Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 15
BLAÐAUKI Fimmtudagur 7. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Nokkrir fróðleiks- molar um vind- þéttingu Aðaltilgangur vindþéttilegans er að hindra að blási eða gusti inn í einangrunarefnin. Slíkur blásturdregurúr einangrunarhæfni efnisins. Sem vindþéttileg er oftast notaðurpappi eðaviðarplötur. í vissum tilvikum fylgir vindpappi einangrunarplötum þótt slíkt sé fátítt hérlendis. Þegar vindþétting er gerð með sérstöku pappalagi skal ganga frá samskeytum með góðri skörun. Pappann skal festa tryggilega þannig að hann blakti ekki. Pappi sem notaður er sem vindþétting við lóðrétta eða hallandi klæðningu skal klemmdur við undirlagið og öll samskeyti skal klemma á milli stífra efna. Til að vindþétting í horni milli IR-myndavélin (Infrarauð) sem keypt var frá Svíþjóð og kostaði 750 þúsund komin til Rannsókn arstofnunar. Hún finnur alla mögulega galla á efni. Það er starfsmaður Rannsóknarstofn- unar byggingariðnaðarins, Bergsveinn Jóhannsson, sem heldur á tækinu. Múrhúðunarefni tilvatnsþéttingar Steinprýði h/f, Smiðshöfða 7 í Reykjavík hefur einkaumboð á ís- landi fyrir vörur fró fyrirtækinu Thoro, standard dry wall products. Eins og nafnið bendir til eru það vörur sem halda eiga steinveggjum þurrum, þ.e. ýmis múrhúðunar- efni til vatnsþcttingar. Efnin eru ýmist í vökvaformi eða duft sem blandað er með vatni. Sem dæmi um efni sem Steinprýði h/f flytur inn er sementsefnið Thoroseal. Pað er sérstaklega gert til að vatnsþétta veggi ofanjarðar sem neðan. Eigin- leikar efnisins eru þeir að veggur- inn „nær að anda“ þannig að rak- inn safnast ekki á bak við, eins og gerist þegar málað er. Efnið er bor- ið á með sementskústum þegar bú- ið er að blanda það en fyrst er veg- gurinn úðaður með vatni. Efnið er blandað eins og þykkur grautur, borið þykkt á og síðan slétt úr því. Efni þetta er til í níu litum, og er sagt læsa sig langt inn í múrveggi og verða í raun hluti af honum. Thoro verksmiðjan var stofnuð 1912 og er sögð brautryðjandi í þéttiefnum sem hafa staðist erf- iðustu prófanir. Fjöldi annarra vatnsþéttiefna frá Thoro fást í Steinprýði. veggjar og þaks komi að fuilu gagni er sérstaklega mikilvægt að frá- gangur sé rétt hannaður og fram- kvæmdur. Þessi tenging veggjar og þaks er ávallt erfið og allt of oft ófullnægjandi gerð. Með þeim tækjum sem nú eru notuð við rann- sóknir á einangrun og löftleka er unnt að sýna hvernig ófullkominn frágangur veldur loftleka inn í hús og milli einangrunar og loft- klæðningar. Þær viðarplötur sem notaðar eru mest sem vindþétting eru 12 mm asfalttex, olíusoðið masonite 4 mm þykkt og 6 mm krossviðsplötur. Nauðsynlegt er að slíkar plöturséu skeyttar saman á miðjum stoðum og negling þeirra þétt. Helst skal nota heitgalvaníseraða nagla með stórum haus. Við notkun viðarplatna skal lögð áhersla á notkun raka og veðurþol- inna platna. Oft getur liðið langur tími frá uppsetningu þeirra þar til endanleg klæðning kemur yfir. (Upplýsingar fengnar hjá Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðar- ins) FAGMENNIRNIR VERSLA HJÁ OKKUR Þvi að reynslan sannar aö hjá okkur er yfirleitt til mesta úrval af vörum til hita- og vatnslagna. BURSTAFELL byggingavöruverslun Réttarholtsvegi 3 simi 38840 Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garðabæ onnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmiöi. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 ÞAKMÁLNING SEM ENDIST málninghf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.