Þjóðviljinn - 07.07.1983, Síða 5
Fimmtudagur 7. júlí 1983 J.JÓÐVILJ1NN - SÍÐA 5
Nú er hann farinn, CIA-
forstjórinn sem fluttist í stól vara-
forseta. Hann gekk um með
lýðræði á vörum, frelsi á tungu og
bros á sjónvarpsskermi. En á
fundum með íslenskum stjórnar-
herrum hafði hann aukinn hern-
að í hendi sér, kröfur um efldan
stríðsrekstur, bæði hér á landi og
annars staðar í veröldinni.
Fögnuður
Hvílíkur hátíðisdagur í
NATO-höllunum. Fagnaðar-
ræða úr Varðarferð var birt á út-
síðu Morgunblaðsins og endur-
prentuð til áréttingar næsta dag.
Helgistund í Utanríkisráðuneyt-
inu við Hverfisgötu þegar skuld-
binding Bandaríkjanna um tug-
milljónir dollara var staðfest með
penna Brements sendiherra. Síð-
an var haldið á Laufásveginn og
framkvæmdasamningurinn inn-
siglaður með klingjandi kampa-
vínsglösum: Skálagleði með sjálf-
um Bush.
„Góður gestur - tímamót"
Blessun CIA-forstiórans
boðuðu Morgunblaðið og Geir
Hallgrímsson í einum kór. í
Varðarræðunni tilkynnti for-
maðurinn að neiturnarvald Al-
þýðubandalagsins væri nú úr sög-
unni. Pess vegna væri hægt að
hefjast handa um framkvæmdir
við flugstöð og byggja risavaxna
eldsneytisbirgðastöð í Helguvík.
Bandaríkjunum yrði heimilað að
reisa þegar í stað öll þau
sprengjuheldu flugskýli sem ósk-
að hefði verið eftir. Öflugri
sprengjuþotur kæmu til landsins
á næstu misserum og nýjar her-
stöðvar búnar traustum njósna-
tækjum yrðu reistar fyrir norðan
og vestan.
„Bandaríska herinn í sérhvern
landshluta" er greinilega kjörorð
hinnar nýju byggðastefnu. Og
formaður Framsóknarflokksins
settist glaður að viðræðuborði
um framkvæmd hennar. Enda
hóf hann nú feril sinn sem starfs-
maður íslenskra aðalverktaka,
þótt flestir séu reyndar búnir að
gleyma því. Reyndar gilti það
sama um Geir okkar Hall-
grímsson.
Það sýnir því skemmtilega
samhengið í spilverkinu að tveir
fyrrverandi starfsmenn íslenskra
Ólafur
Ragnar
Grimsson
skrifar
aðalverktaka skyldu setjast að
samningaborðinu með Bush í
Stjórnarráðinu í gær. Á fundin-
um þeim var rætt um stórfelld-
ustu framkvæmdaumsvif Banda-
ríkjanna á íslandi í 30 ár. Allir
viðstaddir fögnuðu einlæglega að
neitunarvald Alþýðubandalags-
ins væri ekki lengur hindrun við
ríkisstjórnarborðið. Brosin voru
breið. Brautin hafði verið rudd.
Ferillinn
Gamli CIA-forstjórinn var
greinilega ánægður með að geta
nú bætt nýju landi á lista sinn yfir
árangursríkt spilverk Bandaríkj-
anna. Sá listi er reyndar orðinn
ærið langur. Verkefnaskrá CIA í
forstjóratíð Bush var fjöl-
skrúðug: Margvíslegar íhlutanir í
þágu hernaðarhagsmuna. Útgerð
á leyniherjum sem ætlað var að
granda framvörðum lýðræðis-
fylkinga. Mútur og njósnir.
Valdarán og afnám lýðfrelsis.
Fjárstuðningur við ógnarstjórnir.
Bandalag við herforingja sem
fangelsa og drepa réttkjörna full-
trúa fólksins.
Gesturinn Bush var nefnilega
um áraraðir æðsti prestur alls
hins versta í stjórnmálum verald-
arinnar. Hann stjórnaði frá degi
til dags háþróaðasta kerfi njósna,
spillingar, valdaráns og
morðsveita sem fundið hefur ver-
ið upp í veröldinni.
En auðvitað voru íslensku ráð-
herrarnir, gestgjafarnir góðu,
ekket að minnast á slíkt. Þeir
kunnu greinilega hina nauðsyn-
legu háttvísi. Og þeir létu sér
sæma að þegja um fleira.
Þögnin um Ei Salvador
Hin glæsilega gleiðbrosandi
heimsókn rann á enda án þess
nokkur íslensku ráðamannanna
hefði manndóm til að mótmæla
framgöngu Bandaríkjanna í E1
Salvador. Það höfðu þó margir
forystumenn í fyrri heimsóknar-
löndum Bush haft kjark til að
gera. En Steingrímur og Geir létu
sér sæma þögnina. Ekki eitt ein-
asta orð um örlög 30.000
óbreyttra borgara sem drepnir
hafa verið í E1 Salvador. Hvorki
hósti né stuna um fjárstuðning
Reaganstjórnarinnar, sem held-
ur herforingjastjórninni á floti,
né heldur þá sérþjálfun sem
bandarískir liðsforingjar veita
ógnarhernum í E1 Salvador.
Allur hinn siðmenntaði heimur
hefur fordæmt framgöngu
Bandaríkjanna í E1 Salvador.
Kirkjudeildir og prestasamtök
hafa mótmælt. Læknasamtök
hafa sett fram harða gagnrýni.
