Þjóðviljinn - 24.06.1983, Blaðsíða 5
Föstudagur 24. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Sumarferö ABR 1983:
ALLIR MEÐ í VIÐEY!
Það er á morgun, laugardaginn
25. júní, sem ákveðið hefur verið
að fara í sumarferð Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík og er förinni
heitið í Viðey. Eftir rigningarnar
undanfarna daga er þó rétt að hafa
varann á, - ef veðurútlit á morgun
er slæmt og spáin fyrir sunnudag
góð, verður ferðinni frestað til
sunnudags á sama tíma og sama
stað. Frestun verður þá tilkynnt í
auglýsingatíma útvarpsins fyrir og
eftir kvöldfréttir í kvöld, föstudag.
Miðar eru seldir á skrifstofu Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík,
Hverfisgötu 105 og kosta þeir 150
krónur en fyrir börn, 12 ára og
yngri er ókeypis. Miðar verða seld-
ir fram til kl. 19 í kvöld föstudag og
einnig úr bíl í Sundahöfn kl. 9.30 til
10.15 á laugardagsmorgun.
Brottför er frá austurhluta
Sundahafnar (Eimskip) kl. 10 og
10.30 árdegis. Aðstaða til að kom-
ast í og úr bátnum er góð. Haf-
steinn Sveinsson ferjar mann-
skapinn og tekur siglingin aðeins
5-6 mínútur. í bátnum verður
dreift korti af Viðey, söngtextum
og dagskráin kynnt.
Fatnaður: Verið vel búin í hlýrri
ullarpeysu, góðum gönguskóm og
fatnaði sem þolir setu í grasi. Ef
regnstakkurinn gleymist fer’ann
örugglega að rigna!
Nesti verður að vera ríflegt, bæði
matur og drykkur. Nauðsynlegt er
að hafa bæði með sér smurt brauð
og svo eitthvað til að leggja á grill-
ið, pylsur handa krökkunum
kjötmeti. Gleymið ekki uj
haldskryddinu! Félagið leggu:
kol og kveikivökva og sérsmí
grillið bíður tilbúið á balanum i
an við Heljarkinn.
Gott skap er alveg bráðnauð:
legt í sumarferð ABR, söngbæl
gítarar og boltar eru líka ág
ferðafélagar.
Heimferð verður frá sama :
og lagt var að sunnan Viðe>
stofu kl. 16, 17 og 18 eða kl. 2<
21.
I glugga Viðeyjarstofu lá dauður steindepill og hafði hann gefíð upp
öndina í gömlum sauðskinnsskó. Ljósm. ÁI
Músanes séð frá Sjónarhól. Sagan segir að Þorlákur biskup helgi hafí með
kynngi sinni rekið músafaraldurinn út af þessu nesi en músagangur í eynni
var svo mikill að „korn og akrar spilltust". Ljósm. ÁI
Fjórir hrafnsungar í hreiðri sínu hátt í berginu. (Ljósm. Sig. Sv.)
Dagskrá
Jónsmessuhátíðar
Kl. 10.00 og 10.30 Hafsteinn Sveinsson ferjar fólkið frá
athafnasvæði Eimskipafélagsins í austur-
hluta Sundahafnar út í Viðey.
Kl. 11.30 Safnast saman við Sjónarhól. Björn Th.
Björnsson listfræðingur segir frá Viðey og
sögu hennar.
Kl. 12.00 Genglð að Viðeyjarstofu og kirkjunni. Hjör-
leifur Stefánsson arkitekt lýsir byggingunum
og síðan gefst fólki tækifæri til að skoða þær
og kirkjugarðinn.
Kl. 13.00 Langeldur (útigrill) og skemmtan undir Helj-
arkinn. Fjöldasöngur undir stjórn Gunnars
Guttormssonar. Nafnlausa trióið (Guðmund-
ur Hallvarðsson, Kolbeinn Bjarnason og
Kristín Ólafsdóttir) skemmtir.
Matur
Harmonika: Elías Daviðsson.
Leikir, söngur og reiptog (menntamannaklík-
an og verkalýðsarmurinn takast á)
Kl. 15.00 Gönguferð austur að Sundbakka. Þar segir
Guðjón Friðriksson blaðamaður frá Miljónar-
félaginu, Kárafélaginu, Stöðinni og þorpinu á
Sundbakka.
Kl. 17.00 Náttúruskoðun, gönguferðir og önnur
skemmtun eða heimferð eftir vali.
Kl. 21.00 Síðasta ferð í land!
Björn Th. Björnsson
Hjörlelfur Guðjón
Guðmundur Gunnar
Guðrún
Kristfn
Kolbelnn
Elfas