Þjóðviljinn - 24.06.1983, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 24.06.1983, Qupperneq 3
Föstudagur 24. júiií' 15>83 ÞJÓÐVILjlNN - SIÐA 3, Nýbygging Listasafns íslands: Gjafa- féð að verða búið 40 miljónir kr. kostar að Ijúka byggingunni. Framkvæmdir við nýbygg- ingu Listasafns íslands við Fríkirkjuveg hafa gengið ágætlega á undanförnum árum og nýlega var boðin út vinna við anddyri safnsins, glugga og hurðir. Er húsið þá uppsteypt og lokað og stendur það á endum, - þá er gjafafé safnsins sem byggt hefur verið fyrir á þrotum. Þetta skemmtilega þakrými verður hluti af Listasafni íslands í fram tíðinni. Út í gegnum hvolfþakið má sjá Kvennaskólann gamla og hvíti veggurinn til vinstri er útveggur gamla íshússins eða Glaumbæjar eins og húsið var síðast kallað. Ljósm. -eik. Guðmundur G. Þórarinsson formaður bygginganefndar Lista- safns íslands sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að á þessu ári yrði unnið fyrir 3,5-4 miljónir króna við utanhússfráganginn. Þá er eftir að ljúka húsinu og er áætlað að það muni kosta 41,6 miljónir króna á verðlagi ársins 1984. Framkvæmdirnar og kaupin á gamla Glaumbæ hafa verið kostaðar af gjafafé: Lista- saihinu voru gefnar tvær húseignir í Austurstræti á sínum tíma og svo 25% af verslunarhúsnæðinu í Glæsibæ. Ríkið hefur því enn ekki þurft að leggja neitt til bygg- ingarinnar og sagðist Guðmund- ur vona að fjárveitinganefnd myndi sjá fyrir framhaldinu strax á næsta ári. -ÁI íslendingar mótmœla síldveiðum Norðmanna í sumar: Veiðarnar taka til Jan Mayen samningsins „Norðmenn hafa tilkynnt okkur að þeir muni hefja veiðar á um 20 þús. tonnum af síld í ágústmánuði og því höfum við mótmælt. Við teljum að þessar síldveiðar Norðmanna taki til Jan Mayen- samkomulagsins og teljum eðlilegt að við séum með í ráðum enda gengur þessi síld á okkar mið“, sagði Jón Arnalds ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær. Hann er formaður norsk-íslensku fiskveiðinefndarinn- ar sem fundað hefur í Reykjavík að undanförnu. Á fundinum náðist samkomulag um að engin loðna skuli veidd úr norsk-íslenska stofninum í sumar. Þetta þýðir að Norðmenn, Færey- ingar og önnur EBE-lönd munu ekki veiða neina loðnu í sumar og veiðar þessara munu ekki hefjast fyrr en rannsóknir liggja fyrir í haust, en að þeim rannsóknum loknum kemur norsk-íslenska fisk- veiðinefndin aftur saman til fundar. „Það er auðvitað stórt hagsmuna- mál okkar íslendinga að þetta samkomulag skuli hata tekist", sagði Jón. „Það þýðir að loðnan verður gengin í okkar lögsögu og sé einhverri loðnu tii að dreifa þá verðum við fyrstir til að veiða. Að öðrum kosti yrði ekkert afgangs handa okkur þegar loðnuveiðar hefjast í haust eins og áætlað er“, sagði Jón. -hól. 390 manns á atvinnuleysisskrá í Reykjavík: Vaxandi atvinnuleysi hjá verslunarmönnum 390 manns voru skráðir atvinnu- lausir hjá Ráðningaskrifstofu Reykjavíkur í gær. Á sama tíma í fyrra voru 157 einstaklingar skráðir atvinnulausir. Af þeim sem nú eru skráðir atvinnulausir eru 209 karla og 181 kona. Að sögn Gunnars Helgasonar forstöðu- manns Ráðningaskrifstofu Reykja- víkurborgar er stærsti hluti þess fólks sem atvinnulaust er úr stétt verslunarmanna. Atvinnuástand meðal skólafólks er með svipuðum hætti og verið hefur undanfarin ár. 1500 ung- menni sóttu um vinnu hjá Ráðningaskrifstofunni og af þeim hópi eru 75 atvinnulausir. Yngsta fólkið hefur átt erfiðast með að fá vinnu og verulega erfitt getur reynst fyrir unglinga yngri en 16 ára að fá vinnu. 