Mannréttindanefndir hafa sent út
bænarskjöl um baráttu gegn
stefnu Bandaríkjastjórnar. En ís-
lensku ráðherrarnir þegja. Sú
þögn er hrópandi. Hún segir
meira en margar ræður um þá
þjónslund sem þeir sýna ráðaöfl-
unum í Washington.
Kveðjan
Það er eðlilegt að Bush blessi
slíka bandamenn. Bándaríkin
þurfa einmitt á slíku liðsinni að
halda. Þögn um veruleikann en
málskrúð um blekkingarnar
henta stjórnarstefnunni best. Sú
rulla var greinilega klæðskera-
saumuð á Steingrím og Geir.
Brement og Bush veittu þeim
blessun sína. Heimsóknin inn-
siglaði að þáttaskil hafa orðið í
Stjórnarráðinu á íslandi.
Fundur
landshlutasamtaka
Raunhæft
átak í
vald-
dreifingu
Fundur formanna og fram-
kvæmdastjóra landshlutasamtaka
sveitarfélaga á Vestfjörðum, Vest-
urlandi, Suðurnesjum, Suður-
landi, Austfjörðum og Norður-
landi, sem haldinn var f Grímsey 2.
júlí sl. ræddi ítarlega um þá alvar-
legu þróun sem nú stendur yfir um
búsetu í landinu og getu sveitarfé-
laga til að standa fyrir nauðsynlegri
og vaxandi þjónustu.
í frétt frá fundinum segir að í-
búaþróun síðustu ára hafi verið
landsbyggðinni í vaxandi mæli í
óhag og að fjárhagsgeta sveitarfél-
aganna fari ört versnandi og að
sums staðar sé komið í óefni.
Fundurinn samþykkti að beina
þeim tilmælum til stjómvalda að
gert verði raunhæft átak í vald-
dreifingu til handhafa þess stjórn-
kerfis sem hefur næmasta tilfinn-
ingu fyrir þörfum þegnanna í
landinu, það er sveitastjómanna.
Fundurinn krefst þess að sveitar-
félögunumverði tryggðir tekju-
stofnarernægi fyrir lögbundnum
þörfum og vaxandi þjónustu.
Fundurinn bendir á þörf þess að
kerfisbundið verði unnið að eflingu
atvinnulífs og auknu átaki í iðnþró-
un. Fundurinn leggur áherslu á að
um leið og kosningaréttur verður
jafnaður og áhrifastaða lands-
byggðarinnar fer minnkandi á al-
þingi er nauðsynlegt að starfsemi
ríkisþjónustunnar verði færð nær
fólkinu og henni dreift um lands-
byggðina. Með öðrum hætti næst
ekki það jafnvægi sem stefnt er að
með jöfnun kosningaréttar.
W//7
LLL
blaðið
semvitnaðerí
Grænlendingar í blómasal
Hópur nágranna okkar frá
Grænlandi er kominn hingað til
lands til að skemmta á grænlensk-
um dögum í Blómasal Hótels Loft-
leiða. Listafólkið skemmtir á
hverju kvöldi fram til sunnudags,
en þá fara þau aftur heim til Græn-
lands.
Grænlendingarnir eru hingað
komnir í tilefni af því að í sumar
Grænlendingarnir fá sér snúning. Ljósm. -eik-
munu Flugleiðir halda uppi reglu-
bundnu áætlunarflugi til Narssar-
suaq á Grænlandi tvisvar í viku
með Boeing þotum. í tengslum við
þessar ferðir verður boðið upp á
gistingu í Artic hóteli og ýmsar
lengri og skemmri ferðir verða
farnar um nágrennið í fylgd ís-
lensks fararstjóra. Það kom fram á
blaðamannafundi á Hótel Loft-
leiðum af þessu tilefni, að hingað
til hafa útlendingar sóst mest eftir
ferðum til Grænlands. - Áhugi ís-
lendinga eykst þó stöðugt á Græn-
landsferðum, enda verður þeim
gefinn kostur á mjög ódýrum
Grænlandsferðum í sumar. Henrik
Lund, bæjarstjóri í Julianeháb
kom með Grænlendingunum hing-
að til lands og sagði hann að hér
væri um að ræða verðuga fulltrúa
grænlenskrar alþýðutónlistar, en
ekki atvinnutónlistarmenn. Efnt
verður til happdrættis í tengslum
við grænlensku dagana og boðið
upp á grænlenskan mat. þs
íslenskir svifdrekaflugmenn stóðu sig frábærlega í Skotlandi á fyrsta
mótinu sem þeir keppa á erlendis.
✓
Islenskir svifdrekaflugmenn
Sigruðu í Skotlandi
íslenskir svifdrekaflugmenn
tóku í fyrsta sinn þátt í móti er-
lendis um síðustu helgi. Árangur-
inn var með ágætum því i sameigin-
legri stigakeppni, báru þeir sigur-
orð af Skotum, írum og Vels-
mönnum. Mótið var haldið í Celtic
f Skotlandi og voru þáttakendur 50.
Isienski hópurinn samanstóð af sjö
manns.
Bestum árangri íslendinganna
náði Árni Gunnarsson íslands-
meistari. sem varð í öðru sæti, í
fjórða sæti varð Björn Matthíasson
og Einar Eiríksson í fimmta. Hinir
fjórir lentu í 10. til 17. sæti og verð-
ur það að teljast mjög góður ár-
angur.
I samanlögðum stigum urðu ís-
lendingar efstir með 5911 stig,
Skotar urðu í öðru sæti með 4245
stig, Velsbúar í þriðja sæti með
3885 stig og írar í fjórða sæti með
2851 stig.
Um næstu helgi tekur hópurinn
þátt í öðru móti í Skotlandi.
EÞ