Þjóðviljinn - 04.02.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN 1 Föstudagur 4. febrúar 1983
í Veitingahúsinu Fell eru sæti fyrir 22 gesti. Staðurinn er hannaður af
teiknistofunni Arko undir stjórn Jóns Róberts Karlssonar.
Nýr veitingastaður í Breiðholti
Veitingahúsið Fell
með næturþjónustu um helgar
Nýr veitingastaður hefur verið
opnaður í Breiðholti í verslunar-
miðstöðinni Fellagörðum. Veit-
ingastaðurinn er í því húsnæði sem
Ask-borgarinn var áður, en sá
staður var opnaður í maí 1980, þá
eingöngu sem skyndibitastaður og
voru allar veitingar seldar í umbúð-
um og ekki til neyslu á staðnum.
Rekstur þess staðar gafst það vel
að ákveðið var að taka upp nýtt
rekstrarform og endurbyggja stað-
inn, bjóða fjölbreyttari matseðil og
setja upp borð og stóla.
A matseðlinum eru 11 réttir, en
auk þess býður staðurinn rétti
dagsins í hádegi og á kvöldin.
Veitingahúsið Fell yfirtók næt-
urþjónustu Askborgarans og er
næturþjónustan opin föstudag og
laugardag frá kl. 12:00 á miðnætti
til kl. 05 á morgnana, sími nætur-
þjónustunnar er 71355.
Læknaráð spítalanna í Reykjavík:
Skorar á yflrvöld
aö veita meira fé
í viðhald og tæki
Læknaráð spítalanna í Reykjavík,
Borgarspítala, Landspítala og
I.andakotsspítala héldu sameigin-
legan fund 27. janúar sl. þar sem ■
ályktun er lýst yfir miklum áhyggj-
um vegna niðurskurðar á fjárveit-
ingum til viðhalds og tækjakaupa
spítalanna.
í ályktun læknaráðanna segir:
„Sjúkrahúsin í Reykjavík veita
landsmönnum öllum sérhæfða
læknisþjónustu, sem byggist mun
meira á dýrum tækjabúnaði en
þjónustu annarra sjúkrahúsa.
í tilefni Þorrans:
Skemmti-
kvöld í
Tónabæ
Unglingar gera sér lítinn daga-
mun á Þorranum. Ur þessu ætla
forráðamenn og starfsfólk félags-
miðstöðvarinnar Tónabæjar að
bæta. Föstudagana fjóra í febrúar
verður mikill glaumur og gleði þar
á bæ - dansleikir auk fjölbreyttra
skemmtiatriða.
Hljómsveitin LÓTUS frá Sel-
fossi mun leika fyrir dansi öll þessi
kvöld.
Á skemmtidagskrá verða tísku-
sýningar nýrra sýningarsamtaka er
nefna sig Ný - ung. Stjórnandi
Tæki til lækninga og rannsókna
eru spítölunum ekki síður nauð-
synleg en matvæli eða lyf. Án góðs
tækjabúnaðar nýtist þekking og
kunnátta starfsfólks illa og spítal-
arnir munu engan veginn geta sinnt
hlutverki sínu.
Stjórnir læknaráðanna skora því
á heilbrigðis- og fjármálastjórn rjk-
is og Reykjavíkurborgar að leita
lausnar á þessum vandamálum hið
bráðasta".
þeirra er Kolbrún Aðalsteinsdótt-
ir. Þá verður efnt til tveggja stepp-
sýninga á kvöldi undir stjórn
Draumeyjar Árnadóttur. Dans-
flokkur ungs fólks úr félagsmið-
stöðinni Þróttheimum kemur í
heimsókn og leynigestir - þekktir
menn úr þjóðlífinu - líta inn á
hverju kvöldi. Á lokakvöldinu, 25.
febrúar, gefst unglingunum kostur
á stórbingói.
Skólanemendum í Reykjavík
verður boðið á skemmtikvöldin í
Tónabæ: nemendum úr Hlíðaskóla
og Hagaskóla á fyrsta kvöldið, 4.
febrúar, nemendum úr Æfinga-
deild Kennaraháskólans og nem-
endum úr Álftamýrarskóla þann
11., og nemendum úr Hvassaleitis-
skóla og Austurbæjarskóla þann
18.
Miðar verða seldir við inngang-
(inn og fyrir handhafa félagsskír-
teina í Tónabæ kostar 20 krónur
inn og 40 krónur fyrir aðra. Húsið
verður opið frá 8 til 1. Miðað er við
að skemmtidagskrá hefjist um
10-leytið.
Auglýsið í
Þjódviljanum
i
I
Helgi Seljan, Stefán Jónsson
og Skúli Alexandersson með þingsályktunartillögu:
Gistíþjónusta útí
á landsbyggðlnm
Lögð hel'ur verið fram á alþingi
tillaga til þingsályktunar frá Helga
Seljan, Stefáni Jónssyni og Skúla
Alexanderssyni um gistiþjónustu á
landsbyggðinni.
Tillagan hljóðar svo:
Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að leita allra tiltækra
leiða til að tryggja þeim aðilum, er
veita þjónustu á landsbyggðinni
með gistingu og greiðasölu, sem
bestan grundvöll til uppbyggingar
og rekstrar.