150 á skrá hjá atvinnu- miðlun stúdenta Hjá atvinnumiðlun stúdenta hafa nú 500 látið skrá sig, en á sama tíma í fyrra höfðu 700 einstaklingar beðið atvinnumiðlun stúdenta um að grennslast fyrir vinnu. Þóra Björk Hjartardóttir hjá atvinnu- miðluninni, ræddi við Þjv. í gær. Þóra sagði að atvinnumiðlunin væri í stakk búin til að útvega um helming þess fólks sem til hennar leitaði um vinnu. Hún sagði að at- vinnumiðlunin hefði enn ekki get- að útvegað um 150 manns vinnu, en líkur væru á þvíað stór hluti þess fólks hefði fengið vinnu eftir öðr- um leiðum. „Hvað varðar atvinnuástand skólafólks hér í Kópavogi þá er það frekur ánægjulegt. Upphaflega skráðu um 300 unglingar sig hjá okkur og við höfum getað útvegað þeim flestum vinnu. Ég geri ráð fyrir að um 10 hafi enn ekki fengið vinnu, en við stefnum að því að svo verði mjög bráðlega", sagði Hrafn Sæmundsson atvinnumálafulltrúi í Kópavogi er Þjv. hafði samband við hann í gær. Hrafn sagði að gott samstarf hefði tekist með bænum og ein- stökum fyrirtækjum og því væri ástandið með betra móti. Þeir ung- lingar sem eru innan við 16 ára eiga rétt á atvinnu í vinnuskólanum, sem tæki við öllum er til hans leituðu. _|1()|, Sumarþingið: s Agreiningur í ríkisstjórninni Vil ekkert um málið segja er svar utanríkisráðherra. Ágreiningur virðist hafa ver- ið í ríkisstjórninni um það hvort kalia ætti saman sumarþing. Er það í mótsögn við yfirlýsingar Steingríms Hermannssonar, forsætisráðherra, um að algjör einhugur hafi verið í ríkis- stjórninni um að kalla ekki saman þing fyrr en í haust. í Morgunblaðinu í gær er því haldið fram að Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra og Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra hafi báðir lýst því yfir í ríkisstjórninni að þeir teldu að þing ætti að koma saman hið fyrsta. Sverrir Hermannsson, iðnaðarráð- herra hafði viðrað svipuð viðhorf á opinberum vettvangi. Til að fá úr því skorið hvor fer með rétt mál, forsætisráðherra eða Morgunblaðið hafði Þjóðviljinn samband við Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, en hann vildi ekkert um málið segja: „Ég vil ekk- ert segja um umræður á ríkis- stjórnarfundi“, var það eina sem hann vildi láta eftir sér hafa um málið. Ólíklegt verður þó að teljast, að Morgunblaðið, flokksblað þeirra ráðherra sem þarna um ræðir, hafi sagt frá ágreiningnum án þess að hann sé til staðar. Matthías staðfestir „Ég tel það hefði verið réttara að kalla saman alþingi til að af- greiða þessi mál. Ég tel að það hafi verið möguleiki til að kalla þingið saman og ná samstöðu um að afgreiða þessi mál á 2-3 vik- um“, sagði Matthías Á. Mathie- sen viðskiptaráðherra aðspurður um afstöðu sína til samkomu þings þegar ríkisstjórnin tók mál- ið til afgreiðslu á dögunum. eng/lg. Skrifstofustarf Staöa aðalbókara hjá Vegagerö ríkisins í Reykjavík er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknum meö upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf þar aö skila fyrir 6. júlí n.k. Vegagerð ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.