Þjóðviljinn - 07.07.1983, Síða 12

Þjóðviljinn - 07.07.1983, Síða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júlí 1983 BLAÐAUKI ________Rögnvaldur Gíslason forstödumadur efnadeildar Iðntæknistofnunar íslensk málning síst lakari en sú innflutta „ Það á við um mína deild sem og alla stofnunina að sú vinna sem hérferfram byggistfyrst og fremst á því að leysa hverskyns praktísk vandamál á sem skemmstum tíma. Hér fara ekki fram neinar grunnrannsóknir, heldurnýtist vinna okkar atvinnulífinu þegar í stað. A.m.k. er að því stefnt," sagði RögnvaldurGíslason deildarstjóri efna- og matvæladeildar Iðntæknistofnunar í spjalli við Þjóðviljann um verkefni þau sem efna-iðnaðardeildin innir af hendi. „Meginhlutverk okkar er að vinna að framgöngu íslensks iðnaðar, enda var stofnunin sett á fót í því skyni. Við reynum eftir fremsta megni að aðstoða alla þá sem hingað leita. Oftast koma menn hingað til að fá upplýsingar Rögnvaldur Gíslason. Finrrfasad STEINDI KftOSSVIÐURINN SEM STENDUR VÖRD UM HÚSIÐ WTT Finnfasad er finnsk úrvalsframleiðsla á veðrunarþolnum krossviði sem er sérstaklega húðaður steinmulningi og ætlaður til klæöningar utanhúss. Finnfasad hefur staðist veðrunarþolsprófanir Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins. C=7 m Finnfasad er góð lausn fyrir húsbyggjendur, húseigendurog aðra sem vantar sérstaklega sterka og veðrunarþolna „kápu“ utan á hús sín. Finnfasad fæst í stærðunum 119X280/ 119X300/ 119X360 Allar nánari upplýsingar góðfúslega veittar á staðnum og í símum: 11333 — 11420 TIMBURVERSLUN^M ARNA JÚNSSONAR & Co.HF LAUGAVEGI 148 um hitt og þetta og einnig er mikið um það að einstök fyrirtæki eða jafnvel einstaklingar biðji okkur um að vinna að einhverri tiltekinni rannsókn. Við störfum hér við allra handa rannsóknir. Hér fara fram veðraþolsprófanir á fjölmörgum efnum, samansettum eða ósaman- settum og hvað varðar efna- iðnaðardeildina þá fer allnokkuð af tíma starfsmanna í að rannsaka efni sem notuð eru við yfir- borðsmeðhöndlun. Það er ekki svo lítið mál að finna réttu efnin hverju sinni. Stórfé er í húfi.“ Akrýlplastmálningin olli byltingu „Straumhvörf urðu snemma á síðasta áratug, ég hygg uppúr ’74 þegar farið var að nota nýja tegund málningar á útveggi og tré. Þetta var hin svokallaða akrýlplastmáln- ing, vatnsþynnanleg með teygjan- legri þurrfilmu (filma er það lag sem málningin skilur eftir sig). Þessi málning leysti af hólmi gömlu olíumálninguna og eru helstu kost- ir hennar þeir að hún hleypir í gegnum sig raka og fylgir eftir hreyfingu viðarins. Olíumálningin, sem áður var nær eingöngu notuð, varð með aldrinum hörð og stökk, þó fyrst í stað eftir máiun hafi hún haldið teygjanleik sínum. Málning- araðferðirnar með olíumálninguna þekkja flestir en í undirmálningu var hún notuð þynnt, en nú færist það mjög í vöxt að sem grunnmáln- ing sé notað „fúavarnarefni" sem einhver snjall sölumaður nefndi svo og hefur nafnið hlotið hefð, þó miklu nær sé að kalla þetta viðan- varnarefni enda útleggjast erlendu heitin þannig ef þýdd eru á íslenska tungu. Með því að grunna með „fúavarnarefni“tekst yfirleitt veltil með málun. Ég tel mig geta mælt alveg sérstaklega með akrýlplast- málningunni enda hefur hún gefið mjög góða raun. Hún fæst í öllum málningarvöruverslunum undir ýmsum vöruheitum. Þegar menn kaupa málningu er það góð regla, sem við innprentum þeim sem hingað koma, að spyrjast