Þjóðviljinn - 22.01.1983, Síða 24
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 22.-23. janúar 1983
Islenska hljómsveitin
Fyrra
misseri
að ljúka
Laugardaginn 29. janúar verða
síðustu tónleikar íslcnsku hljóm-
sveitarinnar á l'yrra misseri lyrsta
starfsárs.
Erendurnýjun áskriftarskírteina
fyrirseinna misseri nú þegar hafin.
Hafa fyrri áskrifendur forgang um
sætaval fram til 15. febrúar. Fer
endurnýjun fram á skrifstofu
hljómveitarinnar að Fríkirkjuvegi
11, kl. 9-12 alla virka daga, eða
með því að greiða heimsenda gíró-
seðla í næsta banka eöa sparisjóö.
Þá skal einnig bent á það að nýir
áskrifendur geta fengið áskriftar-
skírteini að seinna misseri einnig.
Eru allar upplýsingar veittar á
skrifstofu hljómveitarinnar í síma
22035.
Hafa tónleikar hljómveitarinnar
verið mjög vel sóttir í vetur og oll
starfsemi gengið vonum framar.
Má geta þess að nú þegar er uppselt
á tónleíkana þann 29. janúar, en
aukatónleikar veröa kl. 14.00
sunnudaginn 30. janúar. Miöar á
þá tónleika verða seldir í verslun-
inni ístónn, Freyjugötu 1, Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar í
Austurstræti ogá skrifstofu hljóm-
sveitarinnar, Fríkirkjuvegi 11.
Blessuð hlákan, bölvuð hálkan,
hugsaði ég með mér þegar ég leit út
um gluggann á fimmtudagsmorg-
un. „Skyldi híllinn minn fara í gang
í dag?“ Eg þaut út til að athuga, alla
leið út á barnaskólaplan. Inn-
keyrslan við blokkina hefur vcrið
ófær fyrir minn bíl s.l. hálfan mán-
uð. Á leiðinni sökk ég einu sinni á
kaf í blautan skatl og datt kylliflat-
ur, en var að öðru leyti á öðrum
fæti á hálkuhunkum. Ég rann að
lokum í átt að hílnum og stöðvaði
mig með því að leggjast ofan á
húddið. En sú tíð!
Bíllinn fór ekki í gang. Hann
startaði rétt til að byrja með, en svo
rann rafmagnið út og heyrðist ekki
meiraíhonum. Ég þauttil baka-á
öðrum fæti - til aö segja tíðindin. Á
leiðinni bjargaði ég miðaldra konu
úr skafli. Hún sökk á kaf og vegna
bleytusogs undir hafði hún sigekki
upp hjálparlaust. Góðverkið mitt
þann daginn. Hún var mér afskap-
lega þakklát. Konan mín þurfti
hins vegar aö taka strætó í vinnuna
- vill til að það kostar ekki nema 8
krónur. Hvað skyldu margir
beinbrotna í dag?
Ég settist syfjaður inn í stofu og
hugsaði mitt mál - minn gang.
Hvað skal til bragðs taka? Þarf ég
rétt einu sinni að panta leigubíl
með startkapla eða sendibíl með
tóg? Já, og fara svo að kaupa nýjan
rafgeymi fyrir morð fjár - þetta
gengur ekki lengur.
Skyldi bíllinn minn
fara í gang í kvöld?
Ég tók til við að hringja á leigu-
bílastöðvar. Annaðhvort á tali eða
svaraði ekki. Allir á leigubílum í
hálkunni, hugsaði ég með mér,
setti Brendel á fóninn og lagöist
upp í sóffa. Ósköp var ég syfjaður.
Ég gat samt ekki sofnað, og þeg-
ar Brendel var kominn langleiðina
á leiðarenda spratt ég upp og fór að
hringja aftur á leigubíl. Éftir langa
mæðu náði ég fyrst í Steindór. Þar
var enginn bíll með startkapla, svo
í Hreyfil. Sama sagan. Hvað er
þetta eiginlega?
