Þjóðviljinn - 08.02.1983, Page 4

Þjóðviljinn - 08.02.1983, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. febrúar 1983 DIOÐMJINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvœmdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. 'Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðrikssón. Auglýsingastjóri: Sigriður H. Sigurbjófnsdóttirj Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Glslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmunds- son, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Viðir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar AugTysingarT Áslaug Jóhannesdóttir,' ólafur Þ. Jónsson Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Simavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óiadóttir Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavfk, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Frentun: Blaðaprent h.f. Þrjú söguleg ár • í dag, þann 8. febrúar, eru rétt þrjú ár liðin frá því núverandi ríkisstjórn var mynduð. Flestum þeim, sem fylgj- ast með íslenskum stjórnmálum, mun enn í fersku minni hvernig myndun þessarar ríkisstjórnar bar að, svo sögulegir sem þeir atburðir voru. • Stjórnin hafði frá upphafi mjög tæpan þingmeirihluta og margir andstæðingar og velunnarar spáðu henni skammlífi þá þegar. • En nú eru liðin full þrjú ár og þrátt fyrir misbresti af ýmsu tagi og margvísleg innri og ytri áföll þá situr stjórnin enn. • Sannleikurinn er sá, að allt frá upphafi okkar heima- stjórnar í byrjun þessrar aldar, þá hefur það aldrei gerst fyrr en nú, að ríkisstjórn skipuð fulltrúum úr þremur stjórn- málaflokkum sæti full þrjú ár eða lengur. Allar fyrri þriggja flokka stjórnir hér á landi hafa orði skammlífari. • Þetta er ekki sagt núverandi ríkisstjórn til neins sérstaks hróss, heldur aðeins til að minna á athyglisverða sögulega staðreynd, og geta menn þá haft hrakspárnar fyrir þremur árum um skammlífi til samanburðar. Hér skal einnig á minnt, að engin ríkisstjórn, sem Alþýðubandalagið eða áður Sjósíalistaflokkurinn hafa átt aðild að, hefur setið að völdum svo lengi sem þessi, og reyndar eru aðeins örfáar af núver- • andi ríkisstjórnum í Vestur-Evrópu eldri að árum en sú íslenska. • Máske eru ýmsir lesendur þeirrar skoðunar að af þessu beri að draga þá einu ályktun að nú beri að slíta stjórninni og víst kann sitthvað að mæla með því. í þeim efnum munu þó málefnin ein skera úr, og fátt virðist benda til þess, að á Alþingi séu nú meiri möguleikar til myndunar einhverrar annarrar meirihlutastjórnar fyrir kosningar heldur en áður var, t.d. í byrjun þessa kjörtímabils. - En nú eru kosningar á næsta leiti, og úrslit þeirra munu að sjálfsögðu skera úr um það, hvaða ríkisstjórn hér tekur við að þeim loknum. • Þjóðviljinn leyfir sér að fullyrða, að fyrir núverandi ríkis- stjórn hefði orðið farsælast, að efna til kosninga í byrjun þessa vetrar, eins og Alþýðubandalagið lagði til, og leita í þeim kosningum eftir nýju umboði kjósenda og auknum stuðningi við stefnu stjórnarinnar. Þeirri leið var því miður hafnað af samstarfsaðilum Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn- inni. • Hér verður ekki rifj að upp það sem vel hefur tekist og hitt sem miður fór, á þessum þremur árum, enda ekki við hæfi að skrifa nein eftirmæli um stjórn, sem enn er í fullu fjöri. Um árangur stjórnarinnar hvað varðar atvinnu og lífskjör hér mitt í heimskreppunni segir reyndar meira en flest annað, sú staðreynd að á árunum 1981 og 1982 gerðist það í fyrsta skipti um mjög