Þjóðviljinn - 08.02.1983, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 8. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
RUV Ö
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Árna Böðvarssonar
frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Séra Bjarni Sigurðsson lektor
talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
10.00 Fréttir.10.30 „Áður fyrr á árunum“
11.00 íslenskir einsöhgvarar og kórar
syngja.
11.30 Vinnuvernd . Umsjón: Vigfús
Geirdal.
11.45 Ferðamál.Umsjón: Birna G. Bjarn-
leifsdóttir t
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. - Þriðjudagssyrpa
14.20 „Tunglskin í trjánum“, ferðaþættir
frá Indlandi eftir Sigvalda Hjálmarsson.
Hjörtur Pálsson lýkur lestrinum. (18).
15.00 Miðdegistónleikar
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn-
ir.
16.20 Lagið mitt.Helga Þ. Stephensen
kynnir óskalög barna.
17.00 „SPÚTNIK“. Sitthvað úr heimi vís-
indanna. Dr. Þór Jakobsson sér um
þáttinn.
17.20 Sjóndeildarhringurinn. Umsjónar-
maður: Ólafur Torfason (RÚVAK).
18.05 Tónleikar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.45 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Kvöídtónleikar
21.40 Útvarpssagan: „Sonur himins og
jarðar“ eftir Káre Holt.Sigurður Gunn-
arsson les þýðingu sína (15).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passíusálma (8).
22.40 Áttu barn? Þáttur um uppeldismál í
umsjá Andrésar Ragnarssonar.
23.15 Kimi.Þáttur um götuna, drauminn
og sólina. Fyrsti kafli: „Medúsa“,Um-
sjónarmaður: Guðni Rúnar og Harald-
ur Flosi.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV •
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Sögur úr Snæfjöllum Þýðandi Jón
Gunnarsson. Sögumaður Þórhallur Sig-
urðsson.
20.40 Andlegt líf í Austurheimi Lokaþátt-
ur. Thaíland. Miljón goð á stalli. Thaí-
land er á mótum hins forna og nýja en
Búddatrú stendur á gömlum merg.
Líkneskjur guðsins eru fleiri að tölu en
fólkið í landinu. Þýðandi Þórhallur
Guttormsson. Þulur Ása Finnsdóttir.
21.45 Útlegð Fjórði þáttur. Trautwein.
Þýskur framhaldsflokkur í sjö þáttum
um líf og örlög flóttamanna af gyðinga-
ættum á uppgangstímum nasista. Þýð-
andi Veturliði Guðnason.
Fagurt mannlíf’
Eftirfarandi Ijóð hefur okkur
borist frá Sk.E.:
Hann Helguvíkur-Ólafur er
heljarmikill kall,
sem hernáms-vinir óspart
lofið færa.
Við hlið hans stendur Krist-
inn, í Mammons málum
snjall,
sem Messíasar-rullu leikur
skæra.
Því Kristinn fremur daglega
kraftaverkin þrjú,
þau kynnt oss hefur Ólafur á
þingi.
Ei efum vér þann sannleika,
auðmjúkir í trú,
að okkar samtíð lofið
honum syngi.
Með betlilúku útrétta vér
boðum Kanans náð,
vors bjargvættar frá Drottins
eigin landi;
„Varða landsins" stefna hér
verði í lögum skráð,
svo verndin sæla hér um
eilífð standi.
Davíð okkar borgarstjóri er
dýrlegur og klár
og dýrkaður af Leiftursóknar-
mönnum.
Með tilskipunum afmá mun
félagshyggjufár,
en „Frjálshyggjunnar" ráðum
beita sönnum.
Bændalýðinn íslenska, vorn
bölvald nú í dag,
að bestu manna sýn skal
niður skera.
Á rusladyngjum hersins vér
reisum þjóðarhag,
slík ráðsnilli mun dýran
ávöxt bera.
Þá verður lífið fagurt og
framtíð okkar glæst,
er frumskóganna
gróðalögmál ríkja
og Leiftursóknar dýrlega •
hugsjón hefur ræst
um her, sem muni
vinstra pakkið strýkja.
Starfskynning
Tveir strákar úr Hvassaleitisskóla,
Arnljótur Davíðsson og Sveinn R.
Eiríksson, voru í starfskynningu á
Þjóðviljanum í síðustu viku. Þeir eru í
8. bekk. Arnljótur og Sveinn fóru á
stúfana einn daginn og heimsóttu
krakkana á dagheimilinu Austurborg
í Reykjavík.
„Skemmtilegast að róla“, eða það
fannst öllum krökkunum á dagheim-
ílínu Austurborg er víð skruppum
þangað eitt hádegi í vikunni. Þeim
þótti líka skemmtilegt að klifra og
renna sér í kastalanum sem var þar. ■
Ernu þótti h'ka gaman á skíðum, en
eitthvað gekk henni erfiðlega að
komast í þau. - AD og SRE.
Orku-
reikningar
og lífs-
kjör
Anna Guðmundsdóttir
hringdi:
í frétt á baksíðu Þjóðviljans
hinn 3. febrúar er frá því
greint, að hálf mánaðarlaun
verkamanns á Stöðvarfirði
færu til orkukaupa og eru
birtir orkureikningar því til
staðfestingar.
Ekki efast ég um að þetta er
satt og rétt, ég hef sjálf búið
úti á landi og þekki því þessa
reikninga af eigin raun. Hins-
vegar verður að taka tillit til
orkureikninga, en hið sama
verður ekki sagt þegar að
húsnæðiskostnaðinum kemur
og gildir þá einu hvort menn
kaupa húsnæðið eða taka það
fleiri þátta en orkuverðs þeg-
ar saman eru borin lífskjör í
einstökum landshlutum.
Þannig getur Reykjavíkur-
svæðið t.d. boðið upp á lága
á leigu. A Stöðvarfirði er fast-
eignamatið miklum mun
lægra en í Reykjavík. Ætli geti
ekki skeð að þetta jafnist
nokkuð út?
Erna Baldursdóttir 4 ára, Þórir Jónsson 6 ára, Ásdís Ragnarsdóttir 5 ára, Gylfi Sigurðsson 5 ára, og Jón Ingvi.