Þjóðviljinn - 24.06.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. júní 1983
Fœreyingar
kaupa
3.800 lesta
verksmiðju-
togara
Það er ekki ofsögum sagt af
dugnaði Færeyinga á sjónum.
í s.l. maímánuði keyptu
nokkrir fjáraflamenn í Fær-
eyjum verksmiðjutogara frá
Ítalíu. Þetta er sagt nýlegt
skip, 3.800 rúmlestir að stærð.
Skipið liggur nú í Þórshöfn og
er verið að úthúa það á kol-
munnaveiðar til manneldis.
Þá hafa færeyskir útgerðar-
menn nýlega gert samning við
norsku skipasmíðastöðina
Langstein Slipp og Baatbygg-
eri A.S. í Tomrefjord um
smíði á fjórum togurum.
Tvö skipanna eru til veiða í
ís og er lengd þeirra 46 metr-
ar, en hin tvö eru frystitogarar
og er lengd þeirra 70 metrar.
Samanlagt verð þessara skipa
er n.kr. 220 miljónir.
Enn aukið
við nórskt
fiskeldi
Norska sjávarútvegsráðu-
neytið tilkynnti nýlega að í
undirbúningi væru breyttar
reglur um eldi á laxi og regn-
bogasilungi, með það fyrir
augum að stækka þennan
atvinnuveg. Eldisbúum verð-
ur fjölgað og þau verða stækk-
uð, úr 3 þúsundutn rúmmetr-
um í H þúsund rúmmetra.
Þessari breytingu á að vera
lokiö á miöju ári 1984.
Sovétmenn
byggja
nýjar
eldistöðvar
Viö vatnið Urjum á Kul-
andsgresjunni í Suövestur-'
Síberíu er nú verið að byggja
risavaxna eldistöð fyrir vatn-
afiska. Þarna á að framleiða
100 miljónir fiskseiða árlega,
sem síðan verða sett í eldi.
Áhugi á fiskeldi í vatni og
sjó, sem skipulagðri búgrein,
fernú vaxandi með hverju ári.
íslenskur
prófessor
í sjávar-
útvegsfræði
Nú í júnímánuði var ís-
lendingurinn Rögnvaldur
Hannesson .skipaður prófess-
or í sjávarútvegsfræði við
Norges Handelshöyskole.
Rögnvaldur er fæddur hér á
landi 1943 en hefur verið
norskur ríkisborgari frá 1978.
Hann var útskrifaður frá
Háskólanum í Lundi í Svfþjóð
1970 sem kandidat með hag-
fræði sem aðalnámsgrein.
Síðan tók hann doktorspróf í
hagfræði víð sama skóla 1975.
Á árunum frá 1970-1975 vann
Rögnvaldur við rannsóknirog
kennslu við Háskólann í
Tromsö í Noregi. Frá árinu
1976 hefur hann verið fyrsti
lektor í hagfræði við Há-
skólann í Bergen.
Sumarloðnuveiðar Norðmanna
Leyft að veiða
777.000 tonn
Það hefur verið ákveðið að
sumarloðnuveiðar
Norðmanna hefjist þann 15.
ágúst og að síðasta skip
verði komið á miðin fyrir 19.
september. Heildaraflamagn
sem leyft verður að veiða er
777.000 tonn. Þessu
aflamagni verður skipt á milli
þeirra skipa sem fá leyfi og
þar tekiö tillit til stærðar
skipanna og eins hvort þau
nota snurpunót eða
togvörpu.
Jóhann E. Kúld
skrifar um
fiskimál
Framfarir í
nýtingu loðnunnar
Miklar framfarir hafa orðið í nýt-
ingu á loðnu hjá Norðmönnum síð-
ustu árin. Fyrir utan frystingu á
loðnuhrygnu og loðnuhrognum
fyrir japanskan markað sem hefur
aukist sökum stöðvunar á þessum
veiðum hér, þá er nú fryst mikið af
loðnu um borð í veiðiskipum á
miðunum sem loðdýra- og fiski-
fóður. Þá hófst framleiðsla á
loðnumeltu um borð í flotanum
fyrir hálfu öðru ári, og hefur hún
reynst góð í laxeldisfóður. Meltan
er í landi blönduð með fiskimjöli úr
nýju hráefni og fleiri bindiefnum
en síðan köggluð í þar til gerðri vél.
