Þjóðviljinn - 07.07.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júlí 1
Fráskilda“ sagði Gerður og mundaði straujárnið. Bakvið hana eru Áslaug, Anna og Sigrún.
Ertu lagin(n)
íhöndunum?
Fáðu þér þá bás
I
Básum
Lítil flík eftir Önnu.
Uppi álofti ílitlu,
gömlu timburhúsi viö
Laugaveginn er verið að
lagakaffi. Ilmurinn
teymir okkur upp á loft. Á
stóru skilti stendur
„Básar“ og við spyrjum
konuna með
kaffikönnuna hvað hér
sé á ferð:
„Jú, hér á að leigja út bása í
framtíðinni fyrir fólk sem vill
selja einhvern heimaiðnað. Ég
sel hér ýmiss konar fatnað sem ég
hef hannað, smávörur, brauð og
múslí sem ég hef ristað sjálf“
segir þessi myndarkona, og
kveðst heita Anna Björnsdóttir.
Það er Gerður Pálmadóttir í
Flónni sem hefur þetta húsnæði á
leigu og ætlaði upphaflega að
reka þarna kaffihús.
„En lofthæðin var ekki nægileg
til að leyfilegt væri að pissa hér í
klósettið. Fallhæðin of lítíl,—skil-
urðu,“ segir Gerður þegar við
hittum hana í einum básanna.
„Þá datt mér í hug að það væri
sniðugt að nýta þetta fallega hús-
næði fyrir fólk sem langar til að
búa eitthvað til og selja. Ekki
bara fyrir konur, heldur ekki síð-
ur fyrir karlmenn. Menn eru að
dunda ýmislegt heima hjá sér og
nú er tækifærið og koma því í
dagsljósið. Leðurvörur, skart-
gripir, myndlist af ýmsu tagi, allt
kemur tií greina, - og hér getur
fólk haft aðstöðu til að vinna. Við
ætlum að koma hér upp sauma-
aðstöðu. Og svo pressum við fyrir
fráskilda.“ segir Gerður og sýnir
okkur forláta straujárn frá fyrri
hluta aldarinnar.
„Égvarsvo heppin aðrekast á
tvær slyngar stúlkur, Áslaugu og
Sigrúnu og þær hafa tekið þennan
rekstur að sér. Við höfum þegar
fengið hingað vörur sem unnar
eru af nemendum í Iðnskólanum,
auk barnafatnaðar og ýmiss kon-
ar vöru sem þær Sigrún og Áslaug
hafa unnið. Hér verður ódýrt að
fá bás á leigu og hér rignir
aldrei,“ sagði Gerður að lokum.
„Básar“ eru nánar tiltekið á
Laugavegi 21 og verður opið til
að byrja með frá 1-6, síminn er
31941 (á kvöldin). þs
Anna I eldhúsinu. Músli í krukkum fremst á myndinni. Ljósm. —
Leifur.
Básinn hjá Iðnskólanemum.