Þjóðviljinn - 25.05.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.05.1983, Blaðsíða 5
■______ ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Fimm flokka viðræður strönduðu á viljaleysi Framsóknar og Alþýðuflokks Þeir hlupu til íhaldsins frá ófrágengnu verki Bandalag jafnaðarmanna og Samtök um kvennalista töldu grundvöll fyrir hendi Framsóknarforystunnar stefndi. Tilraun Svavars Gestssonar for- manns Alþýðubandalagsins til myndunar meirihlutastjórnar stóð frá 16. til 21. maí. í þessa sex daga fluttu fjölmiðlar stöðugt fréttir af tilraunum Sjálfstæðismanna að koma saman ríkisstjórn sem áttu sér stað samhliða. Enda kom það i |jós þegar upp var staðið að Fram- sóknarmenn og Aiþýðuflokksmenn höfðu verið með hálfan hugann í viðræðum undir forystu Svavars Gestssonar, og engan veginn var út- rætt hvort málefnasamstaða gæti náðst um myndun fjögurra- eða flmmflokka stjórnar. Eftir umræður innan Alþýðu- bandalagsins hóf formaður þess til- raun sína þriðjudaginn 17. þ.m. með því að ræða við fulltrúa allra þingflokka og leggja fyrir þá 20 spumingar til þess að kanna grund- völl til frekari viðræðna. (Spurn- ingalistinn er birtur í Þjóðviljanum 19. þ.m.) Ljóst var á viðbrögðum Sjálfstæðisflokksins og málgagna hans Morgunblaðsins og Dag- blaðsins Vísis að á þeim bæ höfðu viðræður við Alþýðubandalagið verið útilokaðar. Svavar Gestsson kynnti hinsvegar hugmyndir um að fresta verðbótahækkunum, verðlagshækkunum og fiskverðs- hækkun 1. júní til 1. júlí til þess að skapa skjól fyrir stjómarmyndun sem ekki yrði kastað höndunum til. Geir tók heim til sín Miðvikudaginn 18. ræddu viðræðunefndir frá Alþýðubanda- laginu við viðræðunefndir Alþýðu- flokks og Bandalags jafnaðar- manna. En Sjálfstæðisflokkurinn var einnig á ferðinni eins og sjón- varpið sagði frá þennan dag: „Þótt Svavar Gestsson sé nú formlega með stjórnarmyndunaruinboðið frá forseta íslands byrjuðu stjóm- mál dagsins heima hjá Geir Hall- grímssyni formanni Sjálfstæðis- flokksins, er þangað komu til fund- ar fulltrúar Alþýðuflokksins, þeir Magnús H. Magnússon varafor- maður, í veikindaforföllum Kjart- ans Jóhannssonar, og Jón Baldvin Hannibalsson. Þá Friðrik Sóphus- son varaformaður Sjálfstæðis- flokksins og loks Vilmundur Gylfa- son formaður Bandalags jafnaðar- manna og Ágúst Einarsson“. Vil- mundur lýsti því yfir á þessum fundi heima hjá Geir að hann teldi óeðlilegt að taka þátt í frekari viðræðum af því tagi fyrr enn stjómarmyndunartilraun Svavars Gestssonar væri lokið. Einnig var ljóst af fréttum fjölmiðla þessa dagana að Sjálfstæðismenn vom í , sínum þingflokki að taka ákörðun um að efna til frekari viðræðna við Framsóknarflokkinn, og einka- viðræður voru í gangi milli ein- stakra þingmanna úr báðum flokk- um að koma þeim af stað í þriðja sinn. Fimm flokka stjórn Eftir að hafa átt samtöl við viðræðunefndir Kvennalista og Framsóknarflokksins hófust við- ræður undir forystu Svavars Gests- sonar föstudaginn 20. maí um myndun stjórnar allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins. Hittust viðræðunefndir þessara aðila tví- vegis sl. föstudag, og lá þá fyrir viðræðugrundvöllur frá Alþýðu- bandalaginu. (Birtur í Þjóðviljan- um í Sunnudagsblaði 21. maí). Þegar þessr viðræður stóðu yfir svaraði Svavar Gestsson spurning- um sjónvarpsins um fimm flokka stjóm og viðræðugrundvöllinn: „Það er ekki fjöldi flokka í ríkis- stjóm sem ákveður það hvort hún er góð heldur málefnin og við höf- um rætt um málin þegar á einum fundi og erum að byrja á öðrum núna. Ég vil minna á það að í Dan- mörku er starfandi minnihluta- stjóm hægrimanna sem ég er að vísu ósammála í flestu. Það em fjórir flokkar sem em aðilar beint að ríkisstjóminni og tveir sem styðja hana óbeint. Þeir sem era hrifnir af pólitík þeirrar stjórnar ættu allavega ekki að óttast það þó að fulltrúar fimm þingflokka ræði saman hér uppá íslandi.