Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN- Fimmtudagur 7. júlí 1983 Hagfrœðileg gagnrýni m. HLUTI Efnahagsaðgerðir ríkisstj órnarinnar Már Guðmundsson og Ragnar Árnason skrifa Orsakir efnahagsörðug- leikanna hér á landi Eins og útskýrt hefur verið í fyrri hluta þessarar greinar stafa núver- andi efnahagsörðugleikar hvorki af of háum launum né óhóflegum launakröfum. Það er hættuleg blekking að rekja efnahagsvand- ann til óbilgirni verkalýðshreyfing- arinnar, undanlátssemi atvinnu- rekenda og ósveigjanleika kjara- samninga eins og ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar gerir. Hinir miklu og þrálátu efnahagsörðug- leikar hér á landi eiga sé auðvitað miklu dýpri rætur. Þessar rætur er að okkar mati að finna í sjálfri gerð efnahagskerfisins og samspili þess við þær náttúruauðlindir, sem framleiðslustarfsemin byggist á. Þverbrestir íslenska efnahags- kerfisins birtast hvað skýrast í hin- um afar umfangsmiklu fjárfesting- armistökum, sem átt hafa sér stað hér á landi um Iangan aldur. Þessi fjárfestingamistök er að finna á flestum sviðum atvinnulífsins. Á síðari árum hafa þó tvö svið skorið sig sérstaklega úr að þessu leyti. Þau eru annars vegar hin gífurlega offjárfesting í fiskiskipaflotanum miðað við afkastagetu fiskistofna. Hins vegar eru hinar mjög svo dýru fjárfestingar í óhagkvæmum virkj- unarkostum ásamt tilheyrandi mis- tökum í orkusölusamningum til erlendra aðila. Enda þótt það sé nú almennt við- urkennt m.a. af flestum innlendum hagfræðingum, að stórfelld mistök í fjárfestingum hafi átt sér stað hér á landi á síðari árum, sýnist okkur, að nokkuð skorti á að stærðar- gráðurnar í þessu efni hafi komist nægilega vel til skila. Einfaldur milliríkjasamanburður kann að bæta hér úr skák. Undanfarna áratugi hefur fjár- festing í framleiðslutækjum hér á landi numið um 20% af þjóðartekj- um árlega. Sambærileg fjárfesting annarra þjóða á svipuðu efna- hagsstigi, þ.á m. hinna Norður- landanna, hefur hins vegar yfirleitt verið í námunda við 15% af þjóðartekjum þeirra. Sá hluti þjóð- artekna, sem varið er til fjárfest- inga á ári hverju, dregst beinlínis frá kaupmætti ráðstöfunartekna á því ári. Þessar þjóðartekjur, þ.e. þau 5%, sem fjárfest eru í atvinnu- lífinu hér á landi umfram það sem tíðkast erlendis, er m.ö.o. ekki unnt að nota til þess að bæta hag launafólks á því ári. En skila þessar miklu fjárfesting- ar okkar sér ekki í meiri vexti þjóðatekna er fram í sækir? Nei, því miður. Fátt varpar skýrara ljósi á óhagkvæmni fjárfestinganna hér á landi en sú staðreynd, að þrátt fyrir þriðjungi meiri fjárfestingu verðmæta í framleiðslustarfsemi árum saman hefur hagvöxtur hér á landi síður en svo reynst meiri en í sambærilegum löndum. Jafnvel sá mikli búhnykkur, sem felst í hinum stóraukna aðgangi sjávarútvegsins að auðlindum sjávarins í kjölfar út- færslna fiskveiðilögsögunnar á síð- asta áratug, hefur ekki megnað að hamla hér á móti. Áhrif hinna langvinnu fjárfest- ingarmistaka hér á landi á hag launafólks má að nokkru ráða af því, að færi fjárfesting í fram- leiðslufjármunum hér á landi niður í þau 15% árlega, sem algengust eru í nágrannalöndum okkar, væri með þeirri aðgerð einni unnt að auka raunverulegan kaupmátt launafólks um nálægt 7% á við- komandi ári. Þá er ekki tekið tillit til þeirra byrða, sem óhagkvæm- ustu fjárfestingarnar leggja á þjóðarbúið árum saman eftir að þeim er lokið. Orsakir fjárfestinga- mistakanna Fjárfestingamistökin hér á landi má, sem fyrr segir, rekja til þess skipulags í efnahagsmálum, sem hér hefur verið komið upp, og sam- spils þess við náttúruauðlindir landsins. Allt of langt mál er að lýsa þessum samböndum í smáat- riðum. Hér látum við okkur nægja að drepa á aðalatriðin. Efnahagskerfið hér á landi er í höfuðdráttum