Þá eykst á hverju ári framleiðsla
norskra fiskimjölsverksmiðja á
sérstöku fiskimjöli sem notað er í
loðdýra- og fiskeldisfóður. Hráefn-
ið í þetta mjöl verður að vera glæ-
nýtt og ekki má nota neitt
rotvarnarefni. Þetta mjöl verður
að gufuþurrkast. Nú framleiða
Norðmenn þrjár tegundir af slíku
mjöli sem bera heitin „Nor Sea
Mink“, „Nors Abel“ og „Nor Sea
Mink L.T.“. Á nýafstöðnum
stjórnarfundi hjá Feitsildfiskernes
Salgslag sagði Hans A. Nordheim
forstjóri að Norðmenn þyrftu að
framleiða 100.000 tonn af slíku
mjöli á ári. Árið 1981 sagði fors-
tjórinn að 15% af hráefninu hefði
farið í framleiðslu á slíku mjöli og
1982 22%.
Síldveiðar og síldarmarkaðir
Meö þeim miklu síldveiöum
sem nú hafa verið leyföar í
Norðursjó, er sú hætta fyrir
hendiaö markaöurfyrirokkar
Suðurlandssíld þrengist.
Samkvæmt nýjustu fregnum,
hafa t.d. Norömenn fengið leyfi
til að veiöa á þremur tilteknum
svæöum í Norðursjó samtals
38.000 tonn og 4.000 tonn í
Skagerak eöa alls 42.000 tonn.
Þessu til viðbótar veiddu
Norðmenn 3.000 tonn af
stórsíld viö norsku ströndina í
maí-mánuði og stóö sú veiði
yfir aöeins í einn sólarhring.
Þessi veiði vartekin fyrir
sunnan 62. breiddargráöu og
var fita sumarsíldarinnar frá 21 -
25%. Þessi síldvarmeðmikilli
átu og var sett í lása til að losna
viðátuna.
Þá hefur verið leyft að veiða á
komandi hausti 205.000 hektólítra
(20.500 tonn) af norskri vorgotsíld,
þeim stofni sem áður gekk á miðin
hér fyrir Norðurlandi. Þá er búist
við að leyft veröi einnig að veiða í
haust 10.000 tonn af síld af Þránd-
heimsfjarðarstofni. Útgerðarmenn
ogsjómenn vildu fá að veiða 20.000
tonn af þessum stofni. Ef þetta
gengur eftir sem nú hefur verið ák-
veðið um síldveiði Norðmanna í ár,
þá yrði samanlögð síldveiði þeirra
75.500 tonn, í það minnsta. Norski
fiskimálastjórinn hefur gefið út
reglugerð þar sem norskum
skipum er aðeins heimilt að veiða
síldina til manneldis en ekki í
bræðslu og fram tekið að veiðar
verði stöðvaðar sé markaður ekki
nægjanlegur. Komi síld að landi
sem ekki telst hæf til manneldis að
dómi norska síldarmatsins, þá má
selja hana til mjöl- og lýsisvinnslu.
Síldveiði Norðmanna í Skagerak
er þegar hafin. Gert er ráð fyrir að
eitthvað af norskri nýrri síld verði
selt í Danmörku til vinnslu þar og
líka til rússneskra verksmiðjuskipa
á Norðursjó. Af fyrstu 7.000 tonn-
unum sem Norðmönnum var úth-
lutað fékk útgerðin leyfi til að selja
3.000 tonn um borð í verksmiðju-
skip. Skosk veiðiskip munu einnig
selja nýja síld til þessara skipa.
Annars er gert ráð fyrir að meiri-
hluti norsks síldarafla úr Norðursjó
verði lagður á land í norskum
höfum.
Þaó á sjáanlega
að vanda verkunina
á vorgotsíldinni
Það er eftirtektarvert að ekkert
skip sem er stærra en 110 fet fær að
veiða vorgotsíldina á komandi
hausti, með nót. En með nót verð-
ur leyft að veiða 125.000 hektó-
lítra. Þá hef ég fregnir af því, að
dælur verði ekki notaðar við losun
úr nót, heldur háfar.
