Þjóðviljinn - 04.06.1983, Side 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 4. - 5. júní 1983.
ÚTBOÐ
Hreppsnefnd Skeggjastaðahrepps óskar
eftir tilboðum í byggingu ca. 200 m langs
grjótgarðs á ströndinni 2,2 km. innan þétt-
býlisins á Bakkafirði N. Múl. Verkið er fólgið í
því, að sprengja klöpp við ströndina, flokka
grjótið úr sprengingunu'm, flytja það í garðinn
og leggja það út í samræmi við uppdrætti frá
Hafnamálastofnun ríkisins. Bjóðandi getur
valið um að bjóða í tvær mismunandi gerðir
af grjótgarði, heildarmagn 70.500 m3 annars
vegar, en 87.500 m3 hins vegar. Verkinu skal
lokið þann 1. des. 1983. Útboðsgögn verða
afhent gegn 1.000 kr. skilatryggingu hjá
Hafnamálastofnun ríkisins að Seljavegi 32
Reykjavík. Tilboðum skal skila á sama staða,
eigi síðar en kl. 14.00 þann 21. júní n.k., en
þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim
bjóðendum, er þess óska.
F.h. Hreppsnefndar Skeggjastaðahrepps
Hafnamálastofnun ríkisins.
Kennarar
þrjá kennara vantar á Grundarfirði.
Um er að ræða kennslu í forskóla, almenna
kennslu í 4. bekk, heimilisfræði, stuðnings-
kennslu, athvarf, ensku og líffræði í 6.-9.
bekk.
Húsnæði í boði.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
93-8619 og 93-8637.
Orðsending
frá Sambandi lífeyrisþega ríkis
og bæja.
Þeir félagar okkar, sem áhuga hafa á íbúða-
byggingu í Reykjavík eru beðnir að mæta á
fundi kl. 14 n.k. mánudag. Fundurinn verður
að Grettisgötu 89 efstu hæð.
Athugið, fundurinn er aðeins fyrir lífeyris-
þega innan BSRB.
Stjórn SLRB.
ra
rs
ra
ra
ra
ra
fö3
ra
ra
ra
ra
rararararasraraiaiaiaiaiararararaEirararc]
ra
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STODUR
LAÚS STAÐA
YFIRLÆKNIR
Staða yfirlæknis við Röntgendeild Borgarspítalans er |q]
laus til umsóknar. Staðan er laus frá 1. ágúst 1983. fin
Stöðunni fylgir kennsluskylda. r=i
Umsækjendur skulu vera sérfræðingar í geislagrein- l=j
ingu. IGi
Umsóknum skulu fylgja í tvíriti, ýtarleg gögn varðandi 0
ra vísindastörf þau, er umsækjendur hafa unnið, ritsmíðar ra
jnj og rannsóknir, svo og námsferil og fyrri störf. ra
rn Laun samkvæmt kjarasamnmgi Læknafelags Reykja-rg
Js víkur og Reykjavíkurborgar. JLj
jSj Upplýsingar um stöðu þessa veitir framkvæmdastjóri |=J
fa Borgarspítalans svo og yfirlæknir deildarinnar. jGj
[3 Umsóknir skulu sendar stjórn sjúkrastofnana Reykjavík- ÍDJ
JÖJ urborgar, Borgarspítalanum fyrir 15. júlí 1983. fS
röl BORGARSPITALINN Reykjavík, fn]
fg 0 81200 3. júní 1983. föl
é3b!33e]e]e]e3e33e]Sé]q1q!e]b]s!e]e]3
um helgina
Skólakór Kársnes-
og Þinghólsskóla
Syngur í
Hveragerði
Skólakór Kársnes- og Þing-
hólsskóla mun syngja í Hvera-
gerðisskóla á sunnudaginn kem-
ur og hefjst tónleikarnir kl. 17.
Stjórnandi kórsins er Þórunn
Björnsdóttir en Marteinn H.
Friðriksson leikur á orgel.
Neðanjarðar-
lestin í
Félagsstofnun
stúdenta
Leggja varð niður sýningar á
Neðanjarðarlestinni eftir Imamu
Amiri Baraka og jazzmúsik Tísku-
Ijónanna, þegar Hótel Borg skipti
um eigendur fyrir mánuði síðan.
