Þjóðviljinn - 04.02.1983, Page 16
DJOÐVIUINN
Föstudagur 4. febrúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285. Ijósmyndir81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgrciðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamcnn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Keldnamálið í borgarstjóm í gær:_
Afgreiðslu frestað
„Skákmeistari Reykjavíkur 1983“, Elvar Guðmundsson. Hann hlaut 9Vi
vinning af 11 mögulegum. Meðfylgjandi mynd Ijósmyndara Þjóðviljans, -
eik, var tekin þegar síðasta umferð mótsins fór fram. Andstæðingur
Elvars var Þröstur Einarsson.
Elvar Guðmundsson
Reyk j avíkurmeistari
Aukafundur
eftir viku
Sigurjón Pétursson óskaði eftir
því á fundi borgarstjórnar í gær að
samningi borgar og ríkis um
Keldnaland og fleira yrði frestað og
lýsti Alþýðubandalagið reiðubúið
til þess að mæta til aukafundar í
borgarstjórn eftir viku til að af-
greiða samninginn. Varð sam-
komulag þar um.
Skuldir Landsvirkjunar nema
nú nær 7 miljörðum króna, sem er
um eða yfir helmingur af öllum er-
lendum skuldum landsins, sagði
Albert Guðmundsson, m.a. í borg-
arstjórn í gær. Til umræðu var
frumvarp að nýjum lögum um
Landsvirkjun, sem samninganefnd
Reykjavíkur, ríkisins og Akur-
eyrar hefur samþykkt. Frumvarp-
ið var samþykkt með 17 at-
kvæðum, Sigurður E. Guðmunds-
son sat hjá en Albert og 2 fulltrúar
Kvennaframboðs greiddu atkvæði
Astæðurnar fyrir frestunar-
beiðninni voru margþættar. í fyrsta
lagi sagði Sigurjón að hér væri um
mjög yfirgripsmikið mál að ræða.
Þá hefðu borgarfulltrúar minni-
hlutans ekki fengið að fylgjast með
samningagerðinni og hefðu þeir
aðeins haft 6 daga til að kynna sér
samninginn og borgarfulltrúar sem
ekki sitja í borgarráði enn skemmri
tíma. Afmörkun Háskólalóðar
væri óglögg en þó veigamikill hluti
af samningnum. Ýmsi gögn sem
gegn því.
Albert sagði tímabært að borgar-
stjórn staldraði við og gætti að því
hversu háar ábyrgðir hennar á
vegna Landsvirkjunar væru. Hann
sagðist á alþingi myndu óska eftir
skýrum svörum frá Seðlabanka-
stjóra um þessi mál. í nýrri árs-
skýrslu Seðalbankans hafði hann
lýst áhyggjum vegna aukinnar
skuldasöfnunar, sem hann hefði
sjálfur staðið fyrir sem formaður
stjórnar Landsvirkjunar!
-ÁI
nauðsynleg væru til að glöggva sig á
niðurstöðunni hefðu verið að ber-
ast borgarfulltrúum allt fram að
byrjun borgarstjórnarfundarins,
þar sem greinargerð borgarverk-
fræðings var lögð fram. Stærðir
ýmissa svæða hefðu verið mjög á
reiki, svo mjög að tölur sem gefnar
hefðu verið upp í gær hefðu verið
leiðréttar í dag. Ekki væri brýn
þörf á að flýta málinu, - alþingi og
ríkisstjórn ættu eftir að fjalla um
það.
Davíð Oddsson taldi í tyrstu að
hér væri minnihlutinn að reyna að
leggja stein í götu samkomulagsins
og átaldi Sigurjón fyrir vikið. Eftir
allþungorða ræðu Kristjáns Bene-
diktssonar, sem m.a. sýndi fram á
að engin rök væru fyrir því að synja
frestunarbeiðni, sem rík hefð er á
að veita í borgarstjórn, snerist
borgarstjóra hugur. Kristján sagði
ni.a. að þetta mál allt hefði verið
sótt af offorsi, skipulega hefði ver-
ið gengið fram hjá minnihluta
borgarstjórnar á mög ólýðræðis-
legan hátt og það væri svo sem eftir
öðrum ef borgarstjóri ætlaði nú að
neita um frestun í eina viku. Sig-
urður E. Guðmundsson taldi einn-
ig að hér væri um sanngirnismál að
ræða og í lokaorðum sínum viður-
kenndi Davíð Oddsson að það væri
ábyrgðarhluti upp á áframhaldandi
samstarf borgarfulltrúa að vera
stífur á því að neita frestun. Málið
verður því afgreitt á aukafundi eftir
eina viku. _Á1
Elvar Guðmundsson tryggði sér
sigur á Skákþingi Reykjavíkur
1983 með því að sigra Þröst Einars-
son í síðustu umferð mótsins sem
tefld var á miðvikudagskvöld. Elv-
ar hlaut 9Vi vinning af 11 mögu-
legum og varð einum vinningi á
undan næstu mönnum. Hann náði
snemma forystunni í mótinu, vann
7 fyrstu skákir sínar, og þrátt fyrir
tap í 8. umferð tókst honum að
sigra með velheppnuðum enda-
spretti.
Haukur Angantýsson, Halldór
G. Einarsson og Þröstur Einarsson
urðu í 2.-4. sæti með 8V2 vinning.
Næstir komu Ingimar Halldórs-
son, Georg Páll Skúlason og Guð-
laug Þorsteinsdóttir með 8 vinn-
inga. Líkur voru á því, að Dan
Hansson og Haraldur Haraldsson
kæmust í þennan hóp þar sem þeir
voru með 7*/2 vinning og innbyrðis
jafnteflislega biðskák.
Þetta er í fyrsta sinn sem Elvar
Guðmundsson verður Skák-
meistari Reykjavíkur. Hann er 19
ára gamall. - hól.
Skuldir Landsvirkjunar: ____
Hehmngur af öUiim
eriendum skuldum
sagði Albert Guðmundsson
ERUM MÆTT/fí MEÐ
WTSOLU
I LEIFTURSÓKNARSALNUM SKULAGOTU 26 Á HORN! SKÚLAGÖTU OG VITASTÍGS
GN/abuxur kr. 290
Hauelsbuxur kr. 290
Khakibuxur kr. 290
Dúnúlpur kr. 690
Vattúlpur kr. 590
Barnaúlpur kr. 190
Ullarpeysur kr. 195
Háskolabolir kr. 150
Vinnuskyrtur kr. 150.
VATTJAKKAR - HERMANNAJAKKAR - SAMFESTINGAR -
VINNUSLOPPAR - VATTVESTI - BARNABUXUR -
LEÐURJAKKAR - AKRYLIC-PEYSUR
PÖSTSENDUM
S. 15425
28550
VINNUFA TABÚÐIN