Þjóðviljinn - 04.02.1983, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. febrúar 1983
Bóksöluskrá Bókavörð
unnar er komin út
Gústaf Öskarsson verslunarstjóri afhendir Ragnheiði Gústafsdóttur verð-
laun fyrir besta nafnið á ný húsgögn Víðis h.f.
Bókasöluskrá Bókavörðunnar
númer 20 er komin út, en Bóka-
varðan verslar með gamlar og nýj-
ar bækur. Að þessu sinni er efni
skárinnar: fslensk fræði og norræn,
héraða- og byggðasaga, ættfræði,
þjóðsögur og þjóðleg fræði, saga
og söguskýringar, lögfræði og rétt-
arsaga, ævisögur, ljóð og kveð-
skapur, leikrit, skáldskapur, er-
lendar og íslenskar, náttúrufræði,
trúarbrögð og heimspeki og
Blanda nýkominna rita.
Af einstökum bókum sem sjald-
an eru á boðstólum má nefna t.d.
Eru luktir
og glitmerki
í lagi á hjólinu
þínu?
||U^ERÐAR
rit Halldórs Kiljans Laxness: Kaþ-
ólsk viðhorf, sem höfundurinn
samdi sem svar við skrifum Þór-
bergs Þórðarsonar í Bréfi til Láru á
sínum tíma. Rit þetta hefur aldrei
verið prentað aftur og er ekki vænt-
anlegt næstu 50-60 árin a.m.k..
Einnig má nefna jarðfræðirit og
náttúrufræðibækur Þorvaldar
Thoroddsen: Lýsing íslands I-IV
bindi, Landfræðisögu íslands I-IV
bindi og Ferðabók Þorvaldar Thor-
oddsen I-IV bindi. Einnig rit dr.
Bjarna Sæmundssonar: Fiskarnir
og Fuglarnir og Spendýrin.
I skránni er einnig að finna ýms-
ar fágætar ættfræðibækur, sem
mjög sjaldan koma fram: Reykja-
hlíðarættin, Skútustaðaættin, ís-
lenskar ártíðaskrár, Staðarbræður
og Skarðssystur, Víkingslækjarætt-
in, rit Steins Dofra og fleiri. Alls
eru í skránni á áttunda hundrað
titla, en í Bókavörðunni eru til sölu
u.þ.b. 15-25000 titlar í öllum grein-
um fræða og vísinda, innlend og
erlend rit.
Útgerðarfélag
Akureyringa:
Aukin sala
freðfisks
á s.l. ári
Samdráttur í
sölu annarra afurða
Togarar Utgerðarfélags Akur-
eyringa lönduðu öllum sínum afla
hér á landi á síðasta ári en árið áður
var einu sinni siglt utan með aflann.
Aflarýrnun varð umtalsverð á ár-
inu 1982 miðað við árið áður enda
úthaldsdagar færri og afli á hvern
veiðidag minni. Hins vegar jókst
sala fyrirtækisins á freðfiski á síð-
asta ári.
Úthaldsdögum togara fyrirtækis-
ins fækkaði á milli ára úr 1753 í
1519 en þess skal getið að Sólbak
EA 5 var lagt í ágúst sl. Veiðidagar
reyndust 1237 á síðasta ári og aflinn
um 16.5 tonn að meðaltali á dag.
Aflinn reyndist tæp 18 tonn hvern
veiðidag árið áður.
Sala á freðfiski jókst á síðasta ári
miðað við árið þar á undan, eða úr
4460 tonnum í 4579 tonn. Hins veg-
ar féll skreiðarsalan úr 623 tonnum
í 17 og salan á saltfiski úr 740 tonn-
um í 532 tonn. Á síðasta ári seldust
aðeins 49 tonn af þorskhausum
miðað við 63 tonn árið áður.
Birgðir í árslok voru því miklar hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa á
þremur síðasttöldu afurðunum.