Sýningar lágu niðri meðan gerðar
voru endurbætur á húsinu, og nú er
það orðið of fínt til að sýningar geti
haldið áfram þar í óbreyttri mynd.
Nú hafa þau ánægjulegu tíðindi
gerst að tekist hefur samkomulag á
milli Alþýðuleikhússins og Tísku-
ljónanna annars vegar og Félags-
stofnunar stúdenta hinsvegar og
verða því nokkrar sýningar í Fé-
lagsstofnun nú í byrjun júnímánað-
ar.
Leikendur í Neðanjarðarlestinni
eru tveir: Guðrún Gísladóttir og
Sigurður Skúlason. Leikstjóri er
Lárus Ýmir Óskarsson. Þýðandi er
Þorgeir Þorgeirsson. Leikmynd
gerði Þór Elís Pálsson. Hljóm-
sveitina Tískuijónin - Quartetto di
Jazz skipa þeir Tómas Einarsson,
Sveinbjörn I. Baldvinsson, Þor-
leifur Gíslason og Sveinn Óli
Jónsson.
Sýningarnar verða laugardaginn
4. júní, mánudaginn 6. júní og
fimmtudaginn 9. júní kl. 21.00.
Miðasala er sýningardaga frá kl.
17.00 í Félagsstofnun.
Listatrimm
Stúdentaleikhússins
Ljóðlist
og tónlist
Sunnudaginn 5. júní og þriðju-
daginn 7. júní, klukkan hálf níu,
verður dagskrá tónlistar og Ijóða
í Félagsstofnun stúdenta við
hringbraut, á vegum Stúdenta-
ieikhússins. Blásarakvintettinn
leikur verk eftir Mozart, Malc-
olm Arnold og Jacques Ibert, og
aukalög eftir pöntun. Skáldin
Einar Ólafsson, Elísabet Þor-
geirsdóttir og Ingibjörg Haralds-
dóttir taka Ijóð saman. Þeir fé-
lagar Sjón og Einar Melax, einu
nafni Sjólax, munu fremja gjörn-
ing orðs og æðis, tóna og hljóða.
Dagskráin er liður í Listatrimmi
Stúdentaleikhússins sumarið 83.
myndlist
Flensborg, Hafnarfirði:
I tilefni 75 ára kaupstaðarafmælis Hafn-
arfjarðar hefur verið komið upp samsýn-
ingu ungra hafnfirskra myndlistarmanna
í Flensborg. Alls sýna 22 listamenn hátt
á annað hundrað verk, unnin á margvís-
legasta máta. Sýningunni lýkur um
helgina.
Háholt, Hafnarfirði:
18 hafnfirskir myndlistarmenn sem
komnir eru af unglingsárum sýna mál-
verk, leirlist og gullsmíði í Háholti í tilefni
kaupstaðarafmælis Hafnarfjarðarbæjar.
Sýningin verður opin til 12. júní.
Kjarvalsstaðir:
Grafíklistamaðurinn Richard Valtingojer
opnar um helgina sýningu á verkum sín-
um í vesturforsal Kjarvaisstaða. I vestur-
salnum stendur nú yfir sýning Ijósmynd-
aklúbbsins Hugmyndar. Báðar sýning-
arnar verða opnar til 12. júni.
Listasafn Einars Jónssonar:
Safnið hefur nú verið opnað að nýju og
er opið daglega, nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Eins og kunnugt er var heimili
Einars og önnu konu hans á efstu hæð
safnsins og er það opið almenningi tii
sýnis nú yfir sumarmánuðina á sama
tima.
Norræna húsið:
Carl Erik Ström frá Finnlandi sýnir 30
svart-hvítar Ijósmyndir. Hann sækir að-
allega myndefnið út í náttúruna. Hann
hefur tekið þátt i fjölda samsýninga viða
á Norðurlöndum. Sýningin er opin alla
daga til 13. júní.
Menningarmiðstöðin Gerðubergi:
Sýning á verkum nema Myndlista- og
handíðaskólans í Menningarmiðstöðinni
hefur verið framlengd og lýkur nú um
þessa helgi. Sýningin er sölusýning.
Listmunahúsið:
Bragi Ásgeirsson sýnir nýjar og gamlar
grafíkmyndir, en hann hefur nú tekið til
við þessa listgrein að nýju eftir tveggja
áratuga hlé. Sýningunni lýkur um
helgina.