Með þessu móti fæst mikið betra
hráefni í alla vinnslu, þar sem síldin
losnar við mar, sem algengt er að
komi við dælingu. Með netinu
verður leyft að veiða 80.000 hekto-
lítra.
Til viðbótar þessum kvóta af
vorgotsíldinni er mönnum leyft að
veiða síld til eigin heimilisnota í eitt
lagnet sem er allt að 30 metrum á
lengd.
Norskur bátur
vekur athygli
Þetta er hinn litli norski vélbátur, sem vakið hefur mikla athygli.
Á undanförnum árum hafa
verið smíðaðar þúsundir af
litlum vélbátum úr plasti í
Noregi og eru framleiðendur
slíkra báta mjög margir
víðsvegar í landinu. Siíkir
bátar hafa verið ýmist
framleiddir til fiskveiða við
ströndinaeðatil
skemmtiferða ogsumirtil
hvorutveggja. Nú á þessu
vori var einn slíkur lítill
fiskibáturkynnturí
sjávarplássum frá
Kristianssundiá
Norðurmæri suðurtil
Bergen.
Báturinn er framleiddur í Kristi-
anssundi af framleiðanda þar sem
löngu er orðinn landskunnur og
hafa bátar þessa framleiðanda
gengið undir nafninu Mörebas.
Þessi bátur sem nú hefur vakið
sérstaka athygli hefur hlotið nafnið
„New Deal“ og gæti ég hugsáð mér
að nafnið sé miðað við kynningu á
erlendum mörkuðum. Þessi um-
ræddi litli plastvélbátur sem nú hef-
ur vakið sérstaka athygli í Noregi,
er 32 fet á lengd, með 40 hestafla
vél og með járnkjöl sem vegur 1700
kg. Þrátt fyrir þetta lirla vélarafl er
ganghraði bátsins þegar hann ér
tómur 8.5 mílur. Með 1.5 tonna
lest gengur hann 8,2 mílur og notar
þá 8.23 lítra af díselolíu á klst. Sé
ferð bátsins minnkuð í 7,35 mílur
þá lækkar olíunotkun í 4,83 lítra á
klst. Sé báturinn með lest sem veg-
ur 5 tonn og ganghraði stilltur á 6,1
mílur þá lækkar olíunotkun niður í
2,59 lítra á klst. Þessi litla olíunot-
kun bátsins hefur vakið sérstaka at-
hygli nú þegar olía er dýr.
En galdurinn við þetta er sá, að
lagið á sjálfum bátsskrokknum er
þannig að mótstaðan í sjónum
verður mjög lítil. Báturinn er
hannaður af hinum þekkta sænska
seglbátahönnuði Peter Norlin en
hann hefur tekið upp hið gamla
straumlínulag á bátsbotninn sem
var einkenni bestu seglskipanna,
sem liðu áfram og mættu lítilli mót-
stöðu í sjónum. Þá vekur það at-
hygli, að báturinn hefur óvenju-
stóra skrúfu sem er undir hekki
bátsins og er hægt að komast að
henni ofan frá gegnum lúgu ef svo
vill til að eitthvað fer í skrúfuna úti
á hafi.
Vinnuþilfar bátsins er 12 fer-
metrar sem verður að teljast gott á
svo litlum bát. I bátnum er svefn-
pláss fyrir 4 menn, en annars eru
oft 2 menn við fiskveiðar á svona
litlum bátum í Noregi. Bátur sá
sem hér um ræðir, var smíðaður
fyrir Per Farmo skipstjóra og af-
hentur honum í nóvember á s.l.
hausti. Síðan hefur báturinn verið í
notkun og skipstjórinn búið um
borð í bátnum helming af tíma-
unum sem Norðmönnum var út-
hlutað fékk útgerðin leyfi til að selja
opið haf og lenti i allskonar veörum
þegar ýmsir stærri bátar lentu í erf-
iðleikum. Per Farmo segir að þetta
sé afburðabátur, enda sé hann
hannaður samkvæmt skrokklagi
bestu seglskipanna sem fékkst í
gegnum langa þróun þar sem byggt
var á reynslu.