Þjóðviljinn - 11.01.1983, Page 16
Stefnt í
hættu
Benóný Benediktsson er meðal
keppenda á Skákþingi Reykjavíkur
sem hófst á sunnudaginn.
Munurinn á rækjuverði á Islandi og í Noregi virðist vera nær ótrúlegur.
Hver hirðir
mismuitinn?
Launagreiðslurnar í Noregi eru miklu hærri en á íslandi
Munurinn á rækjuverði til sjó-
manna í Noregi og á íslandi, sem
Þjóðviljinn skýrði frá fyrir helgina,
hel'ur að vonum vakið mikla at-
hygli, enda er hann vægt sagt
hrikalegur. Til að afla nánari frétta
af þessu máli haf'ði Þjóðviljinn í
gær samband við Matthías Garð-
arsson, semstarfar hjá norska sjáv-
arútvegsráðuneytinu, og bað hann
um nánari upplýsingar á rækju-
verði í Noregi, miðað við vinnslu-
aðferð og stærðarllokka.
Matthías sagði að fyrir rækju
sem er stærri en 8 sm og forsoðin í
sjó um borð í fiskibát væru
greiddar 51.20 kr. ísl. fyrir kg..
miðað við að hún væri ópilluð. til
sjómanna. Rækja sem er 7,5 sm,
forsoðin um borð tii piilunar, 23.75
kr. til sjómanna. Rækja sem er 7,5
sm eða minni, forsoðin um borð,
21.75 til sjómánna.
En þá komum við að rækju sem
er að öilu leyti unnin eins og hér á
Isiandi, þ;tð er hrá blönduð rækja
til pillunar. I'yrir hana er greitt
16.25 kr. fyrir kílóið til sjómanna.
Af þessum 16.25 kr. eru 80 aurar
styrkur. Þetta er lægsta verð sem
greitt er til sjómanna fyrir rækju í
Noregi.
Á íslandi er hæsta verð sem sjó-
menn fá 11.69 kr. fyrir kílóið. Þá er
um að ræða rækju sem gefur 160
stykki eða færri í eitt kíló. Síðan
eru fleiri verðflokkar fyrir minni
rækju. Má þar nefna 10 kr. fyrir kg.
og 7.27 kr. fyrir kg. Lægsta verð
fyrir rækju hér er 3.72 kr. fyrir kg.
Sem fyrr sagði er það 16.25 kr. í
Noregi. Sú rækja, sem greitt er
fyrir hér 3.72, er svokölluð úrkasts-
rækja, vegna smæðar.
En þá er að geta þess að venju-
legt tímakaup í rækjuvinnslu í Nor-
egi er 40 kr. norskar eða rúntar 100
kr. íslenskar á tímann. Hér tekur
fólk í rækjuvinnslu laun samkvæmt
9. launaflokki og þar er hæsta kaup
eftir 5 ára starf 48.38 kr. á tímann.
Þá er greiddur bónus ofan á þetta
kaup fyrir hópinn. Hann er mjög
mismunandi. Hæstu dæmi sem
þekkjast er 200 kr. til 300 kr. bón-
usálag á rnann á dag. Lægri upp-
hæðir eru mun algengari.
Norskur verkamaður í rækju-
vinnslu hefur því rúmar 800 kr. ísl.
á dag en hæsta dæmi sem hér þekk-
ist er 687 kr. en algengara nær 500
•kr. á dag.
Því er spurningin áfram: Hver
hirðir þann mismun sent hér mynd-
ast, þar sem þjóðirnar selja á sama
markaði og fá sama verð fyrir
afurðina?
-S.dór
„Þessi niðurskurður er dæmi-
gerður fyrir hægri stjórn; byrjað er
á að skera niður samféíagslega
þjónustu í heilbrigðis- og félags-
málum,“ sagði Sigurjón Pétursson
m.a. i umræðu um fjárhagsáætlun
s.l. fimmtudag. Tilefnið var bréf
allra yfirlækna Borgarspítalans,
sem dreift var á borgarstjórnarf-
undinum. Þar kemur m.a. fram að
verja á 8 miljónum króna í tækja-
kaup spítalans, en í fyrra var veitt til
þessa liðar 7 miljónum króna. Flest
eru tækin keypt dollaraverði, en
dollarinn hefur hækkað um meira
en 100% á milli ára! A sama tíma
hækkar fjárveiting borgarinnar um
15,5%!
