Þjóðviljinn - 04.02.1983, Qupperneq 1
DJÓÐVIUINN
Mikil aðsókn hefur
verið að Kvik-
myndahátíðinni i
Regnboganum.
Ingibjörg Haralds-
dóttir skrifar um
nýséðar myndir
~S/á~9
4febrúar 1983
föstudagur
48. árgangur
28. tölublað
Skip Hvals h.f. eru nú öðrum fleytum fréttnæmari (ljósm. eik)
Afstaða þingflokks Alþýðubandalagsins 1 hvalveiðimálinu:
Verndar- og hafréttar-
sjónarmiðm réðu mestu
„Ehistætt mál í þingsögunni”, segir Ólafur Ragnar Grímsson formaður þingflokksins
„Þetta er einstætt mál í þingsög-
unni“, sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins um afgreiðslu hval-
vciðimálsins á þingi. „Ríkisstjórnin
hafði gert meirihlutasamþykkt í
málinu gegn andmælum ráðherra
Alþýðubandalagsins, en þingið tók
í taumana og snéri niðurstöðunni
við“.
„Það sem réði afstöðu þing-
flokks Alþýðubandalagsins, sem
einn var heill í þessu máli í at-
kvæðagreiðslunni á miðvikudag-
inn, voru fyrst og fremst almenn
náttúruverndarsjónarmið og þörf-
in á því, að íslendingar séu sjálfum
sér samkvæmir í að fylgja fram
verndunarstefnu í sambandi við
auðlindir hafsins. Það hafði einnig
útslitaáhrif að Hafréttarsáttmáli
Sameinuðu þjóðanna, sem við
erum aðilar að, skyldar þjóðir að
vinna saman að nýtingu flökku-
stofna og sjávarspendýra. Þessu höf-
um við haldið fram t.d. í tengslum
við laxveiðar Færeyinga í Norður-
Atlantshafi. Við getum varla haft
allt aðra afstöðu í hvalveiðimálum
okkar. í fjórða og síðasta lagi vildu
menn ekki tefla í tvísýnu fisksöl-
umálum okkar í Bandaríkjunum og
í Evrópu. Sölumál okkar erlendis
eru bundin við nokkur fyrirtæki,
sem flest hafa nafnið ísland með
einhverjum hætti á oddinum, og
falli á það blettur eða sé rekinn
gegn því alþjóðlegur áróður, gæti
það komið illa við hvert manns-
barn í landinu".
Aðspurður sagði Ólafur Ragnar
að þingflokkur Alþýðubandalags-
ins hefði eftir hádegisfréttir út-
varps sl. þriðjudag, þar sem skýrt
var frá ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar, krafist þinghlés til þess að ráða
málinu til lykta í utanríkisnefnd.
Sjávarútvegsráðherra hefði verið
upplýstur um að fresturinn til þess
að tilkynna mótmæli rynni ekki út
fyrr en á miðvikudagskvöld, og þar
með hefði gefist tóm til þess að
ræða málið og tækifæri fyrir þing-
menn úr öðrum flokkum til þess að
taka afstöðu til mótmæla.
-ekh
Formaður bandarísku dýraverndunarsamtakanna:
Hvetjum nú fólk til
að kaupa íslenskt!
„Ég óska íslendingum innilega til
hamingju með þessa ákvörðun og
við dáumst sérstaklega að því hvað
hún var tekin á lýðræðislegan hátt
á sjálfu alþingi Islendinga“, sagði
Christene Stevens, formaður
bandarísku dýraverndunarsam-
takanna Animal Welfarc Institute í
gær. „Við munum nú leggja allt
kapp á að hvetja almenning til
þess að leita uppi íslenskan flsk og
fljúga með íslenska flugfélaginu og
ég veit að fólk mun verða við þeirri
hvatningu“, sagði hún ennfremur.
„Þetta eru albestu fréttir sem ég
hef lengi fengið", sagði Christene,
„því virðing fyrir samþykktum al-
þjóðahvalveiðiráðsins er eina leið-
in til þess að tryggja að hvölum
verði ekki útrýmt“.
Animal Welfare Institute var eitt
rúmlega 30 samtaka sem í síðustu
viku birtu heilsíðuauglýsingu í ís-
lensku blöðunum þar sem hvatt var
til þess að ákvörðun alþjóðahval-
veiðiráðsins yrði ekki mótmælt.
Samtökin hafa nýlega látið prenta
auglýsingaspjald þar sem fánar
hvalveiðiþjóðanna eru reistir í
blæðandi hvalskrokk en vegna
óvissunnar um afstöðu íslands var
spjaldið prentað í tveimur útgáf-
um, - með og án íslenska fánans.
Upplagið með íslenska fánanum
hefur nú verið eyðilagt.
„Við ætluðum vissulega að
hvetja almenning til þess að snið-
ganga íslenskar vörur og þjón-
ustu“, sagði Christene, „en nú
munum við þvert á móti gera allt
sem við getum til þess að örva sölu
á þeim hér“.
Olíuvörur á
Rotterdammarkaði:
Gasolía
lækkaði
um 15%
Óvenju miklar breytingar hafa
átt sér stað á verði olíuvara á sk.
Rotterdammarkaði, en allar olíu-
vörur sem keyptar eru til Islands
taka mið af þeirri verðskráningu. í
viðskiptaráðuneytinu fengust þær
upplýsingar að verð á gasolíu ytra
hefði lækkað um 14,68% frá ára-
mótum, svartolían um 7,22% og
bensín um 5,01%. Hér er um meira
verðfall að ræða en dæmi eru til um
í mörg ár.
Vilhjálmur Jónsson forstjóri Ol-
íufélagsins hf. kvað engan vafa
leika á að lækkanir á síðasta ári á
olíum hefðu komið fram í verðlagi
hér heima því olíuverð í krónum
talið hefði hækkað mun minna en
dollarinn á sama tíma. Hvort þessi
lækkunarsveifla á Rotterdam-
markaði síðustu 30 dagana héldi
áfram, kvað Vilhjálmur ógerlegt
að spá um, en án efa kæmi hún
fram í hlutfallslega lækkuðu verði
hér heirna með næstu sendingu að
utan.
íslendingar kaupa sínar olíuvör-
ur af Sovétmönnum og miða þeir
verð þeirra við Rotterdamskrán-
ingu. Vilhjálmur taldi ólíklegt að
þeir brygðu út af þeirri verðmiðun
nú og að spádómar um verðstríð á
alþjóðamörkuðum væru ótíma-
bærir.
Við fyrstu skráningu í Rotter-
dam á þessu ári, þ.e. 3. janúar
kostaði tonnið af bensíni 289.25
dollara, gasolían 287.75 dollara og
svartolían 169.75 dollara. Nú kost-
ar hins vegar tonnið af bensíni
274.75 dollara, gasolían 245.50 og
svartolían 157.50 dollara. í mars á
síðasta ári var lægsta verð á bensíni
það ár 273.31 dollarar og á gasolíu
262.32 dollarar. -v.
Atvinnumál bygg-
ingamanna hafa
mjög verið til um-
ræðu undanfarið og
ekki að ófyrirsynju,
og við gengum á
fund tveggja manna
sem smíða hús og
húsgögn.
7Geir Gunnlaugsson
skrifar frá Guineu
Bissau, þar sem ný-
lega var minnst 10
ára dánarafmælis
Amilcar Cabrals