Þjóðviljinn - 04.02.1983, Side 3
Föstudagur 4. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Dagvistargjöld hærri en nokkru sinni:
Borgin hækk-
ar um 15%
50% meira en hún sótti um!
Snarpar umræður urðu í borg-
arstjórn í gaerkvöldi vegna þeirrar
ákvörðunar Sjálfstæðisflokksins
að hækka dagvistargjöld 50% um-
fram það sem upphaflega var beðið
um og félagsmálaráð óskaði eftir.
Dagvistargjöldin 1. febrúar n.k.
verða 1500 krónur, en samanlagt
mcðlag og mæðralaun aðeins 1253
krónur. Þessar upphæðir hafa
lengst af verið sambærilegar.
Sigurjón Pétursson sagði að oft-
ast hefði borgin þurft að sætta sig
við það að fá aðeins hluta af hækk-
unarbeiðnum sínum samþykktar.
Nú bæri hins vegar svo við að þegar
borgin óskaði eftir 10% hækkun
heimilaði menntamálaráðuneytið
20%. Þá hættir hækkunarþörfin
allt í einu að vera 10%, sagði Sigur-
jón og verður 15%. Þetta er óeðli-
legt, sagði Sigurjón, og í takt við þá
stefnu Sjálfstæðisflokksins að
hækka þjónustugjöld upp úr öllu
valdi gagnvart þeim sem minna
mega sín í borginni.
Gerður Steinþórsdóttir benti á
að með 15% hækkuninni hefðu
dagvistargjöld hækkað um 82% á
einu ári, en síðasta hækkun í nó-
vember var 20%. Með 10% hækk-
un hefði hækkunin á einu ári verið
74% og væri það nokkuð rösklega
að verki staðið. Því hefði félags-
málaráð haldið sér við 10%
hækkun.
Davíð Oddsson sagði þessar um-
ræður pólitískt vindhögg.
Staðreyndin væri sú að öll önnur
sveitarfélög hækkuðu nú um 20%
nema Reykjavík sem aðeins hækk-
aði um 15%. Tillaga Gerðar um
10% hækkun hlaut öll atkvæði
minnihlutans og ekki stuðning en
tillaga Sjálfstæðisflokksins um
15% hækkun varsamþykkt með 12
atkvæðum gegn 9. -ÁI
Dagvistargjöld í Kópavogi hækka um 20%:
Fráleitt að gjöldin
hækki meira en laun
sagði Björn Ólafsson og lagði til 10% hækkun nú
Bæjarráð Kópavogs hefur ákveð-
veðið að nýta sér heimild Verðlags-
ráðs til fulls um 20% hækkun
dagvistargjalda frá 1. febrúar sl.
Björn Ólafsson bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins óskaði bókað að
hann væri andvígur svo mikilli
hækkun nú og lagði til að gjöldin
hækkuðu aðeins um 10% og
ekki meira en 9,1% frá 1. apríl n.k.
Benti hann á að almenn laun hefðu
einungis hækkað um 10% frá síð-
ustu hækkun dagvistargjalda.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins óskuðu bókað við um-
ræðurnar að þeir teldu eðlilegt að
þeir sem nytu þessarar þjónustu
greiddu hærra hlutfall af kostnaði
hennar en verið hefur. Bæjarfull-
trúar Alþýðuflokks og Framsókn-
arflokks tóku efnislega í sama
streng og tóku fram að rekstur dag-
vistarstofnana legðist stöðugt
þyngra á bæjarfélagið!
í lok umræðnanna sagði Björn
Ólafsson í bókun: „Ég tel það ekki
samræmast þeirri félagsmálastefnu
sem Alþýðubandalagið vill styðja,
að leiðrétta hlut bæjarins í þessum
rekstri (dagvistarstofnana) á sama
tíma og allir viðurkenna lækkandi
fjárráð launafólks og er því andvíg-
ur því að hækka þessi gjöld nú um-
fram almennar launahækkanir". v.
Ellilífeyrisþegar:
Lægri
fasteigna-
skattur
Eins og undanfarin ár mun fram-
talsnefnd Reykjavíkurborgar fara
yflr skattframtöl elli- og
örorkulífeyrisþega og veita sjálf-
krafa lækkun á fasteignasköttum
1983 samkvæmt eftirfarandi við-
miðunarreglum:
1. Niðurfelling:
Þeir elli- og örorkulífeyrisþegar
sem á árinu 1982 höfðu aðeins
tryggingabætur frá Trygginga-
stofnun og ekki aðrar tekjur fá
felldan niður allan fasteignaskatt.
2. 80% lækkun:
Þeir elli- og örorkulífeyrisþegar
sem á árinu 1982 höfðu 66 þúsund
krónur í tekjur eða minna fá 80%
lækkun á fasteignaskatti. Sama
gildir um hjón sem höfðu sameigin-
lega 105 þúsund í tekjur eða
minna.
3. 50% lækkun:
Þeir sem á árinu 1982 höfðu 66-86
þúsund krónur á árinu 1982 og
hjón sem höfðul05-136 þúsund í
tekjur, fá 50% niðurfellingu á fast-
eignaskatti.
Vakin er athygli á því að hér er
aðeins um að ræða lækkun á fast-
eignaskattinum, ekki öðrum
fasteignatengdum gjöldum sem
eru á fasteignagjaldaseðlinum. Þar
sem ekki er hægt að reikna afslátt-
inn út fyrir en skattframtölum hef-
ur verið skilað, verða tilkynningar
framtalsnefndar um lækkun eða
niðurfellingu ekki sendar út fyrr en
í mars og apríl n.k.
- ÁI
Janúarblaöið er komiö,
56 síöur, 86. árgangur.
Foreldrarl Gefiö börnun-
um ykkar árgang af Æsk-
unni. Nýir áskrifendur fá
einn eldri árgang í kaup-
bæti. Þaö borgar sig aö
gerast áskrifandi strax í
dagl Áskriftarsími er
17336.
Æskan, Laugavegi 56.
Hverjum^^
bjargar Æ^'
það
næst
||U^jFERÐAR
ÞflÐ HEFUR VARLA
FARIÐ FRAM HJA NEINUM,
AÐ SAMVINNUBANKINN
ER FLUTTUR f NÝTT HÚSNÆDI!
Þrátt fyrir það þykir okkur rétt að minna ykkur á nýja