Þjóðviljinn - 22.01.1983, Blaðsíða 17
Helgin 22.-23. janúar 1983 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 17
Magnús Magnússon, fyrrverandi
baejarstjóri í Vestmannaeyjum
(Ijósm. Atli).
aldrei efast um að hafa gert rétt
með þessu. Heldur ekki þeir sem
ég bar þetta svo undir. Þessi á-
kvörðun var auðvitað byggð á því að
hægt væri að byggja upp nýjan mið-
bæ, en færi höfnin væri allt búið.
Þetta gerðist áður en við fengum
þann dælubúnað sem síðan varð og
varð til þess að stöðva hraunið. Ég
er sannfærður um að ef við hefðum
strax fengið þann búnað, þá hefði
ég aldrei þurft að velja þarna á
milli, en það varð mitt hlutskipti að
velja á milli, svo mikið lá við; málið
þoldi ekki bið.
Ég lagði alltaf á það höfuð-
áherslu að bjarga sem mestum
verðmætum, og í mínum huga var
höfnin alveg núnter eitt. Þegar
höfnin var í hvað mestri hættu, var
ákveðið að opna Eiðið ef höfnin
lokaðist. Það hefði vissulega verið
ágætt, en höfnin hefði aldrei orðið
jafn góð með þeim hætti. Bæði
minni og verri að öllu leyti.
Fœrði dagbók fram
á síðustu mínútu
Þegar svona erfiðleikar koma, þá
bregðast mcnn misjal'nlega við;
varðstu aldrei var við það að menn
sem kannski var ckki búist við
miklu af sýndu dugnað og öfugt?
- Jú, mikil ósköp, maður sá
þetta gerast. Það komu margir svo
kallaðir „katastrófu“menn, eins og
Englendingar segja, fram í dags-
ljósið. Þar á ég við mcnn sem vaxa
Það var ekki létt verk að velja á
milli hafnarinnar og miðbæjar-
ins...
með erfiðleikunum; og þótt minna
væri um hitt, þá sá maður það ein-
nig. Ég get nefnt þér dæmi um
ódrepandi kjark og dugnað, svo
fnikinn að maður undraðist. Þegar
hraunið malaði hvað ákafast mið-
bæinn og var búið að brjóta horn á
Rafveituhúsinu, fór ég uppá skrif-
stofu til Garðars Sigurjónssonar
rafveitustjóra. Hús hans, þar sem
hann hafði aílan sinn aldur átt
heima, var þá fyrir stuttri stundu
farið undir hraun. Þá sat hann á
sinni skrifstofu, gekk frá skjölunr
og færði si'na dagbók. Það var ekki
verið að hlaupa í burtu. Þess í stað
bauð hann mér uppá kaffi, og svo
nákvæntur var hann við færsluna í
dagbókina að hann skrifaði ná-
kvæmlega hvenær hver díselvél
stöðvaðist, þegar hraunið flæddi
inní húsið. Við fórum ekki útúr
húsinu fyrr en það var algeilega að
brotna niður.
Hélt sig vera
einan eftir
Misstir þú þitt hús undir hraun?
- Nei, en það varð sífellt að
grafa frá því ösku, svo það færi ekki
á kaf, ég flutti nefnilega ekki að
heiman áður en gasið var orðiö það
mikið, að hættulegt var orðið að
sofa í húsinu. Þórhallur Jónsson
bjó í húsinu með ntér, og svo var
það einu sinni eftir að gasið var
komið að hann var einn heima.
Margar tilviljanir í upphafi gossins
bentu til þess að ekki ætti illa að
fara......
Hann vaknaði upp við það að hann
náði ekki andanum, og það var ein-
mitt merki um gashættu. Hann
rauk upp og út. tók bil og ók uppá
flugvöll. Það var myrkur yfir öllu
og engin Ijós að sjá, enginn uppá
flugvelli, og þegr hann svo ætlaði
að hringja, svaraði ekkert núrner.
Hann hrökk því við og taldi sig ein-
an eftir á eyjunni, aðrir hefðu haft
sig burt vegna gashættu. Ástæðan
fyrir því að síminn svaraði ekki var
sú, aö nýbúið var að breyta öllum
númerum, en það athugaði hann
að sjálfsögðu ekki.
Þú talaðir áðan um að rnenn
hefðu almennt sýnt mikið æðru-
leysi og vaxið með erfiðleikunum,
kanntu skýringu á því hvers vegna
Eyjamenn stóðu sig svona vel í þess-
um miklu erfiðleikum?
- Vestmannaeyingar eru yfir-
leitt æðrulausir menn. Þeir eru sjó-
menn sem hafa alist upp við hinar
ntiklu hættur sem sjósókninni
fylgja. Ég man vel eftirþví þegarég var
smástrákur í Eyjum, að það þóttu
tíðindi ef ekki fórst nema einn bát-
ur á vertíð. Þá voru þetta svona 7 til
12 tonna bátar sem réru á vertíð.