„Við lýsum furðu okkar á þess-
um niðurskurði og teljum að með
honum sé starfsemi spítalans stefnt
í hættu, sem hljóti að koma niður
á staðli spítalans“, segir m.a. í bréfi
læknanna, þar sem þeir skoruðu á
borgarstjórn að hækka upphæðina
verulega. Upphaflega fór tækja-
kaupanefnd spítalans fram á 18,6
miljónir króna. Undir brefið rita:
Gunnar Sigurðsson, Eggert Ó. Jó-
hannsson, Ásmundur Brekkan,
Gunnar H. Gunnlaugsson, Þor-
björg Magnúsdóttir, Hannes Pét-
ursson, Stefán Skaftason, Haukur
Kristjánsson, Ásgeir B. Ellertsson
og Kristinn Guðmundsson.
Sjálfstæðisflokkurinn varð ekki
vð þessari áskorun um hækkun
fjárveitingar s.l. fimmtudag.
-ÁI
Hægfara kandidatar hrósa sigri í prófkjöri
Framsóknarmenn
völdu til hægri
Hægri mcnn í Framsóknarílokkn-
um hlutu mikinn sigur í próf-
kjöri flokksins í Reykjavík nú um
helgina. Ólafur Jóhannesson varð í
fyrsta sæti með 207 atkvæði en
Haraldur Ólafsson varð í 2. sæti
með 127 atkvæði samanlagt í fyrsta
og annað. Báðir þessir hafa verið
talsmenn hægri aflanna í Framsókn
og í þriðja sæti með 101 atkvæði
varð Björn Líndal mágur Eiríks
Tómassonar (ráðherra Árnason-
ar).
í fjórða sæti var Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir með 1.31 at-
kvæði samanlagt, en í fimmta sæti
varð Bolli Héðinsson með 156 at-
kvæði sem og Steinunn Finnboga-
dóttir. Bolli vann á hlutkesti.
„Heimurinn stendur í stað í þess-
um flokki", sagði Framsóknarkona
við blaðið en konur eru óánægðar
með sinn hlut. „Ilún ætlar ekki að
gera það endasleppt, Hánefsstaða-
ættin í Framsóknarflokknum",
sagði fullorðinn Framsóknarmað-
ur. Greinilegt er að í Reykjavík
hefur hugmyndin um nýja hægri
stjórn undir forsæti Ólafs Jóhann-
essonar fengið byr undir báða
Olafur Jóhannesson fékk 75%
greiddra atkvæða í prófkjöri innan
fulltrúaráðs Framsóknarflokksins í
Reykjavík.
vængi í Framsóknarflokknum. Það
segir svo sína sögu að 207 manns
völdu forsætisráðherraefnið í próf-
kjörinu. - óg/ekh
Skákþing
Reykja-
víkur hafið
Skákþing Reykjavíkur 1983
hófst í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur síðastliðinn sunnu-
dag. Á mótinu hófu alls um 80 skák-
menn keppni og tefla allir í einum
flokki eftir svissneska kerfinu.
Keppni í unglingaflokki mun helj-
ast síðar.
Margar þekktar kempur mættu
til leiks í mótinu þó fresta hafi þurft
nokkrum skákum vegna færðar.
Meðal keppenda eru Haukur Ang-
antýsson, Elvar Guðmundsson,
Benóný Benediktsson, Dan Hans-
son, Róbert Harðarson, Sveinn
Kristinsson, Þórir Ólafsson, Guð-
mundur Ágústsson, Ágúst Karls-
son, Róbert Haröarson, Björn Sig-
urjónsson, Björgvin Jónsson, Hall-
dór G. Einarsson og Bragi
Björnsson. Mótið stendur út janú-
armánuð og er teflt þrisvar í viku, á
sunnudögum, föstudögum og
miðvikudögum. Sævar Bjarnason
er núverandi Skákmeistari Reykja-
víkur.
-hól.
Forval AB á
Suðurlandi
Lýkurí
kvöld
Fyrri umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins í Suðurlandskjör-
dæmi hófst sl. laugardag og stendur
fram á þriðjudagskvöld. Það er
víðar veður en í Reykjavík, segir
máltækið og er skemmst frá því að
segja, að ekki hefur verið veðrátta
til að komast á kjörstað t.d. í upp-
sveitum Suðurlands.
Svipaða sögu er að segja frá þétt-
býlisstöðunum. Þar hefur víða ver-
ið ófært og leiðindaveður forvals-
dagana. Um helgina voru kjörstað-
ir yfirleitt opnir frá kl. 16.00 til
22.00 en í gær og í dag eru þeir
yfirleitt opnir frá kl. 20.00 til 22.00.
Ef veðrinu slotar ekki í dag kemur
vel til greina að framlengja forvalið
enn um sinn.
_________________-óg
Yfirlæknar um
starfsemi
Borgarspítalans
MOÐVIIJINN
Þriðjudagur 11. janúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285, Ijósmyntlir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348