Þjóðviljinn - 07.07.1983, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júlí 1983
NOWIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Jtitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson,
Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason,
Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson,
Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Útkeyrsla, afgreiðsla og augiýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Afleitur
málstaður
• Bandaríkin fæddust fyrir röskum tvö hundruð
árum í þversögninni miðri ef svo mætti segja: lands-
feðurnir, sem höfðu gert uppreisn gegn voldugasta
stórveldi þess tíma, settu saman róttækustu frelsis-
skrá sem menn þá þekktu. En þessir sömu róttæku
landsfeður amrískrar byltingar voru sjálfir þræla-
haldarar og fannst ekkert sjálfsagðara.
• Margt breytist á tveim öldum, en samt fylgir þessi
þversögn bandarískum veruleika í nýrri mynd.
Bandaríkin hafa lagt frelsisbaráttu þjóða dýrmætan
liðsauka eins og til að mynda í síðustu heimsstyrjöld.
En þau hafa líka í krafti efnahagslegra ítaka og
hervalds tekið þátt í að koma til valda, ekki síst í Mið-
og Suður-Ameríku, ýmsum þeim einræðisstjórnum
sem spilltastar hafa verið og grimmastar, lengt líf
slíkra stjórna með margháttaðri aðstoð, séð þeim
fyrir vopnum og sérþekkingu til að bæla niður frelsis-
hreyfingar, þau hafa einnig tekið þátt í að steypa
stjórnum sem þeim þóttu vinstrisinnaðar og þar með
skaðlegar bandarískum hagsmunum, pólitískum og
viðskiptalegum.
• Af þessari íhlutun er til löng saga og herfileg - það
mætti minna á bandaríska aðild að því að lýðræðið
var ráðið af dögum í Guatemala 1954 og hafa lengst
af síðan ráðið fyrir því landi blóðugar harðstjórnir,
það má minna á valdarán hersins í Chile fyrir tíu
árum og margháttaðan stuðning og fyrirgreiðslu
stóra bróður í norðri við valdaræningjana þar. Og
þessi saga er enn að gerast eins og vaxandi stuðning-
ur Reaganstjórnarinnar við ógnarstjórnina í E1 Salv-
ador sýnir, sem og það tilræði sem nú er gert við
vinstristjórnina í Nicaragua...
• Við vitum ekki á þessari stundu hvað George
Bush varaforseti Bandaríkjanna ræðir um við ís-
lenska ráðamenn meðan hann gistir landið - fyrir
utan það peningastreymi til framkvæmda fyrir her-
inn sem boðað hefur verið. En það má ráða af
Norðurlandablöðum, að Bush er einn af mörgum
sendimönnum sem Reaganstjórnin gerir út til Evr-
ópu til að útskýra og reyna að réttlæta þá stefnu sína
gagnvart löndum Rómönsku Ameríku sem brýst um
þessar mundir fram með herfilegustum hætti í E1
Salvador. Og það er þá alveg sérstök ástæða fyrir því,
að hver sem vettlingi fær valdið láti þennan
ábyrgðarmann stórveldis heyra afstöðu til þessara
mála. Því að það er einmitt Reaganstjórnin sem hef-
ur gengið lengra en fyrri stjórnir bandarískar í því að
réttlæta stuðning sinn við afturhald og mannréttinda-
brot í Rómönsku Ameríku með því að rekja alla
pólitíska ókyrrð þar í álfu til utanaðkomandi undir-
róðurs. Og ýta þar eftir til hliðar skilningi á því að
uppreisnir fátækra og kúgaðra þar í álfu hefjast ekki
vegna tilmæla frá Kúbu eða Moskvu, heldur rísa þær
af gífurlegu þjóðfélagslegu óréttlæti, sem bandarísk-
ir auðhringir og herskólar hafa tekið þátt í að móta
og styrkja.
