsk-
una að ævistarfi og hóf nám í tré-
smíði hjá Einari Guðmundssyni,
sem var ættaður úr Húnavatns-
sýslu.
Síðan vann hann um skeið hjá
Hafliða Hjaltasyni, trésmið.
Um það leyti kenndi hann mag-
asjúkdóms, en fékk að nokkru bót
á honum með skurðaðgerð, en sá
bati varð aldrei fullkominn og átti
Lárus raunar við heilsubrest að
stríða ævilangt.
Árið 1930 komst hann í kynni við
hinn þjóðkunna athafna- og
hugvitsmann, Sveinbjörn Jónsson
á Akureyri, sem þá hafði stofnað
fyrirtækið Iðju. Varð það þá að
ráði að Lárus keypti helming þess
og sæi síðan um reksturinn. Þar
með hafði hann bundist ævistarfi
og hlutverki, sem hann rækti með
sæmd. Fljótlega eftir að hann kom
til Akureyrar vann hann með Ólafi
Eiríkssyni múrara við að byggja
húsið Þingvallastræti 14, sen nú er
eign verkalýðsfélagsins Einingar.
Það varð síðan í mörg ár heimili
þeirra systkinanna Óláfs, Ingi-
bjargar, Elisabetar og Ingunnar og
þar mátti kallast að væri miðstöðin
í verkalýðsstarfseminni og flokks-
starfi Kommúnistaflokksins og
síðar Sósíalistaflokksins.
í þessu húsi bjó Lárus í allmörg ár
rg tengdist þessu ágæta fólki vina-
DÖndum, sem aldrei rofnuðu.
Matvæli til
Póllands
í gær var verið að skipa upp úr
MS. Bæjarfossi 200 tonnum af ær-
kjöti í Gdynia sem er gjöf til Pól-
verja á vegum Hjálparstofnunar
kirkjunnar í samvinnu vi landbún-
aðarráðuneytið, Alþýðusam-
band Islands, Katólsku kirkjuna og
Rauða krossinn. Kjötinu verður
dreift vítt um landið.
Um næstu mánaðamót er á-
kveðið að 100 tonn fari til viðbótar
og síðar í febrúar og þá fari um 55
tonn af síld, en fyrir síldina greiðir
Alkirkjuráðið en það greiðir einnig
fyrir fíutningana á kjötinu. Þess
skal getið að Reykvísk endurtrygg-
ing hefur gefið tryggingar vegna
flutnings á kjötinu.
- ekh
Líffræði-
fyrirlestur
I dag heldur dr. Einar Árnason
criiuli á vegum Lífræðifélags Is-
lands, sem hann nefnir „Þróun á
tveimur einsím myndandi genum í
Drosophila pseudoobscura: hlut-
leysi eða val?“
Erfðabreytileiki er hornsteinn
þróunarkenningarinnar, en
löngum hafa menn deilt um þýð-
ingu þessa breytileika í stofnun
nátúrunnar. Nýjasta form þessara
deilna fjalla unt hlutleysi eða val
breytilegra sameinda. í erindinu
mun Einar lýsa svokölluöum um-
byltingartilraunum, sem hann hef-
ur beitt til þess að fá úr því skorið
hvort samsætur (allel) tveggja ens-
ímmyndandi gena í bananaflug-
unni Drosophila pseudoobscura
væru hlutlaus eða ekki.
Fyrirlesturinn, sem eru öllum
opinn, verður haldinn í stofu 101 í
Lögbergi og hefst kl. 20.30.
90 ára
Hann gerðist fljótlega flokksfélagi
íSósíalistaflokknum, áhugasamur
Dg traustur. Hann sótti fundi
nanna best, og þegar leitað var
sftir fjárstyrk til starfseminnar,
eins og oft bar við á þeim árum, var
Lárus aldrei seinn til eða smá-
tækur.
Hann var alltaf hæglátur og hlé-
drægur og sóttist ekki eftir að kom-
ast í ábyrgðarstörf á vegum flokks-
ins, þó til þess hefði hann hæfileika
eins og góða dómgreind, tiltrú og
vinsældir. Þegar vanhugsuð,
ódrengileg og misheppnuð atlaga
var gerð til klofnings í Aiþýðu-
bandalaginu, var Lárus einn þeirra'
traustu eldri félaga, sem lét engan
bilbug á sér finna og brást ekki fé-
lögum sínum eða þeim málstað,
sem hann taldi réttan. Nú þegar
þessar línur eru ritaðar má segja að
engum einum manni eigi Alþýðu-
bandalagið meira að þakka en
Lárusi.
