Þjóðviljinn - 04.02.1983, Blaðsíða 11
Föstudagur 4. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Umsión:
Víðir Sigurðsspn
Kristín Magnúsdóttir,
Kristín efst á styrk
leiklista B.S.Í.
Badmintonsamband Islands
hefur gefið út styrkleikalista yfir
íslenskt badmintonfólk sem
miðast við 1. febrúar s.l. Þar gef-
ur að líta styrkleikann í einliða-
leik karla og kvenna, tvfiiðaleik
karla og kvenna og tvenndarleik.
Broddi Kristjánsson, TBR, er
efstur í einliðaleik karla með 26
stig. Annar er félagi hans Guð-
mundur Adolfsson með 14,7 og
þriðji Víðir Bragason Akranesi
með 9,3 stig.
Kristín Magnúsdóttir, TBR,
leiðir í einliðaleik kvenna með
25,8 stig, Þórdís Edwald, TBR,
er önnur með 13 stig og Kristín
Berglind, TBR, þriðja með 11,2
stig.
I tvíliðaleik karla eru þeir
Broddi og Guðmundur á toppn-
um með 25,4 stig en skammt
undan koma Sigfús Ægir Árna-
son og Víðir Bragason með 21,4.
Kristín Magnúsdóttir og Krist-
ín Berglind skera sig úr tvíliðaleik
kvenna, hafa 27,2 stig en Hanna
Lára Pálsdóttir og Lovísa Sigurð-
ardóttir eru í öðru sæti með 13,8
stig.
I tvenndarleik eru svo Broddi
og Kristín M. langefst með 26,8
en næst koma Vildís K. Guð-
mundsson og Sigfús Ægir með
8,4 stig.
Heildarstyrkleikalistinn, tíu
efstu í heildina, lítur þannig út:
stig:
1. Kristín Magnúsdóttir, TBR..26,5
2. Broddi Kristjánsson, TBR...26,1
3. Guðmundur Adolfsson.TBR ...15,6
4. Kristín Berglind,TBR.......15,0
5. Víðir Bragason, ÍA........12,1
6. SigfusÆgir ArnasonTBR......11,2
7. ÞórdísEdwaldTBR............10,6
8. Þorsteinn Póll Hængsson.TBR 4,8
9. Haraldur Kornelíusson, TBR.... 4,5
10. Sif Friðleifsdóttir, TBR... 3,6
- vs
Ólafur enn með Hugínn
Ólafur Sigurvinsson, fyrrum
landsliðsbakvörður úr Vest-
mannaeyjum, hefur verið ráðinn
þjálfari hjá 3. deildarliði Hugins
frá Seyðisfirði í knattspyrnu
þriðja árið í röð. Hafa menn þar
eystra verið mjög ánægðir með
störf hans þar sl. tvö ár og mikill
einhugur hjá leikmönnum um að
fá hann í þriðja sinn.
Nokkrar mannabreytingar
gætu orðið hjá liði Hugins sem
var hársbreidd frá sæti í úrslitum
3. deildar í fyrra og komst í 16-
liða úrslit bikarkeppni KSÍ í
fyrsta skipti. Óvíst er hvort mið-
herjinn marksækni, Hilmar
Harðarson, verði áfram fyrir
austan og þá draga tveir af eldri
og reyndari leikmönnum liðsins,
Guðjón Harðarson og Magnús
Guðmundsson, sig sennilega í
hlé.
- VS
Islenskar stúlkur á
Evrópumót í fimleikum
Frá því í nóvember hafa undan-
úrslit í Birkarmóti Fimleikasam-
bands íslands ■ farið fram milli
félaga í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði og Akureyri en úrslit
Bikarmótsins fara fram í Laugar-
dalshöllinni 6. febrúar.
Unglingameistaramótið fer
fram dagana 12.-13. febrúar. ís-
landsmeistaramótið fer fram 19.
mars, fyrir 17 ára og eldri 20.
mars.