fyrir um þurrefnisprósentuna í málningunni þegar gengið er til kaupa. Þurrefn- ið er það sem eftir verður þegar búið er að þekja, en hin ýmsu efni s.s. terpentína eða vatn gufa upp, enda er þeirra hlutverk að halda málningunni í því ástandi svo hægt sé að bera hana á. Steinveggir hér á landi hafa á undanförnum árum verið málaðir með plastmálningartegundum sem hafa sömu eiginleika og vatnsþynn- anlega akrýlplastmálningin, sem borin er á við. f seinni tíð hefur sendin plastmálning rutt sér mjög til rúms, en bætiefnin í þeirri máln- ingartegund eru annarsvegar fín- gerður sandur og hinsvegar öllu grófgerðari sandur sem gefur málningunni hrjúfa áferð og þekkja flestir hana undir nafninu Hraun. Fíngerðari málningin var í fyrstu notuð í grunnmálun, en menn tóku brátt eftir ágætum eiginleikum hennar. Er hún notuð sem aðaláferð á steypta veggi.“ Hvaða dóm leggur Iðntækni- stofnun á sflikonefni sem nú eru mikið notuð? „Sflikonefnin hafa verið mjög til umræðu bæði hér á Iðntæknistofn- un sem og annarsstaðar. Ýtarlegar rannsóknir liggja ekki fyrir um notagildi þess efnis. Mér sýnist að sílikon geti verið hentugt að nota á útveggi, ef ekki á að mála yfir. Þá má ætla að sflikon efnið henti vei í fíngerðar sprungur." Veðrunarprófanir eru snar þátt- ur í starfseminni á efnafræði- deildinni. Hver er raunverulegur árangur slikra prófa? „Við höfum tekið í notkun tæki sem líkir eftir aðstæðum hér á landi og á hin margvíslegustu efni, plast- efni, steinefni, tré og síðan ef borið er á t.d. við „fúavarnarefni“, ýmsar tegundir málningar. Tækið fram- kallar útfjólublá ljós og regnvatn og á einum mánuði getur það sýnt veðrun eins og hún verður eftir nokkur ár. Hagnýti þessara próf- ana má deila um þar sem mismun- andi efni duga misjafnlega við hin- ar ýmsu aðstæður. Gagnsemi veðrunarprófa má merkja með því að bera saman efni sem við vitum þegar hvernig stenst hinar marg- víslegustu aðstæður og síðan þau efni sem farið hafa í veðrunar- prófun.“ Margvíslegustu efni, klæðning- ar, málningartegundir o.s.frv. eru á markaðinum. í sumum tilvikum innflutt og í öðrum framleidd hér- lendis. Hvernig standa íslensku vörurnar sig í samanburði við þær innfluttu? „Fjórir stærstu málningarfram- leiðendur hér á landi, Harpa hf., Málning h.f., Slippfélag Reykja- víkur og Sjöfn, svo dæmi séu tekin eru öll með efnafræðing einn eða fleiri, í þjónustu sinni, hafa þekk- ingu, reynslu og standa innflytj- endum fyllilega á sporði svo ekki sé meira sagt. Mér hefur stundum fundist sumir innflytjendur ekki hafa nægilega þekkingu á þeirri vöru sem þeir eru að flytja inn. Á hinn bóginn leggja þeir mikið upp úr auglýsingum sem oft vilja verða heldur skrumkenndar. Ég get nefnt dæmi um vissar tegundir málningar með þekjandi „fúavarn- arefnum“ sem eru að sumu leyti betri málning en gamla olíumáln- ingin, en ekki jafn góð og sendna plastmálningin eða aðrar vatns- þynnanlegar plastmálningar. Við hér á Iðntæknistofnun erum hins- vegar hlutlausir rannsóknaraðilar og gerum ekkert upp á milli teg- unda; íslenskt eða erlent er ekki heila málið, heldur gæði vör- unnar,“ sagði Rögnvaldur. Hann hefur mörg jám í eldinum um þessar mundir. Undirbýr endurmenntunarnámskeið fyrir iðnaðarmenn auk annarra fræðslu- og útbreiðslustarfa fyrir Iðntækni- stofnun þar sem hann hefur starf- að síðastliðið 11 /2 ár. — hól.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.