Ásmundarsaiur:
Eva Benjamínsdóttir heldur sina fyrstu
einkasýningu í Ásmundarsai, en hún er
búsett í Boston í Bandaríkjunum, en þar
hefur hún verið í námi. Hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga hér heima og
erlendis. Sýningu Evu lýkur um helgina.
leiklist
Leikfélag Reykjavíkur:
I kvöld, laugardag er síðasta sýning á
Skilnaði Kjartans Ragnarssonar, en
leikritið hefur verið sýnt yfir 50 sinnum í
Finnski saxófónleikarinn Lauri
Nykopp heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu á mánudagskvöld.
Þetta er í annað sinn sem Lauri
sækir íslendinga heim, því hann
tók þátt í samnorrænni tónlistar-
hátíð ungra tónskálda og flyt-
vetur viö mikla aðsókn. Síðar um kvöldið
verður enn ein aukasýningin á Hassinu
hennar mömmu í Austurbæjarbíói. Á
sunnudagskvöld er síðan nýjasta verk-
efni Leikfólagsins „Úr lífi ánamaðkanna"
á fjölunum í Iðnó.
Þjóðleikhúsið:
Folketeatret frá Kaupmannahöfn verður
með líflega kabarettsýningu „Lille du -
hva'nu?" á stóra sviðinu. Þessi kabarett
hefur gengió fyrir troðfullu húsi í Kaup-
mannahöfn frá því sl. haust. Á sunnu-
dagskvöld verður síðan sýning á óper-
unni Cavalleria Rusticana og ballettin-
um Fröken Júlíu.
tónlist
Grafík með tónleika
Hljómsveitin Grafík sem nýlega hefur
gefið út sína aðra hljómplötu heldur
kynningartónleika á Lækjargötunni í
Reykjavík kl. 14.00 í dag laugardag.
Annað kvöld ætlar hljómsveitin síðan að
skemmta gestum í Hollywood.
ýmislegt
Ferðafélagið:
Á sunnudaginn efnir Ferðafélag Islands
til göngudags. Gengið verður umhverfis
Helgafell fyrir ofan Hafnarfjörð og er
gönguleiðin um 12 km. og tekur 3 klst.
Hún liggur yfir sléttlendi og er hæfileg
fyrir alla aldurshópa. Brottför er frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 10.30 og 13.00 en
aðrir geta komið á eigin bílum upp að
Kaldárseli.
ccniai icmyiu.
I dag verður farin almenn
gróðursetningar- og útivistarferð á veg-
um Skógræktarfélags Reykjavíkur. Far-
ið verður að Reynivöllum í Kjós til að
vigja hið nýja skógræktarland fólagsins.
Lagt verður upp frá Fossvogsstöðinni
með rútum kl. 13.30 og komið aftur kl.
18.00. Ferðin er ókeypis og öilum heimil.
Útlvlst:
I dag ætlar Útivist að fara í ferð „Út í
bláinn". Fyrsta ferðin verður eins og
nafnið bendir til út í bláinn og eiga ferða-
menn að geta sér til þess hvert ferðinni
er heitið eftir að lagt er upp kl. 13.00.
Á sunnudaginn verður kl. 10.30 ganga
um Marardal á Hengil og kl. 13.00 göng-
uferð í Innstadal við Hengilinn. Lagt upp
frá BSÍ.
Menningarmiöstöðin v/Gerðuberg:
Á mánudaginn efnir Menningarmiðstöð-
in viö Gerðuberg til fræðslu- og kynning-
arfundar fyrir hússtjórnir í Breiðholti. Á
fundinn koma þeir Sigurður Guðjónsson
frá Húseigendafélaginu og Hjörleifur
Kvaran skrifstofustjóri hjá Borgarverk-
fræðingi. Fundurinn hefst kl. 20.30 og
eru íbúar hvattir til að mæta.
jenda á sl. ári. A tónleikunum á
mánudagskvöldiðl flytur hann
eigin tónsmíðar, en þær eru í
mjög lausum skorðum og honum
gefst gott rúm til að leika af fing-
rum fram. Tónleikarnir verða kl.
8.30 og aðgangseyrir aðeins 50
kr.
Lauri Nykopp
„spinnur” í „Norræna”
Frúin hlær s
í betri bíl
frá Bílasölu Guðfinns
Salan aldrei meiri.
Vantar bíla á
staðinn.
Opið laugardaga
frá kl. 10-6.