byggt á kapitalísku markaðsskipulagi. Einn af horn- steinum þess skipulags er, að atvinnurekendur ákveði sjálfir fjárfestingar í atvinnustarfseminni. Þetta gera þeir auðvitað í samræmi við sína eigin hagsmuni. Það er hins vegar ein af frægustu niður- stöðum markaðshagfræðinnar, að sé vissum hagrænum skilyrðum fullnægt verði fjárfestingaák- varðanir atvinnurekenda í sam- ræmi við almannaheill. Gallinn er einungis sá, að þessi hagrænu skil- yrði eru svo kröfuhörð, að því fer víðs fjarri að þeim sé nokkurs stað- ar fullnægt, hvað þá hér á landi. Annars vegar er vandinn sá, að undirstöðuatvinnuvegirnir, sjávar- útvegur og landbúnaður, byggjast í ríkum mæli á nýtingu svokallaðra sameiginlegra náttúruauðlinda, þ.e. fiskistofna sjávarins og gróðurlendi á afréttum landsins. Þegar um slíkt er að ræða er það eitt af traustustu lögmálum mark- aðshagfræðinnar, að atvinnurek- endur munu fjárfesta of mikið og ofnýta náttúruauðlindirnar, séu þeir látnir sjálfráðir. Þeim mun gjöfulli sem náttúruauðlindirnar eru þeim mun meiri verður offjár- festingin uns öllum hugsanlegum ábata af þeim hefur verið sóað. Annað skilyrði þess, að ákvarð- anir atvinnurekenda um fjárfest- ingargeti orðið í samræmi við al- mannaheill er að aragrúi smárra fyrirtækja starfi í hverri grein og samkeppnin sé ótakmörkuð. Hér á landi eru aðstæður hins vegar þær, að markaðurinn er mjög smár. Hér er í flestum greinum ekki rúm fyrir nema örfá fyrirtæki. Takmörkuð samkeppni, fákeppni og jafnvel sameiginleg verðmyndun fyrir- tækjanna eru því reglan fremur en undantekningin hér á landi. Við slíkar aðstæður er engin von til þess að ákvarðanir atvinnurek- enda um fjárfestingar verði í sam- ræmi við almannaheill, hvorki að umfangi né inntaki. Þessi tvö megineinkenni á ís- lensku efnahagslífi: hinn mikli þáttur endurnýjanlegra náttúru- auðlinda í framleiðslustarfseminni og smæð hagkerfisins, eru út af fyrir sig nægileg ástæða til að hafna því skipulagi fjárfestingarmála, að atvinnurekendur ráði þeim einir. Hér á landi hefur reyndar ekki skort opinber afskipti af fjárfest- ingamálum. Hins vegar hafa þessi afskipti því miður fyrst og fremst verið sniðin eftir þröngsýnustu hagsmunum atvinnurekendanna, einkum í þeim greinum, sem hafa öflugustu pólitísku tengslin. Hin opinberu fjárfestingaafskipti hafa því fyrst og fremst falist í því að afhenda atvinnurekendum aukið fjárfestingarfé á vildarkjörum og þannig ýtt undir rangar fjárfesting- ar fremur en hitt. f mörgum atvinn- ugreinum, t.a.m. landbúnaði og fiskveiðum, hefur verið byggt upp öflugt sjóðakerfi sem hvetur við- komandi atvinnurekendur til enn meiri offjárfestinga en þeir myndu að öðrum kosti kjósa. Jafnfrámt hefur atvinnurekendum árum saman verið boðið upp á stórkost- legan verðbólgugróða af fjárfest- ingum með hjálp neikvæðra vaxta af lánsfé og hefur það auðvitað ekki dregið úr fjárfestingagleði þeirra. Síðast en ekki síst hefur hið opinbera iðulega beitt sér fyrir van- hugsuðum fjárfestingaherferðum, einkum og sér í lagi í hinum hefð- bundnu undirstöðuatvinnuvegum, þar sem mesta tilefnið hefur verið til hins gagnstæða. Þegar á heildina er litið hafa op- inberar ráðstafanir í fjárfestinga- málum þannig í öllum megindrátt- um verið sniðnar eftir skammsýn- ustu óskum atvinnurekenda og yfirleitt aukið fjárfestingamistökin í stað þess að draga úr þeim. Meginforsenda þess, að unnt sé að auka hagsæld hér á landi er, að hin gríðarlega fjárfestingasóun verði stöðvuð. Það er aðeins unnt að gera með því að taka fjárfesting- aákvarðanir að verulegu leyti úr höndum atvinnurekenda. Tryggja þarf, að sameiginlegum verð- mætum landsmanna verði varið í samræmi við hagsmuni þeirra. Með því móti einu mun okkur tak- ast að láta hinar ríkulegu náttúru- auðlindir landsins bera