Þjóðviljinn - 08.02.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.02.1983, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 8. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Samtökin Líf og land: Réttarhöld um at- kvæðisrétt Stjórn samtakanna LÍF OG LAND hefur ákveðið að efna til almenns fundar í Reykjavfk á sunnudaginn kemur, þann 13. febrúar. Fundurinn verður í formi réttarhalda, þar sem fjallað verður um rök með og móti fullum jöfnuði atkvæðisréttar. Stjórn samtakanna ákvað að gefa almenningi kost á því að kynn- ast þessum rökum frá báðum hlið- um. Tveir hæstaréttarlögmenn munu kynna röksemdirnar og sækja og verja málið frá báðum hliðum. Jón E. Ragnarsson, hæst- aréttarlögmaður, mun verja það meginviðhorf sem nú ríkir, og Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstarétt- arlögmaður, mun sækjá málið með tilliti til fulls jöfnuðar atkvæðisrétt- ar. Þeir hafa rétt á að kalla 3 vitni hvor um sig fyrir réttinn og munu báðir spyrja vitnin í þaula. Að mál- flutningi loknum mun eftirfarandi spurning verða lögð fyrir 12 manna kviðdóm: „Réttarhaldsformið er valið til þess að draga sem gleggst fram þau rök sem mæla með og á móti málum,“ sögðu þau úr samtökum LÍFS OG LANDS er kynntu fyrir blaðafólki væntanleg réttarhöld um atkvæðisrétt landsmanna. - (Ljósm. - cik - ) „Telur dómurinn að atkvæði allra kjósenda skuli vega jafnt í alþingiskosningum, án tillits til búsetu?,, Kviðdómurinn verður valinn með aðstoð Reiknistofnunar Há- skólans úr dreifbýli og þéttbýli og að sögn stjórnarmanna samtak- anna LÍFS OG LANDS verður gengið úr skugga um það, að kvið- dómendur hafi ekki fastmótaða skoðun á málinu fyrirfram. Réttarhöldin fara fram í Gamla bíói og hefjast kl. 13.15 á sunnu- daginn. Dómsforseti verður dr. Gunnar G. Schram, prófessor. Þess skal getið, að þetta er í þriðja sinn sem samtökin LÍF OG LAND efna til réttarhalda af þessu tagi; árið 1979 fóru fram réttarhöld um hvalveiðar íslendinga og árið 1981 um framtíð Reykjavíkurflug- vallar. ast Keyptum í fyrra 10.400 bíla I fyrra voru fluttar inn alls 10.400 bifreiðar og er það svipaður fjöldi og árið 1981 en þá voru fluttir inn 10.366 bflar. Vörubifreiðar voru um 850 og séndibifreiðar 530. Bflainnflutningur 'dróst saman á síðasta ársfjórðungi — til dæmis flutthr inn'frá ársbvrjun og fram í uopm ársins uröu -Jiíér aoc.iús 852 sem tollafgreiddar voru. Albvðubandalagið: Stíflr fundlr um kj ördæmamál Þingfundir voru engir í gær vegna þess að þingflokk- arnir ræddu um kjördæmamálið. Þeir höfðu til meðferðar hugmyndir um nýjar útreikningsreglur sem byggja á því að þingmönnum sé fjölgað um þrjá. Um sexleytið áttu formenn flokkanna að koma saman á fund til að ræða málin frekar og gert er ráð fyrir því, að kjördæmamálin verði áfram á dagskrá hjá þing- mönnum í dag. Formenn tlokk- anna og þingflokkanna voru einnig á fundum um málið um helgina og er bersýnilegt að töluvert kapp er lagt á að ná niðurstöðu. Bráðabirgðalögin komá varla til meðferðar þingsins fyrr en á miðvikudag. Framsóknarmenn eru óánægðir með gang mála og hafa mótmælt formlega. -óg. Alþýðubandalagið Suðurlandi: Framboðslisti ákveðln: »; ' " i;.' f I u Frevjugötu 27 (géngið jrm rni Njarðargötu) og verða sþilin dreg- in upp kl. 20.00. Gestui kvöldsins verður Sigúrjón Pétursson borgar- fulltrúi og segir hann í kaffihléinu frá húsnæðismálum flokksins. Þeir sem ekki komust í fyrstu umferð vistarinnar ættu endiiega að drífa sig í kvöld, því auk heildarverð- launa eru veitt sérstök verðlaun kvöldsins. Leiðrétting Tvær leiðinlegar villur slæddust inn í helgarsyrpu Thórs Vilhjálmssonar um kvikmyndahátíð. Brenglaðist orðaröð í bæði skiptin. Neðar- lega í öðrum dálki stendur „svo ekki fer um samúð okk- ar“ en á að vera „Svo fer ekki ...