• Boðskapur Reaganstjórnarinnar um að „hefð-
bundnar einræðisstjórnir“ geti verið þolanlegur
kostur hefur ekki átt miklum vinsældum að fagna í
Evrópu. Það hefur til dæmis gerst í sambandi við E1
Salvador, að flestir flokkar sósíaldemókrata hafa
tekið þátt í að fordæma framgöngu Bandaríkjanna
þar í landi. Þetta hefur farið mjög í taugarnar á
Reaganstjórninni - einkum vegna þess að mótmælin
eru þá komin langt út fyrir þau öfl, sem reynandi væri
að stimpla sem „kommúnísk“ eða „andamerísk“.
Þessvegna eru réttlætingarmeistarar gerðir út af örk-
inni hver af öðrum - nú síðast Bush varaforseti, og
eiga að tala um fyrir mönnum. Við skulum vona að
hann hafi ekki erindi sem erfiði. -ÁB.
Bandaríski herinn fær sam-
kvæmt samkomulaginu afnot af
flugstöðinni í svokölluðum
neyðartilvikum. Hver á að meta
þau tiivik? Hallgrímssyni vafðist
tunga um tönn þegar hann var
spurður um það atriði. Allir vit".
líka, að það er ekki íslendinga að
meta þau tilvik, heldur verða
Bandaríkjamenn einir um það. í
hverju einasta húsfélagi í landinu
er kveðið á um það í samningi
hversu sameignin skuli skiptast
og afnotaréttur af henni nákvæm-
leg tíundaður. En í þessu fyrir-
tæki sem kostar á annan miljarð
íslenskra króna segir aðeins að
Bandaríkjamenn fái afnot af flug-
stöðinni - í neyðartilvikum.
Stíflur og œðahnútar
íslenska ríkisstjórnin hefur
vandað tímasetningu
klukkutímafundarins hjá utan-
ríkisnefnd óvenju vel. Daginn
sem varaforseti Bandaríkjanna
kemur í opinbera heimsókn til ís-
lands. Eftir hádegi var þegar hó-
að í blaðamenn og samkomulagið
undirritað: sendiherra Banda-
ríkjastjórnar og utanríkisráð-
herra Islands - og aðmírállinn á
Keflavíkurherstöðinni hrósaði
sigri. Gleðibros færðist yfir andlit
valdsmannanna.
Eitt stykki flugstöð
Utanríkisnefnd alþingis var
kölluð saman til skyndifundar á
þriðjudaginn. Varaformaður
nefndarinnar Kjartan Jóhanns-
son kallaði nefndina saman, en
hún var kosin á síðasta kjörtíma-
bili. Formaður nefndarinnar
Geir Hallgrímsson hafði skipt um
hlutverk og mætti á fundinn sem
utanríkisráðherra hinnar ís-
lensku ríkisstjórnar.
Fundarefnið var einfalt; af-
greiðsla löggjafarvaldsins á flug-
stöð, sem talin er kosta á annan
miljarð íslenskra króna. Nánar
vita menn ekki um það mál, því
engar kostnaðaráætlanir liggja
fyrir um þessa flugstöð. Það er
heldur ekki vitað um stærð henn-
ar eða framkvæmdahraða. Engar
teikningar eða nánari uplýsingar
lágu fyrir á fundi utanríkis-
nefndar. íslenskir alþingismenn í
utanríkisnefnd lögðu því blessun
sína yfir fyrirtækið að óséðu. Þeir
vissu ekki annað en það að þeir
voru að afgreiða eitt stykki flug-
stöð.
/ neyðartilvikum
Ragnar Arnalds þingflokks-
formaður Alþýðubandalagsins
mætti á þennan fund fyrir hönd
bandalagsins og mótmælti sam-
komulagi Bandaríkjastjórnar og
þeirrar íslensku. Flugstöðin stóra
krefðist erlendra lána og væri
alltof dýr. „Jafnframt er þessu
mannvirki, sem auðvitað ætti ein-
göngu að vera íslenskt sam-
göngumannvirki, flækt inn í
hernaðarnet Bandaríkjamanna
sem fá full afnot af byggingunni
þegar þeim hentar - á svoköll-
uðum neyðartímum“, sagði
Ragnar í viðtali við Þjóðviljann í
gær.
Ragnar Arnalds fór fram á
frestun afgreiðslu þessa máls þar
til frekari upplýsingar lægju fyrir
og fleiri gætu fjallað um málið.