Mig rekur ekki minni til að-menn
hafi talað um að hætta sjósókn þótt
mörg óhöpp yrðu á vertíð. Menn
litu á hættuna sem eitthvað óumflý-
janlegt og iærðu að lifa með henni.
Þetta kann að vera skýringin á því
hve vel þeir stóðu sig í þeim hörm-
ungum sern gosinu fylgdu. Og af
því að ég minntist á þessa litlu báta.
Enginn fékk fullar bætur og ég reiðist alltaf þegar ég heyri menn segja að Vestmannaeyingar hafi hagnast á
gosinu... (Áður óbirt ljósmynd: Sigurjón Jóhannsson).
Enginn niaður verður samur og
jafn eftir að hafa upplifað atburð
eins og gosið í Vestmanna-
eyjum....
þá minnist ég þess, þegar ísleifur I.
kom til Vestmannaeyja, 30 til 40
tonna bátur, þá þótti hann hafskip.
Menn töluðu um það sem tóma vit-
leysu að vera að kaupa svona stórt
skip.
Einstœtt afrek
Stundum, meðan á gosinu stóð,
var talað um einstök afrek, sem
unnin voru við hinar erfiðustu að-
stæður; manstu að nefna mér þau
sem þér þótti mest um verð?
- Auövitað gæti ég nefnt fjölda
dæma, næstum ótæmandi. en ég
hygg að sá ofurmannlegi dugnaöur
og kraftur sem menn sýndu við
björgun liúsa þegar mest gekk á í
eldgosinu. verði mér alltaf minnis-
stæðast. Ég man til að mynda eftir
því þegar félagar úr Trésmiöafélagi
Reykjavíkur, undir stjórn Jóns
Snorra Þorleifssonar formanns
síns, negldu fyrir austurglugga um
600 húsa á einum sólarhring. Ég er
ekki viss um að ég hafi nokkru sinni
séð önnur eins vinnubrögð og af-
köst. Ég man líka eftir því, að
þarna unnu saman sem einn maöur
væri hinar ólíkustu manngerðir.
Skáld og listamenn unnu myrk-
ranna á milli við að moka ösku af
húsum og hernámsandstæðingar
með hermönnum af Ketlavíkurtlug-
velli. Meira að segja vann flokkur
hermanna undir stjórn Jóns Snorra
eins ogekkert væri. Þarna gleymdu
menn öllu öðru en nauösyn þess að
bjarga því sem bjargað varð. Og
þótt þetta flokkist ekki undir afrek,
er manni þetta afskaplega minnis-
stætt.
Fór fram af
þakinu á traktor
-v Sumir ofbuðu sér viö þessa
vinnu. Menn unnu stundum upp-
undir eða vel á 3ja sólarhring án
þess að biunda. Eitt af því sem við
lögðum metnað okkar í var aö
verja sjúkrahúsið fyrir ösku. Einu
sinni þegar hvað mest gekk á í
öskufallinu var komið 3ja metra
þykkt lag af iisku á þak þess og allir
óttuðust aö það þyldi ekki rneira og
ekki haföist undan með skóflum.
Þá var settur traktor með mokst-
ursbúnaði uppá þak til að ryðja
það. Maðurinn sem vann á trakt-
ornum hafði ekki sofið í nær 3 sól-
arhringa. Allt í einu fór traktorinn
frarn af þakbrúninni og steyptist
niður í öskubing. Þetta var ekki
hátt fall og manninn sakaöi ekki,
en þaö sem geröist var einfaldlega
að hann örmagnaðist og sofnaði
við stýrið. Fleiri svipuð dærni væri
hægt að nefna. En svona var fórn-
fýsin og dugnaðurinn mikill.
Hefði verið hægt
að bjarga meiru
Hraunkæiingin var nokkuð um-
deild til að byrja með, ekki rétt?
- Jú, illu heilli, því að þær deilur
urðu til þess aö viö fengum loka-
dælubúnaðinn of seint, viku eða 10
dögum of seint. Hefði hann komið
fyrr, eins og við báðum um, þá
hefði verið hægt að bjarga meiru en
raun varð á. En það er kannski
ekki nema von að ntenn deildu um
ágæti kælingar, þetta hafði ekki
verið reynt áður nema sem tilraun.
sem Þorbjörn Sigurgeirsson pró-
fessor hafði gert í Surtsey. Hann
var alltaf sannfærður um ágæti
hraunkælingarinnar. Þegar hinn
fullkomni dælubúnaður loks kom,
var hægt að dæla einu tonni á sek-
úndu, það er meira en rennsli Ell-
iðaánna. Þegar þessi útbúnaður
kom til Vestmannaeyja rann
hraunið fram um 3 metra á sólar-
hring. Eftir að hafa notað bún-
aðinn í einn sólarhring rann það
um 2 metra, næsta sólarhring um 1
metra og loks stöðvaðist það. Þessi
kæling breytti rennsli hraunsins,
það leitaði í aðrar áttir eftir að full-
ur kraftur var kominn á kælingu
hraunkantsins.