Á erlendum vettvangi er m.a.
framundan: Boð frá danska sam-
bandinu um þáttöku í „Rythmisk
Holdgymnastik", Evrópumót
stúlkna í áhaldaleikfimi í Gauta-
borg, Svíþjóð, Norðurlanda-
meistaramót stúlkna og pilta í
Kristinsand í Noregi, og Evrópu-
meistaramót karla í Varna.
Þess má geta að harðfisks- og
rækjusala er í fullum gangi, einn-
ig má benda á að drykkjarkrúsir
(hvítar, í tísku núna) með merki
FSÍ eru til sölu á góðu verði.
Litla bikarkeppnin
Litla-Bikarkeppnin í innanhús- Hafnarfirði laugardaginn 5. fe-
knattspyrnu verður haldin í í- brúar kl. 13-18.
þróttahúsinu v/Strandgötu í Liðin sem þar leikaeru: Haukar-
FH - UBK-ÍA - og ÍBK.
Þórdís
bætti
eigið met
Þórdís Gísladóttir, ÍR, setti
nýtt íslandsmet í hástökki
kvenna innanhúss um síðustu
helgi. Þá keppti hún á móti í
Louisana í Bandaríkjunum og
stökk 1,86 metra. Hún bætti
þar með eigið met um þrjá
sentimetra.
íþrótta-
sálarfræði
Út er komin hjá Iðunni bókin
Þjálfunar- og keppnissálar-
fræði. Undirtitill: Hagnýt í-
þróttasálarfræði fyrir þjálfara,
leiðtoga, iðkendur og aðra
áhugamenn. Bók þessi er norsk
að uppruna. Höfundurinn,
Willi Railo, er lektor við
íþróttaháskólann í Osló og
kennir þar kennslufræði og
íþróttasálarfræði. Bók hans
kom fyrst út 1974 á vegum nor-
ska íþróttasambandsins og er
nú gefin út á íslensku að tilh-
lutan ÍSÍ. Þýðandi er Áifheiður
Kjartansdóttir.
í leikbann
til 2082!
Landsliðsmaður í knatt-
spyrnu frá eyríkinu Trinidad og
Tabago, Fioyd David að nafni,
hefur verið dæmdur í lengsta
lcikbann sem sögur fara af.
Alþjóða knattspyrnusamband-
ið úrskurðaði að hann mætti
ekki leika knattspyrnu næstu 99
árin eftir að kappinn hafði
ráðist á dómara í leik. Hver
skyldi vilja fá piit í sitt lið þegar
bannið rennur úr árið 2082?
-VS
Stúlkna-
mót á
Skaganum
Knattspyrnusamband ís-
lands gengst fyrir innanhúss-
knattspyrnumóti fyrir stúlkur
14 ára og yngri, um aðra helgi,
laugardaginn 12. febrúar.
Mótið fer fram á Akranesi og
virðist vera talsverður áhugi
fyrir því, einkum af lands-
byggðinni. Frestur til að til-
kynna þátttöku rennur út á
mánudaginn kemur, 7. fe-
brúar.
Torfi Magnússon, Val, og Stefán Jóhannsson, KR, verða andstæðingar
á ný þegar félögin mætast í Hagaskólanum á morgun kl. 14.
Þrír leikir í körfu
bolta um helgina
Keppni í úrvalsdeildinni í körf-
uknattlcik verður fram haldið í
kvöld í Njarðvík. Þar mætast
heimamenn og ÍR-ingar og hefst
leikurinn kl. 20. íslandsmeistarar
Njarðvíkur gætu þar átt erfiðan
leik fyrir höndum, allt bendir til
þess að Bill Kottcrmann verði
ekki með og IR-ingar eru í góðu
formi um þessar mundir. Stefnir
allt í hörkuleik.
KR og Valur leika í Hagaskól-
anum k!. 14 á laugardag. Miðað
við leiki liðanna undanfarið ættu
úrslit varia að geta orðið nema á
einn veg. Valsmenn eru sigur-
stranglegir í úrvalsdeildinni en
KR-ingar eiga erfiða fallbaráttu
fyrir höndum.