Þar talaði hann fyrir daufum eyr-
um. í því sambandi er hlutur A1 -
þýðuflokksmanna sérdeilis eftir-
tektarverður. Þeir eiga það til að
vilja betra upplýsingastreymi frá
stjórnvöldum og lýðræðislegri
vinnubrögð. En nú um stundir
klappa þeir stríðast þá steina sem
hin þjóðrækna ríkisstjórn Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks hefur
hlaðið í kringum sig. Þannig velja
þeir þögnina fram yfir upplýsing-
ar og lýðræði þegar flugstöðin er
annars vegar sem og í Alusuis-
semálinu á dögunum.
Hitt er með miklum eindæm-
um: upplýsingar um téða flugstöð
eru af mjög skornum skammti. í
grautargerð ríkisstjórnarinnar
með nefndaskipan alþingis og
skiptingu löggjafar- og fram-
kvæmdavalds er boðaður fundur
í nefnd sem kosin var af löggjaf-
arsamkomu sem hefur ekki
lengur umboð kjósenda. Tveir
nýkosnir þingflokkar eru útilok-
aðir frá upplýsingum og á-
kvarðanatöku um þetta mál, þ.e.
fulltrúar Kvennalista og Banda-
lags Jafnaðarmanna. Verið er að
leggja í fjárfestingu sem þýðir er-
lend lán frá 600 miljónum til 900
miljóna - og ekkert vitað nánar
um það. Engar teikningar eða
áætlanir liggja fyrir. Alþýðu-
flokkurinn hleypur í björgin enn
einu sinni og þingræðið fótum
troðið (framhaldssaga ríkis-
stjórnar Geirs Hallgrímssonar og
Steingríms Hermannssonar).
Hvaða stjórnarfyrirkomulag er í
þessu landi?
-óg
George Bush
og grœnar baunir
Málgagn forsætisráðherra,
Tíminn, segir í myndatexta í gær:
„í gærkvöldi hélt George Bush
varaforseti Bandaríkjanna hóf á
Hótel Sögu.“ Að vísu er það
rangt, því það var Steingrímur
sem hélt þetta hóf. En textinn
leiðir hugann að því hvort Tíminn
hafi talið að flugstöð væri ekki
nóg, hvort varaforseti Bandaríkj-
anna hefði einnig átt að borga
grænu baunirnar ofan í Steingrím
og hitt tignarfólkið?
Réttið upp hendi...
Þegar mótmælendur gengu
sem leið lá að bandaríska sendi-
ráðinu frá útifundinum vel
heppnaða á Lækjartorgi mætti
hann fríðri sveit lögreglumanna
og fjölmennri. Þá hrópaði einn
göngumanna að lögregluhópn-
um: „Réttið upp hendi sem eruð í
Víkingasvcitinni!!“ Enginn lög-
reglumaður gaf sig fram, en
sumir urðu rauðir í framan.
Bush ánægður
Það er mikill fögnuður ríkjandi
hjá Framsóknarflokki og Sjálf-
stæðisflokki þessa dagana. Geir
Hallgrímsson þakkaði sérstak-
lega framlag Ólafs Jóhannes-
sonar í flugstöðvarmálinu og
kvað sig aðeins hafa lokið við
verkið. Ólafur á stærstan heiður
skilinn.
Ríkisstjórnin gerir allt sem
hugsast getur til að þóknast
Bandaríkjastjórn og tignarmann-
inum. Hún má meir að segja eiga
von á offiseranafnbótum og
verðleikaorðum.
DV segir enda í fyrirsögn í gær:
Bush ánægður með nýju stjórn-
ina. Þóþaðnúværieftiralltþetta.
Ekki Jesús Kristur
Svarthöfði skrifar í gær um
Bush og þá veislu sem gjöra skal.
Svarthöfði kemst að þeirri mann-
fræðilegu niðurstöðu: „Hann er
ekki Jesús Kristur fremur en
aðrir Bandaríkjamenn“ þrátt
fyrir það er hann góður gestur,
segir Svarthöfði og Bandaríkja-
menn „hafa lagt fram fé og mann-
afla frá stríðslokum til að halda
Vestur-Evrópu frá kommún-
isma“, - óg