langt skeið, að hingað fluttu fleiri frá útlöndum tvö ár í röð heldur en nam tölu brottfluttra á sama tíma. Þessu var ólíkt farið t.d. á árunum 1976 og 1977, síðustu valdaárum Geirs Hallgrímssonar, þegar tala brott- fluttra umfram aðflutta nam 1000 manns á ári, eða á árunum 1969 og 1970, síðustu árum „viðreisnarstjórnarinnar“, þeg- ar tala brottfluttra umfram aðflutta komst í nær 3000 á tveimur árum. • Auðvitað er það breytileg þróun lífskjara í hinum ýmsu löndum, á hverjum tíma, sem mestu ræður um flutninga fólks milli landa. • Eigi hins vegar að nefna eitt dæmi um það sem miður hefur tekist hjá þessari ríkisstjórn, þá er alvarlegasta veilan tvímælalaust sú linka, sem auðkennt hefur ráðherra Fram- sóknarflokksins i glímu okkar við erlent hervald á Suður- nesjum og erlent auðvald í Straumsvík. - Helguvíkurmál Ólafs Jóhannessonar og Alusuissetillögur Steingríms Her- mannssonar eru átakanleg dæmi um ósjálfstæði gagnvart erlendu valdi, - tvö slík dæmi af mörgum úr stjórnmálasögu íslenska lýðveldisins. • Aðeins veruleg fylgisaukning Alþýðubandalagsins í kom- andi alþingiskosningum getur rétt af kompásinn hjá Fram- sókn í þessum efnum og skapað grunn fyrir samhenta stjórn félagshyggjufólks á næsta kjörtímabili. - k. klippt Heyrir til undantekninga „Það heyrir til undantekninga að hægt sé að lesa pólitíska línu út úr fréttum Dags, og blaðamenn mínir hafa frjálsar hendur á með- an að þeir fara ekki að skrifa árás- argreinar á Framsóknarflokkinn og samvinnuhreyfinguna", segir ritstjóri Dags í viðtali við helgar- blað DV. Það er með öðrum orðum í lagi að þeir skrifi árásar- greinar á aðra flokka. Sjálfsgagnrýni Þessi ummæli verða m.a. til þess að blaðamaður spyr hvort Framsóknarflokknum og sam- vinnuhreyfingunni geti ekki orð- ið á mistök - og hvort slík samtök yrðu ekki gagnrýnd í Degi. Þá upphefst merkileg þula sem gefur Jóni Hreggviðssyni lítið eftir (Hvenær drepur maður mann?): „Ég er sjálfsgagnrýninn. Eg skoða eigin verk, gagnrýni þau og reyni að gera betur. Ég ber ekki þá gagnrýni á torg, hún kemur innan frá. Ég geng ekki fram í því að ráðast með offorsi á Fram- sóknarflokkinn og samvinnu- hreyfinguna á opinberum vett- vangi.“ Ekki útfyrir rammann í þessari merkilegu þulu kemur þar að, hvernig lifandi og frjó gagnrýni verður til. Það er svipað með Framsóknarmenn og Alban- íukommúnista; þeir eru skelfing uppbyggilegir - innávið - og í nöp við opinbera umræðu. Gefum Hermanni Sveinbjörnssyni rit- stjóra Dags áfram orðið: „Fyrst kem ég gagnrýninni á framfæri innan Framsóknar- flokksins og samvinnuhreyfing- arinnar og reyni að koma á úrbót- um. Það eru eðlilegri vinnubrögð heldur en að ráðast á yfirmenn sína opinberlega - í fjölmiðli sem þeir hinir sömu hafa gert að því sem hann er. Blaðamennirnir hafa sjálfræði en þeir fá þá líka sjálfir skömmina, fari þeir út fyrir rammann". Nei, nei enginn þrýstingur Lesendur hljóta að vorkenna ritstjóranum að vinna við svo erf- ið skilyrði, að þurfa að bíða flokkssamþykktar frá Framsókn- arfélaginu á Akureyri áður en hægt er að fjalla um málefni KEA t.d. í Degi. Þeim mun óskiljanlegri verða svör ritstjórans við eftirfarandi spurningu blaðamanns DV: „ - Nú er valur Arnþórsson for- maður blaðstjórnar Dags. Hann er líka framkvæmdastjóri KEA og stjórnarformaður sam- bandsins. Markar þessi staðreynd þér ekki ákveðinn bás sem ritstjóra?