Árið 1974, 10. des., færði Lárus
félaginu að gjöf neðri hæðina í
myndarlegu húsi sínu að Eiðsvalla-
götu 18 hér í bæ og má nærri geta að
þessi höfðinglega gjöf kom sér vel
og var þegin með ríkulegu þakk-
læti.
Var þegar hafist handa að inn-
rétta hana og hagnýta í þágu félags-
starfsins. En Lárus lét ekki þar við
sitja. Árið eftir gaf hann flokknum
einnig efri hæð hússins ásamt bíl-
skúr. Þeirri gjöf fylgdi einnig ágætt
bókasafn hans, sem eitt útaf fyrir
sig mátti teljast höfðingleg gjöf.
Alþýðubandalagið mun því á ó-
komnum árum búa að rausnarlyndi
og drengskap Lárusar og lengi
verður hanns minnst af hlýjum
huga.
Húsið nefnist nú Lárusarhús og
þar fer fram öll flokksstarfsemi
Alþýðubandalagsins. Á vegg í
fundarsalnum má líta myndarlega
ljósmynd af Lárusi og margir
munu á ókomnum árum líta til
hennar með velvild og þakklátum
huga. Þegar ég skrifa þessar línur
er ég að koma frá að heimsækja
Lárus þar sem hann býr á Dvalar-
heimilinu Hlíð.
Ekki þurfti ég að kynna mig fyrir
honum og tók hann mér af þeirri
hressilegu alúð, sem honum er
eiginleg. Hann er ánægður með til-
veruna á þessum stað, hefur gott
herbergi til umráða ásamt öðrum
manni, sem hann bar gott orð sem
ákjósanlegum sambýlismanni.
Heyrn Lárusar er góð miðað við
aldur og sjónin sömuleiðis, nema
hvað hann kveðst þola illa að
stunda lestur nokkuð að ráði.
Hann fylgist vel með því sem gerist
í stjórnmálaheiminum og taldi að
núverandi ríkisstjórn væri af betra
taginu og að rétt hefði verið af Al-
þýðubandalaginu að taka þátt í
stjórnarstarfinu. Hann er enn létt-
ur í spori og hefur til skamms tíma
fengið sér langa morgungöngu, en
lætur það ógert þegar hálka hefur
myndast. Vinum og flokks-
systkinum sendir hann góðar
kveðjur og heillaóskir á þessum
tímamótum ævinnar. Ég veit að
margir eru þeir, sem vilja taka
undir hlýjar kveðjur til hans á 90
ára afmælinu. Og ég vil ljúka þess-
um orðum með því að endurtaka
það, sem hann sagði við mig:
„Fortíðin átti marga góða kosti,
nútíðin er að sjálfsögðu miklu
betri, og færi framtíðin ekki landi
og þjóð aukna farsæld og lífsham-
ingju þá er það fólksins eigin sök.“
Einar Kristjánsson.
SNJÓ-
HJÓL-
BARDAR
Eigum fyrirliggjandi takmarkaðan lager af eftir-
farandi hjólbörðum.
600 X 12 1.825,-
A78 X 13 1.801,-
B78 X 13 1.827,-
P155/80 X 13 1.692,-
155R X 13 1.912,-
165R X 13 2.061,-
P175/80R X 13 2.048,-
C78 X 14 1.984,-
E78 X 14 2.124,-
F78 X 14 2.211,-
G78 X 14 2.356,-
H78 X 14 2.400,-
P195/75R X 14 2.333.-
P205/75R X 14 2.338,-
165R X 15 2.197,-
G78 X 15 2.432,-
P225/75R X 15 2.829,-
700 X 15/6PL 3.280,-
750 X 16/8PL 4.445,-
875 X 16,5/8PL 3.804,-
Á meðan birgðir endast gefum við 10% staðgreiðslu- afslátt eða veitum góð greiðslukjör.
HJOLBARÐAR
Véladeild Sambandsins
HÖFÐABAKKA 9.
Símar: 83490 og 38900.