“. f þriðja dálki, nokkru fyrir neðan miðju, er talað um „menn sem eru í öngum sín- um rekja að raunir sínar“ - en á að vera, „í öngum sínum að rekja raunir“. Garðar Sigurðsson Framboðslisti Alþýðubanda- lagsins í Suðurlandskjördæmi hef- ur verið ákveðinn. Hann skipa: Garðar Sigurðsson Vestmanna- eyjum, Margrét Frímannsdóttir Stokkseyri, Ragnar Óskarsson Margrét Frímannsdóttir Vestmannaeyjum, Gunnar Sverr- isson Biskupsstungum, Dagný Jónsdóttir Selíossi, Gunnar Stef- ánsson Vatnskarðshólum, Guð- mundur Albertsson Hellu, Mar- grét Gunnarsdóttir Laugarvatni, Ragnar Óskarsson Hilmar Gunnarsson, Kirkjubæjar- klaustri, Halla Guðmundsdóttir Gnúpverjahreppi, Þór Vigfússon Ölfusi og Björgvin Salómonsson Vík. Þriöjudagsfundur SHA: Fjallar um friðarhreyfingar Kristín Ástgeirsdóttir Vikulégur fræðslufundur Sam- taka herstöðvaandstæðinga hefst í kvöld að Hótel Heklu kl. 20.30. Kristín Ástgeirsdóttir verður fram- sögumaður á fundinum, sem mun snúast um starf friðarhreyfinga. Fundir herstöðvandstæðinga hafa verið undanfarin þriðjudagskvöid. Á næsta fundi sem verður á Hótel Heklu mun Árni Björnsson flytja erindi um sögu hernámsins og andófið gegn því. - hól. Gjaldtakan á gæsluvöllum: 2% mlljón á þessu ✓ • an Minnihlutinn á móti Nýtt gjald sem tekið verður af börnun á gæsluvöllum borgarinnar í ár verður 10 krónur. 10 rniða kort verða seld á 100 krónur en 25 miða kort á 200 krónur. í féiags- máiaráði greiddu nöfnurnar Guðrún Ágústsdóttir og Jóns- dóttir atkvæði gegn þessari gjaidtöku en Gerður Steinþórsdóttir sat hjá. Gjald- ið var því samþykkt með 4 at- kvæðum Sjálfstæðisflokksins. Talsverðar umræður urðu um gjaldið í borgarstjórn s.l. fimmtudag og tóku eingöngu konur þátt í henni. Samkvæmt áætlun mun borgin fá 2,5 milj- ónir króna í tekjur af þessu nýja gjaldi og byggir sú tala á upplýsingum um nýtingu gæsluvalla á árinu 1981. Gerður Steinþórsdóttir benti á að þegar hugmyndin um slíkt gjald kom fyrst fram fyrir um 2 árum hefði verið miðað við strætófargjald eða sund- miða sem nú væru 2 og 6 krón- ur fyrir börn. Hér væri því um allt annað að ræða. Félags- málaráð samþykkti slíka til- lögu á fyrra kjörtímabili sem lið í að fá fram upplýsingar um raunverulega nýtingu á völl- unum og átti að nota pening- ana til úrbóta á völlunum. Ekkert varð þó af gjald- tökunni því borgarstjórn felldi tillögu þar urn. Þórhildur • Þorleifsdóttir benti á að þö hér sýndist um aUri: benti a aö o eæsluvellini] yttu Konur stuttan tim senn, - 10-20 minútur meðan skroppið væri í búð eða ann- að. Gjaldió fyrir slíkt stopp væri jafn hátt og fyrir nokkra klukkutíma. lngibjörg Rafnar benti á að gæsluvöllunum væri ekki ætl- að að veita neina þá þjónustu sem dagvistarheimilin byðu. Hún varpaði fram þeirri spurningu hvort það yrði ekki bara ódýrara að setja barn á gæsluvöll heldur en að fara með það í verslun þar sem kaupmenn stilltu upp rándýru sælgæti í seilingshæð barna við afgreiðslukassann. Betra væri að borga tíkall á gæsló en að kaupa súkkulaði á 20 krónur. Undir lok umræðnanna skoraði Guðrún Ágústsdóttir á aðrar konur í borgarstjórn að undirbúa sameiginlega til- lögu fyrir næsta fund þar sem því væri beint til kaupmanna að hætta þeim ósið sem Ingi- björg nefndi. -Á1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.