Þjóðviljinn - 12.05.1983, Side 1

Þjóðviljinn - 12.05.1983, Side 1
PIODVIUINN Ritvinnsla í tölvum ryður sér nú til rúms hérlendis. Nú er verið að tölvusctja hjá Máltölvun Háskólans, íslenskt samhci taorðasaf n. Sjá 8 maí 1983 fimmtudagur 104. tölublað .48. árgangur Hafsteinn Hafliðason. Lesendaþjónusta Þjóðviljans: Hafsteinn Hafliðason svarar spurningum um garða og gróður Þó sumarið láti lítt og ekki á sér kræla ennþá á norðan- verðu landinu er vor óvéfeng- janlega komið á suðvestur- hornið. Á næstu vikum gefst lesendum Þjóðviljans kostur á að spyrja Hafstein Hafliða- son, garðyrkjumann um allt sem við kemur görðum og gróðri, en Hafsteinn er um- sjónarmaður hins vinsæla út- varpsþáttar: Síðdegis í garð- inum. Munu spurningar lesenda og svör Hafsteins birtast viku- lega í Þjóðviljanum, á öllum fnnmtudögum héðan í frá. Þá daga verður líka tekið á móti fyrírspurnum í síma Þjóðvilj- ans: 81333 á milli kl. 16 og 19. Undantekning er þó þessi vika þar sem fimmtudagínn ber upp á uppstigningadag og verður fyrstu spurningum les- enda til Hafsteins veitt mót- taka á morgun, föstudag kl. 16 - 19, í síma 81333. Það liggur nú fyrir að fjarlægja verður plastfilmu af stálklæðningu utan áhúsi Rafmagnsvcitna Reykjavíkurog mála allt húsið utan. Geir Hallgrímsson skilaði umboði til myndunar meirihlutastjórnar í gær Framsókn vildi lögbinda verð- bætur á laun í eitt ár — Sjálf- stæðisfiokkurinn lögbinda afnám verðbóta í sex mánuði — að- eins hálft ár bar á milli Eftir látlaus fundahöld í allan gærdag slitnaði uppúr stjórn- armyndunarviðræðum Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks um kl. 18 í gærdag. Þá höfðu Framsóknarmenn sett fram úrslitakröfu sína um lög- bindingu launa og verðlags í amk. eitt ár, en Sjálfstæðis- menn höfðu teygt sig eins langt og þeir gátu að eigin sögn og samþykkt 6 mánaða lögbind- ingu. Þegar ekki náðist sam- komulag um þetta atriði slitn- aði uppúr viðræðunum og Geir Hallgrímsson formaður Sjálf- stæðisflokksins skilaði þegar af sér stjórnarmyndunarumboði sínu til Forseta íslands. Steingrímur Hermannsson sagöi aö Framsóknarmenn hefðu viljað lögbindingu launa og verðlags í 2 ár, en í tilraun til samkomulags fall- ist á eitt ár. Sjálfstæðismenn hefðu hinsvegar ekki fallist á lengri tíma en 6 mánuði. Á það hefðu Fram- sóknarmenn alls ekki getað fallist og þar með hefði ekki verið lengur grundvöllur til frekari viðræðna. Geir Hallgrímsson ræddi við blaðamenn og skýrði fyrst frá því hvernig hann hefði hagað stjórn- armyndunarviðræðum sínum, fyrst við alla flokka og lista og síðan viðræðunum við Framsókn. Sagði Geir að Framsóknar- og Sjálfstæð- ismenn hefðu verið sammála um ýmsa hluti, m.a. að skerða vísitölu- bætur á laun, en þó kæmi eitthvað sem mildaði afnám vísitölubót- anna. Um það hefðu þó verið skiptar skoðanir hvernig að málun- um 1. júní skuli staðið. Sjálfstæðis- menn hefðu verið með tillögur um eitt og annað sem myndi milda af- nám vísitölubóta á laun. Þar inní kæmi að verðbólga myndi hjaðna hratt og kæmi það fólki til góða og svo vildu þeir gefa kjarasamninga alveg frjálsa. Aftur á móti hefðu Framsóknar- menn verið með tillögur um að lög- binda laun og verðlag í 2 ár fyrst en Steingrímur Hermannsson og Geir Hallgrímsson á leið niður stigann í Alþingishúsinu um kl. 16 í gær eftir cinkafund þar sem Steingrímur afhenti Geir lokatillögu Framsóknarflokksins. Ljósm.: eik. síðan talað um 1 ár en á það hefðu Sjálfstæðismenn ekki viljað fallast en hefðu þó geta fallist á lögbind- ingu í 6 mánuði. Eftir það tækju aðilar vinnumarkaðarins við og gerðu með sér samninga. Hann tók fram að hvorugur aðilinn hefði vilj- að banna kjarasamninga með lögum. - S.dór. Ekki hættur f /1 •j./l • • i politikmm sagði Geir Hallgrímsson eftir að hafa skilað stjórnarmyndunar umboði sínu Geir Hallgrímsson var spurður að því í gær, eftir að hann haföi skilað umboði sínu til stjórnar- myndunar hvort þetta þýddi það að hann væri hættur afskiptum af pó- litík í Ijósi þess að hann ætti ckki lengur sæti á Alþingi? Nei, ég hef ekki hugsað mér að hætta í pólitík, svaraði Geir. Hann var þá spurður að því hvort hann hefði orðið var við and- stöðu í þingflokki Sjálfstæðis- manna við að hann feyndi stjórnar- myndun. Geir sagðist ekki hafa heyrt eina einustu rödd í þingflokknum í þá átt. Þá var hann inntur álits á um- rnælum Gunnars G. Schram í Þjóð- viljanum í gær? Geir svaraði því til að Gunnar hefði tjáð sér að þar hefði ekki ver- ið rétt eftir sér haft. Því má bæta við að fréttamaður Morgunblaðsins Fríða Proppé sat við hlið undirritaðs þegar Gunnar sagði þetta og segist vera tilbúin að bera því vitni hvar og hvenær sem er að Þjóðviljinn hafi haft rétt eftir Gunnari og ekki hallað orði. - S.dór. Steingrímur fœr „boltann“ Forseti íslands veitti Steingrími Hermannssyni for- manni Framsóknarflokksins um- boð til myndunar mcirihluta- stjómar í gærkvöldi. Búist er við því að Steingrímur muni ræða við formenn annarra flokka og leggja að því búnu fyrir þá tillögur Framsóknar að samstarfsgrund- velli. Fram kom hjá Steingrími í gær að hann teldi ekki þurfa marga daga til þess að ganga úr skugga um möguleika sína til stjórnarmyndunar. - ekh. Tilraunalcyfi hefur verið veitt til innflutnings á baktcríum sem eiga að drepa fiðrildalirfur, og koma í veg fyrir maðkaplágu. launa Strandaði á lögbindingu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.