“ ítarlegar tillögur Svavar gat þess og að undirtektir hefðu verið allgóðar er Alþýðu- bandalgið lagði fram viðræðu- grundvöll sinn: „Ég held að það megi segja að enginn flokkur sem til þessa hefur farið með stjómar- myndunammboð hafi lagt fram jafn ýtarlegar tillögur og Alþýðu- bandalagið hefur nú gert. Mér er ekki kunnugt um að Sjálfstæðis- flokkurinn t.d. sem fór með stjóm- armyndunammboðið lengur en nokkur annar flokkur hafi lagt eitt eða neitt fram. Framsóknarflokk- urinn mun hafa lagt fram tillögur þegar hann fór með stjómarmynd- unarumboð, en við höfum nú lagt fram mjög ýtarlegar tillögur og þeim hefur verið tekið bæði vel og illa eins og gengur, en ég er ekki svartsýnn á að við gætum náð sam- komulagi um þær ef vilji væri fyrir hendi“. KróruUölubœtur Á síðari viðræðufundinum þenn- an dag gerði Svavar grein fyrir hug- myndum að breytingum á grund- vellinum, þar sem komið var til móts við skoðanir viðræðuaðila, og kom fram að fulltrúar Bandalags jafnaðarmanna og Kvennalista gátu sætt sig við þær sem umræðu- grundvöll. Sá texti hljóðaði svona, og má hafa hann til hliðsjónar viðræðugmndvellinum, sem Þjóð- viljinn hefur birt eins og áður sagði: „Baráttan gegn verðbólg- unni er aðalverkefni nýrrar rikis- stjórnar. í þeirri baráttu skal lögð höfuðáhersla á að semja strax um skýrt ferli út úr vítahring verðbólg- unnar, þó þannig að kaupmáttur lægri launa falli ekki meira en nem- ur falli þjóðartekna 1981 - 1983 og að full atvinna verði tryggð. Til að koma á nýrri tilhögun kaupmáttarviðmiðunar mun rikis- stjórnin beita sér fyrir samningum. aðila vinnumarkaðarins. Takist ekki kjarasamningar mun ríkis- stjórnin gera ráðstafanir til þess að tryggja hlut þeirra sem lægri laun. hafa. 1. júní verða greiddar 1.750 kr. vísitölubætur á lægstu laun og síðan sama krónutala á alla kauptaxta með hlutfallslegri útfærslu á álag og yfirvinnutaxta. Ríkisstjórnin mun gera áætlun sem beinist að þvf að draga úr hvers konar sjálfvirkni verðtengsla í hag- kerfinu." Afstaða Framsóknar og Krata Laugardaginn 21. maí skilaði Svavar Gestsson umboði sínu til stjórnarmyndunar, þar sem til- raunir hans til þess að mynda stjórn Alþýðubandalags, Alþýðuflokks, Bandalags jafnaðarmanna, Fram- sóknarflokks og Samtaka um kvennalista bám ekki árangur, fýrst og fremst vegna viljaleysis Framsóknarflokks og Álþýðu- flokks, eins og glögglega kom fram í viðtölum við fjölmiðla. Þetta varð ljóst á ftindi víðræðuaðila í Þórs- hamri kl. 3 á laugardag, og í kvöld- fréttum sjónvarps var haft eftir Magnúsi H. Magnússyni varafor- manni Alþýðuflokksins, að stjórn þriggja flokka, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðu- flokks, væri að fæðast. í viðtölum við Steingrím Her- mannsson og Magnús kom fram að þeir teldur miklar líkur á að þriggja flokka stjórn næðist saman, og hefði það verið að skýrast síðustu daga. Steingrímur