Salix skulu
867 tóku þátt í verðlaunasam-
keppni Trésmiðjunnar Víðis h.f. í
Kópavogi um nafn á nýja gerð af
húsgögnum, sem hönnuð voru af
hinum þekkta finnska hönnuði
Ahti Taskinen. Alls bárust sex til-
lögur með nafninu Salix sem er
„Nýja karftöflumatið er komið í
fullan gang, en það tekur auðvitað
sinn tima að koma þessu á, og því
vil ég ekkert segja um það, hvenær
kaupmenn fá í hendur kartöflur
eftir nýja matinu“, sagði Gunn-
laugur Björnsson, forstjóri Græn-
metisverslunar landbúnaðarins, í
samtali í gær, en landbúnaðar-
ráðuneytið hefur gefið út nýja
reglugerð um mat og flokkun í
kartöflum.
Það var í ágúst sl. að samstarfs-
nefnd um mat og flokkun kartaflna
og annarra garðávaxta var sett á
laggirnar og gerði hún tillögu til
landbúnaðarráðherra um mat á
kartöflum. Með þessum nýju regl-
um átti að skapa grundvöll að nýju
og áreiðanlega gæðamati á kartöfl-
um á markaðnum hér, en eins og
fólki er eflaust kunnugt hefur ríkt
nokkuð mikil óánægja með gæði/
gæðaleysi kartaflna.
Samstarfsnefndina skipa fulltrú-
ar frá Neytendasamtökunum,
þau heita
latneska heitið á víði. Dregið var
um vinninginn og kom upp nafn
Ragnheiðar Gústafsdóttur, Tjarn-
arbraut 27 í Kópavogi. Hlaut hún
Salix sófasett að launum fyrir til-
lögu sína. Salix húsgögn Víðis
verða til sölu heima og erlendis.
Búnaðarfélagi Islands, Rannsókn-
arstofnun landbúnaðarins, Sam-
bandi garðyrkjubænda, Grænmetis-
verslun landbúnaðarins, Lands-
sambandi kartöflubænda og loks
Agnar Guðnason, skipaður af ráð-
herra. Nefndin gerði tillögu um, að
kartöflur verði aðgreindar í 6
flokka: úrvalsflokk, 1., 2. og 3.
flokk, bökunarkartöflur, perlu-
kartöflur og parísarkartöflur. Land-
búnaðarráðherra bætti síðan við
einum flokki, sem hann kallar
„Rauðar íslenskar, 33 mm og
stærri“, í mikilli óþökk Neytenda-
samtakanna, sem segja að með
þessu sé stærðarflokkunin að engu
gerð.
Neytendasamtökin benda jafn-
framt á, að neytendur geta óskað
eftir öðrum kartöflum en rauðum
íslenskum í matvöruverslunum og
þannig þrýst á bæði kaupmenn og
Grænmetisverslunina að standa sig
í kartöfluframboði.
ALÞÝDUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum
Forvaii lýkur 6. febrúar
Síðari umferð forvals vegna skipunar framboðslista Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum í komandi alþingiskosningum stendur yfir og lýkur að kvöldi
sunnudagsins 6. febrúar n.k.
í síðari umferð forvalsins á að velja í þrjú efstu sæti listans úr hópi þeirra
sjö einstaklinga, sem í kjöri eru. Kjósandi merkir með viðeigandi tölustaf
við nöfn þeirra þriggja, sem hann vill að skipi 1., 2. og3. sæti framboðslist-
ans. Sé merkt við fleiri eða færri en þrjá telst seðill ógildur.
Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjörðum sem taka vilja þátt í forvalinu
geta snúið sér til eftirtalinna kjörstjóra:
Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn, Nauteyrarhreppi N.-ÍS.
Astþór Agústsson, Múla Nauteyrarhreppi, N-ÍS.
Ari Sigurjónsson, Þúfum Reykjafjarðarhreppi, N.-ÍS.
Ingibjörg Björnsdóttir, Súðavík.
Þuríður Pétursdóttir, Túngötu 17, ísafirði.
Kristinn H. Gunnarsson, Vitastíg 21, Bolungarvík.
Sveinbjörn Jónsson, kennari Súgandafirði.
Magnús Ingólfsson, Vífilsmýrum Önundarfirði.
Davíð H. Kristjánsson Aðalstræti 39, Þingeyri.
Halldór G. Jónsson, Lönghlíð 22, Bíldudal.
Lúðvíg Th. Helgason, Miðtúni 4, Tálknafirði.
Bolli Olafsson, Sigtúni 4, Patreksfirði.
Gisella Halldórsdóttir, Hríshóli, Reykhólasveit.