Best að hringja í sendibílastöð,
ekki þá sömu samt og í gærmorgun.
Ég hringdi að þessu sinni í Þröst.
Svo fiýtti ég mér út og fór á öðrum
fæti út á barnaskóiaplan, rétt gat
stöðvað ntig á húddinu. Bjargaði
engri konu að þessu sinni.
Sendibíllinn kom eftir dálitla
mæðu. Fyrst var reynt með start-
köplum, en það gekk ekki. Svo var
dregið í gang með margslitnum
bandspotta. Bíllinn flaug í gang.
150 krónur takk. Nú var aðalvand-
inn að láta bílfjandann ekki drepa á
sér eða bleyta sig í stórfljótunum
sem runnu eftir öllum götum eða í
víðáttupollunum. Það tókst. Frá-
bær bílstjóri ég.
I viðgerðarverkstæðinu Lúkasi,
beint á móti mínum vinnustaö voru
ailir rafgeymar búnir. Nú, fleiri í
vandræðum hugsaði ég, með mér.
Mér var vísað á Skorra við Lauga-
veg. Þar verður gert við á nóinu,
sagði vingjarnlegur bílaviðgerðar-
maður. Ég þangað. Þar var líka
vingjarnlegur maður og hann
mældi geyminn. Á síðasta snún-
ingi, sagði hann. Gallinn er bara sá
að rafgeymar nr. 4209 eru búnir hjá
mér, en þú getur fengið þá í OLIS
við Háaleitisbraut. Ég þangað. 930
krónur takk. Hvað er það milli
vina? Aftur í Skorra. Þar var skipt
um snarlega, pólarnir burstaðir og
borin á kvoða, sérpöntuð frá út-
löndum. Mjög traustvekjandi.
Þjónustan kostaði aðeins 50 krón-
ur. Vel sloppið, hugsaði ég með
mér. Svo fór ég í vinnuna og þá var
klukkan orðin 11.
En skyldi bíllinn minn fara ígang
sunnudagskrossgátan
Nr. 355
} z 3 ¥ sT (p 7 V 9 9 10 1/ 12 (V) 8
2 s 13 /¥ 7 5 15 /b I V n )8 J? Uo
\T V 18 ¥ 3 \i 12 ¥ <? Ib I? 5 ? /6 l<t
)(p 20 2! II 13 /k T~ 7 V II 22 3 V 18
w /it 23 /é 2) )5 W~ 7 V 3 25 7
°) I S' Zb ) 3 2! ¥ ¥ X )# 7 <7 7
Vb 7 25 3 25 28 ’3o 24 25 lt s? 9
P P V TT~ 22 JS 2) /3 ¥ /4 V 2*) /8 30
2 31 2T~ )4 22 5" 7 J/ 22 /8 $2
JO V 3 5 22 II 20 s? 24 1? S2
II W~ V 3J I 25 /¥ V ie 28 ¥ /1 II 7
V 3 \i 15 10 V ¥ 11 II 7 7 l(p 21
n ¥ J2 2 22 /¥ <P ¥ 5 9 7 21
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda örnefni hér á
landi sem flestir þekkja. Sendiö þetta nafn sent lausn á krossgát-
unni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, inerkt „Krossgáta nr.
355". Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa
)(s> /9 3D 18 1 27 28 17 4
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp,
’• því með því eru gefnir stafir í allmörgum oröum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
_ því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarntunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
AÁBDDEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verðlaunin
Verðlaunin fyrir kross-
gátu nr. 351 hlaut Haiidór
Guðfínnur Svavarsson,
Vesturbergi 7, Rvík. Þau
eru bókin Vorganga í
vindhræringi eftir Bolla
Gústavsson. Lausnar-
orðið var Guðjohnsen.
Verðlaunin að þessu sinni
er bókin í verum eftir The-
ódór Friðriksson sem
Helgafell gefur út
I
VERUM
Thcódór Fridrikssoiw