þann ávöxt, sem efni standa til. Takist það er fyllsta ástæða til að ætla að hag- vöxtur hér á landi geti aukist veru- lega jafnframt því að mun stærri hluti þjóðartekna verði launafólki til ráðstöfunar. Afleiðingar efnahagsráðstafana ríkisstj órnar innar Hugleiðum nú hvaða afleiðingar efnahagsráðstafanir þær, sem ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa ákveðið að grípa til, hafa fyrir þann efna- hagsvanda, sem að framan hefur verið lýst. Efnahagsaðgerðirnar fela í sér stórfellda tekjutilfærslu frá launa- fólki til atvinnurekenda. Einkum fela aðgerðirnar í sér velgjörnað við útflutningsatvinnuvegina. Sjávarútvegurinn, sem barist hefur í bökkum vegna offjárfestingar miðað við afkastagetu fiskistofn- anna, er nú skyndilega gerður mjög arðbær á nýjan leik. Hin „efnahags-pólitíska" framsýni hinna fjölmörgu útgerðarmanna, sem lögðu í vonlausar fjárfestingar miðað við rekstrarskilyrði liðinna ára, er þannig staðfest. Þeir eru verðlaunaðir og rekstur þeirra gerður ábatasamur. Skilaboðin frá ríkisstjórninni eru ótvíræð. Atvinnurekendurnir í landinu þurfa ekki að gæta þess að fjárfesta á hagkvæman hátt. Reynist fjár- festingar ekki arðbærar mun ríkis- stjórnin láta þær skila hagnaði með því að færa verðmæti frá launafólki til viðkomandi fyrirtækja. Þessar síðustu efnahagsaðgerðir eru þannig einungis nýjasta varðan á velmerktri braut sérhvers meðal- greinds atvinnurekanda til gróða. Sú leið er að fjárfesta eins mikið og hratt og unnt er án tillits til arð- semi, en gæta þess hins vegar vand- lega að efla stéttasamtök atvinnu- rekenda og hinn pólitíska arm þeirra, Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokkinn. Sé þetta gert, mun ekki standa á gróðanum. Þannig sjáum við, að í stað þess að ráðast til atlögu við meginorsök efnahagsvandans, þ.e. hin gríðar- legu fjárfestingarafglöp, festa efnahagsráðstafanir ríkisstj órnar- innar hinar röngu fjárfestingar í sessi og hvetja jafnframt til frekari fjárfestinga af sama tagi. Það er þó ekki nóg með að efna- hagsaðgerðirnar hvetji til enn meiri offjárfestinga. Með því að lækka raunlaun í þeim mæli, sem að er stefnt, gera efnahags- aðgerðirnar tiltölulega vinnuafls- freka tækni miklu arðbærari en áður. Þar með eru atvinnurekend- ur ekki aðeins hvattir til offjárfest- inga heldur jafnframt til að fjár- festa í úreltri tækni. Þannig er enn frekar lagður grundvöllur að minnkandi framleiðni vinnuafls á komandi árum og lækkandi þjóðartekjum og þar með ennþá lægri raunlaunum en nú er. En efnahagsaðgerðirnar draga ekki aðeins úr framtíðarhagvexti efnahagskerfisins. Miklar líkur eru á því, að með þeim sé jafnframt lagður grundvöllur að enn meiri verðbólgu á komandi árum en við höfum átt að venjast til þessa. Á undanförnum árum og áratugum hefur í stórum dráttum ríkt visst samband á milli launa og þjóðar- tekna. Efnahagsaðgerðirnar fela í sér tilraun til að raska þessu sam- bandi verulega. Þessu er nánar lýst í línuriti 3. Línuritið sýnir sam- bandið á milli kaupmáttar launa og þjóðartekna á mann frá 1970 til 1982 ásamt horfunum í þessu efni á árinu 1983 skv. efnahagsráðstöfun- um ríkisstjórnarinnar. Línuritið sýnir, að með efnahagsaðgerðun- um er gerð tilraun til að færa hlut- deild launa í þjóðartekjum á mann niður fyrir áður þekkt mörk, og langt niður fyrir það jafnvægi í þessum efnum, sem hin hagrænu og félagslegu öfl hér á landi hafa skapað. Þessi öfl munu því vinna gegn viðleitni ríkisstjórnarinnar og reyna að snúa dæminu við. Það verður hins vegar einungis gert með enn magnaðri verðlags- kaupgjalds skrúfu en áður hefur þekkst. Ástæðan er sú, að bilið á milli þess, sem atvinnurekendur með fulltingi ríkisstjórnarinnar telja sitt og atvinnuiífið er nú í óða

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.