ÍR verður aftur í sviðsljósinu á
sunnudag enjiá hefst 15. umferð-
in með leik IR og Fram í Haga-
skóla. Hann hefst kl. 14. Bæði lið
eru í fallbaráttu og stigin dýrmæt.
Staðan er þessi í úrvals-
deildinni fyrir leiki helgarinnar:
Vaiur .... 13 10 3 1175-1036 20
Keflavík 14 10 4 1162-1148 20
Njarðvík 13 7 6 1070-1080 14
Fram.......14 5 9 1231-1236 10
ÍR.........13 4 9 981-1052 8
KR.........13 4 9 1094-1170 8
-VS
Eru ítalir aðeins 14.
bestu í Evrópu 1982?
ítalir hafa að vonum verið uppi
í skýjunum í kjölfar sigursins í
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu í sumar. Sumir halda sig
þó kirfilega við jörðina, eins og
þeir hjá íþróttablaðinu ítalska,
Gazzetta dello Sport (ekki veit ég
hvort þetta þýðir dellusport).
Þeir benda á að einu sigurleikir
ítala á árinu 1982 hafi verið í
keppninni, fjórir talsins, og að
þegar árangur Evrópuþjóða á ný-
liðnu ári sé tekinn saman komi í
ljós að 13 þjóðir séu ofar heims-
meisturunum sjálfum.
Töfluna yfir árangur Evróp-
uþjóða, þeirra 14 efstu, látum við
fylgja hér með, máli Gazzetta til
stuðnings. (Taflan sýnir fyrst
leikjafjölda viðkomandi lands-
liðs á árinu, þá sigra, jafntefli,
töp, stig og loks meðalstigafjölda
í leik).
England...........15 10 4 1 24 1,60
Austurríki........11 8 1 2 17 1,55
Sovétríkin........11 6 4 1 16 1,45
Sviss............. 9 5 2 2 12 1,33
Pólland...........10 5 3 2 13 1,30
Belgía............11 6 2 3 14 1,27
V-Þýskaiand.......15 7 4 4 18 1,20
Spánn.............10 4 4 2 12 1,20
Portúgal.......... 5 3 0 2 6 1,20
Wales............. 7 3 2 2 8 1,14
Frakkland.........15 7 3 5 17 1,13
Rúmenía...........15 7 3 5 17 1,13
A.-Þýskaland......10 4 3 3 11 1,10
ítalia............13 4 6 3 14 1,08
Eins og menn muna varð röð
fjögurra efstu liða í
heimsmeistarakeppninni þessi:
Ítalía, V-Þýskaland, Pólland og
Frakkland. Og það er jú loka-
keppni HM sem sýnir hverjir eru
bestir þegar á hólminn er komið,
eða hvað? -VS
Suðumesjaslaguriiiii í
2. umferð bikarsins
Keflvíkingar lentu gegn ná-
grönnum sínum og erkifjendum,
Njarðvíkingum, í 8-liða úrslitum
bikarkeppni Körfuknattleikssam-
bands Islands, en dregið var í
keppninni í gær. Þetta er tvímæla-
laust stórleikur umfcrðarinnar og á
honum og öðrum lcikjum að vera
lokið fyrir næstu mánaðamót.
Liðin hafa þrívegis mæst i úrvals-
deildinni og hafa nýliðar Keflvík-
inga sigrað íslandsmeistarana í öll
skiptin. Njarðvíkingar eru nánast
úr leik í baráttunni um meistaratit-
ilinn svo þeir leggja vafalítið rnikla
áherslu á bikarkeppnina.
Önnur lið sem drógust saman í
gær voru: Þór Akureyri - Valur
(Sjallaferð hjá Valsmönnum), ÍS -
Grindavík og ÍR - Haukar.
Síðasti leikur 1. umferðar fór
frarn í gærkvöldi. ÍS vann léttan
sigur á b-liði ÍR-inga, 91-59.
VS