Ríkisstjórnin skal í þessu efni
leita samráðs við þá, er helst eiga
hagsmuna að gæta, svo sem Ferð-
amálaráð, sveitarfélög og rekstrar-
aðila.
í Greinargerð með tillögunni
segja flutningsmenn:
„ísland sem ferðamannaland" er
oft á orði haft. Vissulega hefur
margt verið gert á því sviði, að
gera það að staðreynd, en flest hef-
ur þó miðast við einmitt það að búa
erlendum ferðamönnum aðstöðu
og þá að sjálfsögðu á ferðamanna-
tímanum.
Má nefna hina ágætu nýtingu
heimavistarskóla okkar til þessa
hlutverks og er þar um lofsverða
starfsemi að ræða.
En hvað um okkur sjálf, hvað
um þann tíma þegar veður og færð
setja oft strik í ferðareikning okk-
ar, hvað um ýmsa þéttbýlisstaði
þar sem umferð er lítii um hávetur-
inn, gestakomur stopular, en
staðreynd þó?
Á hverjum þéttbýlisstað er á-
kveðin þörf, sem kallar á að þar sé
viðunandi aðstaða allt árið um
kring bæði til gistingar og matsölu.
Mismikil er sú þörf eftir legu og
aðstæðum, en knýjandi víðast
hvar. Rekstraraðstaða er hins veg-
ar vægast sagt takmörkuð og fáir
einir hafa bolmagn til að byggja
upp viðunandi aðstöðu í húsnæði
og öðru sem til þarf. Oft eru fyrir-
tæki með annan rekstur, sem halda
uppi lágmarksþjónustu, eða þá að
sveitarfélögin grípa með einhverj-
um hætti inn í, af eðlilegum vanefn-
um þó.
Sjálfstæður rekstur á þess litla
von að skila öðru en tapinu á vel-
flestum stöðum.
Tvímælalaust þarf að gera hér
visst átak, sem eðlilegt er að hið
opinbera stuðli að sem best, því
vansalaust er það ekki, að ekki sé
unnt á hverjum stað að bjóða vetr-
argestum mat og húsaskjól.
í öllum aðgerðum til þess að laða
erlenda ferðamenn til ferðalaga
hingað býður okkur flutnings-
mönnum í grun, að þessi þáttur
hafi orðið býsna mikið útundan.
Sannleikurinn er einnig sá, að mál-
ið er síður en svo auðleyst, og víða
má segja að vart sé unnt að leysa
þetta eftir hefðbundnum leiðum,
en þá er að leita annarra.
Hugmyndir bar um verða
reifaðar í framsögu, svo og rakin
einstök dæmi þar sem ferðamanna-
þjónusta er óhjákvæmileg nauð-
syn, en rekstrargrundvöllur eng-
inn, þó við árið allt sé miðað.
Kanna þarf möguleika þeirra
sjóða, sem fyrir eru, til sérátaks í
þessu efni, möguleika sveitarfélaga
og rekstraraðila að koma með nýj-
um hætti inn í þessa mynd og síðast
en ekki síst með hvaða hætti hið
opinbera gæti létt róðurinn, þó í
engu yrði um beinar styrkveitingar
eða gjafir að ræða.
Margt annað og heilbrigðara
kemur til greina, sem fjallað verð-
ur um í framsögu, þó allar ívílnanir
séu vandmeðfarnar. En jafnhliða
því, sem við gerum fsland að ferða-
mannalandi, svo sem réttlætanlegt
er, t.d. gagnvart náttúru landsins,
skulum við ekki síður huga að sem
eðlilegastri þjónustu við okkur
sjálf og aðra hvarvetna þar sem
þess telst þörf.
Til að ýta þessu máli úr vör er
tillaga þessi flutt.
Fyrirspurn frá Helga Seljan:
Geðhellbrígðismál
Hvenær má vænta lokaskýrslu
frá nefnd þeirri, er nú starfar á veg-
um ráðuneytisins og fjallar um úr-
bætur í geðheilbrigðismálum?
Hvað hyggst ráðuneytið gera í
framhaldi af áfangaskýrslu nefnd-
arinnar í sambandi við bráðaþjón-
ustu fyrir geðsjúka?
Svona hljóðar fyrirspurn frá
Helga Seljan til heilbrigðisráð-
herra sem lögð hefur verið fram á
þingi. - óg
Hef opnað
læknastofu
í Læknastöðinni hf. Glæsibæ. Stofutími eftir
umtali.
Hafsteinn Sæmundsson.
Sérgrein: Kvenlækningar.
l IOTUM JÓS . allan sóla Ibftsí rhrínginn aí i vetraríagi.
Eiginmaður minn
A&alsteinn Jónsson
frá Vaðbrekku
er látinn.
Ingibjörg Jónsdóttir
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Guðný Ella Sigurðardóttir
yfirkennari
Háaleitisbraut 117
verðurjarðsettfrá Fossvogskirkju mánudaginn 7. febrúar kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameins-
félagið.
Örnólfur Thorlacius
Sigurður Thorlacius Sif Eiríksdóttir
Elín Margrét og Örnólfur
Arngrímur Thorlacius Arnþrúður Einarsdóttir
Magnús og Baldur
Birgir Thorlacius Rósa Jónsdóttir
Alda og Sigrún
Lárus Thorlacius