En þótt dælubúnaðurinn kæmi
of seint að okkar mati, þá var ann-
að sem gekk betur fyrir sig. Ég held
ég fremji enga synd þótt ég segi frá
því, að Ólafur Helgason, banka-
stjóri Útvegsbankans í Eyjum, sem
var ráðinn starfsmaður Viðlaga-
sjóðs, reyndist okkur betur en eng-
inn. Ef við þurftum einhvers með
var leitað til hans. Hann sendi það
sem þurfti þegar í stað. Á eftir bar
hann það svo undir stjórn sjóðsins
hvort ekki væri samþykkt að við
fengjum þetta eða hitt. Nær alltaf
féllst sjóðsstjórnin á þetta, en það
gat tekið sinn tíma. Fyrir Ólaf og
okkur skipti það engu rnáli, hann
var búinn að senda þetta til okkar.
Þessi dugnaður Ólafs bjargaði oft
miklu, því oftast var það nú svo í
gosinu, að lausn mála þoldi litla
bið, erfiðleikarnir gerðu aldrei boð
á undan sér.
Bótagreiðslurnar
Þegar farið var að greiða Vest-
mannacyingum bætur úr Viðlag-
asjóði kom upp mik.il óánægja,
hvert er þitt álit á því máli?
- Sjálfsagt er aldrei hægt að gera
svo öilum líki, en þaö áttu sér stað
mikil mistök varðandi bóta-
greiöslurnar. Sjáðu til. Matiö sem
framkvæmt var á eignum manna
var gott og vel gert. Matsmenn
lögöu tii að teknar yröu inní dæmið
eðlilegar fyrningar, en til kæmu
líka vísitölubæturnar. Þar í lá feill-
inn. Menn töpuöu að sjálfsögðu
miklu fé á þvf að fá ekki verðbætur
greiddar, en enginn tapaði eins
miklu á þessu og Vestmannaeyja-
bær sjálfur. Bæjarstjórninni þótti
eðlilegt að fólkinu yrði greitt fyrst,
bærinn biði, og því varð tapið enn
meira vegna þess að verðbætur
voru ekki greiddar. Sum fyrirtæki
bæjarins hafa ekki jafnað sig enn,
eins og til að mynda Rafveita Vest-
mannaeyja.
Og eitt vil ég segja þér, ég verö
alltaí reiður þegar ég heyri menn
tala um að Vestmannaeyingar hafi
grætt á gosinu. Þetta er alrangt.
Þaðfékk enginn í Eyjum fullarbæt-
ur, þaö get ég fuliyrt. Þegar til
Iengri tfma er litið verður það
kannski bærinn sálfur sem hagnast
á þessu gosi. Nú höfum við hita-
veitu úr hrauninu, hversu lengi sem
hún nú endist, en er á meðan er.
Við höfum nóg af byggingarefni.
Áður varö að sækja það uppí Hval-
fjörð og það er staðreynd að höfnin
er margfalt betri eftir gos en fyrir.
Varð trúaðri eftir
Þú sagðir áðan að cnginn yrði
samur ogjafn eitir að hafa upplifað
atburð eins og gosið í Vestmanna-
eyjum; hvað hefur haft mest áhrif á
þig?
- Það er nú kannski ekki gott að
segja. Ég sagði áðan að mér hefði
aukist trú á hið góða í manninum
og þaö er rétt. Annað er það að ég
tel mig vera meiri trúmann eftir en
áður. Ég var aö vísu alinn upp í
Guðs-ótta og góðunt siðurn, en það
var með mig eins og fleiri: Meðan
allt gengur vel, hugsar maður
minna um trúmál en ella. Ég tók
upp þann siö, þegar erfiðleikarnir
voru mestir, að biðja bænir, líkt og
þegar ég var barn. Það styrkti mig
og eftir er ég mun meiri trúmaður.
Þetta tvennt hygg ég hafi haft var-
anlegust áhrif á ntig, auk þess sent
ég tel að ég liafi nokkuð gengið á
þann vara-þrekforða sem okkur
öllum er gefinn. Og svo að sjálf-
sögðu er vart hægt að öðlast meiri
lífsreynslu en sem bæjarstjóri við
þessar aðstæður.
- S.dór