Sigmundur Sigurðsson, Steinadal, Fellshreppi, Strandasýslu .
Jón Ólafsson, kennari, Hólmavík.
Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Strandasýslu.
Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjörðum sem dvelja í Reykjavík eða
grennd geta einnig snúið sér til skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettis-
götu 3, Reykjavík, og tekið þar þátt í forvalinu.
Alþýðubandalagið í Hafnarílrði
Síðari hlutinn í kvöld
Síðari hluti blaðamannanámskeiðs ABH verður haldinn í Skálanum
Strandgötu 41, í kvöld, fimmtudag kl. 20.30.
Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímanlega, ogskila af sér verkefnum,
þeir sem hafa ekki gert það þegar. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Félagsvist
Spilamennskunni verður haldið áfram þriðjudagskvöldið 8. febrúar í
Sóknarsalnum Freyjugötu 27 (gengið inn frá Njarðargötu), kl. 20.00
Gestur kvöldsins verður Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi, sem kemur í
kaffihléinu og segir frá húsnæðismálum flokksins.
Þetta er önnur lotan í þriggja kvölda keppninni sem hófst 25. janúar en
fyrir þá sem ekki komust þá er ekkert því til fyrirstöðu að bætast við nú,
því auk heildarverðlauna er keppt um verðlaun kvöldsins hvert kvöld. -
Spilastarfshópurinn.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Kaffirabb um starfshætti og skipulag
Laga- og skipulagsnefnd Alþýðubandalagsins heldur vinnufund á Akra-
nesi laugardaginn 5. febrúar. Af því tilefni verður efnt til rabbfundar í
Rein kl. 3.30 e.h. á laugardag þ.ar sem félagsmönnum í Alþýðubandalag-
inu á Akranesi og gestum þeirra gefst tækifæri á að rabba við nefndar-
menn um verkefni laga- og skipulagsnefndar Alþýðubandalagsins yfir
kaffibollum.
Fjölmennum. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi -
Fundur með ungu stuðningsfólki
Alþýðubandalagið í Kópavogi boðar til fundar með
ungu stuðningsfólki (16 - 25 ára) miðvikudaginn 9.
febrúar kl. 20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11 í Kópa-
vogi.
Fundarefni: Umræður um Alþýðubandalagið og
staða ungs fólks innan þess. Gestur fundarins verður
Ólafur Ólafsson formaður Æskulýðsnefndar Alþýðu-
bandalagsins. - Stjórnin. Ólafur Ólafsson.
ARSHATIÐ
ABK
Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur
árshátíð sína laugardaginn 12. febrúar í
Þinghóli, Hamraborg 11. Matur verður að
sjálfsögðu á boðstólum; kalt borð og heitir
pottréttir en á undan matnum verður bor-
inn fram lystauki.
Stuðlatríó mun leika undir borðum og
fyrir dansinum sem mun duna fram eftir
nóttu. Góð skemmtiatriði munu koma
gestum á óvart.
Húsið verður opnað kl. 19.00. Borðhald
hefst kl. 19.30. Miðasala verður í Þinghóli
þriðjudaginn 8. febrúar og miðvikudag-
inn 9. febrúar frá kl. 20.30 til kl. 22.30.
Borðapantanir á sama tíma. Nánari upp-
lýsingar hjá Lovísu í síma 41279.
ALÞYÐUBANDALAGIÐIKOPAVOGI
- ast.
Flóártiarkaðurí£ Þjóðviljans
Ný þjónusta við áskrifendur
Á fimmtudögum geta áskrifendur Þjóðviljans fengið birtar smáauglýsingar sér
aö kostnaðarlausu. Einu skilyrðin eru að auglýsingarnar séu stuttorðar og að
fyrirtæki eða stofnanir standi þar ekki að baki. Ef svo er, þá kostar birtinain
kr. 100,-
Hringið í sima 31333 ef þið þurfiö að selja, kaupa, skiþta, leigja, ef ykkur
vantar vinnu, þið hafið týnt emhverju eða fundiö eitthvað. Allt þetta og fleira til
á heima á Flóamarkaði Þjóðviljans.
DJOÐVIUINN
Neytendasamtökin:
Mótmæla nýiu
kartöflumati