Hermannsson kvað „umræðugmndvöll" Alþýðu- bandalagsins hvorki hafa verið „fugl né fisk“, en Magnús Magnús- son taldi útilokað „tæknilega" að koma saman fimm flokka stjórn vegna þess að „tímamörkin em svo þröng“. Þeir viðmðu einnig efa- semdir um að margra flokka stjóm myndi ráða við efnahagsvandann. Með hugann hjá íhaldinu Svavar Gestsson kvað ástæðuna fyrir því að viðræður um fimm flokka stjórn slitnuðu hafa verið viljaleysi: „Það kom fram að Fram- sóknarflokkurinn og Alþýðuflokk- urinn voru með hugann hjá íhald- inu þann tíma sem ég hafði þá við samningaborðið. Hugurinn bar þá þangað hálfa leið og það kann auðvitað ekki góðri lukku að stýra þegar þannig stendur á, og það var þess vegna sem ekki tókst að ná þessu saman. Ég held að það hefði verið unnt að ná þessu saman mál- efnalega ef viljinn hefði verið fyrir hendi, en menn kusu að hlaupa til íhaldsins frá ófrágengnu verki. Og það er auðvitað ákaflega slæmt. Bæði Bandalag jafnaðarmanna og fulltrúar kvennalistans sem tóku þátt í þessum viðræðum vom þeirrar skoðunar að þama hefði nokkuð miðað í áttina og að um- ræðugmndvöllur væri þarna fyrir hendi, þannig að ég tel að það eitt út af fyrir sig sé ákaflega mikilvægt. Það sem ræður auðvitað úrslit- um í þessu efni er það hvort menn hafa vilja til þess að krækja hlutina saman. Þegar ég bauð upp á það að reyna að fresta þeirri miklu hol- skeflu sem gengur yfir fyrsta júní þá neitaði Framsóknarflokkurinn því. Það er vegna þess að hann vildi hafa á sér svipuna svo að hann gæti notað hana sem afsökun til þess að fara með íhaldinu, og það var greinilegt að íhaldið vildi það líka. Þessi afstaða Framsóknarflokksins kemur vel fram í Tímanum í dag þar sem segir „ég fæ ekki séð annan möguleika á starfshæfri stjóm en Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks“, og er þetta haft eftir for- manni flokksins. Og það er sem- sagt aiveg greinilegt að meðan menn sjá ekki annan möguleika en þennan þá em menn ekki tilbúnir til þess að ræða í alvöru um annað. Þetta er auðvitað alveg kjami málsins og ég harma að svo skuli hafa farið að sinni.“ Engan veginn fullreynt í viðtölum ríkisfjölmiðlanna við Vilmund Gylfason formann Bandalags jafnaðarmanna kom fram að fimm-flokka viðræður hefðu verið efnislega ákaflega skammt á veg komnar, og ógerlegt að segja hvort eitthvað hefði getað komið út úr þeim. Þær hefðu ein- faldlega ekki verið komnar nógu langt til þess, að sögn Vilmundar. í sama streng tók Sigríður Dúna Kristmundsdóttir þingmaður Sam- taka um kvennalista. Hún sagði að þegar þessum viðræðum hefði ver- ið slitið hefði engan veginn verið fullreynt, hvort hægt hefði verið að ná málefnasamstöðu milli flokk- anna fimm. Fyrst og fremst hefði verið rætt um aðgerðir 1. júní og efnahagsstefnu næstu mánaða, en lítið rætt um önnur mál. „Það er búið að setja fyrsta júnf upp sem eins konar dómsdag, og mér finnst að það þurfi að hugsa í lengri tíma- bilum, þegar verið er að ræða stjómarmyndun“, sagði Sigrfður Dúna í viðtali við sjónvarpið. Fulltrúar Alþýðuflokks og Framsóknarflokks ganga af síðasta viðræðu- fundinum um flmm flokka stjórn í Þórshamri sl. laugardag, eftir að hafa lýst því að af þeirra hálfu væri ekki vilji fyrir frekari viðræðum, frá v. Karl Steinar Guðnason, Magnús H. Magnússon, Steingrímur Hermannsson og Tómas Árnason. Ljósm. eik.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.