“ Ritstjórinn er ekki aldeilis á því að þetta komi málinu svo mikið við: „Það má náttúrlega leggja dæmið svona fyrir, en ég hef ekki orðið fyrir þrýstingi frá Val eða öðrum blaðstjórnar- mönnum. Ef til vill vegna þess, að skoðanir okkar fara saman. Við erum að vinna að framgangi sameiginlegra hugsjóna." Sameiginlega hugsjónin Það er víst áreiðanlegt að þeir ritstjórinn og framkvæmdastjór- inn, (og stjórnarformaður SÍS og formaður blaðstjórnar Dags m.m.) eiga þá sameiginlegu hug- sjón, að ræða ágreiningsmál fremur á litlum fundum í framsóknarfélaginu á staðnum heldur en að láta þau koma fram í Degi. Hvaða austur-evrópskur stjórnmálaflokkur sem er, gæti verið stoltur af vinnulagi Fram- sóknarflokksins - að ekki sé minnst á hugsunarháttinn. -óg. Aflvaki efna- hagslífsins Jón Ármann Héðinsson skrifar merka grein í Morgunblaðið um helgina þarsem hann gerir vísind- alega tilraun til að nálgast kjarn- ann í efnahagsmálunum eftir guðfræðilegum leiðum. Sjálfum þykir honum, að íslendingar hafi verið blindir gagnvart þessari trú- arlegu leið að skiptingu krónunn- ar á milli landsins barna og typtir meginþorra landsmanna: „Ætla má að meginþorri ís- lendinga hafi ekki lengur í huga orð frelsarans: Sannleikurinn mun gera yður frjálsa". Síðan vindur þessi upprisni hugmynd- afræðingur sósíaldemókratíunn- ar sér að fjárlögum og gengisfell- ingum. Ekki verður verulega gaman fyrr en hann hefur fundið uppsprettu efnahagslegra lög- mála: „Efnahagsstarfsemin nær- ist á blekkingunni“. Talað við þá í efra Jón Ármann er yndislega„re-• ligiös“ í þessari grein um efna- hagsmál en heldur þykir oss eggið vera hvatskeytt við hænuna þegar hann segir: „Einhver verður að byrja. Það liggur beinast við að hefjast handa ofan frá. Eða er það til of mikils mælst?“ En eins- og alþjóð veit svífur algyðið ofar öllu og stjórnar þessu mikla gang- verki efnahagslögmálanna sem annarra. Og það á að byrja ofan- frá, segir Jón Ármann... Svarthöfði kolsvartur í olíukreppunni fyrir nokkrum árum voru settar hraðatakmark- anir á ýmsum hraðbrautum í Evr- ópu. I ljós kom að slysum fækk- aði verulega, þar með dauða- slysum. Hins vegar voru þessar hraða- takmarkanir teknar af vegna þrýstings frá bifreiðafram- leiðendum. Og þá var sunginn söngur um að hraðatakmarkanir væru frelsisskerðandi. Sem sagt að þegar hraðatakmörkunum var aflétt, var ekki að sökum að spyrja dauðaslysum fjölgaði eins- og áður. Salome Þorkelsdóttir þing- maður Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi hefur flutt gagnmerka tillögu á þingi um að bifreiðar skuli alltaf vera með ljósum í akstri. Þessi ágæta tillaga byggir á reynslu annarra þjóða um þetta atriði, þarsem slysum hefur fækkað vegna þess að allir sjá frekar til akandi farartækja ef þau eru með ljós. Svarthöfði ræðst af svoddan of- forsi gegn þingmanninum í gær að fáu er til jafnað. Talar hann um „þingfrú úr Mosfellssveit“ og hlýtur það að vera umhugsun- arefni á jafnréttisöld hvernig kvenhatur flóir yfir alla bakka í dagblaði einsog hjá Svarthöfða. Máske væri nær að tala um kom- plex - sem væri þá fremur við- fangsefni sálfræðinga en annarra. Svo virðist sem samúð Svart- höfða sé með bílstjórum sem eiga þá písl framundan að kveikja á ljósum þegar þeir gangsetja bif- reiðar og slökkva á þeim ljósum þegar þeir stöðva vélina. Enn fremur gegna hrútar tilþrifamiklu hlutverki í röksemdafærslu Svart- höfða í gær: „En nú er meiningin að fara að sekta þá bæði fyrir að drepa hrúta og aka ljóslaust um hádaginn. Þannig þrengist um mannréttindin“. Það er greinilegt að hulduhrút- ar einsog Svarthöfði búa við mik- ið lánleysi um þessar mundir. -óg.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.